Valdemar Jónsson (1865-1949) Þramar-Valdi
- HAH04974
- Person
- 2.4.1865 - 11.2.1949
Valdemar Jónsson 2. apríl 1865 - 11. febrúar 1949 Húsbóndi á Blönduósi 1930. Verkamaður Blönduósi. Þramarholti 1930, Böðvarshúsi 1940 og 1941 og Vinaminni 1947.
Valdemar Jónsson (1865-1949) Þramar-Valdi
Valdemar Jónsson 2. apríl 1865 - 11. febrúar 1949 Húsbóndi á Blönduósi 1930. Verkamaður Blönduósi. Þramarholti 1930, Böðvarshúsi 1940 og 1941 og Vinaminni 1947.
Valdemar Sigurðsson (1935-1990) Rennismiður og verksmiðjustjóri, bús. í Mosfellsbæ.
Grímur Valdemar Sigurðsson f. 12.8.1935, d. 6.1.1990. Rennismiður og verksmiðjustjóri, bús. í Mosfellsbæ.
Valdemar Thorarensen (1941-2017) Húsasmíðameistari í Reykjavík
Valdemar Eiðsson Thorarensen 22. apríl 1941 - 14. maí 2017. Húsasmíðameistari í Reykjavík
Valdimar Eylands (1930-2005) Fönix, Arizona
DR. JON VALDIMAR EYLANDS Passed away in Phoenix, AZ on March 31, 2005. Born in Minot, ND on November 21, 1930. He is survived by his loving wife Barbara; sons, Val, Kurt and Kris and their families; sisters, Dolores Lawler, Elene Oakley and Lilia Day and their families. A memorial service will be held in Grand Forks, ND on April 9.
As published in the Winnipeg Free Press on Apr 07, 2005.
Dr. med, prófessor í Minot N Dakota, Maki; Barbara Eylands
Valdimar Geir Jóhannsson (1986) Holti
Valdimar Guðmannsson (1952) Bakkakoti
Valdimar Jóhannesson (1933-1997) Helguhvammi
Valdimar Jóhannesson var fæddur í Helguhvammi á Vatnsnesi í V-Hún. 7. júní 1933. Hann varð bráðkvaddur 26. maí síðastliðinn.
Foreldrar hans voru hjónin Jóhannes Guðmundsson, bóndi, f. 30. sept. 1904, og Þorbjörg Marta Baldvinsdóttir, f. 10. nóv. 1897. Þau bjuggu allan sinn búskap í Helguhvammi. Bræður Valdimars eru Guðmundur, f. 4. júní 1934, kvæntur Helgu Magnúsdóttur, og Eggert, f. 31. ágúst 1939, kvæntur Auði Hauksdóttur. Fóstursystir hans er Halldóra Kristinsdóttir, gift Ólafi Þórhallssyni.
Eftirlifandi kona Valdimars er Guðrún Bjarnadóttir frá Hraðastöðum í Mosfellsdal, f. 25. april 1941. Þau eignuðust tvær dætur,
Þorbjörgu, f. 5. júní 1978, og Þuríði, f. 26. maí 1981.
Börn Guðrúnar frá fyrra hjónabandi eru þrjú:
Þorvaldur, f. 20. des. 1965,
Úlfhildur, f. 29. mars 1967, og
Jóhanna, f. 24. maí 1968.
Valdimar átti alla ævi heima í Helguhvammi. Hann ólst þar upp hjá foreldrum sínum og fór ungur að taka þátt í öllum störfum við búskapinn. Á unglingsárum vann hann ýmis störf utan heimilis. Var til dæmis við vertíðarstörf á Akranesi og vann á jarðýtum Búnaðarsambandsins. Starfsvettvangur hans var þó aðallega heima í Helguhvammi. Þar ráku þeir bræðurnir Valdimar og Guðmundur ásamt Jóhannesi föður sínum myndarlegt bú. Guðrún Bjarnadóttir kom að Helguhvammi árið 1976. Jóhannes lét upp úr því búið í hendur sona sinna og byggðu þau Valdimar og Guðrún þá fjótlega annað íbúðarhús á jörðinni. Þar hafa þau búið síðan með fólki sinu.
Fyrir nokkrum árum fór Valdimar að kenna nokkurs sjúkleika og þótti þá sýnt að hann þoldi illa erfiðið við bústörfin. Hætti hann þá búskap en hóf störf hjá Kaupfélaginu á Hvammstanga og þar starfaði hann til dauðadags.
Valdimar Jóhannsson (1929-1999) frá Ósi á Skaga
Valdimar Rósinkrans Jóhannsson fæddist að Ósi í Skagahreppi, Austur-Húnavatnssýslu, hinn 1. júlí 1929. Var í Jóhannshúsi, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Verkamaður, síðar bæjarverkstjóri. Síðast bús. í Reykjavík. Hann lést á heimili sínu í Álftamýri 2, 19. júlí 1999.
Jarðarför Valdimar fór fram frá Háteigskirkju 29.7.1999 og hófst athöfnin klukkan 13.30.
