Jón Bjarnason (1946-1990) bifreiðastjóri Blönduósi

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Jón Bjarnason (1946-1990) bifreiðastjóri Blönduósi

Parallel form(s) of name

  • Jón Bjarnason (1946-1990) Blönduósi

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      24.1.1946 -15.11.1990

      History

      Í dag er til moldar borinn Jón Bjarnason bifreiðastjóri, Hlíðarbraut 9, Blönduósi. Jón lést 15. nóvember sl. eftir harða baráttu við illvígan sjúkdóm, sem hann varðist af æðruleysi, þótt hann um síðir lyti í lægra haldi. Frá því um tvítugt gerði Jón út eigin vörubíl og stundaði alla tilfall andi flutninga, þar til á liðnu sumri, að kraftar voru á þrotum. Að vetrin um þegar minna var að gera við flutninga, vann Jón gjarnan við bílaviðgerðir, enda hafði hann mik inn áhuga á hverskonar vélum.
      Fljótlega eftir að Jón settist að á Blönduósi gekk hann til liðs við Björgunarsveitina Blöndu, þar sem hann var ötull og góður liðsmaður. Í starfi fyrir sveitina naut hann sín kannski best þegar verkefnin voru erfiðust. Það var sama hvort til hans var leitað á nóttu eða degi, alltaf var hann boðinn og búinn, næstum sama hvernig á stóð, enda naut hann þar stuðnings eiginkonu sinnar. Dugmeiri ferðamaður er vandfundinn, hann taldi sjaldan eða aldrei ófært, í versta falli erfið færð eða seinfarin leið. Ekki var um að ræða að gefast upp fyrr en í fulla hnefana þyrfti að ná ákveðnum áfanga. Úrræði skorti ekki heldur, þótt eitthvað óvænt kæmi upp á. Athugasemdir og hnyttin tilsvör setti hann þá gjarna fram á þann hátt, sem honum einum var lagið. Það var oft þegar verst gekk og öðrum virtist jafnvel að ekki yrði lengra farið að sinni, að Jón sagði, "eigum við ekki að prófa?" og oftar en ekki tókst tilraunin. Ef við hinir vorum með óþarfa úrtölur að hans dómi, átti hann til að segja, "nú þorið þið ekki, ég skal fara fyrst ur", síðan var lagt af stað án frek ari málalenginga.
      Jón var einn af þeim fyrstu hér um slóðir, sem eignaðist vélsleða, fyrst í félagi við annan, síðan einn, fleiri bættust síðan í hópinn. Margar ferðir voru farnar um nærliggjandi fjöll og inn til heiða á sleðun um, bæði í starfi fyrir björgunarsveitina og svo til skemmtunar, þegar tækifæri gáfust. Þær ferðir urðu margar hverjar ógleymanleg ar. Ein síðasta ferðin sem Jón fór með okkur var á Landsmót LÍV, sem haldið var í Kerlingarfjöllum sl. vetur. Veður og færð var eins og best verður á kosið. Þeirrar ferðar held ég að hann hafi notið alveg, þótt heilsan væri farin að gefa sig verulega.
      Jón var einn af stofnendum Kiwanisklúbbsins Borga á Blönduósi og var þar virkur félagi um árabil.

      Places

      Hagi í Þingi: Blönduós:

      Legal status

      Functions, occupations and activities

      Bifreiðastjóri:

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Hann fæddist 24. janúar 1946, sonur hjónanna Bjarna Jónssonar bónda í Haga og konu hans Jófríðar Kristjánsdóttur, sem nú sér á bak syni sínum, fáum mánuðum eftir fráfall eiginmanns síns, en Bjarni lést fyrr á þessu ári.
      Eftirlifandi kona Jóns er Sigurbjörg Guðmundsdóttir sjúkraliði frá Neðri-Mýrum. Þau voru gefin saman í Þingeyrakirkju á páskadag 1975.
      Synir þeirra eru
      1) Bjarni og
      2) Guðmundur, báðir í foreldrahúsum

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Unnur Einarsdóttir (1911-1998) Neðri-Mýrum (6.5.1911 -8.6.1998)

      Identifier of related entity

      HAH02095

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Jón var giftur Sigurbjörgu Sigríði dóttir Guðmundar Mýrmann bróður Unnar

      Related entity

      Lára Sigurðardóttir (1921-2008) frá Mánaskál (2.5.1921 - 9.12.2008)

      Identifier of related entity

      HAH02202

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Jón var giftur Sigurbjörgu dóttur Guðrúnar systur Láru

      Related entity

      Hólmfríður Sigurðardóttir (1915-2002) Mánaskál (20.6.1915 - 18.9.2002)

      Identifier of related entity

      HAH04326

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Jón var giftur Sigurbjörgu dóttur Hólmfríðar

      Related entity

      Hlíðarbraut Blönduósi (um 1977)

      Identifier of related entity

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Húsbóndi nr 9 keypti húsið

      Related entity

      Hlíðarbraut Blönduósi (um 1977)

      Identifier of related entity

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Húsbóndi nr 9

      Related entity

      Björg Bjarnadóttir (1944) Sölvabakka (14.10.1944)

      Identifier of related entity

      HAH02714

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Björg Bjarnadóttir (1944) Sölvabakka is the sibling of Jón Bjarnason (1946-1990) bifreiðastjóri Blönduósi

      Dates of relationship

      24.1.1946

      Description of relationship

      Related entity

      Kristín Bjarnadóttir (1948) Haga (29.5.1948)

      Identifier of related entity

      HAH06881

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Kristín Bjarnadóttir (1948) Haga is the sibling of Jón Bjarnason (1946-1990) bifreiðastjóri Blönduósi

      Dates of relationship

      29.5.1948

      Description of relationship

      Related entity

      Sverrir Haraldsson (1928-2002) Æsustöðum (6.1.1928 - 24.10.2002)

      Identifier of related entity

      HAH02071

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Sverrir Haraldsson (1928-2002) Æsustöðum is the cousin of Jón Bjarnason (1946-1990) bifreiðastjóri Blönduósi

      Dates of relationship

      Description of relationship

      börn Bjarna í Haga og Sigurbjargar í Gautsdal

      Related entity

      Jófríður Kristjánsdóttir (1920-1995) Haga (1.6.1920 - 22.5.1995)

      Identifier of related entity

      HAH01538

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Jófríður Kristjánsdóttir (1920-1995) Haga is the parent of Jón Bjarnason (1946-1990) bifreiðastjóri Blönduósi

      Dates of relationship

      24.1.1946

      Description of relationship

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01567

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 26.6.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Sources

        ®GPJ ættfræði

        Maintenance notes