Svanborg Sæmundsdóttir (1913-1995)

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Svanborg Sæmundsdóttir (1913-1995)

Parallel form(s) of name

  • Svanborg Sæmundsdóttir (1913-1995) Húsmæðrakennari

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      19.12.1913 - 8.3.1995

      History

      Svanborg Sæmundsdóttir var fædd 19. des. 1913. Hún lést að kvöldi 8. mars á Borgarspítalanum. Bjarni og Svanborg bjuggu fyrst á Svarfhóli í Stafholtstungum, 1 ár á Hofsstöðum í sömu sveit. Fluttust þá að Hjarðarnesi á Kjalarnesi og voru þar búandi í 6 ár. Þá varð Bjarni bústjóri á Kópavogsbúinu á meðan þar var rekinn búskapur og síðan verkstjóri á sama stað. Er störfum Bjarna lauk við Kópavogsbúið festu þau hjónin kaup á snoturri íbúð að Furugrund 34 í Kópavogi. Eftir það starfaði Bjarni við gróðrarstöð í Fossvogi á meðan heilsan leyfði.
      Útför Svanborgar fer fram frá Kópavogskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13.30.

      Places

      Svarfhóll í Stafholtstungum og Hofsstaðir: Hjarðarnes á Kjalarnesi: Kópavogur:

      Legal status

      Svanborg hlaut venjulega menntun eins og börn þeirra tíðar og fór á unglingaskóla að Hólum í Hjaltadal og síðar Kvennaskólann á Blönduósi. Svanborg fór til náms í vefnaði í Noregi og lauk þaðan prófi.

      Functions, occupations and activities

      Hún var í vinfengi við skólastjórann frú Huldu Stefánsdóttur og vann á hennar heimili meðal annars á Þingeyrum. Kenndi síðan við Húsmæðraskóla Reykjavíkur 1945-1946 og Húsmæðraskóla Borgfirðinga á Varmalandi 1946-1949. Svanborg fór aftur að kenna vefnað, meðal annars á Húsmæðraskólanum að Staðarfelli. Ennfremur tók Svanborg um tíma nemendur heim til sín og kenndi vefnað.

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hennar voru Sæmundur Jóhannsson f. 10. janúar 1879 - 2. ágúst 1955. Bóndi í Aratungu, Staðarsókn, Strand. 1930. Bóndi í Aratungu, síðar á Stað í Steingrímfirði, flutti síðan til Hólmavíkur, síðast bóndi á Stað í Steingrímsfirði og kona hans Elísabet Jónsdóttir f. 18. maí 1870 - 8. janúar 1944. Húsfreyja í Aratungu, Staðarsókn, Strand. 1930.
      Systkini Svanborgar voru:
      1) Jóney Katrín Sæmundsdóttir 16. apríl 1903 - 11. október 1943
      2) Jón Sæmundsson f. 24. desember 1900 - 1. febrúar 1988 Búfræðingur, hreppstjóri á Hólmavík, síðan í Ofnasmiðjunni í Reykjavík, síðast bús. í Reykjavík. Bóndi í Aratungu, Staðarsókn, Strand. 1930.
      3) Benedikt, 5. mars 1908 - 3. september 1981. Bóndi á Hólmavík, lést af slysförum. Síðast bús. í Hólmavíkurhr. Vinnumaður í Aratungu, Staðarsókn, Strand. 1930 ,
      4) Guðmundur, 22. febrúar 1909 - 24. október 1984 Var í Aratungu, Staðarsókn, Strand. 1930. Vélstjóri, sjómaður, síðar verkamaður á Hólmavík. Síðast bús. í Reykjavík.
      5) Jóhann Kristján Sæmundsson 6. febrúar 1911 - 20. maí 2002 Bóndi á Stað í Steingrímsfirði til ársins 1947 en þá fluttist hann suður. Stundaði hann verkamannastörf og var gæslumaður á Kópavogshæli. Gerðist síðar sjúkraliði þar, en hann lauk sjúkraliðaprófi 63 ára gamall.
      Svanborg giftist eiginmanni sínum Bjarna Péturssyni Walen, f. 22. mars 1913, d. 2. mars 1987, 18. apríl 1948. Foreldrar Bjarna voru Peder Mikael Sjursson Walen bóndi í Vík, Vikebygd, Hördalandi, Noregi, og Berta Lovis Hansdóttir.
      Börn þeirra hjóna eru
      1) Magni Skarphéðinn 24. janúar 1948, doktor í landbúnaðarlíffræði, starfar nú í Þýskalandi. Kona hans Barbara Baumann Bjarnason f. 7.6.1950. Eiga þau einn son, Benedikt.
      2) Elísabet Berta Lovísa Bjarnadóttir Valen f. 3. júní 1950, félagsráðgjafi, hennar börn eru Svanborg Þórsdóttir og Bjarni Þórisson.

      General context

      Relationships area

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH02053

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 31.7.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes