Eiríkur G Einarsson (1886-1964) frá Saurum á Skaga.
- HAH03141
- Einstaklingur
- 14.5.1886 - 27.8.1964
Eiríkur Guðbjargarson Einarsson 14. maí 1886 - 27. ágúst 1964 Afgreiðslumaður á Hverfisgötu 91, Reykjavík 1930.
Eiríkur G Einarsson (1886-1964) frá Saurum á Skaga.
Eiríkur Guðbjargarson Einarsson 14. maí 1886 - 27. ágúst 1964 Afgreiðslumaður á Hverfisgötu 91, Reykjavík 1930.
Eiríkur Erlendsson (1906-1987) Hnausum
Eiríkur Erlendsson var fæddur 12. september 1906 á Blöndudalshólum í A-Húnavatnssýslu. Hann var síðast bóndi á Hnausum í Húnaþingi en fluttist til Reykjavíkur 1929.
Eiríkur Briem (1846-1929) Steinnesi
Eiríkur Briem 17. júlí 1846 - 27. nóvember 1929 Skólapiltur á Espihóli, Hrafnagilssókn, Eyj. 1860. Prófastur, húsbóndi á Steinnesi, Þingeyrasókn, Hún. 1880. Fjarverandi. Prestaskólakennari, alþingismaður og prófessor í Reykjavík. Var í Reykjavík 1910. „Að mörgu hinn merkasti maður“, segir Einar prófastur.
Eiríkur Björnsson (1895-1986) Þverárdal
Eiríkur Björnsson 14. október 1895 - 3. september 1986 Bóndi í Þverárdal í Bólstaðarhlíð, A-Hún. Bóndi á Sjávarborg og Gili í Borgarsveit, Skag. Oddviti Skarðshrepps 1931-33. Síðar bifreiðarstjóri á Sauðárkróki. Síðast bús. á Sauðárkróki. „Eiríkur var hlédrægur og hæglátur, traustur maður og vandaður“ segir í Skagf.1910- Bóndi í Gili, Sauðárkrókssókn, Skag. 1930.1950 I,
Eiríkur Árnason Anderson (1866-1952) frá Sigríðarstöðum
Eiríkur Árnason 5. júlí 1866 - 7. september 1952 Bóndi á Sigríðarstöðum í Hún. Fluttist til Vesturheims 1890. Bjó fyrst í Winnipeg, en síðar í Victoria, B.C. 1891; Point Roberts, Washington 1894 og tók sér þar land.
Eiríkur missti föður sinn þegar hann var 14 ára gamall og fluttist hann þá til systur sinnar Guðrúnar og manns hennar Sigfúsar Guðmundssonar í Kotadal og dvaldi hjá þeim í þrjú ár, þaðan fór hann að Böðvarshólum og var þar í 7 ár.
Eiríkur Albertsson (1887-1972) prófastur Hesti Borgarfirði
Eiríkur Valdimar Albertsson 7. nóvember 1887 - 11. október 1972 Prestur á Hesti, Hvanneyrarsókn, Borg. 1930. Skólastjóri og prestur á Hesti í Andakíli, Borg. 1918-1944. Prófastur í Borgarfjarðarprófastsdæmi frá 1932. Guðfræðingur í Reykjavík, síðast búsettur í þar.
Eiríksstaðir Bólstaðarhlíðarhreppi.
Bærinn er neðan vegar, langa bæjarleid norðan Bergsstaða. Af Eiríksstaðahorni nokkru sunnan bæjar opnast útsýn yfir miðhluta Svartárdals. Ræktuner að meirihluta af valllendi og nokkuð sundurslitin. Jörðin á víðáttumikið flálendi á Svartárdalsfjalli og gott beitiland í brekkum neðan brúna. Eiríksstaðahöfði heitir hæð ein áberandi á vesturbrún Svartárdalsfjalls nyrst í Eiríksstaðalandi. Íbúðarhús byggt 1938, 320 m3. Fjós fyrir 6 gripi. Fjárhús yfir 260 fjár. Hesthús yfir 12 hross. Hlöður 1020 m3. Tún 16 ha. Veiðiréttur í Svartá.
Eiríka Ólafsdóttir 9. mars 1963 Grunnskólakennari Reykjavík
Eingið stendur við Einvígisfoss í Álku, Úlfsfoss er annar foss í henni
Um 12 m hár og álíka að þvermáli, mjókkandi upp með grasi þöktum fleti efst og einstigi upp, aðeins að vestanverðu.
Landslagið umhverfis Einbúann hefur tekið miklum breytingum en hann er enn á sínum stað óhreyfður.
Aðrar upplýsingar í örnefnaskrá Ingibergs segir ennfremur: Nú er búið að fylla upp fyrir framan hann og standa þar hús SR. Áður á landamerkjum Höfðahóla og Spákonufells.
Þar var álfabyggð.“ (ÖIG: 4).
Sumarið 1878 var Sverri Runólfssyni steinhöggvara úthlutuð lóð sem þá nefndist Sverrishorn en síðar Einarsnes eftir að Einar Einarsson fór að búa þar. Hann náði þó ekki að koma yfir sig húsi áður en hann dó. Hann hafði þó viðað að sér efni sem var selt á uppboði eftir lát hans.
Sá fyrsti sem byggir á nesinu var Sigtryggur Benediktsson, sem settist þar að 1898 og bjó þar til 1903 er hann missti konu sínu og flutti burt. Dóttir þeirra var móðir Hannesar Péturssonar rithöfundar.
Húsið var rifið eða brennt 1987
Einara Ólafsdóttir (1840-1925) Winnipeg, Manitoba
Einara Ólafsdóttir 20. mars 1840. Var á Setbergi, Setbergssókn, Snæf. 1845. Fór til Vesturheims 1889 frá Ljótshólum, Svínavatnshr., Hún. Var hjá bróðurdóttur sinni í Winnipeg, Manitoba, Kanada 1901. Jarðsett í Brookside Cemetery Winnipeg
Einara Andrea Jónsdóttir (1902-1986)
Einara Andrea Jónsdóttir 8. febrúar 1902 - 27. mars 1986 Húsfreyja á Njálsgötu 4, Reykjavík 1930. Saumakennari, síðast bús. í Reykjavík.
