Steinunn Samsonardóttir Franklín (1899-1936) Ingunnarstöðum
- HAH07624
- Person
- 7.1.1899 - 8.2.1936
Steinunn Samsonardóttir Franklín 7. jan. 1899 - 8. feb. 1936. Húsfreyja á Akureyri. Verkakona á Akureyri 1930.
Steinunn Samsonardóttir Franklín (1899-1936) Ingunnarstöðum
Steinunn Samsonardóttir Franklín 7. jan. 1899 - 8. feb. 1936. Húsfreyja á Akureyri. Verkakona á Akureyri 1930.
Steinunn Sigurðardóttir (1849-1930) Batavia Vestmannaeyjum
Steinunn Sigurðardóttir 30. júní 1849 - 15. nóv. 1930. Húskona á Strandarhöfði, Breiðabólstaðarsókn, Rang. 1880. Vinnukona á Eystri-Hóli, Sigluvíkursókn, Rang. 1901. Var í Batavia, Vestmannaeyjasókn 1910.
Hún fluttist úr Fljótshlíð til Eyja 1910, var hjá Láru dóttur sinni í Batavíu við Heimagötu 8 á því ári, á Geithálsi við Herjólfsgötu 2, var verkakona í Þorlaugargerði 1920 og bjó þar til æviloka 1930.
Steinunn Sigurðardóttir (1849-1942) Katadal og Flatnefsstöðum
Steinunn Sigurðardóttir 29. okt. 1849 - 7. júlí 1942. Fósturbarn á Súluvöllum, Vesturhópshólasókn, Hún. 1860. Vinnukona á Tittlingastöðum, Breiðabólstaðarsókn, Hún. 1880. Húsfreyja á Sigríðarstöðum, Vesturhópshólasókn, Hún. 1890. Ægissíður 1901. Var á Katadal, Breiðabólsstaðarsókn, V-Hún. 1930.
Steinunn Sigurðardóttir (1871-1952) frá Bakka í Vatnsdal
Steinunn Sigurðardóttir 5. feb. 1871 - 19. des. 1952. Tökubarn í Koti, Grímstungusókn, Hún. 1880. Hjú í Kvennaskólanum, Höskuldsstaðasókn, Hún. 1901. Vinnukona á Litlabergi í Reykjavík. Saumakona á Undirfelli, Undirfellssókn, A-Hún. 1930.
Steinunn Sigurðardóttir (1946) frá Vígholtsstöðum í Dalasýslu
Steinunn Sigurðardóttir 28.4.1946 skrifstofumaður Kópavogi. Vígholtsstöðum í Dalasýslu. Kvsk á Blönduósi 1964-1965.
Steinunn Sigurðardóttir (1954) Reykjavík
Steinunn Sigurðardóttir 29. sept. 1954. Akureyri, Kvsk á Blönduósi 1971-1972
Steinunn Sigurjónsdóttir (1929-1973) Rútsstöðum
Steinunn Arna Sigurjónsdóttir 5. janúar 1929 - 12. desember 1973. Var á Rútsstöðum, Svínavatnshreppi, A-Hún. 1957. Síðast bús. á Sauðárkróki.
Steinunn Steinsdóttir (1840-1915) Eyjólfsstöðum
Steinunn Steinsdóttir 30.12.1840 [29.12.1840] - 9.10.1915. Tökubarn á Eyjólfsstöðum, Undirfellssókn, Hún. 1845. Fósturdóttir á Eyjólfsstöðum 1860. Steinunn var talin laundóttir Sigurðar Sigurðssonar bónda á Eyjólfsstöðum skv. Föðurætt.
Steinunn Sveinsdóttir (1883-1974) Ásbúðum
Steinunn Sveinsdóttir 26. janúar 1883 - 10. október 1974. Húsfreyja á Ytra-Mallandi og í Ásbúðum á Skaga. Var í Ásbúðum, Skagahr., A-Hún. 1957. Steinunn var „hlý og hreinlynd, en hafði öra lund“ segir í Skagf.1910-1950 II.
Steinunn Sveinsdóttir (1934-2019) Siglufirði
Steinunn Sveinsdóttir fæddist á Siglufirði 6. janúar 1934. Steinunn ólst upp á Siglufirði og gekk þar í skóla. Síðast bús. á Húsavík.
Hún lést á dvalarheimilinu Hvammi 3. febrúar 2019. Útför Steinunnar fór fram frá Húsavíkurkirkju 9. febrúar 2019, klukkan 14.
Steinunn Theodóra Guðmundsdóttir (1835-1907) prestfrú á Sauðafelli.
Steinunn Theodóra Guðmundsdóttir 29.7.1835 - 13.2.1907. Var í Innri Njarðvík, Njarðvíkursókn, Gull. 1845. Prestsfrú.
Steinunn Þórdís Berndsen (1871-1953 ) Hólanesi
Steinunn Þórdís Siemsen Berndsen 17. febrúar 1871 - 26. október 1953. Tökubarn í Læknishúsinu, Reykjavík 1880. Húsfreyja í Hólanesi, Spákonufellssókn, Hún. 1901. Kaupmannsfrú á Skagaströnd. Kjörforeldrar: Hendrik Siemsen (1845) kaupmaður í Reykjavík og k.h. Margrethe Siemsen (1849-1930).
Steinunn Þorsteinsdóttir (1905-1993) Grund í Svínadal
Steinunn Þorsteinsdóttir frá Grund í Svínadal - Minning Fædd 15. ágúst 1905 Dáin 5. október 1993 Steinunn var fædd 15. ágúst árið 1905 á Grund í Svínadal í Austur-Húnavatnssýslu,
Steinunn Valdimarsdóttir (1894-1969) Beinakeldu
Steinunn Valdimarsdóttir 7. apríl 1894 - 5. júlí 1969. Var á Beinakeldu í Torfalækjahr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Torfalækjarhreppi.
