John J Phillips 1879, Towner North Dakota
- HAH05286
- Person
- 1879 -
John Phillip (1879), Towner North Dakota, sagður fæddur á Íslandi
John J Phillips 1879, Towner North Dakota
John Phillip (1879), Towner North Dakota, sagður fæddur á Íslandi
John J Gillies, Winnipeg Saskatchewan og Manitoba, Kanada.
John Creighton (1863-1948) kaupmaður Kaliforníu
John F Creighton 3.6.1863 - 27.3.1948 kaupmaður Kaliforníu. Faðir hans enskur (fæddur á Norður Írlandi) og móðir skosk. Fæddur í Kanada skv Census USA 1930. Long Beach LA
John Coghill (1836-1896) Skoskur skipsstjóri og fjárkaupmaður
John Coghill 1836 [1846] -3.10.1896. Skoskur skipsstjóri og fjárkaupmaður. Lést á leið sinni til Íslands með ES Opal, en hafði þá stundaði heiðarleg viðskipti við Íslendinga í 30 ár.
John Burns (6.5.1891 - 12.3.1919) Point Roberts
Jón Jónsson Björnsson Burns (6.5.1891 - 12.3.1919) Point Roberts (um tvítugt af slysförum).
Jóhannes Torfason (1945) Torfalæk
Jóhannes Torfason 11. apríl 1945 Var á Torfalæk í Torfalækjahr., A-Hún. 1957.
Jóhannes Tómasson (1865-1947) Vinaminni Blönduósi
Jóhannes Tómasson 21. sept. 1865 - 8. apríl 1947. Verkamaður í Vinaminni á Blönduósi.
Jóhannes Þorsteinsson (1864) Vesturheimi, frá Vatnshorni
Jóhannes Þorsteinsson 6. júní 1864 [18.6.1863]. Var í Vatnshorni, Víðidalstungusókn, Hún. 1870. Fór til Vesturheims 1888 frá Vatnshorni, Kirkjuhvammshreppi, Hún.
Jóhannes Þorleifsson (1901-1957) Þröm
Jóhannes Þorleifsson 15. sept. 1901 - 28. mars 1957. Vinnumaður á Kornsá, Undirfellssókn, A-Hún. 1930. Bóndi á Þröm, Svínavatnshreppi, og Kirkjubæ, Norðurárdal, A-Hún. Ókvæntur og barnlaus.
Jóhannes Þórðarson (1945) múrari Blönduósi
Jóhannes Þórðarson f. 2. maí 1945, Múrari, var í Halldórshúsi, Blönduóshr., A-Hún. 1957.
Jóhannes Sveinsson (1860-1935) Litla-Hvammi í Miðfirði
Jóhannes Sveinsson 25. mars 1860 - 22. desember 1935 Var á Svertingsstöðum, Melstaðasókn, Hún. 1860. Bóndi í Litla-Hvammi í Miðfirði, síðar í Hafnarfirði.
Jóhannes Sigurðsson (1855-1908) Hindisvík
Jóhannes Sigurðsson 23. ágúst 1855 - 3. júní 1908. Bóndi í Hindisvík á Vatnsnesi, Þverárhreppi, V-Hún. Var í Hindisvík, Tjarnarsókn, Hún. 1860.
Jóhannes Sigurbjörnsson (1956) Blönduósi
Jóhannes Sigurbjörnsson 4. apríl 1956 vélvirki frá Blönduósi.
Jóhannes Sigmundsson (1931-2018) Syðra-Langholti
Jóhannes Sigmundsson 18. nóv. 1931 - 19. feb. 2018. Bóndi og kennari í Syðra-Langholti 3 í Hrunamannahreppi. Gegndi ýmsum íþrótta- og félagsstörfum og hlaut fjölda viðurkenninga fyrir störf sín.
Hann fæddist í Syðra-Langholti í Hrunamannahreppi
Jóhannes stofnaði nýbýlið Syðra-Langholt 3 árið 1954 og stundaði búskap og var með ferðaþjónustu.
Hann lést á dvalarheimilinu Ási í Hveragerði 19. febrúar 2018. Útförin fór fram frá Skálholtskirkju 2. mars 2018, klukkan 13.
Jóhannes Runólfsson (1823-1917) Skeggjastöðum
Bóndi á Skeggjastöðum á Skagaströnd, A-Hún. Bóndi á Mosfelli í Gönguskörðum, Skag. Bóndi víðar í Skagafirði og Húnaþingi. „Frímann var talinn allvel að sér og greindarmaður“ segir í Skagf.1850-1890 V.
