Árni Jóhannsson (1939) kaupfélagsstjóri Blönduósi
- HAH03574
- Person
- 24.1.1939 -
Árni Sverrir Jóhannsson 24. janúar 1939 Kaupfélagsstjóri Blönduósi.
Árni Jóhannsson (1939) kaupfélagsstjóri Blönduósi
Árni Sverrir Jóhannsson 24. janúar 1939 Kaupfélagsstjóri Blönduósi.
Árni Evert Jóhannsson 26. maí 1904 - 13. desember 1992 Bóndi á Hrauni, Hofssókn, Skag. 1930. Síðast bús. á Akureyri.
Árni Ingvarsson (1963) Skjaldbreið á Skagaströnd
Árni Geir Ingvarsson 23. janúar 1963 Skagaströnd
Árni Hraundal (1916-1988) Grafarkoti
Árni Eyjólfur A. Hraundal 15. sept. 1916 - 28. okt. 1988. Bóndi í Lækjarhvammi, Kirkjuhvammshr., V-Hún., síðast bús. í Hvammstangahreppi.
Hann hét fullu nafni Árni Eyjólfur Jón Óskar og var sonur hjónanna Sigurlaugar Guðmundsdóttur ljósmóður og Ásgeirs Hraundal rithöfundar og bóksala. Þau hjónin bjuggu að Baldurshaga á Vatnsnesi í Vestur-Húnavatnssýslu fram til ársins 1923, en þá varð að leysa upp heimilið vegna veikinda móðurinnar og fóru börnin hvert í sína áttina, 10 að tölu.
Árni og Svanborg reistu nýbýlið Lækjarhvamm og bjuggu þar uns þau brugðu búi 1979 og fluttust á Hvammstanga.
Árni Hinriksson (1896-1965) frá Sæunnarstöðum
Árni Hinriksson 22. maí 1896 - 29. september 1965 Var í Tindum, Svínavatnssókn, Hún. 1901. Var á Sæunnarstöðum, Spákonufellssókn, Hún. 1910. Húsgagnasmiður í Reykjavík 1945.
Árni Hannesson (1844-1933) vestuheimi, frá Marbæli
Árni Hannesson 6. nóvember 1844 - 22. janúar 1933 Var í Marbæli, Glaumbæjarsókn, Skag. 1845. Bóndi á Kagaðarhóli og víðar í Hún. Fór til Vesturheims 1888.
11 ára fluttist hann til systur sinnar á Auðunnarstöðum í Húnavatnssýslu og var hjá henni í 5 ár. Þar næst réðist hann til Jóns Ólafssonar söðlasmiðs er lengst bjó í Sveinsstöðum í Húnavatnssýslu. Var hann þar vinnumaður í 10 ár. Frá Sveinsstöðum fluttist hann svo til séra Eiríks Briem, á Steinnesi í Húnavatnssýslu, og var þar ráðsmaður í 8 ár. Svo vel gegndi hann þessari stöðu, að séra Eiríki fórust svo orð, að trúrri né ráðvandari ráðsmann væri ekki unt að fá. Árið 1881 giftist Árni sál. Guðrúnu, dóttur Hallgríms Erlendssonar og Margrétar Magnúsdóttur, er bjuggu á Meðalheiði í Húnavatnssýslu. Margrét móðir Guðrúnar var systurdóttir Jóns Þorsteinssonar landlæknis, en systir Guðmundar Magnússonar 'prófessors á læknaskólanum í Reykjavík.
Árið 1881 giftist Árni sál. Guðrúnu, dóttur Hallgríms Erlendssonar og Margrétar Magnúsdóttur, er bjuggu á Meðalheimi í Húnavatnssýslu. Margrét móðir Guðrúnar var systurdóttir Jóns Þorsteinssonar landlæknis, en systir Guðmundar Magnússonar 'prófessors á læknaskólanum í Reykjavík. Vorið 1882 fluttu þau hjón Árni og Guðrún að Kagarhóli í sömu sýslu og bjuggu þar í eitt ár. Þaðan fóru þau að Þorbrandsstöðum í Langadal. Bjuggu þar 3 ár. Þarnæst að Björnúlfsstöðum, einnig í sömu sýslu, og bjuggu þar 2 ár. Sumarið 1888 íluttust þau hjón til Ameríku. Verður það ár minnistætt mörgum, en ekki sízt þeim er ætluðu til Ameríku, því það vor lá hafís fastur við land fram eftir sumri, lengi. Varð að bíða 7 vikur, þar til loks að skip komst út.
Árni Hallgrímsson (1863-1954) Sæunnarstöðum
Árni Hallgrímsson 6. nóvember 1863 - 4. maí 1954. Vinnumaður á Snæringsstöðum, Auðkúlusókn, Hún. 1890. Bóndi á Marðarnúpi, Vatnsdal. Leigjandi í Skagastrandarkaupstað 1930. Bóndi á Sæunnarstöðum og síðar húsmaður í Ásgarði.
Árni Hafstað Jónsson (1883-1969) búfræðingur í Vík, Staðarhreppi
Bóndi og búfræðingur í Vík, Staðarhreppi, Skag. Bóndi þar 1930. Nefndur Árni J. Hafstað skv. Skagf.