Valdimar Jónsson Eylands (1901-1983) prestur Kanada
Nemi í Menntaskólanum í Reykjavík. Fór vestur um haf 1922. Lauk guðfræðiprófi. Prestvígður 1925. Var í Makoti, Ward, N-Dakota, USA 1930. Prestur fyrstu lúthersku kirkju í Winnipeg. Þjónaði Útskálasókn í Garði 1947. Fjölskyldumynd 1950. maki1. 27. des 1925 Þórunn Lilja 1901-1977), maki 2; 4. ágúst 1978, Ingibjörg Sigríður Guðmundsdóttir Eylands, f. Bjarnason, fyrri maður hennar var Archer Frank Goodridge bókavörður Winnipeg
Valdimar Kamillus Benónýsson (1884-1968) Ægissíðu
Bóndi á Ægissíðu á Vatnsnesi. Bóndi á Vatnshóli, Víðidalstungusókn, V-Hún. 1930. Síðast bús. í Reykjavík. Fæddur á Kambhóli í Víðidal 28.1. 1884, d. 29.10. 1968,
Valdimar Lárusson (1912-1980) kennari Manitoba
Hjálmar Valdimar Lárusson 21.11.1912 [skv kirkjubókum 28.10.1912] - 18.1.1980 kennari Manitoba. Gimli, North Interlake Census Division, Manitoba, Canada. Bachelor of Arts 1942 frá Manitoba háskóla. Kennari á Normal-kennaraskólanum í Winnipeg, ókvæntur. Jarðsettur í Gimli Cemetery
Hjálmar Valdimar Lárusson fyrrum prófessor við Kennaraháskóla Manitóbafylkis lést að sjúkrahúsi í Winnipeg 18. janúar 1980. Valdi, eins og hann var jafnan nefndur af kunnugum, var fæddur á Gimli þann 21. nóvember 1912,
Valdimar Óskarsson (1922-2003)
Valdimar Óskarsson fæddist í Hverhóli í Skíðadal 25. október 1922. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi sunnudaginn 1. júní síðastliðinn. Valdimar ólst upp á Kóngsstöðum í Skíðadal.
Útför Valdimars verður gerð frá Háteigskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Valdimar Sigurgeirsson (1889-1967) Gunnfríðarstöðum
Bóndi á Brekku í Seyluhreppi, Selhaga á Skörðum og lengst á Gunnfríðarstöðum í Langadal. Var í Hamrakoti,Torfalækjahr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Blönduóshreppi.
Valdimar Stefán Sigurgeirsson var fæddur að Miðsitju í Blönduhlíð í Skagafirði, 24. sept 1889. Valdimar var vinsæll maður, lundléttur og glaðvær, greiðasamur og góðlyndur. Hann var mikill skepnuvinur, einkum hafði hann yndi af hestum og þótti sérlega laginn tamningamaður. Hann var bókhneigður, minnugur og fróður um margt, sönghneigður og hafði lært að spila á orgel og mun hafa verið kirkjuorganisti í Skagafirði um skeið. Hann andaðist á héraðshælinu á Blönduósi 15. janúar
Valdís Finnbogadóttir (Vallý) (1949) Reykjavík
Valdís Finnbogadóttir f. 4.2.1949, Blönduósi
Valdís Guðmundsdóttir (1945-2018) Þorgrímsstöðum á Vatnsnesi
Valdís Guðmundsdóttir fæddist að Þorgrímsstöðum Vatnsnesi 2. júní 1945.
Valdís giftist Jóni Guðmundssyni 1978 og keyptu þau fljótlega íbúð í Spóahólum 4, Reykjavík. Árið 1988 fluttu þau sig svo til Hveragerðis og bjuggu þar til æviloka.
Hún lést á hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði, 21. ágúst 2018. Útför Valdísar fór fram í kyrrþey að hennar ósk.
Valdís Guðmundsdóttir (1952) Reykjavík
Valdís Guðmundsdóttir 30.5.1952 Reykjavík. Kvsk á Blönduósi 1969-1970.
Valdís Jónsdóttir (1886-1929) Gautsdal
Valdís Jónsdóttir 1. september 1886 - 25. maí 1929. Var á Ljótshólum, Auðkúlusókn, Hún. 1890 og 1901. Lausakona Auðkúlu 1910. Húsfreyja Gautsdal 1920.
Valgarð Ásgeirsson (1927-1996) múrari Blönduósi
Var í Ásgeirshúsi, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Múrarameistari Varðbergi á Blönduósi, Brekkubyggð 6.
Hann var listfengur og unni alla tíð gömlum húsum og munum.
Hann lést á heimili sínu, Brekkubyggð 6 á Blönudósi, 22. apríl 1996.
Útför hans fór fram frá Blönduóskirkju 27.4.1996 og hófst athöfnin kl. 14. Minningarathöfn og bálför var gerð í Reykjavík.
Valgard Jörgensen (1931-2006) Blönduósi
Jón Valgard Winther Jörgensen fæddist í Reykjavík, 25. mars 1931. Hann lést á Landspítalanum 1. mars 2006.
Valgarður Frímann (1930-2002) Akureyri
Valgarður Frímann fæddist á Akureyri 6. mars 1930. Hann lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut 22. júní 2002.
Valgarður Hilmarsson (1947) Fremstagili
Valgarður Hilmarsson 29. ágúst 1947. Var í Fremstagili, Engihlíðarhr., A-Hún. 1957.
Valgeir Matthías Pálsson fæddist í Unuhúsi í Reykjavík 6. júlí 1911. Hann lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi 9. janúar síðastliðinn.
Útför Valgeirs verður gerð frá Fossvogskirkju í dag 16 jan. 2004 og hefst athöfnin klukkan 15.
Valgerður Ágústsdóttir (1923-2022) Geitaskarði
Sigurlaug Valgerður Ágústsdóttir fæddist á Hofi í Vatnsdal 27. apríl 1923. Hún lést á HSN á Blönduósi 31. janúar 2022. Foreldrar hennar voru hjónin Ingunn Hallgrímsdóttir og Ágúst Böðvar Jónsson, bændur á Hofi
Valgerður Árnadóttir Blandon (1920-2017) Neðri Lækjardal
Valgerður Sigríður Árnadóttir Blandon fæddist í Neðri-Lækjardal í Austur-Húnavatnssýslu 1. maí 1920. Neðri-Lækjardal, Holtastaðasókn, A-Hún. 1930.
Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 27. júlí 2017. Útför Valgerðar var gerð frá Digraneskirkju 4. ágúst 2017, og hófst athöfnin klukkan 15.
Valgerður Bjarnadóttir (1925-2013) frá Efri-Mýrum
Valgerður Bjarnadóttir fæddist á Efri-Mýrum í Engihlíðarhreppi í A-Húnavatnssýslu 26. apríl 1925. Hún andaðist á Landspítalanum Fossvogi 6. desember 2013. Útför Valgerðar verður gerð frá Keflavíkurkirkju í dag, 16. desember 2013, og hefst hún kl. 13.
Valgerður Björgvinsdóttir (1922-2001) frá Garði
Valgerður Björgvinsdóttir fæddist í Garði í Mývatnssveit 2. júlí 1922.
Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi 6. janúar 2001.
Valgerður var jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 15. janúar, og hófst athöfnin klukkan 13.30.
Valgerður Einarsdóttir (1862-1940) Hofi í Vatnsdal
Valgerður Einarsdóttir 4. september 1862 - 20. ágúst 1940. Frá Másstöðum í Vatnsdal. Húsfreyja á Hofi í Vatnsdal.
Valgerður Einarsdóttir (1901-1988)
Ævi hennar var í mörgu óvenjuleg. Hún ólst upp sem prestsdóttir, lengst af í Reykholti í Borgarfirði. Það voru margar frásagnirnar, sem hún sagði frá um gamladaga sem maður mun aldrei gleyma.
En hún hafði líka lífsreglur sem fólk nú til dags hefur ekki kynnst. Þetta voru lífsreglur þeirrar kynslóðar sem braust framúr fátækt fyrri alda, til þeirrar velmegunar sem nú ríkir. Í þessum lífsreglum fólst að gera kröfur til sjálfs sín, frekar en annarra. Ótakmörkuð iðjusemi, þar sem ekki þótti hægt að láta eina stund ónotaða til einhverra verka.
Á heimili Stefáns og Valgerðar var oft mann margt því margir áttu og eiga enn leið fram að Kalmanstungu, fjölskylda, vinir og ferðalangar. Auk þess áttu mörg borgarbörn þar kærkomið athvarf á sumrin. Oft var því glatt á hjalla í bænum og ekki spillti fyrir þegar Stefán frændi minn settist við píanóið og gestirnir tóku lagið. Þá var Stefán í essinu sínu.
Valgerður Frímann fæddist á Akureyri 9. desember 1935.
Valgerður og Karl stofnuðu heimili í Reykjavík vorið 1956 og byggðu sér síðan íbúð í Álfheimum 60, sem þau bjuggu í fram til ársins 1961 en þá fluttu þau til Akureyrar. Fyrstu árin bjuggu þau á efri hæðinni í Hamarstíg 14, hjá foreldrum Valgerðar, en byggðu sér síðan húsið við Suðurbyggð 13 árið 1964 og hafa búið þar síðan.
Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 2. janúar 2005.
Valgerður var jarðsungin frá Akureyrarkirkju 11.1.2005 og hófst athöfnin klukkan 13.30.
Valgerður Guðmundsdóttir (1866-1949) Hvammi í Langadal
Valgerður Guðmundsdóttir 30. maí 1866 - 3. mars 1949 Húsfreyja í Hvammi, Holtastaðasókn, A-Hún. 1930. Húsfreyja á Móbergi í Langadal, A-Hún.
Valgerður Guðmundsdóttir (1941-2002) Stekkum í Flóa
Valgerður Hanna Guðmundsdóttir fæddist í Stekkum í Sandvíkurhreppi 2. október 1941. Stundaði garðrækt og vann ýmis störf í fiskvinnslu.
Árið 1965 hóf Hanna búskap á Eyrarbakka þar sem hún bjó á Túngötu 63 til æviloka. Þar stundaði hún garðrækt með eiginmanni sínum og samhliða því vann hún ýmis störf í fiskvinnslu.
Hún andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 20. nóvember 2002. Útför Hönnu fer fram frá Eyrarbakkakirkju 30.11.2002 og hófst athöfnin klukkan 14.
Valgerður Guðmundsdóttir (1945) frá Grund í Svínadal
Valgerður Guðmundsdóttir f. 18. desember 1945. Var á Grund, Svínavatnshreppi, A-Hún. 1957.
Valgerður Halldórsdóttir (1929-2000) Héraðshælinu 1957
Valgerður Guðrún Halldórsdóttir fæddist í Garði í Mývatnssveit 20. apríl 1929. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 25. apríl síðastliðinn.
Útför Valgerðar fer fram frá Dómkirkjunni í dag, og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Valgerður Hilmarsdóttir (1977) Blönduósi
Valgerður Jóhannesdóttir (1848-1928) Valdalæk
Valgerður Kristín Jóhannsdóttir 30. jan. 1848 - 22. apríl 1928. Var í Geitafelli, Tjarnarsókn, Hún. 1860. Var á Bergstöðum, Tjarnarsókn, Hún. 1870. Húsfreyja í Valdalæk, Vesturhópshólasókn, Hún. 1901. Kjörbarn: Guðmundur M. Eiríksson, f. 17.3.1891.
Valgerður Jónatansdóttir (1926-1995) Gautsdal
Elín Valgerður Jónatansdóttir fæddist og ólst upp í Súðavík. Foreldrar hennar voru Ingibjörg Kristjánsdóttir frá Álftafirði og Jónatan Sigurðsson frá Furufírði á Ströndum.