Einar Þórðarson (1867-1909) prestur Hofteigi á Jökuldal
Einar Þórðarson 7. ágúst 1867 - 6. ágúst 1909. Prestur og embættismaður í Norður-Múlasýslu. Prestur í Hofteigi, Hofteigssókn, N-Múl. 1901. Prestur í Hofteigi 1891-1904 og á Desjarmýri í Borgarfirði 1904-1907.
Einar Þór Ásgeirsson 28. apríl 1966. Skagaströnd
Einar Stefánsson (1863-1931) Hafurstöðum og Böðvarshúsi Blönduósi
Einar Stefánsson 2. júlí 1863 - 29. október 1931 Léttadrengur á Öxl, Þingeyrasókn, Hún. 1880. Var á Akureyri 1930. Bóndi á Hafursstöðum og síðar á Þverá í Norðurárdal. Böðvarshúsi Blönduósi 1920.
Einar Skúlason (1834-1917) Tannstaðabakka Staðarhreppi V-Hvs
Einar Skúlason 21. október 1834 - 20. ágúst 1917 Gullsmiður. Bóndi á Tannstaðabakka, Staðarsókn, Hún. 1870. Var á sama stað 1880.
Einar Sigurðsson (1923-1994) Hrl, frá Litlu-Giljá
Einar Sigurðsson 22. apríl 1923 - 29. september 1994 Hæstaréttarlögmaður í Reykjavík. Var á Litlu-Giljá, Þingeyrasókn, A-Hún. 1930. Kjördætur: Erna Guðrún Einarsdóttir f. 24.7.1944 og Dóra Geraldína Einarsdóttir, f. 25.7.1946.
Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni í dag.
Einar Sigurðsson (1877-1964) Ívarsseli í Reykjavík
Einar „eldri“ Sigurðsson 3. september 1877 - 4. janúar 1964 Sjómaður í Ívarsseli í Reykjavík. Húsbóndi í Reykjavík 1910. Verkamaður á sama stað 1930.
Einar Sigurðsson 1. janúar 1876 - 14. nóvember 1962 Bóndi í Hjallalandi, Þingeyrasókn, A-Hún. Ókvæntur barnlaus.
Einar Pétursson (1926-2005) Blönduósi
Einar Pétursson fæddist í Ófeigsfirði í Árneshreppi á Ströndum 25. október 1926. Hann lést á heimili sínu 20. október 2005.
Einar ólst upp í Ófeigsfirði á Ströndum.
Einar Pétursson (1872-1937) Brautarholti og Hólabæ
Einar Pétursson 19. nóvember 1872 - 7. júní 1937 Bóndi í Hólabæ og Brautarholti á Blönduósi 1930 og 1951.
Einar Pálsson 24. júlí 1868 - 27. janúar 1951 Prestur á Hálsi í Fnjóskadal, Þing. 1893-1903, í Gaulverjabæ, Árn. 1903-1908 og í Reykholti, Borg.1908-1930. Uppgjafaprestur á Skólavörðustíg 4 c, Reykjavík 1930. Síðast skrifstofumaður í Reykjavík.
Einar Óli Fossdal (1966) Blönduósi
Einar Óli Fossdal 5. október 1966 sjúkrahúsráðsmaður Blönduósi.
Einar Ólafur Karlsson 24. september 1964 Reykjavík
Einar Ólafsson 1. maí 1896 - 15. júlí 1991 Bóndi í Lækjarhvammi við Suðurlandsveg, Reykjavík 1930. Bóndi í Bæ í Kjós og Lækjarhvammi í Reykjavík.
Einar Oddur Scheving Thorsteinsson (1898-1974) Kaupmaður Blönduósi
Einar Oddur Scheving Thorsteinsson 23. mars 1898 - 3. september 1974 Kaupmaður á Blönduósi 1930. Kaupmaður í Reykjavík 1945. Verslunarmaður í Reykjavík, síðar kaupmaður á Blönduósi 1922-1942 og aftur verslunarmaður í Reykjavík. Síðast bús. þar.
Einar Magnússon 16. ágúst 1895 Fór til Vesturheims 1903 frá Torfastöðum, Jökuldals-og Hlíðarhreppi, N-Múl. Hermaður í kanadíska hernum í fyrri heimsstyrjöld.
Einar Magnúsen Jónasson (1872-1937) Sýslumaður Barðstrendinga
Einar Magnúsen Jónasson 3. júní 1872 - 23. mars 1937 Húsbóndi í Reykjavík 1910. Húsbóndi á Grundarstíg 8, Reykjavík 1930. Lögfræðingur í Reykjavík, síðar sýslumaður í Barðastrandasýslu, síðast málflutningsmaður í Reykjavík.
Einar Logi Vignisson (1969) Blönduósi
Einar Logi Vignisson 27.7.1969 Blönduósi
Einar Logi Einarsson (1938-2002) tónlistakennari Hvammstanga ov
Einar Logi Einarsson fæddist í Reykjavík 8. mars 1938.
Einar Logi var tónlistarkennari og skólastjóri við tónlistarskóla víða um land, m.a. á Hvolsvelli, Hvammstanga, Ólafsfirði, Vopnafirði og Suðureyri. Á þessum stöðum var hann oft kirkjuorganisti og stóð fyrir leiksýningum og ýmsu félagsstarfi. Einar Logi var virkur félagi í Félagi íslenskra hljómlistarmanna og um skeið stjórnarmaður í Bandalagi íslenskra listamanna.
Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 2. ágúst 2002. Útför Einars Loga verður gerð frá Dómkirkjunni í dag 13. ágúst 2002 og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Einar Kvaran (1859-1938) rithöfundur Reykjavík
Var í Goðdölum, Goðdalasókn, Skag. 1870. Skólapiltur í Lækjargötu, Reykjavík 1880. Húsbóndi í Reykjavík 1910. Rithöfundur á Sólvallagötu 3, Reykjavík 1930. Rithöfundur. Maki 1: Matthilde Petersen, lést 1887/1888.