Jóhannes Ragnarsson (1929-2019) Jörfa
Guðni Jóhannes Hjaltason Ragnarsson 29. sept. 1929 - 16. des. 2019. Bóndi á Jörfa í Víðidal í Þorkelshólshreppi frá 1960. Var á Ísafirði 1930. Var í Nýpukoti, Þorkelshólshr., V-Hún. 1957. [Eyjólfsstöðum í Vatnsdal 1950]
Foreldrar; Ragnar Benediktsson Bjarnarson 23. maí 1899 - 18. feb. 1941. Skipstjóri á Ísafirði 1930. Skipstjóri og afgreiðslumaður á Ísafirði og kona hans 28.6.1924; Guðrún Arnbjörg Hjaltadóttir 25. júní 1903 - 27. jan. 1995. Húsfreyja á Ísafirði 1930. Matráðskona á Ísafirði.
Jóhannes R Snorrason (1917-2006) flugstjóri
Jóhannes R. Snorrason fæddist á Flateyri við Önundarfjörð 12. nóvember 1917.
Jóhannes Reykjalín Snorrason 12.11.1917 - 31.5.2006. Yfirflugstjóri, einn stofnanda Félags íslenskra atvinnuflugmanna og formaður þess. Var sæmdur riddarakrossi og stórriddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu og dönsku Dannebrogs-orðuna. Var á Akureyri 1930.
Hann lést 31. maí 2006. Útför Jóhannesar var gerð frá Fossvogskirkju 9.6.2006 og hófst athöfnin klukkan 13.
Jóhannes Pétursson (1903-1973) Fjármaður á Hnjúki,
Jóhannes Pétursson 19.4.1903 - 9.3.1973. Fjármaður á Hnjúki, Þingeyrasókn, A-Hún. 1930. Síðast bús. á Akureyri. Andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Jarðarförin fór fram frá Akureyrarkirkju laugardaginn 17. mars 1973, kl. 1.30 e. h.
Jóhannes Pétursson (1876-1951) Litluborg í Víðidal
Jóhannes Pétursson (Johannes Peterson) 13. júlí 1876 [13.7.1877] - 27. maí 1951. Var á Görðum, Garðasókn, Borg. 1880. Léttadrengur á Húki, Efra-Núpssókn, Hún. 1890. Fór til Vesturheims 1900 frá Búrfelli, Torfastaðahreppi, Hún. Byggingaverkamaður í Winnipeg og síðar bóndi á Jaðri í Geysisbyggð. Var í Bifrost, Selkirk, Manitoba, Kanada 1916. Jarðsettur í Brookside Cementry Winnipeg
Jóhannes Pálsson (1878-1972) Garði á Skagaströnd
Jóhannes Pálsson 23.5.1878 - 9.3.1972. Skósmiður og sjómaður í Garði í Höfðakaupstað. Háseti í Skagastrandarkaupstað 1930.
Jóhannes Óskarsson (1975) Skagaströnd
Jóhannes Ægir Óskarsson 7. maí 1975. Skagaströnd. Sölumaður Kópavogi.
Jóhannes Óli Guðmundsson (1900-2000) Gullsmiður í Reykjavík
Jóhannes Óli Guðmundsson 28. ágúst 1900 - 13. ágúst 2000. Gullsmiður á Óðinsgötu 4, Reykjavík 1930. Gullsmiður í Reykjavík 1945. F[ .26.8.1900 skv. kb.]þ Útför hans fór fram frá Fossvogskirkju 28.8.2000 kl 13.30.
Jóhannes Nordal Þorsteinsson (1905-1937) frá Eyjólfstöðum
Jóhannes Nordal Þorsteinsson 18. okt. 1905 - 12. júní 1937. Húsbóndi á Laugavegi 81, Reykjavík 1930. Iðnrekandi í Reykjavík.
Jóhannes Nordal (1924-2023) seðlabankastjóri
Jóhannes Nordal 11. maí 1924 - 5. mars 2023. Seðlabankastjóri og stjórnarformaður Landsvirkjunar. Var á Baldursgötu 33, Reykjavík 1930. Var í Reykjavík 1945.
Jóhannes Nordal (1851-1946) íshússtjóri í Rvík.
Jóhannes Guðmundsson Nordal 8. apríl 1851 - 8. okt. 1946. Var á Kirkjubæ, Höskuldstaðasókn, Hún. 1860. Vinnumaður á Blönduósi, Hjaltabakkasókn, Hún. 1880. Fór til Vesturheims 1887 frá Eyjólfsstöðum, Áshreppi, Hún., kom aftur 1894. Var í Reykjavík 1910. Íshússtjóri í Reykjavík. Var í Reykjavík 1945.
Jóhannes Magnússon (1919-2002) Ægissíðu
Jóhannes Magnússon fæddist í Vatnsdalshólum í A-Hún. 9. janúar 1919. Hann hóf búskap 1944 á hálfu Undirfelli, sem nú heitir Nautabú í Vatnsdal og bjó þar í þrjú ár. Á Hnjúki í fjögur ár. 1951 flutti hann að Litlu-Borg í Þverárhreppi, en 1955 keypti hann jörðina Ægissíðu á Vatnsnesi og bjó þar til dauðadags. Jóhannes tók þátt í ýmsum félags- og trúnaðarstörfum sveitarinnar. Hann sat í hreppsnefnd Þverárhrepps til margra ára og var varaoddviti í átta ár. Hann var gagnastjóri á Vatnsnesfjalli til fjölda ára og sláturhússtjóri í 14 ár hjá KVH.
