Ingibjörg Sigríður Halldórsdóttir (1863-1935) Heggstöðum
- HAH06541
- Person
- 7.4.1863 - 4.3.1935
Var í Haugshúsum, Garðasókn, Gull. 1870. Húsfreyja á Heggstöðum.
Ingibjörg Sigríður Halldórsdóttir (1863-1935) Heggstöðum
Var í Haugshúsum, Garðasókn, Gull. 1870. Húsfreyja á Heggstöðum.
Ingibjörg Sigfúsdóttir (1909-2002) Refsteinsstöðum frá Forsæludal
Ingibjörg Sigfúsdóttir fæddist í Forsæludal í A-Hún. 24. janúar 1909. Hún lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi 10. janúar síðastliðinn. Ingibjörg verður jarðsungin frá Blönduóskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14.
Sigfús í Forsæludal var mikill sögumaður og þekktur vísnasafnari en Sigríður eiginkona hans bar í blóði sínu skáldaæð frá sjálfum Bólu-Hjálmari. Systkinin í Forsæludal uxu upp frá þessum grunni. Ingibjörg var bráðgjör og tápmikil. Á unglingsárum hennar átti Sveinn frá Elivogum leið um Vatnsdalinn og orti 26 vísur, aðallega um bændurna. Fyrstu þrjár vísurnar í þeim flokki sem hann gerði er lofgerð um dalinn sjálfan en fjórða vísan og fjórar þær næstu eru um Ingibjörgu. Svo mikið fannst honum til um þessa vatnsdælsku ungmeyju. Fyrsta vísan er þannig:
Stofni vænum vaxin frá
vermda í blænum fjallsins
fjólu græna fann ég á
fremsta bænum dalsins.
Og síðasta vísan er þannig:
Glæsimeyjan gáfna fjörg
glúpnar ei við þrætur
eitthvað segir Ingibjörg
áður en beygjast lætur.
Ingibjörg Samúelsdóttir (1852) Kanada, frá Brekkulæk V-Hún
Ingibjörg Samúelsdóttir Walan 16.6.1852. Var á Brekkulæk, Staðarbakkasókn, Hún. 1860. Var í Grafarkoti, Melstaðarsókn, Hún. 1870. Vinnukona á Söndum, Melstaðarsókn, Hún. 1880. Fór til Vesturheims 1887, óvíst hvaðan. M.: Walan, enskur að uppruna. [sra George Walen frá Hanaka?]
Ingibjörg Rafnar (1894-1971) Kristnesi, frá Steinnesi
Ingibjörg Bjarnadóttir Rafnar 30. janúar 1894 - 6. júlí 1971 Var í Steinnesi, Þingeyrasókn, Hún. 1901. Húsfreyja á Heilsuhælinu í Kristnesi, Grundarsókn, Eyj. 1930. Húsfreyja á Kristneshæli í Eyjafirði og síðar á Akureyri.
Ingibjörg Pétursdóttir Blöndal (1896-1977) Hindisvík
Ingibjörg Þórdís Pétursdóttir Blöndal 14. okt. 1896 - 28. feb. 1977. Var í Tungu, Þverárhr., V-Hún. 1957 Húsfreyja þar 1920. Lengi ráðskona í Hindisvík á Vatnsnesi, V-Hún. Síðast bús. í Þverárhreppi. Ógift og barnlaus.
Ingibjörg Pétursdóttir (1921-2013) Pétursborg
Ingibjörg Kristín Pétursdóttir fæddist á Skagaströnd 1. september 1921. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Eir 29. desember 2013. Ingibjörg ólst upp á Torfalæk hjá hjónunum Jóni Guðmundssyni, móðurbróður sínum, og Ingibjörgu Björnsdóttur konu hans. Hún stundaði nám við Kvennaskólann á Blönduósi veturinn 1939-40. Var ráðskona á Sjúkrahúsinu á Blönduósi 1947-48. Síðan heimavinnandi húsmóðir um skeið en starfaði lengst af við umönnun og fleira á Héraðshælinu á Blönduósi. Ingibjörg hafði yndi af alls kyns handavinnu og föndri, einnig hafði hún mikla ánægju af blómarækt og garðyrkju. Þau Jósafat bjuggu á Blönduósi mestallan sinn búskap.