Einar Kristmundsson (1947-2017) Grænuhlíð
Var í Grænuhlíð, Torfalækjahr., A-Hún. 1957. Bóndi í Grænuhlíð í Torfalækjarhreppi.
Hann fæddist á Blönduósi 28. ágúst 1947. Hann lést á heimili sínu, Grænuhlíð í Húnavatnshreppi, 3. september 2017.
Einar Kristjánsson (1917-2015)
Einar Kristjánsson 15. ágúst 1917 - 31. október 2015 Var á Leysingjastöðum, Hvammssókn, Dal. 1930.
Einar Kristjánsson fæddist á Hríshóli í Barðastrandarsýslu 15. ágúst 1917. Hann lést á Hrafnistu í Reykjavík 31. október 2015.
Einar var tekinn í fóstur af föðurbróður sínum, Einari, og Signýju Halldórsdóttur konu hans þegar hann var níu mánaða gamall. Þau bjuggu á Leysingjastöðum í Hvammssveit ásamt börnum sínum Guðfinnu, Jóni Jóel og Þuríði. Einar varð snemma læs undir handarjaðri Guðfinnu frænku sinnar og stundaði nám í Héraðsskólanum í Reykholti 1936-38. Einar og Kristín byggðu sér hús í Hvammssveit sem þau nefndu Árbæ. Þar dvöldu þau öll sumur og eftir að Einar fór á eftirlaun var hann þar lungann úr árinu meðan heilsan leyfði. Þar reisti hann reykhús og gróðurhús og ræktaði kartöflur. Á því sama landi hafði hann hafið kornrækt 18 ára, eftir dvöl á Sámsstöðum í Fljótshlíð, og var ræktunarmaður meðan kraftar entust. Aðalvinnan hin síðari ár var þó að safna skjölum og kveðskap og var þar lagður grunnur að Héraðsskjalasafni Dalasýslu. Þá var hann ritstjóri Breiðfirðings um árabil og tók þátt í starfi Kvæðamannafélagsins Iðunnar. Síðustu árin dvöldu þau Einar og Kristín á Hrafnistu í Reykjavík.
Útför Einars fer fram frá Háteigskirkju í dag, 13. nóvember 2015, og hefst athöfnin kl. 13.
Einar Kristjánsson (1910-1966) óperusöngvari
Einar Kristjánsson 24. nóv. 1910 - 24. apríl 1966. Námsmaður á Lokastíg 5, Reykjavík 1930. Óperusöngvari víða í Evrópu, síðast í Reykjavík.
Einar fluttist alfarið heim til Íslands ásamt fjölskyldu sinni haustið 1962 og tók þá við starfi kennara við áðurnefnda óperudeild Tónlistarskólans í Reykjavík sem þá var nýstofnuð. Um það leyti hætti hann að syngja og lét þá hafa eftir sér að sér þætti betra að hætta söng of snemma heldur en of seint. Einar starfaði við skólann hér heima þar til vorið 1966 sem hann veiktist skyndilega alvarlega og lést nokkrum dögum síðar.
Einar Jósefsson Reynis (1892-1979)
Einar Jósefsson Reynis 25. nóvember 1892 - 16. júní 1979 Pípulagningarmaður á Húsavík, síðar skrifstofumaður í Reykjavík. Verksmiðjustjóri á Húsavík 1930.
Einar Jónsson Johnson (1882-1959)
Einar Jónsson Johnson 31. mars 1882 - 5. október 1959 Húsbóndi í Reykjavík 1910. Stundaði fiskveiðar og verslunarstörf á Íslandi. Fluttist vestur um haf 1912. Var í Dauphin, Manitoba, Kanada 1916. Bjó m.a. í Winnipeg, Poplar Park, Lonely Lake og að Steep Rock þar sem hann stundaði verslun. Kallaði sig Johnson í Vesturheimi.
Einar Jónsson (1862-1944) Blöndubakka
Einar Jónsson 27. janúar 1862 - 6. maí 1944 Bóndi á Blöndubakka og síðar á Fögruvöllum á Blönduósi 1920.
Einar Jónsson (1823-1901) Fremstagili
Einar „yngri“ Jónsson 11. maí 1823 - 27. október 1901 Húsbóndi í Skyttudal, Bólstaðarhlíðarsókn, Hún. 1860. Bóndi í Fremstagili, Holtastaðasókn, Hún. 1870 og 1880.
Einar Jón Pálsson (1856-1929) Trésmíðameistari í Reykjavík
Einar Jón Pálsson 2. ágúst 1856 - 7. ágúst 1929 Trésmíðameistari í Reykjavík. Húsbóndi í Reykjavík 1910. Í mt 1860 er hann sagður heita Éinar G.
Einar Jóhannsson Evensen (1975) Blönduósi
Einar Ágúst Jóhannsson 13. febrúar 1975 Blönduósi.
Einar Jóhannesson (1844-1899) Kálfshamri
Einar Jóhannesson 15. júlí 1844 - 26. apríl 1899. Bóndi á Kálfshamri á Skagaströnd. Var í Sölvanesi á Fremribyggð, Skag. 1845. Búandi í Sporðshúsi, Víðidalstungusókn, Hún. 1870. Bóndi, Lækjarkoti, Víðidalstungusókn, Hún. 1880. Húsbóndi á Kálfshamri, Hofssókn, Hún. 1890.
Einar Ingvi Þorláksson (1927-2020) Blönduósi
Einar Ingvi Þorláksson 3. janúar 1927 Var í Húsi Einars Þorlákssonar, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Kaupmaður versluninn Vísi og sveitarstjóri Blönduósi.