Elín Valgerður var jarðsungin frá Bólstaðarhlíðarkirkju laugardaginn 28. október. 1995
Valgerður Jónsdóttir (1880-1958) saumakona Rvk frá Tannastöðum
Valgerður Ágústa Jónsdóttir 7.8.1880 - 6.3.1958. Fædd í Gerði í Hvammssveit, var á Tannstöðum, Staðarsókn, Hún. 1890. Var á Tannastöðum, Staðarsókn, Hrútafirði í Hún. 1901. Saumakona í Reykjavík.
Valgerður Jónsdóttir (1917-2011) Skálholtsvík
Valgerður Jónsdóttir fæddist í Miðhúsum, Hrútafirði, 30. maí 1917. Var í Skálholtsvík, Prestbakkasókn, Strand. 1930. Verslunarstarfsmaður í Reykjavík. Hún ólst upp á Kirkjubóli Steingrímsfirði til 8 ára aldurs, síðan í Skálholtsvík í Hrútafirði. Valgerður og Kjartan bjuggu yfir 40 ár í Karfavogi 34. Eftir að Kjartan lést flutti hún á Kleppsveg 62 og síðan yfir á Hrafnistu. Hún lést á þar 23. nóv. 2011. Valgerður var jarðsungin frá Áskirkju, föstudaginn 2. desember 2011, kl. 13.
Valgerður Magnúsdóttir (1912-1982) Reykjum í Lundarreykjadal, Dölum, Fáskrúðsfirði
Valgerður Magnúsdóttir fæddist í Dölum í Fáskrúðsfirði 8. nóvember 1912.
Hún lést í Sjúkrahúsi Akraness 5. maí 1996. Útför Valgerðar var gerð frá Lundi í Lundarreykjadal 11.5.1996 og hófst athöfnin klukkan 14.
Valgerður Narfadóttir (1840-1892) veitingakona Skagastönd og Akureyri
Valgerður Narfadóttir 12. september 1840 [12.9.1839] - 9. júní 1892. Viðvík Skagaströnd 1870 og 1880. Kóngsbakka, Helgafellssókn, Snæf. 1845. Húsfreyja. Húsfreyja í Veitingahúsinu, Akureyri, Eyj. 1890.
Valgerður Ólafsdóttir (1857-1933) Hæli, Bjarnastöðum og Blönduósi
Valgerður Ósk Ólafsdóttir, f. 28. okt. 1857 frá Leysingjastöðum, d. 4. maí 1933. Blönduós, Hæli og Bjarnastöðum. Var í Umsvölum, Þingeyrarsókn, Hún. 1860. Ekkja á Reyki við Sundlaugaveg, Reykjavík 1930. Húsfreyja á Bjarnastöðum, Akureyri og Reykjavík.
Valgerður Sigurtryggvadóttir (1922-2006) frá Litlu-Völlum í Bárðardal í S-Þing.
Valgerður Sigurtryggvadóttir fæddist á Litlu-Völlum í Bárðardal í S-Þing. 7. ágúst 1922. Hún lést á Landspítalanum - háskólasjúkrahúsi í Fossvogi aðfaranótt 25. júlí síðastliðinn 83 ára að aldri.
Útför Valgerðar var gerð frá Fossvogskirkju 3.8.2006 og hófst athöfnin klukkan 13.
Valgerður Þorbjarnardóttir (1908-1976) Stíganda
Vinnukona í Neðranesi, Stafholtssókn, Mýr. 1930. Var á Stíganda, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Húsfreyja í Reykjavík 1945, síðast bús. í Blönduóshreppi.
Valgerður Þórmundsdóttir (1905-1989) Langholti í Bæjarsveit
Valgerður Þórmundsdóttir, lést í Reykjavík 25. október sl. Hvíldin var henni lausn frá þungbærum veikindum, sem höfðu hrjáð hana undanfarin ár. Hún var fædd í Langholti í Bæjarsveit 21. september 1905. Valgerður ólst upp í Langholti í glöðum systkinahóp á mannmörgu sveitaheimili í fögru héraði. Ólöf og Þórmundur vildu undirbúa börn sín sem best fyrir lífsbaráttuna. Fóru Valgerður og systur hennar fleiri til náms í Kvennaskólann á Blönduósi. Kom það nám í góðar þarfir síðar meir.
Valgerður missti mann sinn í maí 1972 og höfðu þau þá verið í farsælu hjónabandi í rétt 40 ár. Sigurbjörn lést á 64. aldursári og var fráfall hans Valgerði mjög þungbært og reyndar öllum, sem til hans þekktu. Hann hafði þá nærfellt í hálfa öld starfað við verksmiðjurnar á Barnónsstíg 2 og látið sig verkalýðsmál miklu skipta.
Valgerður Þorsteinsdóttir (1894-1964) Skálholtskoti
Valgerður Þorsteinsdóttir Dalmann 5. nóv. 1894 - 29. nóv. 1964. Var í Reykjavík 1910. Fór til Vesturheims 1913 frá Reykjavík. Bjó í Winnipeg í Manitoba, Kanada í nokkur ár en fluttist svo til New York í Bandaríkjunum. Var í Manhattan, New York, USA 1930. Var í New York, USA 1940.
Valgerður Þorvarðardóttir (1940) Laugarbakka
Valgerður Tómasdóttir (1831-1908) Þóroddsstöðum V-Hvs
Valgerður Tómasdóttir 8. maí 1831 - 12. apríl 1908. Var í Broddanesi, Fellssókn, Strand. 1845. Húsfreyja á Þóroddsstöðum í Staðarhr., V-Hún. Húskona í Kollsá, Prestbakkasókn, Strand. 1901.
Valgerður Tulinius (1874-1949) Akureyri
3) Valgerður Ólafía Tulinius 14. janúar 1874 - 27. júní 1949. Barn hjá foreldrum á Skagaströnd, Spákonufellssókn, Hún. 1880. Húsfreyja. Húsfreyja á Akureyri 1930.