Steinvör Gísladóttir (1960) Ísafirði
Steinvör Ingibjörg Gísladóttir 16.7.1960. Ísafirði. Kvsk á Blönduósi 1975-1976
Steinvör Helga Benónýsdóttir (1888-1974) Hvammstanga
Steinvör Helga Benónýsdóttir 22. ágúst 1888 - 26. ágúst 1974. Húsfreyja á Hvammstanga frá 1913 til æviloka. Var á Kambhóli í Víðidalstungusókn, V-Hún. 1890.
Steinvör Kristófersdóttir (1924-2005) Útskáum, frá Litlu-Borg
Steinvör Kristófersdóttir fæddist á Litlu-Borg í Vesturhópi í Víðidal í Þverárhreppi í Vestur-Húnavatnssýslu 29. júlí 1924.
Fyrstu hjúskaparár sín bjuggu Steinvör og Guðmundur á Ísafirði og í Bolungavík en lengst bjuggu þau á Útskálum í Garði eða frá 1952 til 1986.
Hún lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 29. desember 2005.
Útför Steinvarar verður gerð frá Útskálakirkju 6.1.2006 og hófst athöfnin klukkan 13.
Steinvör Margrét Baldursdóttir (1963) Blönduósi
Steinvör Margrét Baldursdóttir f. 5. október 1963, Blönduósi, Sauðárkróki.
Stella Meyvantsdóttir (1955-2010) Reykjavík
Stella Meyvantsdóttir var fædd í Reykjavík 10. desember 1955. Búfræðingur, fékkst við verslunar- og umönnunarstörf í Reykjavík.
Hún andaðist á Landspítala Fossvogi 26. júlí 2010. Útför Stellu var gerð frá Áskirkju í Reykjavík, 6. ágúst 2010, og hófst athöfnin kl. 13.
Stephan G Stephansson (1953-1927) skáld
Stephan G. Stephansson 3. okt. 1853 - 9. ágúst 1927. Í vist í Mjóadal í Bárðardal, S-Þing. um 1871-73. Bóndi og skáld í Alberta í Kanada. Er með þekktari skáldum þar í landi og á Íslandi. Fór til Vesturheims 1873 frá Mjóadal, Ljósavatnshreppi, S-Þing. Bjó fyrst í Milwaukee og síðan í Wisconsin og loks í N-Dakota í Bandaríkjunum áður en hann fluttist til Alberta. Var í Strathcona, Alberta, Kanada 1906. Var skírður Stefán Guðmundur Guðmundsson.
Stephan G. Stephansson, upphaflega Stefán Guðmundur Guðmundsson (3. október 1853 á Kirkjuhóli í Skagafirði – 9. ágúst 1927 í Alberta í Kanada), var landnemi og ljóðskáld í Vesturheimi. Oftast talinn hafa fylgt raunsæisstefnunni.
Sturla Jónsson (1875-1916) Miðhópi Víðidal
Sturla Jónsson 2. júlí 1875 - 18. desember 1916. Bóndi í Miðhópi.
Þau hjón festu þau kaup á jörðinni Miðhóp, er áður hafði verið landssjóðsjörð og tóku við búsforráðum. Eignuðust þau eina dóttur barna Herdísi Ingibjörgu, er dvelur nú í Miðhópi, en hún var áður húsfreyja á Sólbakka í Víðidal. Árið 1915 tók Sturla sjúkdóm þann er leiddi hann til dauða, en hann andaðist í desember 1916 eftir þunga legu.
Sturla Þórðarson (1946-2018) frá Sauðanesi, tannlæknir Blönduósi
Sturla Þórðarson fæddist í Sauðanesi á Ásum í Torfalækjarhreppi 14. nóvember 1946.
Hann lést 31. maí 2018. Útför Sturlu Þórðarsonar fór fram Fossvogskirkju 8. júní 2018.
Sumarliði Jónsson Kárdal (1899-1952) frá Kárdalstungu í Vatnsdal.
Sumarliði Jónsson Kárdal 4. sept. 1900 - 16. apríl 1952. Var í Káradalstungu, Undirfellssókn, Hún. 1901. Bóndi í Hnausum, Manitoba, Kanada. Fæðingardags ekki getið við skírn, aðeins fæðingarmánuðar. Guðrúnarhúsi Blönduósi. Hann lést á heimili sínu að Hnausum, Manitóba. Jarðsettur í Hnausa Cementry.
Sumarliði Maríasson (1921-2010) frá Gullhúsá Unaðsdal N Ís.
Sumarliði Maríasson (1921-2010) frá Gullhúsá Unaðsdal N Ís.
Sumarliði Tómasson (1865-1958) Sumarliðabæ Blönduósi
Verkamaður á Blönduósi, verkamaður þar 1930. Var í Sumarliðabæ, Blönduóshr., A-Hún. 1957.
Sunna Gestsdóttir (1976) Blönduósi
Guðrún Sunna Gestsdóttir 27. júní 1976 Blönduósi.
Súsanna Brynjólfsdóttir (1910-1999)
Anna Súsanna Brynjólfsdóttir 6. janúar 1910 - 22. maí 1999. Var á Ytri-Ey, Hofssókn, A-Hún. 1930. Kjólameistari, síðast bús. í Reykjavík. Kjörbarn: Jón Ásgeirsson, f. 11.5.1950.
Súsanna var fædd á Ytri-Ey á Skagaströnd 6. janúar 1910. Hún dó á Landakotsspítala 22. maí 1999. Súsanna fluttist alfarin að heiman til Reykjavíkur 1932.
Súsanna átti við heilsuleysi að stríða hin síðari ár.
Útför Súsönnu fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst atöfnin klukkan 13.30.
Súsanna Þórhallsdóttir (1952) Hólabrekku í Brunnhólasókn
Súsanna Þórhallsdóttir 23.2.1952 Hólabrekku í Brunnhólasókn V.Skaft. Kvsk á Blönduósi 1970-1971.