Útför Jóhannesar verður gerð frá Breiðabólstaðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11.
"Fyrir hádegi einn góðviðrisdag að áliðnum slætti í ágúst tekur Jóhannes Magnússon hest sinn, leggur við hann og ríður út í hagann, til að sinna búfé. Skammt hefur hann farið er kallið kemur og hann hnígur af baki ofan í skaut þeirrar jarðar sem hann hafði búið á í hartnær 50 ár.
Slíkur dauðdagi fyrir gamlan bónda, sem alla sína löngu ævi hefur verið við búskap hér í héraðinu, verður í raun að teljast æskilegur. Um hádegi þennan sama dag koma ferðamenn á bíl hingað heim og segjast hafa tekið eftir hesti með hnakk út á hlið og taumana uppi. Hafi þeim fundist þetta skrítið og gert hlé á sinni ferð til þess að athuga nánar, því að svo leit út sem einhver hefði fallið af baki, en engan fundið. Þetta var ungt fólk með athyglisgáfuna í lagi því að þau tóku m.a. eftir því að allt benti til þess að um gamlan mann væri að ræða sem þau réðu af umbúnaði reiðtygja. Brugðið var strax við og farið að athuga málið og varð þegar ljóst hvers kyns var. Var án tafar haft samband við nágrannana og hafin leit í norðurgirðingunni þar sem þetta hafði gerst.
Fljótlega dreif að fjölda fólks sem leitaði svæðið, kafgrösuga móa og mýrlendi og undir lokin kom björgunarsveit líka til leitar. Um kl. 5 finnst upp undir vegi, það sem að var leitað. Gamli bóndinn liggur örendur í grasinu og horfir mót himni."
Jóhannes Líndal Jónasson (1884-1966) skólastjóri
Jóhannes Líndal Jónasson 22. maí 1884 - 24. jan. 1966. Kennari á Njarðargötu 49, Reykjavík 1930. Síðast bús. í Reykjavík. Ókvæntur og barnlaus.
Jóhannes Lárus Jóhannsson Lynge (1859-1929) Sóknarprestur á Kvennabrekku
Jóhannes Lárus Lynge Jóhannsson 14. nóv. 1859 - 6. mars 1929. Sóknarprestur á Kvennabrekku í Miðdölum, Dal. 1890-1917, prentari og málfræðingur
Jóhannes Kristófersson (1931) Finnmörk
Jóhannes Kristófersson 4. júní 1931. Var í Finnmörk, Fremri-Torfastaðahr., V-Hún. 1957.
Jóhannes Kristófersson (1866-1951) Fremri-Fitjum
Jóhannes Kristófersson 13. október 1866 - 12. júlí 1951. Var á Skeggjastöðum, Efranúpssókn, Hún. 1880. Bóndi í Finnmörk en lengst af á Fremri-Fitjum. Bóndi á Fremri-Fitjum, Staðabakkasókn, V-Hún. 1901 og 1930.
Jóhannes Kjarval (1885-1972) Listmálari
Listmálari. Var í Reykjavík 1910. Kjarval dvaldist fyrstu fjögur árin hjá foreldrum sínum, en Kjarval stundaði sjómennsku á yngri árum. Fyrstu myndlistarsýningu sína hélt hann í Góðtemplarahúsinu í Reykjavík (Gúttó) árið 1908. Hafði hann þá engrar tilsagnar notið. Þann 26. september sama ár birtist einnig fyrsta greinin um Kjarval í Austra, en hana skrifaði Guðbrandur Magnússon. [1] Guðbrandur beitti sér síðan fyrir því að ungmennafélögin héldu myndlistahappadrætti til að safna í ferðasjóð fyrir Kjarval. Söfnuðust þá 800 krónur, og Hannes Hafstein ráðherra bætti síðar við 1000 krónum úr ríkissjóði. Þessir peningar urðu til þess að Kjarval gat farið utan til náms árið 1909. Hann var í fyrstu vetrarlangt í Lundúnum, bjó hjá lögregluþjóni að 40 Liverpool Street Kings Cross og stundaði þar söfn og málaði.