Einar Indridi Benediktsson (1919)
Einar Indridi Benediktsson f. 1919. Kona hans; Marjonie Midge, búseta 1940: Toppenish, Election Precinct 90 Toppenish 1, Yakima, WA
Einar Húnfjörð Guðlaugsson (1920-2008) Blönduósi
Einar Þorgeir Húnfjörð Guðlaugsson fæddist að Þverá í Norðurárdal í Austur-Húnavatnssýslu 30. mars 1920. Hann lést af slysförum 1. apríl 2008, 88 ára að aldri.
Einar ólst upp á Þverá við bústörf ýmiss konar. Hann var liðtækur til flestra þeirra verka sem til féll í sveitum. Einar og Ingibjörg (Imma) bjuggu allan sinn hjúskap á Blönduósi.
Útför Einars fer fram frá Blönduóskirkju í dag 11. apríl 2008 og hefst athöfnin klukkan 14.
Einar Höskuldsson (1939-2017) Mosfelli
Einar Árni Höskuldsson 28. nóvember 1939 - 24. nóvember 2017 Bóndi, hrossaræktandi og tamningamaður á Mosfelli í Svínavatnshreppi. Síðast bús. á Blönduósi.
Einar Heimir Pétursson (1936-2017) Blönduósi
Einar Heimir Pétursson fæddist 31. desember 1936 á Blönduósi. Hann lést á líknardeild Landspítalans 11. mars 2017.
Einar greindist fyrst með krabbamein 1997 og lést á líknardeild Landspítalans 11.3. 2017.
Að ósk Einars fór kveðjuathöfn/bálför fram í kyrrþey frá Fossvogskapellu 16. mars 2017.
Einar Haukur Arason 26. ágúst 1964 Húsasmiður
Einar Hansen (1906-2005) Hólmavík
Einar Halldórsson (1907-1934) Akureyri
Einar Halldórsson 18. ágúst 1907 - 23. september 1934. Bílstjóri á Akureyri 1930.
Einar Guttormsson 7. október 1877 - 7. maí 1938 Bóndi í Heiðarseli og Hleinargarði, flutti svo í Seyðisfjörð. Fósturbarn Skeggjastöðum í Fellum 1880. Sagður Gunnsteinsson í mt 1920.
Einar Gunnar Guðmundsson (1952)
Einar Gunnar Guðmundsson 8. október 1952 Var í Mánaskál, Vindhælishr., A-Hún. 1957. Bóndi Neðri-Mýrum óg bl.
Einar Guðmundsson (1952) Sturluhóli
Einar Guðmundsson (1893-1970) vélstjóri Sólbakka utan ár
Einar Guðmundsson 22. júní 1893 - 19. ágúst 1970, fæddur í Grindavík. Var á Bakka [Sólbakka utan ár] Árbraut 19, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Blönduóshreppi.
Einar Guðmundsson (1854-1936) Síðu
Einar Guðmundsson 4. mars 1854 - 18. febrúar 1936 Var í Þverárdal, Bólstaðarhlíðarsókn, Hún. 1860. Vinnumaður í Miðgili, Holtastaðasókn, Hún. 1870. Kom 1887 frá Skagaströnd að Þingeyrum. Kom 1889 frá Þingeyrum að Hnjúkum. Húsmaður og timburmaður á Hnjúkum, Hjaltabakkasókn, Hún. 1890. Bóndi og smiður á Hnjúkum á Ásum og Síðu í Refasveit, A-Hún. Óðalsbóndi og smiður á Síðu, Holtastaðasókn, A-Hún. 1930.
Einar Guðjónsson 26. júní 1887 - 1. febrúar 1961 Sjómaður í Draumalandi. Var í Bjarmalandi, Höfðahr., A-Hún. 1957. Bóndi á Harrastöðum.
Einar Eymann Skúlason (1900-1966) Þingvörður Reykjavík
Einar Eymann Skúlason 10. febrúar 1900 - 5. desember 1966 Þingvörður Reykjavík, ógiftur
Einar Eyjólfsson (1885-1969) Flugumýrarhvammi í Blönduhlíð
Einar Eyjólfsson 26. nóvember 1885 - 24. september 1969 Fóstursonur í Undornfelli, Undirfellssókn, Hún. 1901. Bóndi í Flugumýrarhvammi í Blönduhlíð. Var þar 1930. Síðast bús. á Siglufirði.
Einar Evensen (1926-2008) byggingameistari Blönduósi
Einar Adolf Evensen fæddist á Blönduósi 13. desember 1926. Hann andaðist á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi 18. apríl síðastliðinn.
Einar ólst upp á Akureyri til 10 ára aldurs hjá móðursystur sinni Þorvildi Einarsdóttur og ömmu sinn Björgu Jóhannsdóttur. Síðan fluttu þau til Blönduóss og bjuggu þar síðan.
Einar unni ferðalögum og ferðaðist mikið innanlands sem utan og var einkar fróður um flesta staði og staðhætti. Ættfræðin var og Einari mjög hugleikin.
Útför Einars verður gerð frá Blönduóskirkju í dag 26. apríl 2008 og hefst athöfnin klukkan 15.
Einar Erlendsson Blandon (1882-1954) frá Fremstagili
Einar Baldvin Erlendsson Blandon 16. september 1882 - 19. janúar 1954 Var í Fremstagili, Holtastaðasókn, Hún. 1901. F.v. skrif. í Reykjavík 1945. Sýsluskrifari Blönduósi og á Seyðisfirði.
Einar Einarsson (1867-1923) Einarsnesi
Einar Einarsson 6. júní 1867 - 16. ágúst 1923 Járnsmiður og bóndi á Geirastöðum í Þingi, var í húsmennsku víða. Síðast. bús. á Einarsnesi á Blönduósi 1904-1923.
Einar Darri Sveinbjörnsson (2003)
Einar Darri Sveinbjörnsson 21. maí 2003.
Einar Bragi (1921-2005) rithöfundur
Einar Bragi fæddist á Eskifirði 7. apríl 1921.
Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 26. mars 2005. Útför Einars Braga var gerð frá Dómkirkjunni 4.4.2005 og hófst athöfnin klukkan 15.