Árni Gunnlaugsson (1932) frá Skógum í Axarfirði
Árni Gunnlaugsson 15. ágúst 1932 frá Skógum í Axarfirði
Árni Gunnlaugsson (1892-1963) járnsmiður í Reykjavík
Árni Gunnlaugsson 4. júlí 1892 - 3. maí 1963 Járnsmiður á Laugavegi 71, Reykjavík 1930. Járnsmiður í Reykjavík 1945.
Árni Gunnarsson (1911-1991) Þverárdal
Árni Gunnarsson 31. maí 1911 - 16. júní 1991 Bóndi á Botnastöðum og í Þverárdal í Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. Nemandi á Hólum, Hólasókn, Skag. 1930. Var í Þverárdal, Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. 1957. Síðast bús. á Sauðárkróki.
Árni Guðbjartsson (1943-2018) Skagaströnd
Árni Pétur Guðbjartsson 20. janúar 1943 - 20. febrúar 2018 Sjómaður og útgerðarmaður á Skagaströnd. Síðast bús. á Skagaströnd.
Útför Árna fer fram frá Hólaneskirkju á Skagaströnd í dag, 2. mars 2018, og hefst athöfnin klukkan 14.
Árni Gíslason (1928-2012) Litlutungu, Efri-Núpssókn
Árni Vernharður Gíslason 2. júní 1928 - 17. jan. 2012 fæddist í Litlu-Tungu í Miðfirði. Var í Litlutungu, Efri-Núpssókn, V-Hún. 1930. Bifreiðasmíðameistari, bílamálarameistari og sjálfstæður atvinnurekandi í Reykjavík. Heiðursfélagi Bílgreinasambandsins.
Árni Gíslason (1871-1934) Neðri-Fitjum í Fitjárdal
Árni Vernharður Gíslason 10. júní 1871 - 26. október 1934 Bóndi á Neðri-Fitjum, Víðidalstungusókn, V-Hún. 1930. Bóndi á Stóra-Hvarfi í Víðidal, seinna á Neðri-Fitjum í Fitjárdal.
Árni Guðmundsson Eylands 8. maí 1895 - 26. júlí 1980 Ráðunautur á Laufásvegi , Reykjavík 1930. Framkvæmdastjóri í Reykjavík 1945. Síðast bús. í Reykjavík. Einbirni.
Árni Erlendsson (1833) bóndi Flögu
Léttadrengur í Steinnesi, Þingeyrasókn, Hún. 1845. Vinnumaður í Steinnesi, Þingeyrarsókn, Hún. 1860. Bóndi á Hólabaki, Þingeyrasókn, Hún. 1870. Húsbóndi á Flögu, Undirfellssókn, Hún. 1880 og 1890.
Árni Björn Einarsson 28. júní 1975 sjómaður Blönduósi.
Árni Daníelsson (1973) Eyjakoti
Árni Svanur Daníelsson 15. apríl 1973. Guðfræðingur, starfar sem verkefnisstjóri og sérþjónustuprestur á Biskupsstofu með sérstakar skyldur við Dómkirkjuna í Reykjavík. Hann er ritstjóri kirkjan.is og trú.is.
Árni Daníelsson (1884-1965) Bóndi á Sjávarborg,
Árni Daníelsson 5. ágúst 1884 - 2. ágúst 1965 Bóndi og hreppstjóri á Sjávarborg í Skarðshr. , og síðar kaupmaður á Sauðárkróki. Fór til Vesturheims 1900 frá Vakursstöðum í Vindhælishreppi og dvaldist þar að því sinni til 1907. Bóndi á Sjávarborg, Sauðárkrókssókn, Skag. 1930.
Árni Bragason (1965) Sunnuhlíð
Árni Bragason 1. júlí 1965 Bóndi Sunnuhlíð
Árni Blandon (1891-1981) Neðri-Lækjardal
Árni Ásgrímur Erlendsson Blandon 17. desember 1891 - 22. maí 1981 Bóndi og kjötmatsmaður í Neðri-Lækjardal, Holtastaðasókn, A-Hún. 1930. Bóndi í Lækjardal. Síðast bús. í Kópavogi.
Árni Björnsson (1908-1991) frá Ytra-Tungukoti
Árni Björnsson fæddur 13. desember 1908 dáinn 31. maí 1991, leigubifreiðarstjóri og útgerðarmaður frá Ytra-Tungukoti í Blöndudal, alinn upp á Skeggstöðum í Svartárdal. Bjuggu þau allan sinn búskap í Reykjavík, síðast til heimilis að Háaleitisbraut 52. Hann lést í Landspítalanum eftir stutta sjúkrahúsdvöl. Vetrarmaður á Sunnuhvoli, Reykjavík 1930.
Að hans ósk hefur jarðarförin farið fram í kyrrþey.
Árni Björnsson (1863-1932) Prófastur á Sauðárkróki
Árni Björnsson 1. ágúst 1863 - 26. mars 1932 Skólapiltur í Latínuskólanum, Reykjavík 1880. Húsbóndi og prestur á Fagranesi, Fagranessókn, Skag. 1890. Prófastur á Sauðárkróki, síðar prestur í Görðum á Álftanesi, síðast í Hafnarfirði. Prestur í Hafnarfirði 1930. Tökubarn hjá föðurbróður sínum að Höfnum 1870.
Árni Björn Kristófersson (1892-1982) Kringlu og Hólanesi
Árni Björn Kristófersson 29. nóvember 1892 - 11. október 1982 Bóndi á Kringlu í Torfalækjarhr., A-Hún., bóndi þar 1930, síðar í Hólanesi á Skagaströnd. Bóndi í Árnesi á Skagaströnd.