Svala Albertsdóttir (1967-2002) Blönduósi
Svala Albertsdóttir fæddist í Reykjavík 23. desember 1967. Hún andaðist á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi 30. maí 2002.
Í ágúst 1985 flutti hún til Blönduóss og hefur átt heima þar síðan.
Útför Svölu var gerð frá Blönduóskirkju 8.6.2002 og hófst athöfnin klukkan 14.
Svala Bjarnadóttir (1941) Selfossi
Gréta Svala Bjarnadóttir 2. október 1941 Selfossi.
Svanberg Sveinsson (1907-2002)
Svanberg Sveinsson fæddist. á Múla í V-Hún. 29. apríl 1907. Hann lést 4. janúar síðastliðinn. Svanberg bjó á Ísafirði til 1982, en eftir það í Kópavogi, en síðustu vikurnar á sjúkradeild Hrafnistu. Svanberg ólst upp á Egilsstöðum og víðar í Húnaþingi með foreldrum. Hann var yngsta barn þeirra og voru þau bæði látin áður en hann varð tvítugur.
Útför Svanbergs fór fram í kyrrþey 15. janúar.
Svanborg Sæmundsdóttir (1913-1995)
Svanborg Sæmundsdóttir var fædd 19. des. 1913. Hún lést að kvöldi 8. mars á Borgarspítalanum. Bjarni og Svanborg bjuggu fyrst á Svarfhóli í Stafholtstungum, 1 ár á Hofsstöðum í sömu sveit. Fluttust þá að Hjarðarnesi á Kjalarnesi og voru þar búandi í 6 ár. Þá varð Bjarni bústjóri á Kópavogsbúinu á meðan þar var rekinn búskapur og síðan verkstjóri á sama stað. Er störfum Bjarna lauk við Kópavogsbúið festu þau hjónin kaup á snoturri íbúð að Furugrund 34 í Kópavogi. Eftir það starfaði Bjarni við gróðrarstöð í Fossvogi á meðan heilsan leyfði.
Útför Svanborgar fer fram frá Kópavogskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13.30.
Svandís Ingibjartsdóttir (1950) Reykjavík
Svandís Ingibjartsdóttir 15.2.1950. Reykjavík. Kvsk á Blönduósi 1966-1967.
Svandís Jónsdóttir (1943) Hvammstanga
Svanfríður Bjarnadóttir (1870-1961) Refsstöðum Holtastaðasókn A-Hvs
Svanfríður Bjarnadóttir 20.3.1870 - 25.6.1961. Húsfreyja á Refsstöðum, Holtastaðasókn, Hún. 1901. Síðar á Skógum á Þelamörk.
Svanhildur Eysteinsdóttir (1921-1983) Þorlákshöfn
Svanhildur Eysteinsdóttir 19.11.1921 - 7.12.1983. Fædd í Meðalheimi Ásum 1921-1928, Hafurstöðum, Hofssókn, A-Hún. 1928-1936 og Blönduósi 1936. Var í Miðgili, Engihlíðarhr., A-Hún. 1957. Húsfreyja. Síðast bús. í Þorlákshöfn.
Svanhildur Guðmundsdóttir (1956) Ólafsvík
Svanhildur Erla Guðmundsdóttir 10. feb. 1956. Ólafsvík og Garðabæ
Svanhildur Kristjánsdóttir (1954) Akureyri
Svanhildur Kristín Kristjánsdóttir 17.1.1954. Akranesi. Kvsk á Blönduósi 1971-1972.
Svanhildur Sörensen (1951) Ísafirði og Vestmannaeyjum
Sigríður Svanhildur Sörensen 29.8.1951 símavörður Ísafirði. Verkakona Vestmannaeyjum. Kvsk á Blönduósi 1969-1970.
Svanhildur Þorleifsdóttir (1934-1988) Blönduósi, frá Sólheimum í Svínadal
Svanhildur Þorleifsdóttir. Fædd 9. september 1934 Dáin 13. apríl 1988. Var í Skála, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Húsfreyja og gangastúlka á Blönduósi.
Svanlaug Björnsdóttir (1834-1916) Þverá Hallárdal
Svanlaug Björnsdóttir 7.10.1834 - 6.1.1916. Var á Syðriey, Höskuldsstaðasókn, Hún. 1840. Nefnd Sigurlaug í manntali 1840. Húsfreyja á Þverá, Spákonufellssókn, Hún. 1845. Húsfreyja á Þverá, Spákonufellssókn, Hún. 1890.
Svanlaug Daníelsdóttir (1916-1996) Litla-Hvammi Efri-Núpsókn
Svanlaug Daníelsdóttir fæddist á Dalgeirsstöðum í Miðfirði í Húnavatnssýslu, 30. apríl 1916.
Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 27. desember 1996. Útför Svanlaugar fór fram frá Fossvogskirkju 3.1.1997 og hófst athöfnin klukkan 13.30.
Svanur Guðmundsson (1950) Dalsmynni
Svanur Heiðar Guðmundsson f. 29.11.1950. Dalsmynni
Svava Alfonsdóttir (1940) Ólafsvík
Svava Barrdal (16.6.1906) Winnipeg
Svava Benediktsdóttir (1911-1994) Kolugili
Svava Benediktsdóttir var fædd á Kambshóli í Víðidal 14. apríl 1911. Hún lést á heimili sínu í Kolugili í Víðidal 26. október síðastliðinn.
Útför Svövu fer fram frá Víðidalskirkju í dag.
Svava Eggertsdóttir (1918-2012) Haukagili
Svava Eggertsdóttir 11. maí 1918 - 18. febrúar 2012. Var í Haukagili, Undirfellssókn, A-Hún. 1930. Ógift
Svava Guðjónsdóttir (1928-2020) Sauðárkróki
Svava Guðjónsdóttir fæddist á Sauðárkróki 13. júní 1928. Svava var fædd og uppalin á Sauðárkróki. Hún var oft í sveit hjá afa sínum og ömmu, þeim Jónatani Sigtrygg og Ingibjörgu Kristínu á Hóli á Skaga.