Kjarval fór til Kaupmannahafnar árið 1913. Hann lauk prófi frá Konunglega listaháskólanum þar í borg árið 1917. Síðar dvaldist hann í Rómaborg og víðar á Ítalíu til ársins 1920 og í París dvaldist hann árið 1928. Frá árinu 1922 starfaði svo Kjarval sem listmálari í Reykjavik. Árið 1992 tók Hannes Sigurðsson, listfræðingur, viðtal við Clement Greenberg (1909 - 1994) sem síðar birtist í Lesbók Morgunblaðsins. Clement var frægur bandarískur myndlistargagnrýnandi, sem fékk viðurnefnið „páfi“ sökum þess hversu óvæginn hann var í gagnrýni sinni. Hannes sýndi honum í lok viðtals bók með verkum Kjarvals, og Greenberg leit í hana og sagði: Hann virðist góður...vissulega er hann góður...heyrðu, þessi náungi getur virkilega málað... ég er einstaklega hrifinn af landslaginu hjá honum. Vinsælasti listamaður á Íslandi segirðu? Það kemur mér ekki á óvart. [2]
Matthías Johannessen, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, segir svo frá í dagbókum sínum árið 1970 að Eggert Stefánsson hafi sagt við Kristján Albertsson: Hugsaðu þér hvað Kjarval var snjall að fá þessa stórkostlegu ídeu að halda Reykjavík út með því að þykjast vera geðveikur - og leikur Hamlet innan um alla idjótana - en svo kemur hann til Parísar - og geturðu ímyndað þér hvernig mér leið, þegar hann hélt áfram að leika Hamlet í París? Þá stóðst ég ekki mátið en fór á hóruhús til að fixera mig upp!
Jóhannes Karlsson (1909-1920) frá Bjargi í Miðfirði
Jóhannes Karlsson 22. maí 1909 - 1. sept. 1920, frá Bjargi í Miðfirði
Jóhannes Jósefsson (1883-1968) Borg
Jóhannes Jósefsson 28. júlí 1883 - 5. okt. 1968. Var í Prentsmiðjunni, Akureyri, Eyj. 1890. Glímukappi og byggði Hótel Borg í Reykjavík. Síðast bús. á Seltjarnarnesi.
Jóhannes Jónsson (1923-1995) Kennari frá Geitabergi
Jóhannes Jónsson frá Geitabergi var fæddur í Klettstíu í Norðurárdal I Mýrasýslu þann 2.1. 1923. Foreldrar Jóhannesar voru Jón Jóhannesson bóndi í Klettstíu, f. 7.12. 1984, d. 26.10.
1973, og Sæunn E. Klemensdóttir f. 5.2. 1890, d. 7.4. 1985.
Jóhannes átti þrjá bræður, sem allir eru á lífi, en þeir eru:
Jóhannes stundaði nám í gamla Ingimarsskólanum í Reykjavik á árunum 1940-1943. Þá var hann einn vetur í Menntaskólanum í
Reykjavík og lauk búfræðinámi frá Bændaskólanum á Hvanneyri vorið 1945. Eftir það starfaði hann við kennslu næstu árin og var kennari í Norðurárdal
í Borgarfirði á árunum 1945-1947 og síðar í Strandahreppi á Hvalfjarðarströnd 1948-1957. Það ár kvæntist hann eftirlifandi konu sinni, Ernu Jónsdóttur frá Geitabergi í Svínadal og
hófu þau hjónin búskap á Geitabergi það sama ár og hafa búið þar miklu rausnarbúi allt til þessa, en hin síðari ár í sambýli við son sinn Pálma. Foreldrar Ernu voru Steinunn Bjarnadóttir og Jón Pétursson, sem lengi bjuggu á Geitabergi í Svínadal. Eftir að Jóhannes hóf bússkap á Geitabergi
gegndi hann ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélag sitt. Sat m.a. í hreppsnefnd í fjölda ára og í skólanefnd Leirárskóla á áranum 1966-1974. Jóhannes og Erna eignuðust fjögur böm.
Elst þeirra er Sigríður, f. 23.5. 1958 og á hún einn son, Kára Eyþórsson að nafni.
Næst barna þeirra er Pálmi, f. 2.10. 1959. Kona hans er Asgerður G. Ásgeirsdóttir og eiga þau tvo syni: Jóhannes Om og Jón Hauk. Fyrir hjónaband eignaðist Pálmi Erlu Björk og Ásgerður Katrínu Ingu.
Þriðja barn Jóhannesar og Ernu er Jón, f. 6.9. 1960, skrifstofustjóri hjá Búseta í Reykjavík kvæntur Kristínu Sif Jónínudóttur og eiga þau einn son, Bjart Örn.
Yngstur er Einar Stefán, f. 23.3. 1962, trésmíðameistari, kvæntur Fjólu Ágústu Ágústsdóttur. Bam þeirra er Steinunn Marín.
Jóhannes Jónsson (1870-1941) Dalgeirsstöðum
Jóhannes Jónsson 29. júní 1870 [30.6.1870] - 23. ágúst 1941. Bóndi á Dalgeirsstöðum í Miðfirði og Búrfelli 1910 og 1920. Múla 1870.
Jóhannes Jónsson (1838) Syðstahvammi
Jóhannes Jónsson 23.1.1838. Syðsta-Hvammi, Kirkjuhvammssókn, Hún. 1845. Bústjóri þar 1870, síðar bóndi þar 1890 og 1910. Ókvæntur.