Árni Björn Ingvarsson 7. maí 1948 Var í Sólheimum, Höfðahr., A-Hún. 1957.
Árni Björn Björnsson (1896-1947) konunglegur hirðgullsmiður
Árni Björn Björnsson 11. mars 1896 - 2. júlí 1947 Gullsmíðmeistari og kaupmaður í Reykjavík. Smíðaði fyrir skautbúning er gefinn var Danadrottningu og hlaut nafnbótina „konunglegur hirðgullsmiður“ fyrir vikið. Var í Reykjavík 1910. Gullsmiður og kaupmaður á Túngötu 5, Reykjavík 1930.
Árni Björn Birgisson 30. maí 1948 Var í Straumnesi, Höfðahr., A-Hún. 1957. Reykjavík.
Árni Ásmundsson (1911-1975) Ásbúðum á Skaga
Árni Baldvin Ásmundsson 2. mars 1911 - 25. júlí 1975 Var í Ásbúðum, Ketusókn, A-Hún. 1930. Bóndi í Neðra-Nesi og Ásbúðum á Skaga. Síðast bús. í Skagahreppi. Ókvæntur og barnlaus.
Árni Ásgrímur Guðmundsson (1888-1963) Miðgili
Árni Ásgrímur Guðmundsson f. 11. júlí 1888 - 25. september 1963. Bóndi á Miðgili. Var í Höfðabrekku 2, Höfðakaupstað , A-Hún. 1957.
Árni Ásbjörnsson 6. júlí 1905 - 29. maí 1985 Framkvæmdastjóri NLFÍ. Bóndi í Samkomugerði, Saurbæjarsókn, Eyj. 1930. Bústjóri á Hóli í Siglufirði 1939-1947. Var hjá NLFÍ í Hveragerði 1959. Síðast bús. í Reykjavík.
Árni Árnason (1888-1971) Stóra-Vatnsskarði
Bóndi í Vatnsskarði, Víðimýrarsókn, Skag. 1930. Bóndi á Stóra-Vatnsskarði á Skörðum, Skag. Síðast bús. í Seyluhreppi. Hann fæddist í Borgarey í Hólmi 5. september 1888 sonur hjónanna Árna Jónssonar snikkara ættuðum úr Vopnafirði og Guðrúnar Þorvaldsdóttur frá Framnesi i Blönduhlíð. Árni átti ekki því láni að fagna, að alast upp með föður slnum, því hann var látinn áður en sonurinn fæddist. Árni ólst því upp með móður sinni og seinni manni hennar, Pétri Gunnarssyni frá Syðra-Vallholti.
Árni fluttist með Pétri og Guðrúnu að Stóra Vatnsskarði árið 1899 og átti þar heima alla ævi eftir það. Nokkru eftir að þau fluttust að Stóra-Vatnsskarði tóku þau Guðrún og Pétur í fóstur litla stúlku tveggja sólarhringa gamla, Guðrúnu Ingibjörgu Nikódemusdóttur, en hún andaðist á þrettánda aldursári árið 1923 og varð mikil eftirsjá fósturforeldrum og fóstursystrunum, sem öll unnu henni mjög, og þegar Árni eignaðist síðar dóttur lét hann hana heita í höfuðið á henni, annað kom ekki til greina. Eftir lát þeirra Péturs og Guðrúnar, en þau létust, hann árið 1923, hún árið 1924, tók við búinu elzti bróðirinn, Þorvaldur, en hann andaðist einnig á árinu 1924 og tóku þá við búi á jörðinni bræðurnir Árni og Benedikt og bjuggu þar í tvíbýli til ársins 1964 að Benedikt andaðist. Árni var þá búinn að missa heilsuna að mestu og lét einnig af búskap.
Árni Árnason (1875-1941) Höfðahólum
Árni Árnason 9. janúar 1875 - 3. júní 1941 Bóndi og umboðsmaður í Höfðahólum á Skagaströnd, síðar í Reykjavík. Ekkill á Ásvallagötu 27, Reykjavík 1930, bjó í Reykjavík til æviloka. Möllersútbyggingu Blönduósi 1910.
Árni Árnason (1867-1953) Straumi í Hróarstungu, frá Þverá Hallárdal
Árni Árnason 9. ágúst 1867 - 22. júní 1953 Bóndi og búfræðingur á Straumi í Hróarstungu. Bóndi í Blöndugerði, Kirkjubæjarsókn, N-Múl. 1930. Hjú Möllershúsi 1890.
Árni varð alblindur. Rúmliggjandi var hann síðustu 2 —3 ár æfinnar. Hann þurfti þá mikla og nákvæma hjúkrun.
Árni Árnason (1855-1917) Kolsholti í Flóa.
Árni Árnason 21. ágúst 1855 - 5. ágúst 1917 ógiftur í Kolsholti, Villingaholtshr., Árn. 1910. Var á Velli, Breiðabólstaðarsókn, Rang. 1860.
Árni Árnason (1844-1928) Hörghóli
Árni Árnason 13. september 1844 - 10. janúar 1928 Bóndi á Vatnshóli í Línakradal, V-Hún. 1870 og 1880. Bóndi á Hörghóli, Breiðabólstaðarsókn, Hún. Var þar 1901.