Einar Björnsson (1912-2008) frá Neðri-Lækjardal í Refasveit A-Hún. .
Einar Halldór Björnsson, bifreiðarstjóri, fæddist í Neðri-Lækjardal í Refasveit í A-Húnavatnssýslu 29. nóvember 1912. Einar og Valgerður bjuggu lengst af að Hjarðarhaga 40 í Reykjavík. Einar fluttist árið 2001 að öldrunarheimilinu Seljahlíð.
Hann lést á heimili sínu að Hjallaseli 55, 11. mars 2008. Einar verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju í dag 17. mars 2008 og hefst athöfnin klukkan 15.
Einar Björnsson (1908-1992) Móbergi
Einar Björnsson, Móbergi Minning Fæddur 31. júlí 1908 Dáinn 24. febrúar 1992
Einar Bergur Halldórsson (1886-1919)
Einar Bergur Halldórsson 25. nóvember 1886 - 20. október 1919 Var í Reykjavík 1910.
Einar Ásmundsson (1828-1893) alþm og gullsmiður Nesi Höfðahverfi
Einar Ásmundsson 20. júní 1828 - 19. október 1893 Alþingismaður, gullsmiður og bóndi í Nesi í Höfðahverfi. Var á Rauðuskriðu, Múlasókn, Þing. 1835. Fékk verðlaun úr styrktarsjóði Kristjáns IX fyrir framúrskarandi dugnað í búskap árið 1883. Húsbóndi og umboðsmaður á Nesi, Laufássókn, S.-Þing. 1890. . „Mikill þátttakandi og frumkvöðull í félagsmálahreyfingum sinnar samtíðar“ segir Indriði. Kjörbarn: Valgerður Einarsdóttir f. 16.7.1861.
Einar Arnórsson 27. febrúar 1880 - 29. mars 1955 Prófessor, ráðherra og hæstaréttardómari í Reykjavík.
Einar Árnason Haraldsson (1925-1983) Breiðavaði
Einar Árnason Haraldsson 24. september 1925 - 14. nóvember 1983 Bóndi á Breiðavaði, Miðgili og Kjalarlandi en lengst af verkamaður og bóndi í Dagsbrún á Skagaströnd. Var á Kjalarlandi, Vindhælishr., A-Hún. 1957. Kjördóttir: Guðbjörg Pálína Einarsdóttir, f. 4.8.1942.
Einar Árnason (1875-1947) ráðherra, Eyrarlandi Ef
Einar Árnason 27. nóvember 1875 - 14. nóvember 1947 Bóndi í Litla-Eyrarlandi, Kaupangssókn, Eyj. 1901. Bóndi og ráðherra í Litla-Eyrarlandi, Kaupangssókn, Eyj. 1930. Bóndi og barnakennari á Litla-Eyrarlandi í Öngulsstaðahr. Alþingismaður 1916-1942 og ráðherra.
Einar Ágúst Flygenring (1929-2000) fjármálastjóri Blönduósi
Einar Ágúst Flygenring fæddist í Reykjavík 1. september 1929.
Hann lést 23. desember 2000 á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Útför Einars fer fram frá Fossvogskirkju í dag 3. jan. 2001 og hefst athöfnin klukkan 15.
Eiður Sigurjónsson (1893-1964) Skálá í Sléttuhlíð
Eiður Sigurjónsson 10. september 1893 - 15. október 1964 Heimili: Skálá, Slétturhlíð. Búfræðingur, kennari, bóndi, hreppstjóri og oddviti á Skálá í Sléttuhlíð, Skag. Síðar þingvörður í Reykjavík. Óvíst hvort/hvar er í mt. 1910. Farþegi á Gufuskipinu „Lagarfossi“ frá Reykjavík á Sauðárkróki 1930.
Eiður Árnason (1931-2009) frá Austara-Hóli í Fljótum í Skagafirði
Eiður Árnason fæddist á Austara-Hóli í Fljótum í Skagafirði 4. mars 1931. Eiður ólst upp í Skagafirði. Þar stundaði hann almenn verkamannastörf eins og á Akranesi en þangað fluttist hann með foreldrum sínum, er þau brugðu búi, árið 1953 og var þar uns hann stofnaði sitt eigið heimili með konu sinni í Reykjavík 1957.
Eiður var söngmaður mikill og söng áratugum saman í Fíladelfíukórnum enda trúfastur meðlimur Hvítasunnukirkjunnar. Hann sinnti ýmsum trúnaðarstörfum á vegum safnaðarins, t.d. var hann stjórnarformaður Sparisjóðsins Pundsins og kom að Blaða- og bókaútgáfunni, sem gaf meðal annars út Aftureldingu og Barnablaðið.
Eiður dvaldi síðustu æviár sín í góðu yfirlæti á Dvalarheimilinu Sæborg á Skagaströnd.
Hann lést á Sjúkrahúsi Akureyrar 22. mars 2009. Útför Eiðs fer fram frá Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu í dag, 3. apríl 2009, og hefst athöfnin kl. 13.
Bærinn stendur miðhlíðis gegnt Bollastöðum og er í 250 metra hæð ys. Landrými er þar mikið og gnægð ræktanlegs lands. Fyrir nokkrum árum var jörðinn skipt í 2 sérmetin býli en fullkomin samvinna hefur þó jafnan verið með bræðrunum sem þar búa. Aðeins eitt íbúðarhús er á jörðinni. Í þessari lýsingu teljast báðir jarðarhlutarnir í einu lagi. Oft var skipt um ábúendur öldina á undan. Íbúðarhús byggt 1956, 405 m3. Torffjós fyrir 5 gripi. Fjárhús yfir 260 fjár og torfhús yfir 380 fjár. Hesthús úr torfi yfir 14 hross. Hlaða 600 m3. Tún 25 ha. Veiðiréttur í Blöndu og Gilsvatni.
Eiðný Hilma Ólafsdóttir (1936-2017) Kambakoti, A-Hún.
