Jón Á Egilson (1865-1931) Friðfinnshúsi

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Jón Á Egilson (1865-1931) Friðfinnshúsi

Parallel form(s) of name

  • Jón Egilson (1865-1931) Friðfinnshúsi

  • Jón Árnason (1865-1931) Friðfinnshúsi

  • Jón Árnason Egilson Friðfinnshúsi

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      7.9.1865 - 16.7.1931

      History

      Jón Árnason Egilson 7. sept. 1865 - 16. júlí 1931. Skrifstofumaður í Bergstaðastræti 71, Reykjavík 1930. Kaupmaður í Reykjavík og Stykkishólmi 1909. Bókari Möllers. Friðfinnshúsi 1896, fyrsti íbúinn þar var, nefndist þá Möllershús.
      Jón Á. Egilson bókari andaðist um síðustu helgi; var hann þá staddur á skemtiferð í Borgarfirði í sumarleyfi sínu. Jón heitinn var hinn vinsælasti maður og hvers manns- hugljúfi, þeirra er honum kyntust. Hann varð rúmlega hálfsjötugur, fæddur 7. september 1865

      Places

      Lambastaðir á Seltjarnarnesi; Hafnarfjörður; Hofteigur á Jökuldal 1876; Friðfinnshús [Möllers] Blönduósi 1896; Sauðárkrókur; Stykkishólmur; Ólafsvík; Reykjavík:

      Legal status

      Gagnfræðaskólinn Flensborg Hafnarfirði, einn af fyrstu nemendum hans;

      Functions, occupations and activities

      Bókari; Verslunarstjóri;

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hans; Þorsteinn Sveinbjörnsson Egilson 5. jan. 1842 - 20. okt. 1911. Cand. theol. Kaupmaður í Hafnarfirði og kona hans [þau skildu] Arndís Ásgeirsdóttir 10. nóv. 1839 - 23. okt. 1905. Var í Reykjavík 1845. Húsfreyja í Hafnarfirði. Húsfreyja á Hofi, Undirfellssókn, Hún. 1890. Húsfreyja í Bjarnahúsi, Blönduóssókn, Hún. 1901. Systir sra Þorvaldar á Hjaltabakka og Steinnesi. Fráskilin Hjaltabakka 1880.
      Seinni kona hans; Elísabet Þórarinsdóttir 2. júní 1851 - 15. nóv. 1901. Var í Görðum, Garðasókn, Gull. 1870. Húsfreyja í Hafnarfirði.

      Alsystkini hans;
      1) Sveinbjörn Ásgeir Egilson 21. ágúst 1863 - 25. okt. 1946. Verslunarmaður í Viðey. Ritstjóri og skrifstofustjóri í Reykjavík.

      Samfeðra;
      2) Þórarinn Böðvar Egilson 3. nóv. 1881 - 22. júlí 1956. Útgerðarmaður í Hafnarfirði 1930. Útgerðarmaður og framkvæmdastjóri í Hafnarfirði.
      3) Gunnar Þorsteinsson Egilson 9. júlí 1885 - 14. ágúst 1927. Stjórnarerindreki Íslands á Spáni og víðar. Húsbóndi í Reykjavík 1910.
      4) Egill Egilson 16. sept. 1887 - 21. sept. 1887.

      Kona hans 13.6.1895; Guðrún Ragnheiður Benediktsdóttir Blöndal Egilson 1. mars 1865 - 18. maí 1949. Frá Hvammi í Vatnsdal Húsfreyja í Bergstaðastræti 71, Reykjavík 1930. Húsfreyja í Reykjavík.