Valtýr Blöndal Guðmundsson (1915-2011) Bröttuhlíð
Valtýr Blöndal Guðmundsson bóndi í Bröttuhlíð fæddist á Steiná í Svartárdal 20. júlí 1915. Hann lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi 22. desember 2011. Valtýr ólst upp hjá foreldrum sínum en fór ungur að vinna fyrir sér við almenn sveitastörf, einnig var hann í vegavinnu. Árið 1934 keyptu foreldrar hans jörðina Bröttuhlíð í Svartárdal. Þar byrjaði hann sinn búskap og bjó þar lengst af ævinni. Valtýr var lengst af ævi sinni heilsuhraustur þrátt fyrir að vinna erfiðisvinnu alla tíð. Hann var heimakær og vildi helst vera að störfum á búi sínu. Hann var glöggur á fénað og hirti alla tíð vel um skepnur sínar.
Útför Valtýs fer fram frá Bergsstaðakirkju í dag, 11. janúar 2012, og hefst athöfnin klukkan 14.
Valtýr Guðmundsson (1860-1928) ritstjóri Eimreiðarinnar, prófessor Kaupmannahöfn
Valtýr Guðmundsson 11.3.1860 - 22.7.1928. Tökubarn í Háagerði, Spákonufellssókn, Hún. 1860. Stofnandi og ritstjóri ritsins „Eimreiðin“. Síðast prófessor við háskólann í Kaupmannahöfn. Þjóðkunnur stjórnmálamaður. Barnlaus.
Valur Snorrason (1936-1994) rafvirkjameistari Blönduósi
Valur Snorrason 15. nóvember 1936 fæddur á Hóli við Siglufjörð, d 7. mars 1994. Rafvirkjameistari. Var lengi ráðsmaður á Héraðshælinu á Blönduósi. Var á Hótel Blönduósi, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Áshreppi. Á unglingsárum sínum var hann í átta ár í sveit á Flögu í Vatnsdal frá átta til sextán ára aldurs. Þar eignaðist hann nokkurn búpening, fé og hross. Hann batt æ síðan mikla tryggð við heimilið á Flögu og var Vatnsdalurinn honum ætíð kær og hugstæður eftir þessa dvöl.
Útför hans fór fram frá Blönduósskirkju 12. mars. 1994.
Valur Sveinbjörnsson (1915-1989)
Valur fæddist á aðfangadag 1915 í Sæmundarhlíð í Vesturbænum í Reykjavík nú Holtsgata 10. Hann hlaut nöfnin Bjarni Valur, en síðar notaðist hann aðeins við nafnið Valur. Vitað er að forfeður Vals í móðurætt bjuggu í Götuhúsum í Reykjavík áður en bærinn fékk kaupstaðarréttindi 1786 og eru meðal elstu þekktra íbúa Reykjavíkur.
Ekki barst Valur á í þessu lífi, hann var hæglátur og bar ekki tilfinningar sínar á torg. Hann var fastur í skoðunum, jafnt í þjóðmálum sem í öðru og tryggur vinum sínum. Hann hélt einlægu sambandivið systkini sín, bróður á Akranesi, systur í Kaupmannahöfn, systur í New Jersey, USA, og báðar systurnar í Reykjavík. Umhyggja hans fyrir Björgu systur sinni, sem einnig býr í Sæmundarhlíð, var einstök.
Vésteinn Húnfjörð Marinósson (1960)
Victor Gillies (1890-1894) Winnipeg
Victor Herbert Gillies 2.8.1890 South Cypres Manitoba – 28.1.1974. Winnipeg.
Viðar Bjarnason (1948) Vegamótum
Hreinn Viðar Bjarnason 5. apríl 1948 verslunarmaður Selfossi:
Viðar Guðmundur Arnarson (1961) ættaður frá Stóru Giljá
Viðar Guðmundur Bergmann Arnarson 20.3.1961, ættaður frá Stóru Giljá
Vigdís Ágústsdóttir (1928-2018) Hofi
Var á Hofi, Undirfellssókn, A-Hún. 1930. Var á Hofi, Áshr., A-Hún. 1957.
Vigdís Bergsdóttir (1941-2011) Bjarnastöðum
Vigdís Theodóra Bergsdóttir fæddist á Bæjarskerjum, Miðneshreppi, 28. febrúar 1941. Hún lést á heimili sínu 17. janúar 2011. Vigdís Theodóra sem oftast var kölluð Dósý ólst upp og sleit barnsskónum á Bæjarskerjum.
Vigdís Björnsdóttir (1896-1979) Bjargi Blönduósi
Vigdís Björnsdóttir 21. ágúst 1896 - 14. mars 1979. Var í Grímstungu, Undirfellssókn, Hún. 1901. Kennari á Hólabaki, Þingeyrasókn, A-Hún. 1930. Var á Bjargi, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Kennari og skólastjóri. Síðast bús. í Blönduóshreppi.
Vigdís Björnsdóttir (1951) hjúkrunarfræðingur Blönduósi
Var á Bjargi, Blönduóshr., A-Hún. 1957.
Vigdís Guðmundsdóttir (1949) Þorgrímsstöðum á Vatnsnesi
Vigdís Auður Guðmundsdóttir 27.5.1949, Þorgrímsstöðum á Vatnsnesi. Kvsk á Blönduósi 1966-1967. Sjúkraliði
Vigdís Helgadóttir (1954-2018) Helgafelli Blönduósi
Vigdís Eiríka Helgadóttir 21. ágúst 1954 - 16. feb. 2018. Var í Meðalheimi í Torfalækjahr., A-Hún. 1957. Húsfreyja á Þórustöðum í Eyjafjarðarsveit.