Árni Arinbjarnarson (1934-2015) Fiðluleikari
Árni Arinbjarnarson 8. september 1934 - 1. mars 2015 Var í Reykjavík 1945. Fiðluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands, fiðlukennari, orgelleikari og söngstjóri í Reykjavík.
Árni fluttist ársgamall með foreldrum sínum til Reykjavíkur og bjó þar alla tíð. Hann ólst upp í foreldrahúsum öll æskuárin en dvaldist oft yfir sumartímann í sveit hjá frændfólki sínu á Bjargi í Miðfirði.
Útför Árna fer fram frá Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu í dag, 11. mars 2015, kl. 15.
Árni Antoníus Guðmundsson (1870-1931) Víkum á Skaga
Bóndi í Víkum, Hofssókn, A-Hún. 1930. Bóndi og trésmiður í Víkum á Skaga, A-Hún.
Arnheiður Árnadóttir (1895-1967) Skagaströnd
Arnheiður Þóra Árnadóttir 4. maí 1895 - 24. júní 1967. Húsfreyja í Reykjavík. Var á Vestustu-Sámsstöðum, Fljótshlíð, Rang. 1910. Húsfreyja á Nýja Kleppi, Reykjavík 1930.
Arngrímur Konráðsson (1929-2015) Litlu-Laugum, Reykjadal
Arngrímur Konráðsson, trésmiður á Laugum, fæddist 21. ágúst 1929 í Laugaskóla í Suður- Þingeyjarsýslu.
Stofnaði og starfrækti trésmíðaverkstæðið Norðurpól. Rak einnig bókaverslun ásamt eiginkonu sinni. Var í Alþýðuskólanum á Litlu-Laugum, Einarsstaðasókn, S-Þing. 1930.
Hann lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík 19. september 2015. Útför Arngríms fór fram frá Einarsstaðakirkju 26. september 2015, og hófst athöfnin kl. 14.
Arngrímur Ísberg (1952) Blönduósi
Arngrímur Ísberg 10. maí 1952. Var í Héraðsdómarabústaðnum, Blönduóshr., A-Hún. 1957.
Arngrímur Friðrik Bjarnason (1886-1962) Mýrum í Dýrafirði
Arngrímur Friðrik Bjarnason 2.10.1886 - 17.9.1962. Prentari, ritstjóri og rithöfundur í Bolungarvík og á Ísafirði. Bóndi á Mýrum, Núpssókn, V-Ís. 1930.
Arngrímur Arngrímsson (1941) frá Mýrum í Dýrafirði
Arngrímur Arngrímsson 7. janúar 1941
Arnfríður Sigurgeirsdóttir (1880-1954)
Arnfríður Sigurgeirsdóttir 1. ágúst 1880 - 8. mars 1954. Var á Arnarvatni til 1901 er hún fór til Akureyrar. Var þar til 1903 en flutti þá að Helluvaði í Mývatnssveit. Vinnukona þar til 1911. Húsfreyja á Skútustöðum í Mývatnssveit frá 1913. Húsfreyja þar 1930.
Arnfríður Sigurðardóttir (1863-1958) Syðri-Ey
Arnfríður Sigurðardóttir 9. júní 1863 - 2. janúar 1958 Hjú í Syðri-Ey, Höskuldsstaðasókn, Hún. 1901. Vinnukona á Syðri-Ey á Skagaströnd. Var í Finnsstaðanesi, Spákonufellssókn, Hún. 1870. Klemensarhúsi Blönduósi 1920, Tilraun 1933, Vegamótum 1946,
Arnfríður Jónasdóttir (1905-2002)
Arnfríður Jónasdóttir fæddist í Grundarkoti, Akrahreppi, 12. nóv. 1905, hún lést á Sjúkrahúsi Sauðárkróks 9. febrúar 2002.
Útför Arnfríðar fer fram frá Flugumýrarkirkju í dag 16 . febr. 2002 og hefst athöfnin klukkan 16.
Arnfríður Guðrún Sigurðardóttir (1854-1933) Mjóadal í Bárðardal
Arnfríður Guðrún Sigurðardóttir 30. júlí 1854 - 21. febrúar 1933. Með foreldrum á Ingjaldsstöðum meira og minna til um 1869. Í vist á Úlfsbæ í Bárðardal um 1869-72. Vinnukona á Sandhaugum í Bárðardal frá 1873 og enn 1875 og 1876-80. Fór 1873 frá Einarsstöðum í Reykjadal að Sandhaugum. Húsfreyja í Mjóadal í Bárðardal um 1881-85 og 1888-94. Húsfreyja á Sigurðarstöðum í sömu sveit 1885-88 og í Garðshorni í Kinn 1894-95. Í vistum og húsmennsku í Bárðardal og Kinn, S-Þing. um 1881-82 og um 1895-1901. Húsfreyja á Íshóli, Bárðdælahr., S-Þing. Var á Siglufirði 1930. Ekkja á Kornsá 1920.
Arnfríður Guðmundsdóttir (1927-2018) Skagaströnd
Arnfríður Jóhanna Guðmundsdóttir 29.4.1927 - 31.5.2018. Var í Skagastrandarkaupstað 1930.
Húsið er byggt af Karli Guðmundssyni (1901-1983) og Gunnlaugu Hannesdóttur (1920-2012)
Mikill jarðhiti er á svæðinu og réð það miklu um staðarvalið en Karl nýtti sér hann til upphitunar. Hann setti þarna á fót bílaverkstæði í samvinnu við Björn Jónasson frænda sinn og starfaði Karl þar alla tíð.