Hún lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 29. júní 2020. Útför Svövu fór fram frá Hjallakirkju 9. júlí 2020, og hefst athöfnin klukkan 11.
Svava Guðmundsdóttir f. (1946) Dalsmynni
Svava Svandís Guðmundsdóttir f. 4.10.1946 Dalsmynni
Svava Ingimarsdóttir (1947) Hjúkrunarfræðingur frá Hróarsstöðum á Skaga
Hjúkrunarfræðingur Tígulsteini Mosfellssveit.
Svava Jónasdóttir (1874-1938) Syðra-Fjalli í Aðaldal
Svava Jónasdóttir 27. ágúst 1874 - 11. jan. 1938. Var í Hraunkoti, Nessókn, S-Þing. 1890. Húsfreyja á Syðra-Fjalli. Húsfreyja í Syðra-Fjalli, Grenjaðarstaðarsókn, S-Þing. 1901.
Svava Kristjánsdóttir (1920-1999) frá Kirkjuból í Korpudal
Svava Kristjánsdóttir var fædd að Kirkjubóli í Korpudal í Önundarfirði 31. júlí 1920. Hún andaðist á Landspítalanum fimmtudaginn 2. september síðastliðinn. Útför Svövu verður gerð frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 15. september og hefst athöfnin kl. 13:30.
Svava Sigmundsdóttir (1916-2011) Björgum
Var á Björgum, Hofssókn, A-Hún. 1930. Var á Björgum II, Skagahr., A-Hún. 1957. Húsfreyja á Björgum á Skagaströnd og síðar á Hofsósi. Einkabarn.
Svava Sigmundsdóttir fæddist á Björgum í Skagabyggð 29. júní 1916. Hún lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki 30. maí 2011.
Útför Svövu var gerð frá Hofsóskirkju 4. júní 2011 og hófst athöfnin kl. 16
Svava Sigurðardóttir (1883-1959) Sundbakka IV Viðey
Svava Jónína Sigurðardóttir 27. ágúst 1883 - 17. júlí 1959. Hjú í Syðra-Vatni, Reykjasókn, Skag. 1901. Litlu-Þúfu Hnapp 1910. Húsfreyja á Sundbakka IV, Viðey, Reykjavíkursókn, Kjós. 1920 og 1930.
Svava Steingrímsdóttir (1921-2014) Svalbarða
Svava Steingrímsdóttir fæddist á Blönduósi 8. september 1921 Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 31. júlí 2014. Svava ólst upp á Blönduósi. Svava bjó á Selfossi til ársins 2006, þá fluttist hún aftur til Reykjavíkur og bjó á Sóleyjarima 15. Síðasta tæpa árið bjó hún á Hrafnistu í Reykjavík þar til hún lést 31. júlí sl.
Útför Svövu hefur farið fram í kyrrþey að hennar ósk.
Svava Steinsdóttir (1919-2001) Neðra-Nesi
Svava Steinsdóttir fæddist á Hrauni á Skaga 17. nóvember 1919. Svava stundaði nám við Kvennaskólann á Blönduósi veturinn 1936-37. Árið 1949 hófu Svava og Lárus búskap á Mallandi á Skaga, fluttu þaðan í Efra-Nes 1955 og 1967 í Neðra-Nes, þar sem þau dvöldu uns þau brugðu búi 1994 og fluttu á dvalarheimilið Sæborg á Skagaströnd.
Útför Svövu fer fram frá Hólaneskirkju á Skagaströnd í dag og hefst athöfnin klukkan 14.
Svava Sveinbjörnsdóttir (1908-1983) Seyðisfirði
Svafa Ámundínusardóttir Sveinbjörnsdóttir 25.10.1908 - 15.12.1983. Húsfreyja á Seyðisfirði, var þar 1930, síðast bús. þar. Nefnd Svava Ámundínusardóttir skv. 1910 & Kb. Ættleidd af Sveinbirni.
Svava Sveinbjörnsdóttir (1931-2018) Hnausum
Svava Sveinsína Sveinbjörnsdóttir 26. jan. 1931 - 23. ágúst 2018. Bókbindari. Fékkst við bústörf á Hnausum í Sveinsstaðahreppi og síðar við bókband í Reykjavík. Var á Hnausum, Sveinsstaðahr., A-Hún. 1957. Gegndi ýmsum félagsstörfum. Ógift. Kvsk á Blönduósi 1950-1951.
fæddist í Hnausum í Þingi en bjó lengst af í Fellsmúla í Reykjavík. Allt til 1967 tók hún virkan þátt í bústörfum í Hnausum, inni sem úti, átti fé og sinnti einnig mikið afgreiðslustörfum á landsímastöðinni þar fyrir Sveinsstaðahrepp. Þá ræktaði hún fallegan trjá- og blómagarð sunnan við bæinn.
Hún lést á Hrafnistu við Brúnaveg í Reykjavík 23. ágúst 2018. Svava Sveinsína var jarðsungin frá Þingeyraklausturskirkju í Þingi, Austur-Húnavatnssýslu, 8. september 2018, og hófst athöfnin klukkan 14.
Svava Þorleifsdóttir (1886-1978) kennari frá Skinnastöðum Snæf frá E-Núpi
Svava Þorleifsdóttir 20.10.1886 - 7.3.1978. Kennari og skólastjóri, síðast bús. í Reykjavík. Ógift
Svava Þorsteinsdóttir (1891-1973) Kistu
Svava Þorsteinsdóttir 7.7.1891 - 28.1.1973. Húsfreyja á Eiríksstöðum og á Blönduósi. Húsfreyja á Blönduósi 1930. Síðast bús. í Reykjavík.
Svavar Agnarsson (1912-1978) Þórðarhúsi Blönduósi
Guðmann Svavar Agnarsson 22. febrúar 1912 - 19. júlí 1978 Vinnumaður á Blöndubakka, Höskuldsstaðasókn, A-Hún. 1930. Var í Þórðarhúsi, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Blönduóshreppi. Nefndur Guðmann Svavar í 1930.