Vigdís Jónsdóttir (1862) Helguhvammi Vatnsnesi
Vigdís Jónsdóttir 20.11.1862. Var á Ásbjarnarnesi, Vesturhópshólasókn, Hún. 1870. Vinnukona í Garðhúsi, Staðarsókn, Gull. 1880. Var í Helguhvammi, Kirkjuhvammssókn, V-Hún. 1901 og 1930.
Vigdís Jónsdóttir (1915-2011) Uppsölum Efri-Núpssókn
Vigdís Jónsdóttir 20.10.1915 - 22.2.2011. Var á Uppsölum, Efri-Núpssókn, V-Hún. 1930.
Vigdís Sigurgeirsdóttir Bardal (1896) Winnipeg
Fór til Vesturheims 1900 frá Bjargi, Torfastaðahreppi
Vigeland, Gustav (1869-1943) myndhöggvari
Gustav Vigeland [Adolf Gustav Thorsen] (11. apríl, 1869 – 12. mars, 1943) var norskur myndhöggvari. Hann var talinn einn fremsti myndhöggvari Norðmanna í upphafi 20. aldar og eftir hann liggja fjölmörg verk. Þekktastur er Vigeland-garðurinn í Osló þar sem mörg verka hans standa, meðal annars risavaxinn gosbrunnur sem hann vann að um margra ára skeið.
Árið 1947 gáfu Norðmenn Íslendingum styttu af Snorra Sturlusyni sem Vigeland hafði gert árið 1914 og stendur í Reykholti.
Vigfús Filippusson (1843-1925) Vatnsdalshólum
Vigfús Filippusson 26. febrúar 1843 - 3. desember 1925. Vinnumaður í Vatnsdal, Breiðabólstaðarsókn, Rang. 1860. Bóndi og smiður í Vatnsdalshólum, Sveinsstaðahr., A-Hún.
Vigfús Lárus Friðriksson (1899-1986) ljósamaður Hafnarfirði
Ljósmyndari á Akureyri 1930. Ljósmyndari í Kópavogi.
Vigfús Magnússon (1923-1987) Skinnastöðum
Vigfús er fæddur í Skólahúsinu í Sveinsstaðahreppi 25. september 1923. Bóndi á Skinnastöðum. Síðast bús. í Torfalækjarhreppi. Vorið 1952 fluttu þau að Skinnastöðum og stofnuðu þar nýbýli en þá jörð átti Landnám ríkisins. Komu þau með fjölskyldu sína þangað að öllu húsalausu. Sem bráðabirgðahúsnæði byggði Vigfús skúr á stærð á við meðalstofu í húsum nú til dags. Í þessu húsnæði voru þau í rúm 6 ár. Undrar menn hvað þar rúmaðist og maður skilur vart dugnað húsmóðurinnar að þurfa að vera með bala af barnaþvotti á kolaeldavél í eldhúsinu ásamt matseld á stóru heimili. Raunar hafði hún rennandi vatn en enga skólplögn. Þess minnist Lucinda að þröngt hafi verið þegar 8 karlmenn voru við matborðið sem kom fyrir þau ár meðan Vigfús var að byggja.
Fyrsta árið þeirra á Skinnastöð um byggði hann fjós, fjárhús og hlöðu, en íbúðarhúsið síðar. Þetta var mikið átak fyrir efnalítið fólk og mun hafa verið þröngt í búi hjá þeim fyrstu árin. Nú er sonur þeirra, Vignir, búinn að ljúka byggingu á myndarlegum fjárhúsum með tilheyrandi haughúsi og hlöðu.
Vigfús vann mikið að öllum þessum framkvæmdum sjálfur enda var hann laghentur og af kastamikill til allrar vinnu.
Vigfús Melsted Guðmundsson (1842-1914) söðlasmiður Sauðárkróki
Vigfús Melsted Guðmundsson 7. júlí 1842 - 24. nóv. 1914. Bóndi og söðlasmiður á Sauðarkróki. Fór til Vesturheims 1900. Var á Stóranúpi, Stóranúpssókn, Árn. 1845. Var á Melstað, Melstaðasókn, Hún. 1860. Söðlasmiður í Melstað, Melstaðarsókn, Hún. 1870. Húsbóndi, söðlasmiður á Ytri-Völlum, Melstaðarsókn, Hún. 1880. Hreppstjóri og söðlasmiður á Sauðárkróki, Sjávarborgarsókn, Skag. 1890.
Vignir Björnsson (1961) Blönduósi
Björn Vignir Björnsson 22. júní 1961 veiðimaður og verslunarmaður á Blönduósi.
Vignir Filip Vigfússon (1954-2019) Skinnastöðum
Vignir Filip Vigfússon fæddist á Blönduósi 29. mars 1954. Bóndi Skinnastöðum. Bjó hann þar síðan meðan heilsa og kraftar leyfðu. Vignir var ókvæntur en eignaðist eina dóttur.
Hann lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi 9. ágúst 2019. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey.
Vignir Jónsson (1945-1992) ljósmyndari Blönduósi
Var í Húsi Jóns Sumarliðasonar, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Blönduóshreppi. Ókvæntur barnlaus.
Áhugamál hans voru mörg. Hann hafði mikið yndi af blómum og stundaði garðyrkju um mörg ár, eins og garðurinn á bernskuheimili hans við Blöndubyggð 6b á Blönduósi ber vott um.
Haustið 1985 kenndi hann sjúkdóms er síðar leiddi hann dl dauða. Hann varð bráðkvaddur á leið til vinnu sinnar, aðeins 47 ára að aldri.