      Börn þeirra;
      1) Þorvaldur Egilsson Jónsson 13. júní 1897 - 6. feb. 1971. Skrifstofumaður á Keflavíkurflugvelli. Var í Egilsenshúsi, Sauðárkrókssókn, Skag. 1901. Bílstjóri á Harrastöðum, Skildinganesi, Reykjavíkursókn, Kjós. 1930. Síðast bús. í Reykjavík. Barnsmóðir hans Stefanía Erlendsdóttir 21. nóv. 1896 - 18. feb. 1943. Húsfreyja á Patreksfirði. Húsfreyja í Valhöll , Eyrasókn, V-Barð. 1930.
      3) Margrét Arndís Jónsdóttir Egilson, f. 20. jan. 1899, d. 4. jan. 1967. Húsfreyja á Laugavegi 71, Reykjavík 1930. Húsfreyja í Reykjavík 1945. Síðast bús. í Reykjavík.
      4) Fanný Jónsdóttir Egilson 30. apríl 1901 - 25. júní 1999. Húsfreyja í Reykjavík. Var í Egilsenshúsi, Sauðárkrókssókn, Skag. 1901. Maður hennar 4. janúar 1930; Högni Halldórsson

      1. ágúst 1896 - 28. des. 1984. Var í Reykjavík 1910. Verslunarmaður í Bergstaðastræti 71, Reykjavík 1930. Bóndi og verkstjóri í Reykjavík 1945.
        5) Benedikt Gísli Blöndal Egilsen, f. 15. jan. 1906, d. 16. feb. 1916.

      General context

      Hann var fæddur 7. september 1865 á Lambastöðum á Seltjarnarnesi.
      Foreldrar hans voru Þorsteinn Egilson kaupmaður í Hafnarfirði og Arndís dóttir Ásgeirs Finnbogasonar og Sigríðar Þorvaldsdóttur frá Bólstaðarhlíð.

      Níu ára gamall fór Jón til Þorvalds móðurbróður síns, sem þá var prestur að Hofteigi og dvaldist hjá honum fram yfir fermingaraldur. Um 1881 kom hann suður aftur og gekk í gagnfræðaskólann í Flensborg er sá skóli tók til starfa. Síðan var Jón við verslun þar syðra, bæði hjá föður sínum og síðan hjá Jóni O. V. Johnsen, sem var áður verslunarstjóri Smiths-verslunar hjer í bæ, en byrjaði að versla fyrir sjálfan sig, er Smith hætti.Síðan var hann við verslunarstörf á Blönduósi hjá Jóhanni kaupmanni Möller og kvæntist meðan hann var þar (13. júní 1895) ungfrú Guðrúnu Benediktsdóttur Blöndals umboðsm. í Hvammi í Vatnsdal, og lifir hún mann sinn.

      Nokkuru seinna fluttist Jón til Popps á Sauðárkrók, og var við verslun hans í nokkur ár. Þegar hann fór þaðan gerðist hann verslunarstjóri hjá Gramsverslun í Stykkishólmi og veitti henni forstöðu til ársins 1908. Eftir það var hann við verslun í Stykkishólmi og Ólafsvík þar til um nýjár 1912, er hann tók við umsjónarstarfi við áfengiskaup og hjelt þeirri stöðu þangað til Áfengisverslun ríkisins tók til starfa. —

      Gerðist hann þá aðalbókari í skrifstofu þeirrar verslunar og gegndi því starfi árin 1922—1928. Síðan hann fór frá Áfengisversluninni og þangað til hann dó, vann hann að mestu hjá Mogensen lyfsala, eiganda Ingólfs-lyfjabúðar, og var bókari hjá honum.

      Þau Jón og Guðrún eignuðust fjögur börn, tvo syni og tvær dætur. Annan son sinn mistu þau árið 1915, hið efnilegasta barn. Hinn sonurinn er í foreldrahúsum, en dæturnar eru báðar giftar og búsettar hjer í bæ.

      Jón heitinn var maður fríður sýnum, svipmikill en sviphreinn, einn af þeim, sem ókunnugir taka ósjálfrátt eftir í mannfjölda. — Barst hann þó ekki á, síður en svo, og eigi var það vegna þess að hann bæri af öðrum á vöxt, því að hann var meðalmaður á hæð. Jón hafði hið mesta yndi af hestum, eins og margir þeir frændur. Kunni hann vel að fara með góða hesta og var aldrei kátari heldur en þegar hann var í samreið með góðum kunningjum í góðu veðri og á góðum hesti. Og svo undarlega vildi til, að seinustu stundir æfi sinnar naut hann þessa.