Jóhannes Jónasson Bergmann (1872) Selkirk, frá Litlutungu
Jóhannes Jónasson (Johannes Bergman) 22. sept. 1872. Sonur þeirra á Litlutungu, Staðarbakkasókn, Hún. 1880. Vinnumaður á Bjarghóli, Staðarbakkasókn, Hún. 1890. Bóndi í Selkirk, Manitoba, Kanada 1916.
Jóhannes Jóhannesson (1875-1937) Iðavöllum í Kálfshamarsvík
Jóhannes Jóhannesson 20. ágúst 1875 - 17. júlí 1937. Formaður á m/b í Skagastrandarkaupstað 1930. Sjómaður á Iðavöllum í Kálfshamarsvík.
Jóhannes Jóhannesson (1866-1950) bæjarfógeti á Seyðisfirði
Jóhannes Jóhannesson 17. jan. 1866 - 7. feb. 1950. Fyrrverandi bæjarfógeti á Suðurgötu 4, Reykjavík 1930. Sýslumaður og bæjarfógeti á Seyðisfirði.
Jóhannes Jóhannesson (1865-1890) frá Vatnsenda
Jóhannes Jóhannesson 22. júlí 1865 - 14.8.1890, frá Vatnsenda. Núpdalstungu. Tökudrengur Þóroddsstöðum 1870. Sjómaður Hrólfs á Illugastöðum. Gæti verið sá sem er í Húsi Eyjólfs Oddssonar Reykjavík 1880, fæddur í Staðarsókn.
Jóhannes Jóhannesson (1848-1922) Útibleiksstöðum
Léttadrengur á Kollafossi, Efranúpssókn, Hún. 1860. Bóndi á Böðvarshólum, Breiðabólstaðarsókn, sjóróðrarmaður á Almenningi, Kirkjuhvammssókn, Hún. 1880. Bóndi á Sporði í Línakradal, Þorkelshólshr. Síðar á Útibleiksstöðum í Miðfirði, Ytri-Torfustaðahr., V-Hún. Var þar 1901.
Jóhannes Jasonarson (1848) Vert
Jóhannes Jasonarson, f 10. okt. 1848. Fósturdrengur í Kistu, Vesturhópshólasókn, Hún. 1860. Vinnumaður í Ósum, Vesturhópshólasókn, Hún. 1870. Greiðasölumaður á Blönduósi, Hjaltabakkasókn, Hún. 1877-1881.
Jóhannes J Björnsson (1932-2009) Lögreglumaður Akureyri
Jóhannes J. Björnsson 13.11.1932 - 3.12.2009, fæddur á Akureyri. Lögreglumaður og farmaður á Akureyri. Kjörsonur: Sveinbjörn Jóhannesson, f. 15.1.1970.
Jóhannes ólst upp hjá móður sinni í Norðurgötunni á Akureyri og var einkabarn hennar.
Hann lést á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri 3. desember 2009.
Útför Jóhannesar fór fram frá Akureyrarkirkju 15. desember 2009, og hófst athöfnin kl. 10.30.
Jóhannes J. Albertz (1899-1975) Lögregluþjónn í Vestmannaeyjum
Jóhannes Jóhannsson Albertz 19. nóv. 1899 - 4. feb. 1975. Lögregluþjónn í Vestmannaeyjum í 36 ár. Jóhannes dvaldi í Ástralíu hjá dóttur þeirra Mörtu, Soffíu Lillý, er hann lést.
Jóhannes Ingi Friðþjófsson (1943)
Jóhannes Hinriksson (1904-1973) Ásholti Skagaströnd
Jóhannes Hinriksson 21. jan. 1904 - 27. okt. 1973. Grund í Vesturhópi 1910. Þingeyrum 1920. og fjárhirðir í Hjallalandi, Þingeyrasókn, A-Hún. 1930. Var í Ásholti, Höfðahr., A-Hún. 1957. Bóndi þar.
Þau hófu búskap að Hólabaki í Þingi en fluttu eftir sex ár til Skagastrandar og settust að í Háagerði. Árið 1947 keyptu þau jörðina Ásholt í Höfðakaupstað þar sem þau bjuggu þar til Jóhannes lést
Jóhannes Helgason (1865-1946) Svínavatni
Jóhannes Helgason 21. desember 1865 - 21. júní 1946. Bóndi á Svínavatni, Auðkúlusókn, A-Hún. 1930. Bóndi á Svínavatni
Johannes Hauerslev (1860-1921) ljósmyndari Fælledsvej Kaupmannahöfn n
Johannes Hauerslev 5.5.1860 - 21.10.1921. Ljósmyndari Álaborg og Kaupmannahöfn 1901. Lærði bakstur, lærði síðan ljósmyndun hjá konu sinni.