Eiðný Hilma Ólafsdóttir, Didda, fæddist að Kleif á Skaga 5. júlí 1936. Didda ólst upp á Kleif á mannmörgu heimili, fór í barnaskóla á ýmsum bæjum í sveitinni þar sem kennarinn var Gunnar Einarsson á Bergskála. Vorið 1949 flutti fjölskyldan að Kambakoti á vestanverðum Skaga, en um haustið brann bærinn. Hluti fjárhúsanna var þá útbúinn til íveru og bjó fólkið þar meðan byggt var nýtt hús. Didda fór snemma að vinna, var í vist og sem kaupakona á bæjum í Húnavatnssýslu eystri. Einnig vann hún í Reykjavík á unglingsárum svo sem í vist, frystihúsi og var vökukona á Sólheimum sjúkrahúsi, þá 14 ára. 17 ára fór hún í Kvennaskólann á Blönduósi í eitt misseri. Húsfreyja á Gauksstöðum í Skefilsstaðahreppi.
Hún andaðist á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki 17. nóvember 2017. Útför Diddu var gerð frá Sauðárkrókskirkju 2. desember 2017, klukkan 11.
Eiðar á Eiðaþinghá, innmannasveit.
Í grennd við Eiða sem Fljótsdæla gefur til kynna að Selfljót hafi runnið í Lagarfljót. Í sveitarlýsingu Eiðaþinghár, sem liggur á mörkum Útmannasveitar, þar sem Selfljótið á upptök sín í Gilsá má lesa þetta: „Um og utan við Eiða einkennist landið mjög af vötnum milli lágra hæða, og ganga víða tangar í og eið á milli. Bæjarnafnið Eiðar skýrist af þessum staðháttum, myndað af eið á sama hátt og Hrísar af hrís.“ Sveitir og jarðir í Múlaþingi II bindi, bls. 219.
Benedikt Gíslason frá Hofteigi gerði að því skóna að allt landsvæðið frá núverandi Eiðastað, milli Lagarfljóts og Gilsá/Selfljóts alla leið út í Héraðsflóa hafi verið kallað á Eiðum. „Þetta land gæti heitið eiði á milli þessara vatna, og er þó ekki dæmi um það í landi hér, að svo mikið land sé nefnt eiði. En land þetta er ásland, og á milli þeirra er mikil fjöldi stöðuvatna og tjarna, og eitt hið stærsta Eiðavatn, snertispöl fyrir utan Eiða, og milli þess og Lagarfljóts er eiði, og vatnið þar að auki mjög vogskorið, svo nálega er eins og um fleiri vötn sé að ræða. Og á milli þessara vatna og fljótanna er fullt af eiðum á þessu landsvæði öllu saman, og svo, auk þess, á milli vatnanna sjálfra hér og þar. Það vaknar sú spurning, hvort í fyrndinni hafi ekki allt þetta landsvæði heitið á Eiðum.“ Eiðasaga bls.10
Eiði er er sagt vera í orðskýringum landbrú eða grandi, mjó landræma, sem tengir tvo stærri landmassa. Ætla má í því sambandi að Eiðar sé eiði í fleirtölu. Norður af Osló í Noregi er Eidsvoll (Eiðisvöllur)skilgreiningin á nafninu þar er sú að þjóðbraut sé umflotin vatnsfalli. Þegar fólkið á svæðinu í kringum Mjosavatn sigldi niður Voma ána og fólk frá Romerike sigldi upp sömu á, varð það að stoppa við Eidvoll sem er við Sundfossen. Eidsvoll varð því mikilvægur áningastaður þessa fólks, en ekki eiði í bókstaflegri meiningu þess orðs.
Því er þetta tiltekið hér, þar sem Eiðar eru u.þ.b. þar sem sagan segir að Selfljót/Gilsá hafi fallið í Lagarfljót. Hæðarpunktar á þessu svæði verða sérlega áhugaverðir í því sambandi. Eiðahólmarnir í Lagarfljóti eru 36 metra yfir sjávarmáli, Eiðavatn er sagt 41 mys enda hefur vatnsborð þess verið hækkað af manna völdum vegna virkjunar í Fiskilæk sem fellur úr því í Lagarfljót. Bærinn Straumur í Hróarstungu, sem stendur við Straumflóanum neðan við Eiða, þar sem Lagarfljót hefur auðsjáanlega grafið þröngan farveg í gegnum landið á leið sinni til sjávar er 41 mys. Bærinn Gröf austan Lagarfljóts rétt utan við Eiðavatn 39 mys og bærinn Hleinargarður rétt austan við Gilsá/Selfljót er 39 mys. Mýrarnar sem eru á milli Grafar og Hleinargarðs liggja á milli klapparása og virðast í svipaðri hæð og þessir tveir bæir.
Þriðja hæsta mannvirkið er langbylgjumastur á Eiðum sem er 220 m hátt. Senditíðni er 209 KHz.
Á Eiðum var rekinn Bændaskóli og síðar Alþýðuskóli auk barnaskóla. Á Eiðum hefur verið prestsetur.
Stórbýlið Egilsstaðir stendur á fjölförnustu vegamótum Austurlands. Þar hefur ætíð verið mikill gestagangur og því ekki tilviljun að á staðnum var opnað gistihús, sem seinna varð Gistihúsið Egilsstöðum. Hefur það nafn lifað góðu lífi þrátt fyrir að Gistihúsið sé löngu orðið hótel og heiti nú Gistihúsið – Lake Hotel Egilsstadir.
Saga gistingar á þessum stað nær allt aftur til ársins 1884, en þá taldi Eiríkur Halldórsson ábúandi á Egilsstöðum sig tilneyddan að hefja gjaldtöku fyrir gistingu sökum bágs efnahags. Þar með hófst í raun rekstur gistihúss á Egilsstöðum og hefur hann haldist svo að segja óslitinn fram á þennan dag.
Árið 1889 keyptu Jón Bergsson og Margrét Pétursdóttir jörðina Egilsstaði og er það upphafið að sögu ættar þeirra á þessum stað. Jón mun hafa lýst því yfir í heyranda hljóði að á Egilsstöðum yrðu vegamót og urðu það orð að sönnu. Í dag búa niðjar Margrétar og Jóns í sex húsum í landi Egilsstaða.
