Einvígi (Einvígið) í Vatnsdal

Identity area

Type of entity

Corporate body

Authorized form of name

Einvígi (Einvígið) í Vatnsdal

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        874 -

        History

        Eingið stendur við Einvígisfoss í Álku, Úlfsfoss er annar foss í henni

        Places

        Legal status

        Functions, occupations and activities

        Álka er stærsta hliðará Vatnsdalsár og á hún upptök sín í Álkulónum norðan við Stórasand. Fyrir neðan Einvígi fellur hún í þröngu og djúpu gili og er hún þar víða straumþung og grýtt. Neðarlega í gljúfrinu er ólaxgengur foss. Fyrir liggur mæling á þessum neðsta kafla árinnar, allt að Úlfshrygg, og telst hann vera 2.293 m. Verður vægi bakkalengdar á þessum kafla ákvarðað 0,2.

        Mandates/sources of authority

        Internal structures/genealogy

        Þegar leyfisveiting sú, sem afturkölluð var með hinni kærðu ákvörðun, fór fram lágu fyrir ýmsar upplýsingar. Ljóst var á þeim tíma að umdæmi Veiðifélags Vatnsdalsár næði a.m.k. að Úlfsfossi, sbr. ákvæði samþykktar félagsins sem staðfest var af Fiskistofu, sbr. 38. gr. laga um lax- og silungsveiði. Önnur gögn lágu fyrir á þessum tíma, s.s. búsvæðamat fyrir lax í Vatnsdalsá og arðskrá fyrir Veiðifélag Vatnsdalsár sem úrskurðað var um 29. ágúst 2011. Í þeim úrskurði kemur fram að Álka sé stærsta hliðará Vatnsdalsár og eigi upptök sín í Álkulónum norðan við Stórasand. Fyrir neðan Einvígi falli hún í þröngu og djúpu gili og sé hún þar víða straumþung og grýtt. Neðarlega í gljúfrinu sé ólaxgengur foss. Fyrir liggi mæling á þessum neðsta kafla árinnar, allt að Úlfshrygg, og teljist hann vera 2.293 m. Í nefndu búsvæðamati kemur fram að haustið 2007 hafi verið framkvæmt búsvæðamat á fiskgenga hluta Vatnsdalsár og hliðarám hennar, og var Álka þar á meðal. Kemur og fram að búsvæði fiskgengra hluta Vatnsdalsár, Álku o.fl. hliðaráa, hafi verið mæld og metin. Í nánari lýsingu um Álku segir að henni hafi verið skipt í tvö svæði, sé það efra í gili. Allangt sé fiskgengt upp í það. Nokkrum erfiðleikum hafi verið háð að meta svæðið í gilinu þar sem erfitt sé að komast að ánni nema á örfáum stöðum. Búsvæðamatinu fylgdi yfirlitskort af vatnasvæði Vatnsdalsár þar sem merkt eru númer þeirra svæða er metin voru og sést af því að svæði 2 í Álku nær að Einvígisfossi. Kemur og fram í umsögn Veiðimálastofnunar, dags. 30. janúar 2013, að búsvæði í Álku hafi verið metin alla leið upp í Einvígisfoss, en samkvæmt 34. gr. laga um lax- og silungsveiði skyldi slíkrar umsagnar leitað við veitingu leyfis fyrir fiskvegi. Með hliðsjón af því sem fram kom í greindum göngum var ótvírætt tilefni fyrir Fiskistofu að rannsaka málið betur hvað varðaði fiskgengd og hvert umdæmi Veiðifélags Vatnsdalsár næði. Hlýtur sú niðurstaða jafnframt stuðning í niðurstöðum Veiðimálastofnunar frá árinu 2013 þar sem fram kemur að tilvist laxaseiða í Álku ofan Úlfsfoss sýni að lax geti gengið upp fossinn og hrygnt ofan hans, þótt jafnframt komi fram að fossinn sé torgengur. Að teknu tilliti til framangreinds verður að telja að Fiskistofa hafi ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni skv. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og byggt ákvörðun sína um að veita leyfi til gerðar fiskvegar hinn 3. apríl 2013 á ófullnægjandi gögnum. Var ákvörðunin haldin ógildingarannmarka hvað þetta varðaði.

        General context

        Relationships area

        Related entity

        Vatnsdalur (um 880 -)

        Identifier of related entity

        HAH00412

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Vatnsdalur is the associate of Einvígi (Einvígið) í Vatnsdal

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH00907

        Institution identifier

        IS HAH

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ skráning 3.6.2020

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Maintenance notes