Húsið Stendur gegnt sundlauginni á staðnum.
Arndís Valgarðsdóttir (1957) Varðbergi Blönduósi
Arndís Þorvaldsdóttir (1928) kaupmaður Blönduósi
Arndís Sölvadóttir (1950) Síðu, Víðidal
Arndís Helena Sölvadóttir 31.12.1950, Síðu í Víðidal og Hvammstanga. Kvsk á Blönduósi 1968-1969.
Eggert og Dísa bjuggu fyrstu árin í Kópavogi og Breiðholti en fluttu til Hvammstanga vorið 1975. Vann hann þar við steypustöð en stundaði svo vöruflutninga og vann við mjólkurflutninga. Þegar í ljós kom að sjúkdómurinn hafði tekið sig upp og hann varð að fara í lyfjameðferðir fluttu þau aftur til Reykjavíkur árið 1987.
Arndís Rögnvaldsdóttir (1863-1944) Ingunnarstöðum í Geiradal Barð.
Arndís Rögnvaldsdóttir 25. ágúst 1863 - 24. mars 1944. Var í Innri-Fagradal, Stóraholtssókn, Dal. 1870. Húsfreyja á Ingunnarstöðum, Geiradalshr., A-Barð. Húsfreyja í Reykjavík 1910.
Arndís Pétursdóttir (1832-1891) Hofi á Skaga
Arndís Pétursdóttir 21. janúar 1832 - 6. október 1891 Var í Miðhópi, Þingeyrarsókn, A-Hún. Húsfreyja á Hofi á Skagaströnd, A-Hún. Húsfreyja á Arnarbæli, Staðarfellssókn, Dal. 1890.
Arndís Pálsdóttir (1929-2007) Barkarstöðum
Arndís Pálsdóttir fæddist á Sveðjustöðum í Vestur-Húnavatnssýslu 28. janúar 1929. Hún lést á Heilbrigðisstofnuninni á Hvammstanga 10. maí síðastliðinn. Útför Arndísar verður gerð frá Melstaðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14.
Arndís Ólafsdóttir (1950) Sólheimum, Laxárdal, Dalasýslu
Arndís Erla Ólafsdóttir 22.1.1950 Ásgarði, Sólheimum, Laxárdal, Dalasýslu. Kvsk á Blönduósi 1969-1970 og 1968-1969.
Arndís Magnúsdóttir (1891-1948) Lækjarskógi Dölum
Arndís Magnúsdóttir 30. maí 1891 - 16. júlí 1948. Fósturbarn á Gunnarsstöðum, Snóksdalssókn, Dal. 1901. Húsfreyja í Lækjarskógi. Nefnd Stendís í 1930.
Arndís Kristófersdóttir (1862-1947) Aralæk
Arndís Kristófersdóttir 10. september 1862 - 25. júní 1947 Ógift og barnlaus. Litla-Dísa, prjónakona á Aralæk í Þingi.
Arndís Kristjánsdóttir (1895-1988)
Arndís Kristjánsdóttir 21. maí 1895 - 24. október 1988. Var á Víðivöllum, Hálssókn, S-Þing. 1930. Ljósmóðir í Hálshr., S-Þing.
Arndís Jónsdóttir 25. júní 1890 - 19. ágúst 1978. Húsfreyja á Höskuldsstöðum, Hjarðarholtssókn, Dal. 1930. Saumakona Borðeyri 1910, þá búsett á Bæ í Hrútafirði.
Arndís Jónasdóttir (1893-1950) Oddsstöðum
Arndís Jónasdóttir 1. september 1893 - 12. febrúar 1950. Var í Húkum, Efri-Núpssókn, Hún. 1901. Húsfreyja á Oddstöðum, Staðarsókn, V-Hún. 1930.
Arndís Guðmundsdóttir (1873-1950) Síðu í Hópi
Arndís Guðmundsdóttir 30. október 1873 - 4. september 1950. Húsfreyja í Gröf, Þingeyrasókn, Hún. 1901. Húsfreyja á Síðu í Vesturhópi um árabil frá 1902. Húsfreyja á Síðu, Breiðabólsstaðarsókn, V-Hún. 1930.
Arndís Eyjólfsdóttir (1924-2016) frá Múla, A-Barð.
Arndís Eyjólfsdóttir fæddist á Reykhólum 16. apríl 1924. Arndís ólst upp hjá foreldrum sínum í Múla í Gufudalssveit, Austur-Barðastrandarsýslu. Eftir hefðbundna barnafræðslu sem þá tíðkaðist, fór hún í Kvennaskólann á Blönduósi og síðan til Reykjavíkur. Var í Múla, Gufudalssókn, A-Barð. 1930. Húsfreyja og fékkst við verslunar- og þjónustustörf í Reykjavík.
Kvsk á Blönduósi 1946-1947.
Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Mörk við Suðurlandsbraut, 5. apríl 2016. Útför Arndísar fór fram frá Neskirkju 19. apríl 2016, og hófst athöfnin klukkan 13. Jarðsett var í Kópavogskirkjugarði.
Arndís Björnsdóttir (1903-1964)
Arndís Björnsdóttir 27. september 1903 - 11. janúar 1964. Húsfreyja á Hverfisgötu 78, Reykjavík 1930. Húsfreyja í Reykjavík og Kópavogi.