Jóhannes Haraldur Jónsson (1923-1995)
Jóhannes Haraldur Jónsson fæddist á Gili í Dýrafirði 30. nóvember 1923. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 12. maí síðastliðinn. Jói var lærður vélstjóri, hann starfaði á olíuskipinu Skeljungi, síðan á Kyndli, lengst var hann á dráttarskipinu Goðanum, á Akraborgu og síðast á Helgey. Eftir að hann kom í land vann hann á bensínsölu Skeljungs á Miklubraut. Allstaðar þar sem hann vann var hann góður félagi og samviskusamur starfsmaður. Útför Jóhannesar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Jóhannes Haraldsson (1928-2011)
Jóhannes Haraldsson fæddist á Völlum í Skagafirði 28. maí 1928. Hann lést á sjúkrahúsi Skagfirðinga á Sauðárkróki 11. janúar 2011. Jóhannes nam við Héraðsskólann á Laugarvatni tvo vetur. Ungur að árum eignaðist hann vörubíl og stundaði vinnu í vegagerð á sumrin, en gerðist síðan starfsmaður Vegagerðar ríkisins og vann sem veghefilsstjóri í Skagafirði í 41 ár. Síðustu árin átti hann við veikindi að stríða og dvaldist á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki.
Jóhannes verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju í dag, 20. janúar 2011, og hefst athöfnin kl. 11.
Jóhannes Hallgrímsson (1886-1975) Botnastöðum ov
Jóhannes Hallgrímsson 17. sept. 1886 - 16. des. 1975. Bóndi á Botnastöðum í Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. Bóndi á Tungunesi, Auðkúlusókn, A-Hún. 1930. Var í Þverárdal, Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Bólstaðarhlíðarhreppi.
Jóhannes Halldórsson (1867-1937) Móbergi
Jóhannes Halldórsson 11. apríl 1867 - 29. jan. 1937. Húsmaður á Móbergi, Holtastaðasókn, A-Hún. 1930.
Jóhannes Guðmundsson (1948-1995)
Jóhannes Guðmundsson var fæddur í Reykjavík 15. apríl 1948. Búfræðingur og viðgerðarmaður í Danmörku. Hann lést í Danmörku 23. maí 1995.
Útför Jóhannesar fór fram frá Lágafellskirkju 8.6.1995 og hófst athöfnin klukkan 13.30.
Jóhannes Guðmundsson (1892-1985) frá Bergstöðum í Svartárdal, bóndi í Arnarnesi
Jóhannes Guðmundsson 3. okt. 1892 - 5. maí 1985. Var í Reykjavík 1910. Var í Arnarnesi, Hafnarfjarðarsókn, Gull. 1930.
Jóhannes Guðmundsson (1850-1906) Auðunnarstöðum
Jóhannes Guðmundsson 4. ágúst 1850 - 23. maí 1906. Húsbóndi á Hörghóli, Breiðabólstaðarsókn, Hún. 1880. Bóndi á Auðunnarstöðum, Víðidalstungusókn, Hún. 1901.
Jóhannes Guðmannsson (1934-2018) Sæbóli V-Hvs
Fæddur í Vatnsenda á Vatnsnesi, búsettur Sæbóli Vatnsnesi 1973.
Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 23. september 2018.
Útförin fór fram frá Grafarvogskirkju 1. október 2018, klukkan 13.
Jóhannes Guðjónsson (1898-1934) Réttarholti á Skagaströnd
Jóhannes Guðjónsson 23. des. 1898 - 12. jan. 1934. Var á Vindhæli, Spákonufellssókn, Hún. 1901. Nefndur Jóhann í manntalinu 1910. Háseti í Skagastrandarkaupstað 1930. Réttarholti.
Jóhannes Gíslason Gillies (1857-1923) Winnipeg, frá Eyvindarstöðum
Jóhannes Gíslason Gillies 18.3.1857 - 29.1.1928. Var í Ásum, Svínavatnssókn, Hún. 1860. Var á Eyvindarstöðum, Blöndudalshólasókn, Hún. 1870. Fluttist til Vesturheims 1876 frá Eyvindarstöðum, Bólstaðahlíðarhreppi, Hún.
Jóhannes Friðrik Hansen (1925) Sauðárkróki
Jóhannes Friðrik Hansen 23. des. 1925. Var á Sauðárkróki 1930.
Jóhannes Friðrik Hansen (1891-1952) Garði í Hegranesi
Jóhannes Friðrik Hansen 17. janúar 1891 - 27. mars 1952. Bóndi í Garði í Hegranesi, Skag. Kennari, vegaverkstjóri, oddviti og skáld á Sauðárkróki.
Jóhannes Erlendsson (1891-1977) Stóru-Giljá
Hann var fæddur að Beinakeldu í Torfalækjarhreppi 21. maí 1891. Bóndi á Stóru-Giljá, Þingeyrasókn, A-Hún. 1930. Jóhannes ólst upp í föðurgarði í hópi 8 systkina er á legg komust. Ungur að árum vann hann að búi foreldra sinna, eins og títt var um unglinga ti! sveita á þeim tíma. Um skólagöngu var eigi að ræða, því vinnan gekk fyrir öllu.
andaðist á heimili sínu 23. október 1977.