      Hann skrapp upp í Borgarfjörð 14. júlí til þess að eyða sumarleyfi sínu í Hjarðarholti. Hinn 16. júlí brugðu þeir sjer ríðandi að Hreðavatni, hann og Þorvaldur frændi hans. En að Hieðavatni varð Jón bráðkvaddur þá um daginn.

      Relationships area

      Related entity

      Jóhann Möller (1848-1903) Kaupmaður Blönduósi (22.10.1848 - 11.11.1903)

      Identifier of related entity

      HAH04898

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Jón var bókari hjá Möller

      Related entity

      Guðrún Benediktsdóttir Blöndal (1865-1949) (1.3.1865 - 18.5.1949)

      Identifier of related entity

      HAH04421

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðrún Benediktsdóttir Blöndal (1865-1949) is the spouse of Jón Á Egilson (1865-1931) Friðfinnshúsi

      Dates of relationship

      13.6.1895

      Description of relationship

      Börn þeirra; 1) Þorvaldur Egilsson Jónsson 13. júní 1897 - 6. feb. 1971. Skrifstofumaður á Keflavíkurflugvelli. Var í Egilsenshúsi, Sauðárkrókssókn, Skag. 1901. Bílstjóri á Harrastöðum, Skildinganesi, Reykjavíkursókn, Kjós. 1930. Síðast bús. í Reykjavík. Barnsmóðir hans Stefanía Erlendsdóttir 21. nóv. 1896 - 18. feb. 1943. Húsfreyja á Patreksfirði. Húsfreyja í Valhöll , Eyrasókn, V-Barð. 1930. 3) Margrét Arndís Jónsdóttir Egilson, f. 20. jan. 1899, d. 4. jan. 1967. Húsfreyja á Laugavegi 71, Reykjavík 1930. Húsfreyja í Reykjavík 1945. Síðast bús. í Reykjavík. 4) Fanný Jónsdóttir Egilson 30. apríl 1901 - 25. júní 1999. Húsfreyja í Reykjavík. Var í Egilsenshúsi, Sauðárkrókssókn, Skag. 1901. Maður hennar 4. janúar 1930; Högni Halldórsson 24. ágúst 1896 - 28. des. 1984. Var í Reykjavík 1910. Verslunarmaður í Bergstaðastræti 71, Reykjavík 1930. Bóndi og verkstjóri í Reykjavík 1945. 5) Benedikt Gísli Blöndal Egilsen, f. 15. jan. 1906, d. 16. feb. 1916.

      Related entity

      Magnús Gunnlaugsson Blöndal (1862-1927) ritstjóri og kaupmaður (7.9.1862 - 29.11.1927)

      Identifier of related entity

      HAH02512

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Magnús Gunnlaugsson Blöndal (1862-1927) ritstjóri og kaupmaður is the cousin of Jón Á Egilson (1865-1931) Friðfinnshúsi

      Dates of relationship

      7.9.1865

      Description of relationship

      Systkina börn

      Related entity

      Friðfinnshús Blönduósi / Læknahús 1897-1901 (1896 -)

      Identifier of related entity

      HAH00100

      Category of relationship

      hierarchical

      Type of relationship

      Friðfinnshús Blönduósi / Læknahús 1897-1901 is controlled by Jón Á Egilson (1865-1931) Friðfinnshúsi

      Dates of relationship

      1896

      Description of relationship

      Var þá starfsmannahús Möllers.

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH04906

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 4.6.2019

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Sources

        ®GPJ ættfæði.
        Morgunblaðið, 166. tölublað (22.07.1931), Blaðsíða 3. http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=1221562

        Maintenance notes