Vignir var maður hógvær og hjartahlýr. Snyrtimenni mikið og stundvís svo af bar. Starfsmaður var hann góður og vinsæll meðal vinnufélaga sinna. Hann var mjög barngóður. Voru systkinabörn hans honum mjög hjartfólgin, sem minnast hans nú með söknuði, ásamt öðrum ættingjum og vinum.
Vignir bjó allt til dauðadags á bernskuheimili sínu, ásamt móður sinni síðustu árin, en hann reyndist henni ætíð góður og umhyggjusamur sonur.
Útför hans fór fram frá Blönduósskirkju 29. desember 1992.
Viktoría Sveinsdóttir (1913-2001) Reykjavík
Viktoría Júlía Sveinsdóttir var fædd á Flateyri 14. maí árið 1913. Húsfreyja í Reykjavík 1945. Síðast bús. þar. Þegar börn Viktoríu voru uppkomin hóf hún störf hjá veitingahúsinu
Múlakaffi og vann þar við bakstur í meira en tvo áratugi, eða þar til hún lét af störfum fyrir aldurs sakir.
Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 26. apríl 2001. Útför Viktoríu fór fram frá Grafarvogskirkju í dag og hófst athöfnin klukkan 13.30.
Vilbergur Sveinbjörnsson (1920-2014) Seyðisfirði
Otti Vilbergur Sveinbjörnsson fæddist á Vestdalseyri við Seyðisfjörð hinn 20. júlí 1920. Hann andaðist á sjúkrahúsinu á Seyðisfirði hinn 16. janúar síðastliðinn. Vilbergur ólst upp í foreldrahúsum á Seyðisfirði, fyrstu árin á Vestdalseyri og síðar inni í bæ og bjó þar allt til dauðadags.
Vilbergur verður jarðsunginn frá Seyðisfjarðarkirkju í dag, 27. janúar 2014, og hefst athöfnin kl. 14.
Vilborg Ámundadóttir (1906-1997)
Vilborg Ámundadóttir fæddist í Reykjavík 26. desember 1906. Hún lést á Sjúkrahúsi Suðurnesja í Keflavík 22. júlí síðastliðinn.
Útför Vilborgar fer fram frá Ytri Njarðvíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14.
Vilborg Guðbergsdóttir (1920-2004) Höfða, Mýrarsókn
Vilborg Guðbergsdóttir 10. nóv. 1920 - 2. des. 2004. Var á Höfða , Mýrarsókn, V-Ís. 1930. Var í Reykjavík 1945. Síðast bús. í Reykjavík. Kvsk á Blönduósi 1942-1943.
Fæddist í Fremstuhúsum í Neðri-Hjarðardal í Dýrafirði. Vilborg ólst upp í Dýrafirði og stundaði síðar nám í húsmæðraskólanum á Blönduósi. Á Blönduósi kynntist hún Magnúsi og fluttu þau til Reykjavíkur árið 1941 og byrjuðu búskap á Grandaveginum. Þau fluttust síðar á Leifsgötu 25 þar sem þau bjuggu þar til árið 1986 en fluttu þá að Bergstaðastræti 11A.
Hún lést á líknardeild Landakotsspítala. Útför Vilborgar var gerð frá Fossvogskirkju 16.12.2004 og hófst athöfnin klukkan 13.
Vilborg Guðmundsdóttir (1885-1968) Miðgili
Húsfreyja í Miðgili, Holtastaðasókn, A-Hún. 1930. Húsfreyja á Miðgili. Var í Höfðabrekku 2, Höfðakaupstað , A-Hún. 1957.
Vilborg Gunnlaugsdóttir (1956) Reykjaskóla
Var í Reykjaskóla, Staðarhr., V-Hún. 1957.
Vilborg Hannesdóttir (1872-1908) frá Hæli. Gardar, Pembina ND
Vilborg Hannesdóttir (Vilborg Johnson) 6. sept. 1872 - 11. ágúst 1908. Fór til Vesturheims 1874 frá Þernumýri, Þverárhreppi, Hún. Fór hugsanlega aftur til Vesturheims 1891 frá Hæl, Torfalækjarhreppi, Hún. Var í Gardar, Pembina, N-Dakota, Bandaríkjunum 1900.
Vilborg Ívarsdóttir (1908-1988)
Á þeim tímum var erfitt að halda stóru heimili saman og fór Vilborg því á unga aldri til vandalausra, þeirra Eiríks Sverrissonar og konu hans, Katrínar Kristmundsdóttur, sem tóku hana að sér og ólu sem hún væri þeirra eigið barn.
Leið hennar lá til Blönduóss, þarsem hún hitti mannsefni sitt, Björn Elíaser Jónsson, og áttu þau saman langt og gifturíkt hjónaband.
Ef reyna á að orða lýsingu á henni myndi hún ef til vill geta hljóðað á þá leið að hún hafi verið kvik í hreyfingum, ávallt litið út fyrir að vera a.m.k. áratug eða tveimur yngri en hún í raun var og yfirleitt var stutt í brosið. Hún hafði sterka réttlætiskennd sem endurspeglaðist í öllum hennar orðum og gjörðum. Tónlist var henni hugleikin og nutu kirkjukórar heimabyggða hennar oft á tíðum góðs af sönghæfileikum hennar.
Vilborg Jónsdóttir (1824-1914) Kringlu og Selkirk
Var á Hafursstöðum, Höskuldsstaðasókn, Hún. 1835. Var á Orrastöðum, Þingeyrasókn, Hún. 1845. Húsfreyja á Kringlu. Fór til Vesturheims 1894 frá Hæl, Torfalækjarhreppi, Hún. Síðast bús. í Selkirk.
Vilborg Jónsdóttir (1863-1947) Stað
Vilborg Jónsdóttir 22. júní 1863 - 28. jan. 1947. Húsfreyja á Stað, Staðarsókn, V-Hún. 1930. Húsfreyja á Staðastað, Staðastaðarsókn, Snæf. 1890. Húsfreyja á Stað í Hrútafirði.