Var á Stóru-Giljá í Torfalækjahr., A-Hún. 1957. Bóndi þar, ókvæntur og barnlaus.
Jóhannes Erlendsson (1883-1969) frá Brekku
Jóhannes Erlendsson 31.8.1883 - 2.2.1969. Var á Hólabaki, Þingeyrasókn, Hún. 1890. Gestkomandi í Reykjavík 1910. Sýslukrifari á Efra-Hvoli, Stórólfshvolssókn, Rang. 1920 og 1930. Ókvæntur 1920.
Jóhannes Davíðsson (1898-1966) Hvammstanga
Jóhannes Davíðsson 25. október 1898 - 4. júní 1966. Vörubílsstjóri á Hvammstanga 1930. Var á Melum, Hvammstangahr., V-Hún. 1957. Síðast bús. í Hvammstangahreppi.
Jóhannes Árnason (1911-1981) Neðri-Fitjar
Jóhannes Pétur Árnason 30. júní 1911 - 12. ágúst 1981. Var í Litlutungu, Efri-Núpssókn, V-Hún. 1930. Heimili: Neðri-Fitjar. Var á Neðri-Fitjum I, Þorkelshólshr., V-Hún. 1957. Síðast bús. í Þorkelshólshreppi. Reisti nýbýlið Efri-Fitjar 1943, byggði þar öll hús frá grunni og jók mjög við ræktað land.
Jóhannes Árnason (1890-1971) Gunnarsstöðum í Þistilfirði
Jóhannes Árnason 18. júní 1890 - 25. feb. 1971. Bóndi á Gunnarsstöðum, Svalbarðssókn, N-Þing. 1930. Bóndi og búfræðingur á Gunnarsstöðum í Þistilfirði nærfellt 50 ár.
Jóhannes Árnason (1882) Egilsstöðum í Vesturhópi
Jóhannes Árnason 28. ágúst 1882. Var í Stöpum, Kirkjuhvammssókn, Hún. 1901. Trésmiður á Egilsstöðum, Vesturhópshólasókn, V-Hún. 1930.
Johanne Sæmundsen (1885-1978) Söngkona Kaupmannahöfn
Johanne Carla Sæmundsen fædd Thomsen f. 29.1.1885 - 1.7.1978. Söngkona. Jarðsett í Holmens kirkjugarði í Kaupmannahöfn
Johanne Hemmert (1865) Kaupmannahöfn
Godtfrede Johanne Hemmert 11.4.1865. Denmark Census, 1925 ógift Gammelby 25 Köbenhavn. Kennslukona Hilleröd.
Jóhanna Valdemarsdóttir (1947) Skagaströnd
Jóhanna Valdemarsdóttir 8. okt. 1947. Var í Drangey, Höfðahr., A-Hún. 1957.
Jóhanna Tómasdóttir (1931-2022) Reykjavík
Jóhanna Guðbjörg Tómasdóttir 13. júlí 1931 - 18. feb. 2022. Húsfreyja í Reykjavík, fædd í Vestmannaeyjum. Einkabarn
Jóhanna Þorvaldsdóttir (1947) Kópavogi, Litla-Ósi í Miðfirði
Jóhanna Þorvaldsdóttir 6.2.1947. Kópavogi, var á Litla-Ósi, Kirkjuhvammshr., V-Hún. 1957. Kvsk á Blönduósi 1964-1965.
Jóhanna Þorsteinsdóttir (1911-1973) Höskuldsstöðum
Jóhanna Petrea Þorsteinsdóttir 14. apríl 1911 - 8. sept. 1973. Höskuldsstöðum. Síðast bús. í Reykjavík. Talsímastúlka á Blönduósi um1930.
Jóhanna Þorsteinsdóttir (1894-1968) Efstabæ (Agnarsbæ) Blönduósi
Jóhanna Þorsteinsdóttir 8. apríl 1894 - 2. jan. 1968. Var á Orrastöðum, Blönduósssókn, A-Hún. 1930. Var í Efstabæ, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Prónakona á Blönduósi. Ógift. Síðast bús. í Reykjavík. Brautarholti 1917.
Jóhanna Þorsteinsdóttir (1879-1957) frá Grund í Svínadal,
Jóhanna Þorsteinsdóttir 29.5.1879 - 13.7.1957. Var í Reykjavík 1910. Kennari þar. Ógift, barnlaus.