Arndís Baldurs (1899-1990) Sólvöllum Blönduósi
Arndís Á. Baldurs Blönduósi - Minning Fædd 30. október 1899 Dáin 31. mars 1990 Arndís Ágústsdóttir Baldurs fæddist á Saurbæ í Vatnsdal en þar bjuggu þá foreldrar hennar , þau fluttust síðar að Hlaðhamri í Hrútafirði og bjuggu þar í nokkur ár.
Arndís eða Dúfa eins og hún var kölluð ólst svo upp að nokkru leyti á Borðeyri hjá ömmu sinni og afa, Arndísi Guðmundsdóttur og Theódór Ólafssyni, en foreldrar hennar fluttu til Seyðisfjarðar. Fór Dúfa til þeirra og var hjá þeim í þrjú ár eða fram yfir fermingu, þá fór hún aftur til Borðeyrar og var þar hjá móðurfólki sínu fram undir tvítugt en fluttist þá til Blönduóss með Arndísi ömmu sinni sem fór til dvalar hjá börnum sínum þar.
Á Blönduósi kynntist hún manni sínum Jóni S. Baldurs, síðar kaupfélagsstjóra, og gengu þau í hjónaband 30. maí 1922. Allan sinn bú skap bjuggu þau á Blönduósi, að undanskildu einu ári er þau bjuggu í Reykjavík. Búskap sinn hófu þau í litlum torfbæ er hét Enniskot og stóð á sjávarkambi yst í þorpinu. Þar eignuðust þau tvö börn
Arndís Ásgeirsdóttir Egilsson (1839-1905) Hofi og Böðvarshúsi Blönduósi
Arndís Ásgeirsdóttir 10.11.1839 - 23.10.1905 Var í Reykjavík 1845. Húsfreyja í Hafnarfirði. Húsfreyja á Hofi, Undirfellssókn, Hún. 1890. Húsfreyja í Bjarnahúsi, Blönduóssókn, Hún. 1901.
Arndís Ásgeirsdóttir (1919-2006) Ásgeirshúsi
Arndís Ásgeirsdóttir húsmóðir fæddist á Blönduósi 13. september 1919. Hún lést á Dvalarheimilinu Grund 26. desember síðastliðinn. Arndís og Halldór bjuggu lengst af í Mávahlíð 41 í Reykjavík.
Arndís verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11.
Arnbjörn Bjarnason (1832-1905) Stóra-Ósi í Miðfirði.
Arnbjörn Bjarnason f. 28.12.1832 - 21. maí 1905. Var á Bæ, Prestbakkasókn, Strand. 1835. Bóndi og hreppstjóri á Stóra-Ósi í Miðfirði. Var þar 1870 og 1890. Ókvæntur. „Góður bóndi og greindur vel“, segir Einar prófastur.
Arnbjörg Guðjónsdóttir (1917-1995)
Arnarstapi eða Stapi er lítið þorp eða þéttbýli á sunnanverðu Snæfellsnesi. Það er undir Stapafelli, á milli Hellna og Breiðuvíkur.
Frá árinu 1565 sátu umboðsmenn konungs, sem höfðu á leigu jarðir þær sem Helgafellsklaustur hafði átt, á Arnarstapa og kallaðist umboðið Stapaumboð. Þeir voru oft jafnframt sýslumenn eða lögmenn og á 19. öld sátu amtmenn Vesturamtsins einnig á Stapa. Þar hafa ýmsir þekktir menn verið um lengri eða skemmri tíma. Fatlaða skáldið Guðmundur Bergþórsson átti þar heima á 17. og 18. öld. Bjarni Thorsteinsson amtmaður var þar 1821-1849 og þar ólst sonur hans, þjóðskáldið Steingrímur Thorsteinsson, upp.
Steinkarlinn Bárður Snæfellsás.
Gamla Amtmannshúsið á Arnarstapa (Stapahúsið) var reist þar á árunum 1774-1787 og er því eitt af elstu húsum á Íslandi. Árið 1849 var það tekið niður og flutt að Vogi á Mýrum, þar sem það var til 1983. Það var reist aftur á Arnarstapa 1985-1986 og friðað árið 1990.
Lendingin á Arnarstapa var talin ein sú besta undir Jökli og var þar fyrrum kaupstaður, á tíma einokunarverslunarinnar og allt til ársins 1821, og mikið útræði frá því snemma á öldum. Þar er smábátahöfn sem var endurbætt 2002. Hún er nú eina höfnin á sunnanverðu Snæfellsnesi og þaðan eru gerðir út allmargir dagróðrabátar á sumrin. Á Arnarstapa er einnig nokkur sumarhúsabyggð og mikið er þar um ferðamenn, einkum á sumrin. Þar er veitingahús og ýmiss konar ferðaþjónusta.
Mikil náttúrufegurð er í grennd við Arnarstapa. Ströndin milli Stapa og Hellna var gerð að friðlandi 1979, en hún þykir sérkennileg og fögur á að líta. Vestur með henni er Gatklettur og þrjár gjár, Hundagjá, Miðgjá og Músagjá, sem sjávarföll hafa holað inn í bergið. Op eru í þaki þeirra nokkuð frá bjargbrún, hvar sjór gýs upp og brimsúlur þeytast hátt í loft upp og talið ólendandi í Arnarstapa þegar Músagjá gýs sjó. Vinsæl gönguleið á milli Arnarstapa og Hellna er að hluta gömul reiðgata á milli þessara staða.
