Einar Heimir Pétursson (1936-2017) Blönduósi

Original Digital object not accessible

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Einar Heimir Pétursson (1936-2017) Blönduósi

Parallel form(s) of name

  • Einar Heimir Pétursson (1936-2017) Blönduósi

  • Einar Pétursson

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      31.12.1936 - 11.3.2017

      History

      Einar Heimir Pétursson fæddist 31. desember 1936 á Blönduósi. Hann lést á líknardeild Landspítalans 11. mars 2017.
      Einar greindist fyrst með krabbamein 1997 og lést á líknardeild Landspítalans 11.3. 2017.
      Að ósk Einars fór kveðjuathöfn/bálför fram í kyrrþey frá Fossvogskapellu 16. mars 2017.

      Places

      Brautarholti Blönduósi 1940: Reykjavík.

      Legal status

      Einar tók landspróf á Sauðárkróki og stundaði jafnframt nám í Iðnskólanum þar.

      Functions, occupations and activities

      15 ára gamall byrjaði Einar að vinna á jarðýtu á sumrin hjá Búnaðarsambandi Austur-Húnvetninga. Hann var vélstjóri á bátum og togaranum Neptúnusi og síðar gerði hann út vöruflutningabíl. Einar stofnaði eigið fyrirtæki, Vélaleigu Einars H. Péturssonar, og vann lengst af sem jarðvegsverktaki hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur og síðar Orkuveitu Reykjavíkur, þar til hann hætti störfum vegna veikinda 2006. Einar átti í mörg ár flugvél og flugskýli á Reykjavíkurflugvelli.

      Mandates/sources of authority

      Hann keyrir vinur, áfram veginn,
      og vísar okkar leið.
      Á vegi hans nú hinum megin,
      hans leið er orðin greið.
      Hafsteinn Einarsson.

      Farinn nú á feðra vora fund,
      þú finnur þá í sælum veiðilöndum.
      Ég harma það að haf'ei aðra stund
      hald'um þig með báðum mínum höndum
      Guðmundur Einarsson.

      Internal structures/genealogy

      Foreldar hans voru hjónin Ingibjörg Steinvör Þórarinsdóttir, f. 15.11. 1916 á Flögu í Vatnsdal, A-Hún., d. 9.12. 2012 og Pétur Þorgrímur Einarsson, f. 18.1.1906 á Hólabæ, Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún., d. 16.9.1941.
      Systkini Einars eru:
      1) Þóra Sigurbjörg, f. 8.10. 1938, búsett í Bandaríkjunum,
      2) Ragnheiður Sólveig, f. 14.9. 1940, d. 27.2.1962. Húsfreyja á Æsustöðum. Var á Efri Mýrum, Engihlíðarhr., A-Hún. 1957.
      Hálfsystir Einars samfeðra með fyrri konu Valdís Emilía Valdemarsdóttir 3. október 1908 - 13. júlí 1939. Húsfreyja á Fremstagili í Langadal, A-Hún. þau skildu,
      1) Sigurlaug, f. 19.6. 1930, d. 17.7. 2016, Var í Fremstagili, Holtastaðasókn, A-Hún. 1930.
      Hálfsystkin Einars sammæðra voru
      1) Danielle Mary látin,
      2) Ingrid Theresa látin,
      3) Georg látinn,
      4) Clark Daniel
      5) Corinne Loretta.
      Stuttu eftir að faðir Einars lést var heimilið leyst upp og börnunum komið í fóstur. Einar var sendur í fóstur til Guðmundar Kristmundssonar Meldal, f. 23.3. 1890, d. 13.8. 1950, og eiginkonu hans, Róselíu Guðrúnar Sigurðardóttur, f. 2.7. 1890, d. 2.6. 1969. Einar ólst upp á heimili þeirra í Litla-Dal í Svínavatnshreppi til 15 ára aldurs. Móðir Einars fluttist búferlum til Bandaríkjanna, stofnaði heimili þar og giftist Daniel Bozen, f. 25.9. 1918, hann er látinn.

      Einar giftist 31.12.1959 Guðbjörgu Halldórsdóttur f. 16.1.1940, þau skildu. Börn þeirra eru:
      1) Pétur Heimir, f. 2.5.1960, kona hans er Nína Veronika Einarsson. Dóttir Nínu er Jacqueline Ninudóttir.
      2) Guðný Ingibjörg, f. 1.7.1963. Börn hennar með fyrrverandi eiginmanni sínum, Skúla Páli Skúlasyni f.13.4.1964, eru a) Svanhildur Skúladóttir, f. 1986 og b) Arnar Páll Skúlason, f. 1990. Unnusta Arnars Páls er Berglind Gunnarsdóttir.