Jóhanna Þorsteinsdóttir (1871-1918) frá Kagaðarhóli
Jóhanna Þorsteinsdóttir Thorderson 28. sept. 1871 - 11 maí 1918, Sedro-Woolley, Skagit, Washington, United States. Með foreldrum á Jódísarstöðum og Langavatni, Aðaldælahreppi til um 1875 og síðan í Brekknakoti í Reykjahverfi um 1877-79. Var á Kagaðarhóli, Hjaltabakkasókn, Hún. 1880. Í vistum og vinnumennsku í Reykjahverfi, Aðaldal og Húsavík 1888-96. Fluttist til Vesturheims 1896 frá Árnesi, Húsavíkurhreppi, S-Þing. Blaine Whatcom Washington. Jarðsett í Blaine Cementry
Jóhanna Þórðardóttir (1884-1975) Pétursborg
Jóhanna Þórðardóttir f. 18. ágúst 1884, d. 18. okt. 1975, frá Steindyrum í Svarfaðardal. Tilraun 1947. Húsfreyja á Blönduósi. Var í Pétursborg, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Blönduóshreppi.
Jóhanna Þorbjarnardóttir (1924-2005) Akranesi
Jóhanna Ingibjörg Þorbjörnsdóttir fæddist í Bakkakoti í Skorradal 4. febrúar 1924.
Hún andaðist á sjúkrahúsi Akraness þriðjudaginn 8. nóvember 2005. Útför Jóhönnu var gerð frá Akraneskirkju 16.11.2005 og hófst athöfnin klukkan 14.
Jóhanna Þórarinsdóttir (1934-2022) Æsustöðum
Jóhanna Ásta Þórarinsdóttir 10. jan. 1934 - 16. jan. 2022. Húsfreyja á Æsustöðum í Langadal og síðar í Kópavogi. Var í Neðsta Bæ, Vindhælishr., A-Hún. 1957.
Jóhanna Thorarensen (1910-2004) Litla-Bergi
Jakobína Jóhanna Thorarensen 8. nóv. 1910 - 6. mars 2004. Vinnukona í Kolbeinsvík, Árnesssókn, Strand. 1930. Var á Litla Bergi, Höfðahr., A-Hún. 1957. Bús. á Skagaströnd. Skv. Thorarensenætt er Jóhanna ekki dóttir Jakobs heldur sonar hans og nafna.
Nokkurra daga gömul var hún send í fóstur að Kambi í sömu sveit til Höllu Sveinbjörnsdóttur og Kristins Guðbrandssonar og var hjá þeim til 6 ára aldurs, en þá lést fósturmóðir hennar. Þá tóku hjónin Halla Júlíusdóttir, f. 4.5. 1897, d. 6.11. 1980 og Árni Guðmonsson, f. 20.10. 1895, d. 7.11. 1948 Kolbeinsvík, hana að sér og ólst hún upp hjá þeim
Jóhanna Sveinsdóttir (1864-1952) Mánaskál
Jóhanna Sveinsdóttir 2.2.1864 - 10.6.1952. Vinnukona á Sléttu, Höskuldsstaðasókn, A-Hún. 1930. Húsfreyja í Mánaskál á Laxárdal fremri,
Jóhanna Stella Jóhannsdóttir (1970)
Jóhanna Stella Jóhannsdóttir 8. október 1970.
Jóhanna Steinunn Ágústsdóttir (1947)
Jóhanna Stefánsdóttir (1872-1911) Þorbergsstöðum
Jóhanna Stefánsdóttir 23. nóv. 1872 - 31. des. 1911. Húsfreyja á Þorbergsstöðum í Laxárdal, Dal. Reynikeldu 1880, Stórutungu 1890
Jóhanna Sigþrúður Pétursdóttir (1888–1958) ljósmyndari, J. Pétursdóttir & Co Reykjavík
Var í Reykjavík 1910. Húsfreyja í Reykjavík.
Jóhanna Rósa Torfadóttir (1873-1930) Kaliforníu
Jóhanna Rósa Torfadóttir 3. júní 1873 - 20. ágúst 1930. Kaliforníu. Fór til Vesturheims 1887 frá Reykjavík.
Jóhanna Ragnarsdóttir (1948) Siglufirði Vefnaðarkennari
Jóhanna Sigríður Ragnarsdóttir 6.9.1948 Siglufirði. Vefnaðarkennari Kvsk á Blönduósi 1971-1972.
Jóhanna Pálsdóttir (1949) Skagaströnd
Jóhanna Sigríður Pálsdóttir 26. júní 1949. Var á Hólabraut 7, Höfðakaupstað , A-Hún. 1957.
Jóhanna Pálsdóttir (1933-2017) myndlistarmaður frá Skinnastöðum
Jóhanna Katrín Pálsdóttir (Hanna Pálsdóttir) 10. feb. 1933 - 24. jan. 2017. Bankastarfsmaður í Reykjavík og síðar myndlistarmaður.
Jóhanna Pálsdóttir (1867-1890) Hjaltabakka
Jóhanna Andrea Pálsdóttir 5. apríl 1867 - 16. jan. 1900. Miðdal, Hjaltabakka og Gaulverjabæ.