Svavar Bergmann Indriðason (1939-2010) Miðsvæði Blönduósi
Svavar Bergmann Indriðason fæddist á sjúkrahúsinu á Blönduósi 2. janúar 1939. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 1. nóvember 2010. Svavar ólst upp hjá móðurforeldrum sínum, Valdimar Jóhannssyni og Sigríði Helgu Jónsdóttur, á Blönduósi. Árið 1960 kynntist hann fyrrverandi eiginkonu sinni, Ingibjörgu, er hún var í kvennaskólanum á Blönduósi. Hann vann þá í bakaríinu Krútt á Blönduósi. Þau fluttu seinnipart vetrar 1968 til Steinsstaðar í Lýtingsstaðahreppi og tóku við búi stjúpföður Ingibjargar. Árið 1972 skilja þau Ingibjörg og árið 1975 bregður Svavar búi og flytur suður á Selfoss. Árið 1984 tók hann upp kynni við Guðmundu og héldu þau góðum vinskap æ síðan.
Svavar verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, 9. nóvember 2010, og hefst athöfnin kl. 13.
Svavar Jónsson (1928-2007) Öxl
Svavar Guðjón Jónsson fædd ist á Molastöðum í Fljótum 15. október 1928. Hann lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi 31. janúar síðastliðinn. Svavar ólst upp í Fljótum í Skagafirði. Útför Svavars verður gerð frá Blönduóskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14.
Svavar Pálsson (1898-1921) Hrísey
Svavar Pálsson 6. apríl 1898 - 6. júní 1921 [8.6.1920 skv minningargrein um Guðrúnu] Hrísey. Pálshúsi Ólafsfirði 1901 og 1910. Finnst ekki í manntali 1920
Svavar Pálsson (1923-2011) Árbraut 19 Blönduósi
Svavar Pálsson var fæddur í Sólheimum í Svínavatnshreppi 17. janúar 1923. Hann lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi 16. febrúar 2011. Svavar ólst upp í foreldrahúsum og á unglingsárum hans bjuggu þau í Hamrakoti á Ásum og síðar Smyrlabergi í sömu sveit. Fjölskyldan fluttist til Blönduóss í Baldursheim, árið 1943. Sveitalífið, gjöful náttúran s.s. Svínavatnið, Fremri Laxá, Laxárvatnið og góðar veiðilendur mótuðu hann og sjálfsagt og eðlilegt var að færa björg í bú frá unga aldri. Þau hjónin bjuggu nánast allan sinn búskap að Árbraut 19, Blönduósi.
Útför Svavars fór fram í kyrrþey hinn 26.2. 2011, að hans ósk.
Svavar Sigurðsson (1930-2013) Síðu
Svavar Sigurðsson fæddist í Brekkukoti í Þingi, Austur-Húnavatnssýslu 31. október 1930. Hann lést á Landspítalanum, Hringbraut 10. september 2013. Svavar ólst upp í Brekkukoti og bjó þar til 1950. Þá flutti hann í Síðu í Engihlíðarhreppi, A-Hún., þar sem hann bjó þar til hann lést. Útför Svavars fer fram frá Blönduóskirkju í dag, 21. september 2013, og hefst athöfnin kl. 14.
Sveinberg Jónsson (1910-1977) Sæbóli Blönduósi ov
Jón Sveinberg Jónsson 6. júlí 1910 - 29. nóvember 1977 Var í Skála við Grundarstíg 21 Reykjavík 1910. Lausamaður í Stóradal, Svínavatnssókn, A-Hún. 1930. Bús. í Blönduóshr., A-Hún. 1957. Verslunarmaður, bifreiðarstjóri og fulltrúi á Sæbóli, Blönduósi. Síðast bús. í Reykjavík .
Sveinbirna Helgadóttir (1953) Þórormstungu Vatnsdal
Sveinbirna Helgadóttir 9. mars 1953. Var í Meðalheimi í Torfalækjahr., A-Hún. 1957, búsett á Akureyri,
Sveinbjörg Björnsdóttir (1875-1914) Reykjavík
Sveinbjörg Ingigerður Björnsdóttir 9. ágúst 1875 - 1. júní 1914. Húsfreyja í Reykjavík 1910.
Sveinbjörg Brynjólfsdóttir (1883-1966) Stóradal
Sveinbjörg Brynjólfsdóttir 12. október 1883 - 2. maí 1966. Húsfreyja í Stóradal, Svínavatnssókn, A-Hún. Húsfreyja þar 1930. Var í Stóradal, Svínavatnshr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Svínavatnshreppi.
Sveinbjörg Gróa Sveinsdóttir (1853-1935) vk Blönduósi 1880
Sveinbjörg Gróa Sveinsdóttir 27.12.1853 - 30.12.1935. Kúskerpi 1855, tökubarn Hólabæ 1860, vinnukona Núpsöxl 1870 [sögð þar heita Sigurbjörg Gróa] í Hvammi, Holtastaðasókn, stödd á Blönduósi, Hjaltabakkasókn, Hún. 1880. Flutti 1881 frá Hvammi að Refsstöðum. Var á Refsstöðum á Laxárdal, A-Hún 1882. Húsfreyja á Laugavegi, Reykjavík. 1901. Húsfreyja í Reykjavík 1910.
Sveinbjörg Jóhannsdóttir (1915-1999) Neskaupstað 1930
Sveinbjörg Þóra Jóhannsdóttir 4.2.1915 - 1.3.1999. Frá Skálholti, Fáskrúðsfirði, Var í Neskaupstað 1930. Síðast bús. í Reykjavík. Nefnd Sveinbjörg Þórunn við skírn. Kvsk á Blönduósi 1939-1940.
Var jarðsungin frá Aðventkirkjunni þriðjudaginn 9. mars kl. 15.00.