Grunnurinn lagður árið 1903
Elsti hluti þeirrar byggingar er hýsir Gistihúsið – Lake Hotel Egilsstadir var reistur árin 1903-1904. Í tíð Margrétar og Jóns var þar boðin gisting í 2-3 herbergjum. Húsið var þá tvílyft með kjallara og með elstu húsum sem byggð voru úr steinsteypu á Fljótsdalshéraði. Það var svo stækkað um næstum helming, til norðurs, árið 1914 og lauk framkvæmdum 1920.
Eftir að Jón Bergsson lét af búskap tóku synir hans Pétur og Sveinn við búinu. Bjó Pétur ásamt konu sinni Elínu Stephensen í eldri hluta hússins, en Sveinn kvæntist Sigríði Fanneyju Jónsdóttur og bjuggu þau í nýrri hlutanum. Systur þeirra bræðra, Sigríður og Ólöf, héldu einnig heimili á Egilsstöðum og bjuggu í íbúð á efri hæð eldra hússins. Sveinn og Sigríður Fanney tóku við rekstri Gistihússins Egilsstöðum árið 1920. Í hálfa öld ráku þau Sigríður Fanney og Sveinn gistihúsið og mörkuðu varanleg spor í sögu Fljótsdalshéraðs með framfarahug og atorku.
Enn var byggt við og húsið lengt að norðanverðu árið 1947. Byggðir voru stigar frá kjallara upp í rjáfur, vatnssalerni tekin í gagnið og byggðir kvistir á ytri hluta hússins. Innréttuð voru tíu tveggja manna gistiherbergi. Starfsemin var fjölbreytt, því auk gistingar var í húsinu Verslun Jóns Bergssonar, matvæla- og korngeymsla, pósthús og símstöð, sem starfrækt var fram til ársins 1952. Þar fór í gegn fyrsta langlínusamtal Íslendinga um símstreng frá Seyðisfirði.
Tveir myndarlegir trjágarðar standa fljótsmegin hótelsins og eiga sér merka sögu. Sigríður Jónsdóttir gerði fagran skrúðgarð í kringum 1910 og þótti það nýlunda til sveita. Á rústum gamla torfbæjarins á Egilsstöðum byggði Sveinn Jónsson upp trjágarð um 1930. Var gerður utan um garðinn fallegur veggur úr steinsteyptum einingum og vakti einnig athygli.
Ásdís Sveinsdóttir, dóttir Sveins og Sigríðar, eignaðist Gistihúsið og tók við rekstri þess árið 1970. Hún lét mikið að sér kveða í gisti- og veitingarekstrinum og annaðist hann vakin og sofin í átján ár, eða fram til 1988. Næstu fimm árin önnuðust utan að komandi aðilar reksturinn og varð svo nokkurra ára hlé á honum.
Árið 1997 urðu vatnaskil. Þá keyptu hjónin Hulda Elisabeth Daníelsdóttir og Gunnlaugur Jónasson Gistihúsið. Gunnlaugur er sonur Margrétar Pétursdóttur, sonardóttur Jóns Bergssonar og Margrétar Pétursdóttur og þar með var hótelið á nýjan leik komið í hendur Egilsstaðaættarinnar.
Þau Hulda og Gunnlaugur gerðu á rúmlega áratug umfangsmiklar endurbætur á eldri hluta hótelsins. Þau lögðu alúð við umbæturnar og ríka áherslu á að halda hinum gömlu innviðum til haga, sem og virðulegum og umfaðmandi anda hússins.
Á fyrstu árum nýrrar aldar fóru hjónin að velta fyrir sér hvort stækka bæri hótelið og þá með hvaða hætti. Vandasamt getur verið að bæta nýju við gamalt þannig að samræmi haldist. Þau skoðuðu ýmsar hugmyndir og tillögur en í október árið 2013 var tekin skóflustunga að nýrri 1500 m2 byggingu sunnan við gamla húsið. Tekið var á móti gestum í nýrri gestamóttöku og gistiálmu hálfu ári síðar og verður það að teljast vel af sér vikið í svo stórri framkvæmd.
Auk móttökunnar í tveggja hæða byggingu voru byggðir tveir lyftuturnar og fjögurra hæða hús með 32 herbergjum. Fjögur þeirra eru lúxusherbergi og 6 eru hönnuð sérstaklega með þarfir fatlaðra í huga. Á neðri hæð móttökuhússins er heilsulindin Baðhúsið – Spa, með heitri smálaug, köldum potti, sánu og hvíldaraðstöðu með útsýn yfir Lagarfljót. Að auki eru í nýbyggingunni þvottahús, starfsmannaaðstaða, snyrtingar, geymslu- og skrifstofurými.
Sem dæmi um hvernig reynt var að tengja anda gamla Gistihússins við hina nýju byggingu og skapa flæði á milli þeirra, má nefna að rauðar bárujárnsplötur af þaki gamals gripahúss, sem varð að víkja fyrir byggingarframkvæmdunum, voru m.a. nýttar í innréttingar í gestamóttöku. Eldri hluta hótelsins hefur einnig verið umbreytt að hluta, enda renna nú fallega saman eldri byggingin frá árinu 1903 og sú yngri frá 2014 og mætast í rauninni gömul öld og ný. Tré sem þurfti að fjarlægja vegna byggingarframkvæmda nýttust á fallegan hátt í borðplötur í veitingarými, sem kollar innan húss og utan og í ýmislegt fleira innanstokks. Voru þetta viðir af reyni, öspum og birki. Gamlir sexrúðugluggar með einföldu gleri voru varðveittir þegar gluggar voru endurnýjaðir og nokkrir settir í heilu lagi upp á veggi veitingastaðar hótelsins. Í stað þess að horfa fyrr á tíð út um þá til samtímans, má nú að vissu leyti horfa inn um þá, til fortíðar hússins. Á veggjum hanga einnig gamlar ljósmyndir og málverk sem tengjast staðnum og fólkinu sem þarna hefur búið og starfað frá öndverðu. Þá ber að halda því til haga að á frumbýlingsárum sínum á hótelinu nýttu Hulda og Gunnlaugur gamlan stiga milli hæða, sem þurfti að víkja, sem efnivið í gestamóttöku og bar og lukkaðist það frábærlega, enda hagleikssmiðurinn Frosti Þorkelsson þar að verki, sem og víðar í húsinu. Öll hönnun innanstokks hefur verið í höndum húsfreyjunnar Huldu, frá því að þau Gunnlaugur hófu hótelreksturinn og er það samdóma álit þeirra sem til þekkja að þar gæti mikillar smekkvísi og jafnframt frumlegrar og virðingarverðrar nálgunar við gamla muni í nútímasamhengi. Gunnlaugur húsbóndi á síðan ófá handtökin við endurbætur eldri byggingarinnar sérstaklega og hefur verið vakinn og sofinn yfir rekstrinum líkt og fyrirrennarar hans áður.