Vilborg Kristófersdóttir (1923-2020) Læk í Leirársveit
Vilborg Kristófersdóttir 30. júlí 1923 - 4. maí 2020. Húsfreyja á Læk í Leirársveit. Var á Vestur-Leirárgörðum, Leirársókn, Borg. 1930. Kvsk á Blönduósi 1942-1943.
Vilborg Pétursdóttir (1944) Fremstagili
Var í Miðhúsum, Sveinsstaðahr., A-Hún. 1957. Húsfreyja Fremstagili og síðar Blönduósi
Vilborg Valgarðsdóttir (1951) Ásgeirshúsi, Blönduósi
Vilborg Árný Valgarðsdóttir f. 7.7. 1951. Var í Ásgeirshúsi, Blönduóshr., A-Hún. 1957.
Vilhelm Anton Sveinbjörnsson (1915-1991) Dalvík
Vilhelm Anton Sveinbjörnsson 3.2.1915 - 1.12.1991. Var á Dalvík 1930. Síðast bús. á Dalvík. Villi á Vegamótum.
Vilhelm Anton var fæddur 3. febrúar 1915 í Ytra-Holtsbúð hér á Dalvík sem var ein af síðustu sjóbúðum fyrri tíma, sem enn var búið í á Dalvík. Hann var af svarfdælskum ættum kominn, sonur hjónanna Ingibjargar Antonsdóttur Árnasonar bónda og sjómanns á Hamri og Sveinbjörns Tryggva Jóhannssonar Jónssonar bónda í Brekkukoti í Svarfaðardal. Ingibjörg og Sveinbjörn settu saman bú í Holtsbúð og bjuggu þar til ársins 1916 er þau fluttu í nýbyggt steinhús sitt er þau nefndu Sólgarða, en oftast kallað Sveinbjarnarhús.
Árið 1957 þegar þau Steinunn og Steingrímur byggðu upp á Vegamótum flutti öll fjölskyldan úr Sólgörðum í Vegamót. Þar átti Vilhelm ætíð heima eftir það í góðri umönnun systur sinnar en þar á milli var afar kært og náið samband.
Dáinn að morgni 1. desember 1991 á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Útför Vilhelms A. Sveinbjörnssonar var gerð frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 7. desember 1991.
Vilhelm Lárusson (1902-1963) Sævarlandi ov
Daglaunamaður á Sauðárkróki 1930. Bóndi á Dalsá og í Tungu í Gönguskörðum og á Sævarlandi í Laxárdal, Skag.
Vilhelm ólst upp í Skarði með foreldrum sínum. Reisti bú á Dalsá (Heiðarseli) í Gönguskörðum 1923 og bjó þar til 1929; brá þá búi og fór í húsmennsku að Skarði og síðan til Sauðárkróks. Fór aftur að búa 1931 og þá í Tungu (Skollatungu) í Skörðum og bjó þar til 1935, fór þá byggðum að Sævarlandi og bjó þar óslitið til lokadags.
Vilhelm Leuschner (1894-1964) Köningsberg / Kalingrad
Búsettur í Kalingrad Sovétríkjunum, áður Austur Prússland / Þýskaland
Vilhelm Lúðvíksson (1935-2016) lyfsali á Blönduósi
Vilhelm fæddist í Reykjavík 16. janúar 1935.
Vilhelm ólst upp í KFUM og var kristinn alla tíð.
Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 15. september 2016.
Jarðarför Vilhelms var gerð frá Laugarneskirkju 21. september 2016, klukkan 13.
Vilhelmína Örum (1818-1899) Skagaströnd
Vilhelmína Kristína Karlsdóttir Örum 17. des. 1818 - 3. sept. 1899. Var á Grafarósi, Hofssókn, Skag. 1845. Grashúskona á Árbakka, Spákonufellssókn, Hún. 1860. Búandi í Eyjarkoti, Höskuldsstaðarsókn, Hún. 1870. Húsmóðir í Hólanesi, Spákonufellssókn, Hún. 1880.
Vilhelmína Sigurðardóttir (1866-1949) Grænumýri
Vilhelmína Sigurðardóttir f. 22. júlí 1866 Bursthúsum Miðnesi, d. 8. nóv. 1949. Grænumýri 1933 og 1940.
Vilhelmína Sigurðardóttir Þór (1888-1966) Akureyri
Vilhelmína Sigurðardóttir Þór 14. feb. 1888 - 7. nóv. 1966. Var á Akureyri, Eyj. 1890. Kaupkona á Akureyri. Verzlunarstjóri á Akureyri 1930. Síðast bús. á Akureyri. Útför hennar fór fram frá Akureyrarkirkju 14.11.1966
Vilhjálmur Hróðmar Pálmason (1949) Múrari frá Holti á Ásum
Fæddur og uppalinn að Holti á Ásum hjá foreldrum sínum Pálma Ólafssyni og Aðalbjörgu Þorgímsdóttur
Vilmundur Jósefsson (1949) Þingeyrum
Var á Þingeyrum, Sveinsstaðahr., A-Hún. 1957.
Wilhelm Marzilíus Jónsson (1869-1938) verslunarmaður Jaðri Skagaströnd
Wilhelm Marzilíus Jónsson 2.3.1869 - 25.8.1938. Kaupmaður og bókhaldari á Siglufirði. Var á Siglufirði, 1930. Verslunarstarfsmaður á Blönduósi, Hjaltabakkasókn, Hún. 1890.
William John Graves (1876) Innflytjenda erindreki Winnipeg Manitoba.
William John Graves (4.3 1876) Innflytjenda erindreki Winnipeg Manitoba.