Á Arnarstapa er steinkarl mikill, sem Ragnar Kjartansson myndhöggvari hlóð, og heitir hann Bárður Snæfellsás. Margir hafa einmitt trú á því að Bárður vaki yfir svæðinu undir Jökli.
Stapafell er um 526 m hátt mænislaga bert og skriðurunnið móbergsfjall sem gengur suður úr undirhlíðum Snæfellsjökuls, um 3 km norður frá Hellnum og fyrir ofan Arnarstapa. Vegur liggur upp með fjallinu að austan norður um Kýrskarð og Jökulháls til Ólafsvíkur. Norðaustan við Stapafell er Botnsfjall sem í er Rauðfeldsgjá og er hægt að ganga inn eftir gjánni inn að botni. Efst á Stapafelli er kletturinn Fellskross, fornt helgitákn en fellið er talið vera bústaður dulvætta.
Í Landnámu segir að Sigmundur, sonur Ketils þistils hafi numið land á milli Hellishrauns og Beruvíkurhrauns og búið að Laugarbrekku. Jarðanna beggja er svo getið í Bárðar sögu Snæfellsáss en hún er talin vera rituð á 14. öld, eftir Landnámu, örnefnum og þjóðsögum. Í Bárðarsögu er einnig minnst á jarðirnar Öxnakeldu og Tröð (Skjaldartröð) sem sýnir að þær hafa verið komnar í byggð á 14. öld.
Arnar Einarsson fæddist 14. júní 1945 í Baldurshaga í Vestmannaeyjum. Hann lést í Vestmannaeyjum hinn 21. júlí sl.
Arnar Bjarki Jónsson Reynisson 14. október 1972 Kringlu
Arna Þöll Arnfinnsdóttir 6. september 1958 Blönduósi og Reykjavík.
Ármann Þorsteinsson (1903-1987)
Ármann Kristjánsson (1927-2011) Litla-Vatnsskarði
Ármann Kristjánsson var fæddur á Litla-Vatnsskarði í Austur-Húnavatnssýslu 1. janúar 1927. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Mörk í Reykjavík 24. janúar 2011.
Útför Ármanns fór fram frá Kotstrandarkirkju 3. febrúar 2011.
Ármann Eydal Albertsson (1929-2004) frá Keldulandi
Ármann Eydal Albertsson fæddist á Selá á Skaga 8. júní 1929. Hann lést hinn 20. nóvember síðastliðinn. Ármann ólst upp í sveitinni, fyrst á Selá og síðan á Reykjum á Reykjaströnd. Sumarið 1933 fluttu þau að Keldulandi vegna þess að þrír bræður Sigurlínu féllu frá með skömmu millibili og eftir var forsjárlaust heimili þar.
Útför Ármanns verður gerð frá Útskálakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Ármann Bjarnason (1947) Kjalvararstöðum
Ármann Bjarnason 27. mars 1947. Kjalvararstöðum
Ármann Bjarnason 6. des. 1856. Með foreldrum og síðar móður á Sandhólum, Tjörnesi til 1883. Fór þaðan til Vesturheims 1883.
Ármann Benediktsson (1891-1940) Steinnesi
Ármann Benediktsson 19. október 1891 - 3. júní 1940 Bóndi í Steinnesi í Þingi.
Arís Njálsdóttir (1966) Blönduósi
Arinbjörn Þorbjarnarson (1961) Kópavogi
Arinbjörn Sigurgeirsson Barrdal (1866-13.11.1951) Winnipeg
Fór til Vesturheims 1886 frá Skárastöðum, Torfastaðahreppi, Hún. Starfaði lengst af við útfararstjórn.
Arinbjörn Hjálmarsson (1896-1916)
Arinbjörn Hjálmarsson 1. janúar 1896 - 7. júlí 1916. Var á Grenjaðarstað í Aðaldal, S-Þing. 1910. Fósturforeldrar: Pétur Helgi Hjálmarsson, f. 14.8.1867 og María Elísabet Jónsdóttir, f.1.1.1869.
Arinbjörn Gerhard Barrdal (1916-27.3.1973) Winnipeg
Arinbjörn Árnason 10. júlí 1889 - 26. febrúar 1966. Var á Hvalkletti, Glæsibæjarsókn, Eyj. 1890. Sjómaður á Akureyri. Bóndi í Hvammi á Galmaströnd 1910-14.
Arinbjörn Arinbjörnsson Bardal (1941 - 1993) Kanada
Arinbjörn Gerhard Arinbjörnsson Bardal 3.6.1941 - 31.5.1993. Winnipeg
Ari Sæmundsen (1880-1923) Hemmertshúsi Blönduósi
Ari Sæmundsen 12. október 1880 -13.12.1923. Verslunarþjónn í Sæmundsenshúsi, Blönduóssókn, Hún. 1901. Leiði B-85 í Blönduóskirkjugarði.