Gistihúsið – Lake Hotel Egilsstadir er svipmikið hótel með öllum nútímaþægindum en um leið er það hlýlegt og umvefjandi. Gestir geta valið um velbúin og rómantísk antík-herbergi í eldri hlutanum eða nýtískuleg og stílhrein herbergi yngri byggingarinnar. Sameiginlegt rými er í móttökusal og er þar einnig glæsilegur bar með góðu úrvali drykkja. Veitingastaður hótelsins, Eldhúsið – Restaurant, hefur getið sér orðs og eru metnaður og alúð þar allsráðandi. Matargerðin er sprottin úr traustum hefðum, en hráefnin gjarnan sett í nýtt og framsækið samhengi. Hráefni er ætíð fyrsta flokks, að mestu íslenskt, gjarnan lífrænt og oftast fengið úr næsta nágrenni, enda er leitast við að nýta og kynna afurðir úr héraði. Austfirskar krásir og Beint frá býli eru þar í öndvegi.
Glæsileg heilsulind, Baðhúsið – Spa, er á jarðhæð hótelsins, með heitri smálaug, sánu, köldum potti og hvíldarsvæði innan og utan dyra. Einkar fallegt útsýni er yfir Lagarfljót frá heilsulindinni. Lögð er áhersla á rólegt, slakandi og endurnærandi umhverfi.
Gistihúsið – Lake Hotel Egilsstadir er innan vébanda félagsins Ferðaþjónustu bænda. Starfsfólk er um 40 manns; einvalalið sem hefur vellíðan og ánægju gestanna í fyrirrúmi.
Gunnlaugur og Hulda ásamt börnum sínum bjóða þér að njóta gestrisni og góðs aðbúnaðar í fögru umhverfi við Lagarfljót og vona að þú njótir dvalarinnar.
Egill Stefánsson (1896-1978) framkvæmdastjóri Egilssíld á Siglufirði
Egill Stefánsson 9. maí 1896 - 7. júlí 1978 Framkvæmdastjóri Egilssíld á Siglufirði. Verkstjóri á Siglufirði 1930. Síðast bús. á Siglufirði.
Egill Ragnarsson Ragnars (1902-1977) útgerðarmaður Siglufirði
Egill Ragnarsson Ragnars 11. maí 1902 - 27. mars 1977 Verzlunarmaður á Akureyri 1930. Útgerðarmaður á Siglufirði og Þórshöfn. Síðast bús. í Hafnarfirði.
Egill fæddist 25. febrúar 1907 að Reynistað í Staðarhreppi í Skagafirði. Egill dvelur með foreldrum sínum til 1928, þá kvænist hann Þórdísi, f. 1907, ættaðri af Reykjaströnd. Þau flytja þá að Geitagerði í Staðarhreppi og búa þar til 1939, flytja þá að Þröm á Langholti og búa þar í eitt ár. Árið 1940 flytja þau til Sauðárkróks, og búa þar til 1955, að þau flytja ásamt börnum sínum til Reyðarfjarðar og bjuggu þar upp frá því. Þau keyptu þar íbúðarhús er nefnist Þingholt og stendur við Holtagötu.
Egill Hallgrímsson (1955) prestur á Skagaströnd og Skálholti
Egill Hallgrímsson 11. júní 1955 prestur á Skagaströnd og Skálholti.
Egill Halldórsson (1819-1894) Reykjum
Egill Halldórsson 25. júní 1819 - 10. júní 1894 Var á Melstað, Melstaðarsókn, Hún. 1835. Var í Múla, Melstaðarsókn, Hún. 1845. Bóndi, smiður og skáld á Reykjum, Þingeyrasókn, Hún. 1870. Hreppstjóri þar.
Egill Halldór Arnórsson (1889-1951) ljósmyndari Akureyri
Egill Halldór Arnórsson 13. júní 1889 - 20. september 1951 Ljósmyndari á Laugavegi 3 b, Reykjavík 1930. Ljósmyndari í Reykjavík 1945. Nefndur Halldór Egill skv. Laxam.
Egill Gunnlaugsson (1936-2008) héraðsdýralæknir Hvammstanga
Egill Gunnlaugsson 29. september 1936 - 31. ágúst 2008 Héraðsdýralæknir í V-Hún. Sinnti fjölmörgum félags-, trúnaðar- og stjórnarstörfum.
Útför Egils fór fram frá Hvammstangakirkju 8.9.2008 og hófst athöfnin kl. 15.
Jarðsett var í Kirkjuhvammskirkjugarði
Egill Bjarnason (1915-1993) Dalvík
Egill Sofanías Bjarnason 20.2.1915 - 7.3.1993. Var á Lækjarbakka, Vallasókn, Eyj. 1930. Fornbókasali og ljóðaþýðandi í Reykjavík. Auglýsingastjóri í Reykjavík um 1960. Síðast bús. í Kópavogi.
fæddur í Holmås, Lindås, Hordaland, Norway. Jarðsettur í Bergen