Sveinbjörg Jónasdóttir (1911-1971) frá Jörfa Húsavík
Sveinbjörg Jónasdóttir 29. okt. 1911 - 18. júlí 1971. Var á Húsavík 1930, síðast bús. þar. Húsfreyja. Jörfa Húsavík 1920
Sveinbjörn Gíslason (1860-1941) Neðri Mýrum
Sveinbjörn Gíslason 10.8.1860 - 31. janúar 1941. Var í Mýrum, Höskuldsstaðarsókn, Hún. 1860 og 1870. Smíðalærisveinn á Neðri-Mýrum, Höskuldsstaðasókn, Hún. 1880. Fór til Vesturheims 1888 frá Bakka, Skeggjastaðahreppi, N-Múl. Trésmiður í Winnipeg, bræðra og iðnaðarmannafélaginu Corpenter´s Union. Byggingafulltrúi Winnipeg. Áhugamaður um bindindismál og félagi í Good Templara reglunni í meir en
hálfa öld. Útförin fór fram frá Sambandskirkjunni í Winnipeg sl mánudag, 3. febrúar að fjölda vinum viðstöddum. Séra Philip M. Pétursson stýrði útfararathöfninni. Pétur Magnús söng “Nearer My God to Thee”. Útfararstofa Bardals sá um útförina. Jarðað var í Brooksidegrafreit
Sveinbjörn Hannesson (1915-1981) Húsasmiður Reykjavík
Sveinbjörn Hannesson, trésmiður, Þorfinnsgötu 12, Reykjavík andaðist á Borgarspítalanum 8. janúar 1981. Hann var fæddur 18. október 1913 í Sólheimum í Svínavatnshreppi A-Hún. (Sjá athugasemd um reglur skráningar).
Kristján afi hans var formaður og skipseigandi á Gjögri, skáldmæltur og orti bændarímur og málamaður mikill. Vildu því margir blanda geði við þennan gáfumann.
Blómatími þeirra Hannesar og Ingibjargar við búskapinn var í Sólheimum, og gekk þeim allt til hagsældar. En 1923 fluttust þau að Hafursstöðum í Vindhælishreppi, var þá liðin sú tíð að útræði væri stundað frá þessari jörð sem voru einu hlunnindin við hana. Sveinbjörn Hannesson ólst upp hjá foreldrum sínum og þótti snemma efnismaður.
Sveinbjörn kom sér upp íveruhúsi í Kleppsholti en seldi það eftir nokkur ár og reisti þá annað hús í Kópavogi 1952 en þá var sú byggð í örum vexti. Þá kom hann hér norður til Blönduóss og fékkst við smíði útibús Kaupfélags Húnvetninga. Hann átti mikla tryggð til átthaganna og kaus sér leg í Blönduósskirkjugarði hvar foreldrar hans liggja.
En af hinum helga reit má líta til Strandafjalla og út ströndina til Spákonufells og Króksbjargs og suður milli fjalla Svínadals og hér yfir Blönduóssborg.
Sveinbjörn Helgi Blöndal (1932-2010)
Sveinbjörn Helgi Blöndal fæddist á Akureyri 11. október 1932. Hann lést á nýrnadeild 13E á Landspítalanum við Hringbraut 7. apríl síðastliðinn. Útför Sveinbjörns fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 16. apríl 2010, og hefst athöfnin kl. 15.
Sveinbjörn Hjálmarsson (1905-1974) Seyðisfirði
Sveinbjörn Jón Hjálmarsson 29.12.1905 - 5.12.1974. Verkamaður. Daglaunamaður á Seyðisfirði 1930. Síðast bús. á Seyðisfirði. Formaður verkamannafélagsins Fram.
Sveinbjörn Ingimundarson (1879-1956) útgerðarmaður Seyðisfirði
Sveinbjörn Árni Ingimundarson 26. des. 1879 - 4. ágúst 1956. Var á Tungubakka, Holtastaðasókn, Hún. 1880. Leigjandi í Erlendshúsi, Seyðisfjarðarkaupstaður, N-Múl. 1901. Útgerðarmaður á Seyðisfirði 1930.
Sveinbjörn Ingimundarson (1901-1931) Reykjavík
Sveinbjörn Ingimundarson 10. des. 1901 - 5. sept. 1931. Bankastarfsmaður í Reykjavík. Var í Reykjavík 1910 og á Bergstaðastræti 9 a, Reykjavík 1930. Mikill íþróttagarpur.
Sveinbjörn Jakobsson (1879-1958) Hnausum
Sveinbjörn Jakobsson 20. okt. 1879 - 24. okt. 1958. Tökubarn Melum á Ströndum 1880, fósturbarn Sólheimum Svínadal 1890, Bakarahúsinu Geirseyri 1901. Var í Reykjavík 1910. Bóndi Hnausum 1920 og 1930. Var á Hnausum, Sveinsstaðahr., A-Hún. 1957.
Sveinbjörn Jóhann Sveinbjörnsson (1910-1930) Seyðisfirði
Sveinbjörn Jóhann Sveinbjörnsson 22.9.1910 - 23.9 -1930. Bergþórshúsi, Seyðisfirði 1920. Drukknaði. [Sagður heita Sveinn Jóhann í mbl.is 27.1.2014]
Sveinbjörn Jónsson (1894-1979) Snorrastöðum Kolbeinsstaðahreppi
Aðfaranótt 19. janúar lést merkisbóndinn Sveinbjörn á Snorrastöðum i Kolbeinsstaðahreppi. Sveinbjörn fæddist að Snorrastöðum 4. sept. 1894 og var því á 85. aldursári er hann lést. Hann var sonur hjónanna Jóns Guðmundssonar (1835-1916) og konu hans Sólveigar Magnúsdóttur (1850-1922).
Systkin hans voru:
Magnús Jónsson, 4. febr. 1878 - 9. ágúst 1955
Guðrún Elísabet Jónsdóttir, 25 ágúst 1884 - 9. júní 1916
Margrét Jónsdóttir, 4 ágúst 1888 - 21. júní 1968
Stefán Lýður Jónsson, 10 marz 1893, 9. des. 1969
Kristján Jónsson, 24 apríl 1897 - 31. ágúst 1990
Hann ólst upp á Snorrastöðum i hópi margra systkina á miklu menningarheimili. Tvítugur fór hann til náms á Hvitárbakkaskóla til Sigurðar Þórólfssonar og var þar tvo vetur 1914-1916. Að námi loknu sneri hann aftur heim og vann að búi foreldra sinna fyrst i stað. Hann tók að sér barnakennslu i Kolbeinsstaðahreppi haustið 1919 og var kennari i sex vetur samfleytt að mestu og einn vetur jafnframt i Miklaholtshreppi. Síðan varð hlé í fjóra vetur. Þá tók hann við kennslustarfi aftur og hélt því samfellt til 1959 eða í 30 vetur. Hann hóf búskap á Snorrastöðum ásamt Magnúsi bróður sinum 1922 og bjuggu þeir i sambýli til þess að Magnús lést 1955. Í fyrstu stóð Margrét systir þeirra fyrir búi með þeim bræðrum en vorið 1931 kvæntist Sveinbjörn Margréti Jóhanna Sigríður Jóhannesdóttir (1905-1995) frá Haukatungu í Kolbeinsstaðahreppi.
Börn þeirra eru, eftir aldursröð:
Haukur, (6. feb. 1932 - 8. mars 2020) kvæntur Ingibjörgu Jóndóttur. Dóttir þeirra er Branddís Margrét.
Friðjón, (11. mars 1933 - 1. sept. 1990) kvæntur Björk Halldórsdóttur. Dætur þeirra eru Sigríður, Margrét og Halldóra Björk.
Jóhannes Baldur (29. júní 1935 - 23. okt. 2002). Var kvæntur Sigrúnu Ólafsdóttur. Börn þeirra eru Margrét J.S. og Ólafur Daði.
Kristín Sólveig, (17. mars 1941 - 8. mars 1992) gift Grétari Haraldssyni. Börn þeirra eru Margrét, Jóna Björk og Sveinbjörn Snorri.
Helga Steinunn, (20. jan. 1943) gift Indriða Albertssyni. Börn þeirra eru Helga, Margrét Kristín, Sveinbjörn og Magnús.
Elísabet Jóna. (20. des. 1946) Var gift Baldri Gíslasyni. Börn þeirra eru Stefanía og Gísli Marteinn.
Fyrir hjónaband eignaðist Margrét son, Kristján Benjamínsson, (5. okt. 1923 - 23. okt. 2013) sem kvæntur er Huldu Guðmundsdóttur. Börn þeirra eru Kristín Berglind og Broddi.
Sveinbjörn tók ungur mikinn þátt í félagsmálastarfi sveitar sinnar og héraðs og kom víða við í þeim störfum. Hann hóf félagsmálastörfin eins og margir aðrir ungir menn i ungmennafélaginu Eldborg og formaður þess var hann frá 1920-1930. Þá var hann einn af þeim sem gekkst fyrir stofnun héraðssambands ungmennafélaganna á Snæfellsnesi og var kjörinn i fyrstu stjórn héraðssambandsins á stofnfundi þess 1922 og sat i þeirri stjórn til 1939. Hann var kjörinn heiðursfélagi sambandsins á fjörutíu ára afmæli þess 1962. Sveinbjörn var kosinn i hreppsnefnd 1931 og sat samfellt i hreppsnefndinni til 1942 en þá varð hlé á til 1950 að hann var kosinn aftur í hreppsnefndina og sat þá i henni átta ár sem oddviti. En oddviti var hann alls í 12 ár. Sýslunefndarmaður var hann 1946-1950. Hann var kosinn i sóknarnefnd 1929 og jafnframt safnaðarfulltrúi fyrir Kolbeinsstaðakirkju. Hann lét sér mjög annt um málefni kirkjunnar og var mjög lengi i safnaðarstjórn. Sveinbjörn var mjög oft fulltrúi sveitar sinnar á búnaðarsambandsfundum og einnig var hann oftsinnis fulltrúi á fundum Kaupfélags Borgfirðinga. Hann hafði mikinn áhuga á framförum á sviði landbúnaðar og taldi að samvinna bænda gæti leyst ýmis vandamál bændastéttarinnar. Hann sat stofnfund Ræktunarsambands Snæfellinga og studdi þann félagsskap með ráðum og dáð fyrstu bernskusporin. Sveinbjörn var kosinn í nýbýlanefnd Snæfellinga 1946 og átti lengi sæti i henni. Þá átti hann sæti i yfirskattanefnd sýslunnar frá 1951-1962. Og enn fleiri félagsstörfum sinnti hann. T.d. var hann formaður slysavarnarfélags Kolbeinsstaðahrepps. Einnig var hann námsstjóri i þrjú ár i sex hreppum á sunnanverðu Snæfellsnesi og á Mýrum, þ.e. 1931-1933. Það mátti segja að um áratugi væri Sveinbjörn einn mesti félagsmálamaður á Snæfellsnesi og hann kæmi nær alls staðar við sögu i því efni. Hann var skemmtilegur fundarmaður, — gamansamur í ræðuflutningi og talaði gott mál enda fjöllesinn og sérlega næmur á þau efni. A Snorrastöðum var bókleg iðja stundu meir en títt er almennt, og ef gesti bar þar að garði var gjarnan rætt um bókmenntir og félagsmál. Var þá oft glatt á hjalla og stundin fljót að líða. Snorrastaðaheimilið hefur verið menningarsetur og margur hefur komið þangað og notið þess að fræðast og gleðjast af viðræðum við heimilisfólkið. Þjóðleg gestrisnihefur verið rækt þar eins og best verður gert. Snorrastaðir liggja suðaustanvert við Eldborgarhraun. Land jarðarinnar stórt og gott. Ræktunarland er mikið og beitiland er einnig viðáttumikið. Þar ilmar sterkt í gróandanum á vorin. Selveiði er í Kaldárósi og lítils háttar veiði í Kaldá. Skóglendi er i Eldborgarhrauni. Bæjarstæði er fagurt og hlýlegt. Um skeið var Haukur Sveinbjörnsson I félagsbúi með foreldrum sinum uns hann kvæntist og byggði nýbýlið Snorrastaði II 1968-1970. Færðist búskapurinn þá meir á hans hendur. Búskapar umsvif voru lengst af mikil og hefur fjölskyldan verið samhent við dagleg störf og farist farsællega búreksturinn. Sveinbjörn varð fyrir því að veikjast á góðum starfsaldri eða um sextugt. Dró hann þá smám saman úr búskaparumsvifum, þó hann nyti í því efni bróður síns Kristjáns, sem alla tíð hefur verið í búskapnum með honum, auk þess sem börnin voru þá flest uppkomin og aðstoðuðu eftir getu. Þennan sjúkdóm losnaði Sveinbjörn aldrei við og dró hann sig því í hlé bæði í félagsmálum og einnig smám saman í búskapnum líka. En með lítilli áreynslu leið honum miklu betur og var jafnan hress og glaður til hinstu stundar.