Ari Már Ólafsson (1952) Sævarland á Skagaströnd
Ari Lyngdal Jóhannesson (1910-1986) Blönduósi
Ari Lyngdal Jóhannesson fv. yfirverkstjóri Fæddur 2. febrúar 1910 Dáinn 20. nóvember 1986 Ari L. Jóhannesson, fyrrverandi yfirverkstjóri, lést 20. þessa mánaðar á 77. aldursári. Með honum er genginn einn af frumherjum í flugsögu okkar Íslendinga, mikill persónuleiki og virtur vel af samstarfsmönnum sínum. Hann var um 36 ára skeið verkstjóri og síðan yfirverkstjóri hjá Flugfélagi Íslands hf. og síðar Flugleiðum hf., og má nærri geta að á frumbýlingsárum flugsins hafi oft þurft að taka snöggar ákvarðanir þegar veður gerast válynd og ekki var í nein hús að venda með þann flugvélakost sem notaður var. Sagði hann okkur margar sögur af því þegar farið var út í Köturnar á Akureyrarpolli eða þegar binda þurfti niður Douglas-ana á Melgerðismelum vegna veðurofsa sem oft geisuðu inni í Eyjafirði og þegar keyrt var í kapp við vélarnar inn á Melgerði. Allt þetta leysti hann vel af hendi og naut hann mikils trausts flugmanna sem nutu þjónustu hans og hans góðu konu, Ásgerðar Einarsdóttur, sem hefur alla tíð staðið við hlið manns síns í starfi hans og þegar hann veiktist fyrir um það bil 20 árum. Þá sýndi Ari hve mikið þrekmenni hann var - alltaf reis hann upp aftur og var ekki í rónni fyrr en hann var kominn til starfa á ný. Eftir að hann lét af störfum, fyrir aldurs sakir, fór hann að vinna við atvinnurekstur sona sinna í Keflavík og hafði yndi af því, því ekki var honum að skapi að setjast í helgan stein, enda alinn upp við að taka til hendinni einsog títt var um ungmenni á öndverðri öldinni. Voru þau látin vinna hin ýmsu verk sem til féllu.
Ari Leó Fossdal Björnsson (1907-1965) ljósmyndari Akureyri
Ari Knörr Jóhannesson (1973) Blönduósi
Ari Jónsson Arnalds (1872-1957) sýslumaður Blönduósi
Ari Jónsson Arnalds 7. júní 1872 - 14. apríl 1957. Bæjarfógeti á Seyðisfirði og Sýslumaður í N-Múl. Húsbóndi í Reykjavík 1910. Bæjarfógeti á Seyðisfirði 1930. Fyrrverandi bæjarfógeti í Reykjavík 1945. Sýslumaður Blönduósi 1914-1918.
Ari Jónsson (1906-1979) sýsluskrifari Blönduósi
Ari Jónsson bifreiðarstjóri frá Blönduósi andaðist 3. desember 1979 á Landspítalanum í Reykjavík.
Hann var fæddur 8. maí 1906 á Balaskarði. Voru foreldrar hans hjónin Jón Sigurðsson lengst af bóndi á Balaskarði í Laxárdal. Hann var fæddur Þingeyingur á Undirvegg í Kelduhverfi og kona hans var Guðný Pálsdóttir Jónssonar hreppstjóra á Syðri-Ey. Alls voru börn þeirra Balaskarðshjóna 14 að tölu.
Ari var yngstur sinna systkina, flutti með foreldrum sínum að Hofi á Skagaströnd. Hann fór snemma að heiman og stundaði sjó. Þótti hann efnismaður til allra starfa. Ari kvæntist Guðríði Björnsdóttur Kristóferssonar bónda frá Hnausum 18. október 1930 og settust þau að á Blönduósi. Þau eignuðust hús Friðfinns hreppstjóra 1946 en nokkrum árum síðar reistu þau sér stórt og glæsilegt hús utan við ána. Ari var mörgum kunnur, því um áratugi ók hann langferðabílum milli Reykjavíkur og Akureyrar, fyrst á vegum Kristjáns Kristjánssonar á Akureyri og síðar á vegum póststjórnarinnar. Ara farnaðist þessi starfi vel, hann var prúðmenni og reglusamur og snyrtimenni og öruggur bifreiðarstjóri. Þetta var lýjandi starf meðan vegir voru eigi góðir, einkum er vetrarríki var mikið og geðslag farþega með ýmsu móti.
Þá greiddu langferðabílstjórar oft fyrir fólki á ýmsan hátt og var Ari manna liprastur við það. Er Ari þreyttist á langferðaakstrinum hóf hann rekstur á leigubíl til farþegaflutninga á Blönduósi og lánaðist
það vel. Hann er sá eini sem hefur haft þetta að aðalatvinnu á Blönduósi.
Ara Jónssyni var boðið sýsluskrifarastarf á Blönduósi og tók hann þá stöðu. Þó að Ari hefði ekki stundað mikið skriftir um æfina skrifaði hann ágæta hönd sem Páll bróðir hans. Ari var hneigður til búskapar, átti kindur og hross og stundaði kartöflurækt í Selvík og laxveiði sér til skemmtunar. Þau hjón Guðríður og Ari eignuðust tvö börn. Björn stúdent er var um árabil kennari á Reykjaskóla í Hrútafirði, nú búsettur í Borgarnesi og rekur þar verslun. Hann er kvæntur Guðrúnu Jósafatsdóttur frá Sauðárkróki. Ingibjörgu, er var áður deildarstjóri hjá Kaupfélagi Húnvetninga nú hjá Hagkaup í Reykjavík. Arið 1975 fluttu þau hjón til Borgarness og stundaði Ari þar verslunarstörf.
Hann var jarðsettur í Reykjavík 10. desember 1979.
Sr. Pétur Þ. Ingjaldsson