      Síðari kona Einars er Guðrún Kristjana Hafsteinsdóttir, f. 29.4.1950.
      Synir þeirra eru tvíburarnir:
      1) Guðmundur f. 14.6.1988 Kona Guðmundar er Hildur Arna Gunnarsdóttir, f. 4.12.1988, sonur þeirra er Matthias Helgi Guðmundsson, f. 2016.
      2) Hafsteinn, f. 14.6.1988. Eiginmaður Hafsteins er Bragi Bergsson, f. 28.7.1978.

      Synir Guðrúnar frá fyrra hjónabandi með Sören Hammer Jensen, f. 1943, en þau skildu, eru:
      1) Peter Hammer, f. 19.9.1976, giftur Heidi Christine Lynge Hammer, f. 1976, dóttir Peters og Rikke Bjerregaard Pedersen er Marie Bjerregaard Hammer, f. 2009.
      2) Thomas H. Hammer Jensen, f. 25.3.1978, sambýliskona hans er Hildur Sif Kristborgardóttir, f. 5.10.1978, dóttir þeirra er Ylfa Kristborg Hammer Jensen, f. 2016. Einar gekk Peter og Thomasi í föðurstað.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Valdimar Kamillus Benónýsson (1884-1968) Ægissíðu (28.1.1884 - 29.10.1968)

      Identifier of related entity

      HAH02106

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      25.6.1929

      Description of relationship

      Valdís dóttir Valdimars var fyrri kona Péturs föður Einars

      Related entity

      Guðrún Kristmundsdóttir (1883-1947) Smyrlabergi (5.12.1883 - 28.12.1947)

      Identifier of related entity

      HAH04390

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Einar var fóstursonur Guðmundar bróður Guðrúnar

      Related entity

      Brautarholt Blönduósi (1917-)

      Identifier of related entity

      HAH00090

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      1940

      Description of relationship

      Related entity

      Guðmundur Kristmundsson (1890-1950) Melrakkadal (24.3.1890 - 13.8.1950)

      Identifier of related entity

      HAH04094

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðmundur Kristmundsson (1890-1950) Melrakkadal is the sibling of Einar Heimir Pétursson (1936-2017) Blönduósi

      Dates of relationship

      Description of relationship

      fósturbróðir

      Related entity

      Þóra Pétursdóttir (1938) Neðstabæ og USA (8.10.1938 -)

      Identifier of related entity

      HAH06826

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Þóra Pétursdóttir (1938) Neðstabæ og USA is the sibling of Einar Heimir Pétursson (1936-2017) Blönduósi

      Dates of relationship

      8.10.1938

      Description of relationship

      Related entity

      Bjarnhildur Sigurðardóttir (1955-2016) Skagaströnd (18.10.1955 - 22.4.2016)

      Identifier of related entity

      HAH02647

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Bjarnhildur Sigurðardóttir (1955-2016) Skagaströnd is the cousin of Einar Heimir Pétursson (1936-2017) Blönduósi

      Dates of relationship

      18.10.1955

      Description of relationship

      Einar var bróðir Ragnheiðar móður Bjarnhildar

      Related entity

      Baldur Þórarinsson (1921-1988) Sæbóli Blönduósi (3.10.1921 - 14.9.1988)

      Identifier of related entity

      HAH01103

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Baldur Þórarinsson (1921-1988) Sæbóli Blönduósi is the cousin of Einar Heimir Pétursson (1936-2017) Blönduósi

      Dates of relationship

      1.12.1936

      Description of relationship

      Einar var sonur Ingibjargar systur Baldurs

      Related entity

      Þorgerður Þórarinsdóttir (1918-1992) frá Gottorp (30.11.1918 - 30.8.1992)

      Identifier of related entity

      HAH02050

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Þorgerður Þórarinsdóttir (1918-1992) frá Gottorp is the cousin of Einar Heimir Pétursson (1936-2017) Blönduósi

      Dates of relationship

      31.12.1936

      Description of relationship

      Einar sonur Ingibjargar systur Þorgerðar.

      Related entity

      Bjarni Óskar Frímannsson (1897-1987) Efri-Mýrum (12.3.1897 - 10.11.1987)

      Identifier of related entity

      HAH02697

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Bjarni Óskar Frímannsson (1897-1987) Efri-Mýrum is the cousin of Einar Heimir Pétursson (1936-2017) Blönduósi

      Dates of relationship

      1936

      Description of relationship

      Einar Heimir var sonur Péturs Þorgríms (1906-1941) sonar Guðnýar Pálínu (1872-1964) systur Bjarna

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH02196

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 25.8.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes