Identity area
Type of entity
Authorized form of name
Parallel form(s) of name
Svava Sveinsína Sveinbjörnsdóttir (1931-2018) Hnausum
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
History
Svava Sveinsína Sveinbjörnsdóttir 26. jan. 1931 - 23. ágúst 2018. Bókbindari. Fékkst við bústörf á Hnausum í Sveinsstaðahreppi og síðar við bókband í Reykjavík. Var á Hnausum, Sveinsstaðahr., A-Hún. 1957. Gegndi ýmsum félagsstörfum. Ógift. Kvsk á Blönduósi 1950-1951.
fæddist í Hnausum í Þingi en bjó lengst af í Fellsmúla í Reykjavík. Allt til 1967 tók hún virkan þátt í bústörfum í Hnausum, inni sem úti, átti fé og sinnti einnig mikið afgreiðslustörfum á landsímastöðinni þar fyrir Sveinsstaðahrepp. Þá ræktaði hún fallegan trjá- og blómagarð sunnan við bæinn.
Hún lést á Hrafnistu við Brúnaveg í Reykjavík 23. ágúst 2018. Svava Sveinsína var jarðsungin frá Þingeyraklausturskirkju í Þingi, Austur-Húnavatnssýslu, 8. september 2018, og hófst athöfnin klukkan 14.
Places
Legal status
Barnaskólinn á Sveinsstöðum í Þingi
Kvsk á Blönduósi 1950-1951.
Functions, occupations and activities
Á Hnausaárunum tók Svava þátt í ýmsu félagsstarfi, einkum innan ungmennafélagsins og kvenfélagsins, kom m.a. að skógrækt í Þórdísarlundi í Vatnsdalshólum, en syðra komu Húnvetningafélagið í Reykjavík og Félag bókagerðarmanna mest við sögu. Þá var hún alla tíð, á meðan heilsan leyfði, virk í fjölskyldu- og ættarklúbbi sem gjarnan kenndi sig við Grund í Svínadal og sótti reglubundið endurfundi samnemenda úr Kvennaskólanum á Blönduósi.
Mandates/sources of authority
Ritið Húnvetningur birti efni eftir hana og í Húnavöku 2018 birtist viðtal við Svövu þar sem vel kemur fram hve mjög hún unni átthögunum.
Internal structures/genealogy
Foreldrar hennar; Kristín Pálmadóttir 10. apríl 1889 - 31. mars 1985. Vinnukona í Reykjavík 1910. Húsfreyja á sama stað 1930. Var á Hnausum, Sveinsstaðahr., A-Hún. 1957 og maður hennar 3.6.1916; Sveinbjörn Jakobsson 20. okt. 1879 - 24. okt. 1958. Var í Reykjavík 1910. Bóndi á sama stað 1930. Var á Hnausum, Sveinsstaðahr., A-Hún. 1957.
Systkini;
1) Guðrún Sveinbjörnsdóttir 5. nóv. 1917 - 7. jan. 2016. Var á Hnausum, Þingeyrasókn, A-Hún. 1930. Maður hennar; Dýrmundur Ólafsson 8. des. 1914 - 13. sept. 2011. Póstmaður í Reykjavík
2) Leifur Sveinbjörnsson 2. okt. 1919 - 22. feb. 2008. Var á Hnausum, Þingeyrasókn, A-Hún. 1930. Var á Hnausum, Sveinsstaðahr., A-Hún. 1957. Bóndi á Hnausum í Sveinsstaðahreppi, síðast bús. í Garðabæ. Kona hans 23.7.1967; Elna Thomsen 11. maí 1936 - 26. nóv. 2017. Húsfreyja á Hnausum í Sveinsstaðahreppi. Kjörbörn Leifs: Andrés Ingibergur, f. 21.9.1961 og Kristín Björk, f. 2.4.1971.
3) Jakob Sveinbjörnsson 15. júní 1921 - 13. maí 2002. Var á Hnausum, Þingeyrasókn, A-Hún. 1930. Lengst af leigubílstjóri síðar skoðunarmaður hjá Bifreiðaeftirlitinu. Kona hans Þórdís Inga Þorsteinsdóttir 18. sept. 1924.
4) Jórunn Sigríður Sveinbjörnsdóttir [Stella] 9. mars 1925. Maður hennar; Hjörtur Hafsteinn Hjartarson 5. sept. 1908 - 20. ágúst 1994. Var í Reykjavík 1910. Verkamaður á Lindargötu 40, Reykjavík 1930. Fósturfor: Tómas Klog Pálsson og Rannveig Gissurardóttir. Lögregluþjónn í Reykjavík.
5) Svava Sveinbjörnsdóttir 27. sept. 1926 - 18. feb. 1927.
General context
Relationships area
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Access points area
Subject access points
Place access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Institution identifier
Rules and/or conventions used
Status
Level of detail
Dates of creation, revision and deletion
GPJ skráning 29.11.2022
Language(s)
Script(s)
Sources
®GPJ ættfræði 29.11.2022
Íslendingabók
mbl 8.9.2018. https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1696964/?item_num=0&searchid=9440aa6f3cd5cb8163eb437f9f2c505122eab4ac
Húnavaka 2018
ÆAHún. Bls 1050.