Sveinbjörn Jónsson (1965-2019)
Sveinbjörn Jónsson fæddist í Reykjavík 28. ágúst 1965. Sveinbjörn ólst upp með foreldrum sínum, var með þeim á námsárum föðurins í Danmörku og víðar hérlendis.
Árið 1973 flutti fjölskyldan til Patreksfjarðar, þangað átti faðir hans ættir að rekja og fékk starf sem mjólkursamlagsstjóri. Þar ólst Sveinbjörn upp og lauk grunnskólaprófi. Eins og þá tíðkaðist fóru unglingar snemma að vinna og innan við fermingu var hann farinn að vinna í fiski á sumrin. Hann fór í MH eftir grunnskóla en skipti um og fór í Iðnskólann í Reykjavík þar sem hann lærði rafeindavirkjun og lauk því námi. Eitt ár var hann við nám í Odense Tekniske skole.
Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 6. september 2019. Útför Sveinbjarnar hefur fór fram í kyrrþey.
Sveinbjörn Lárusson (1904-1958) Akureyri
Jónas Sveinbjörn Björgvin Lárusson 2. desember 1904 - 5. apríl 1958. Bílstjóri á Akureyri 1930. Bifreiðastjóri á Akureyri. Vann síðar við pípulagningar. Síðast bús. í Reykjavík.
Ólst upp hjá hjónunum Jónasi Sveinssyni f. 1873-1954 og Björgu Björnsdóttur f. 1862-1934.
Sveinbjörn Sæmundsson (1884-1965) Reykjavík
Var í Reykjavík 1910. Verkamaður á Holtsgötu 10, Reykjavík 1930. Fylgdarmaður landmælingamanna í Reykjavík 1945.
Sveinbjörn Sigurðsson (1938) Blönduósi
Sveinbjörn Sigurðsson f. 6. febrúar 1938 Var á Hafursstöðum, Vindhælishr., A-Hún. 1957. Starfsmaður Mjólkursamlagsins.
Sveinborg Helga Sveinsdóttir (1948-2004) Hjúkrunarfræðingur
Sveinborg Helga Sveinsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum 13. júní 1948. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 13. mars síðastliðinn. Sveinborg verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag 26. mars 2004 og hefst athöfnin klukkan 11.
Sveinfríður Sigurpálsdóttir(1948) hjúkrunarfræðingur MS
Sveinn Ásmundsson (1909-1966) byggingameistari Blönduósi, frá Ásbúðum á Skaga,
Farþegi á Gufuskipinu „Lagarfossi“ frá Reykjavík á Sauðárkróki 1930. Heimili: Siglufjörður. Byggingameistari á Siglufirði, Blönduósi, Sauðárkróki og Húsavík. Síðast bús. á Húsavík.
Sveinn Benjamínsson (1875-1947) Sveinshúsi (Vinaminni)
Sveinn Benjamínsson 14. okt. 1875 - 27. nóv. 1947. Verkamaður á Blönduósi. Sveinsbæ 1920 og 1933
Sveinn Bjarnason (1885-1960) framfærslufulltrúi á Akureyri
Sveinn Bjarnason 17. maí 1885 - 15. júní 1960. Niðursetningur í Hvammi, Holtastaðasókn, Hún. 1890. Hjú í Hafragili, Hvammsókn, Skag. 1901. Var á Akureyri 1930. Kennari, verslunarmaður og framfærslufulltrúi á Akureyri.
Sveinn Ellertsson (1912-1983) samlagsstjóri
Mjólkurbússtjóri í Blönduóshreppi. Var í Kaupfélagsstjórahúsinu, Blönduóshr., A-Hún. 1957.
Sveinn Finnsson (1856-1942) Bóndi á Kolsstöðum í Miðdölum
Sveinn Finnsson 1. mars 1856 - 7. ágúst 1942. Bóndi á Kolsstöðum í Miðdölum, Dal. 1891-1925 og í Eskiholti, Borgarhreppi, Mýr. „Gildur bóndi“, segir í Dalamönnum.
Sveinn Guðlaugsson (1921-2006)
Sveinn Guðlaugsson fæddist í Reykjavík 9. október 1921. Hann lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 14. desember síðastliðinn. Sveinn ólst upp í Reykjavík. Útför Sveins fór fram í kyrrþey.
Sveinn Guðmundsson (1867-1939) Brautarholti og Kárastöðum
Sveinn Oddbergur Guðmundsson 14. des. 1867 - 14. júní 1939. Bóndi á Kárastöðum Svínavatnshreppi 1910. Nefndur Oddbert Sveinn skv. Æ.A-Hún. Keypti Brautarholt 1919 og seldi svo Steingrími árið eftir. Bóndi Kirkjubæ í Norðurárdal 1920.