Útför Ingibjargar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 9. janúar 2014, og hefst athöfnin kl. 13
Ingibjörg Pétursdóttir (1865-1959) Tungu
Ingibjörg Pétursdóttir 18. janúar 1865 - 3. september 1959. Húsfreyja á Ysta-Gili í Langadal, A-Hún., síðar verkamaður á Blönduósi. Var á Veðramótum, Blönduóshr., A-Hún. 1957.
Ingibjörg Pálsdóttir Kolka (1926-2015) frá Blönduósi, Hafnarfirði
Ingibjörg Pálsdóttir Kolka fæddist 1. febrúar 1926 að Sólvöllum í Vestmannaeyjum. Hún andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði 12. mars 2015. Ingibjörg flutti árið 1934 til Blönduóss og ólst þar upp. Hún gekk í Barnaskólann á Blönduósi og stundaði gagnfræðanám í Steinnesi. Lauk námi frá Kvennaskólanum á Blönduósi með afar lofsamlegum vitnisburði. Árið 1946 hélt Ingibjörg til Reykjavíkur til starfa á Ljósmyndastofu Lofts Guðmundssonar, móðurbróður síns. Hún vann þar sérstaklega að litun ljósmynda og redúseringu. Á þeim árum kynntist hún Bergsteini Sigurðssyni, trésmið frá Hjallanesi í Landsveit, f. 11.5. 1919, d. 11.11. 2003. Eignuðust þau eina dóttur. Árið 1947 fluttist Ingibjörg til Blönduóss og vann m.a. í apótekinu á staðnum.
Stúlkan með gullnu lokkana giftist þann 3. nóvember 1951 Zophoníasi Ásgeirssyni frá Blönduósi, vélstjóra, f. 1. júní 1924, d. 27. sept. 2013, en þau höfðu þekkst frá því í æsku. Foreldrar hans voru Hólmfríður Zophoníasdóttir húsmóðir og Ásgeir Þorvaldsson múrarameistari. Síðan fluttust þau til Reykjavíkur þar sem Zophonías stundaði sjómennsku en Ingibjörg vann sem húsmóðir og tók heimaverkefni í ljósmyndun.
Árið 1959 fluttu þau í Hafnarfjörð og frá 1966 bjuggu þau í Smárahvammi 10 nær óslitið uns þau fóru að Hrafnistu 2012. Ingibjörg var listhneigð og fær hannyrðakona, eftir hana liggja mörg fögur útsaumsverk. Hún var annáluð blómakona og mikill dýravinur. Ingibjörg var félagslynd, gestrisin og fróð. Hún naut þess að segja frá á sinn kjarnyrta hátt. Fátt kom henni á óvart.
Útför Ingibjargar fór fram frá Hafnarfjarðarkirkju 23. mars 2015.
Ingibjörg Pálsdóttir (1928-2004)
Ingibjörg Pálsdóttir fæddist á Blönduósi 7. ágúst 1928. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 24. febrúar síðastliðinn. Ingibjörg ólst upp á Blönduósi og bjó þar nær allan sinn aldur. Hún vann margvísleg störf um ævina bæði á Blönduósi og í sveitunum í kring. Hún var Blöndósingur í húð og hár, fædd þar og uppalin, og bjó þar nær allan sinn aldur. Móðurforeldrar Ingibjargar, Ólafur Ólafsson og Ingibjörg Lárusdóttir, fluttu til Blönduóss rétt fyrir aldamótin 1900, og þar fæddist móðir hennar Jóhanna. Faðir Ingibjargar var Páll Bjarnason ættaður frá Stokkseyri. Páll var atvinnubílstjóri, og Budda, eins og Ingibjörg var kölluð, sagði mér frá því með stolti að Páll faðir hennar hefði komið með fyrsta bílinn á Blönduós árið 1923. Ingibjörg átti einn bróður, Bjarna, sem er fæddur 1927. Fjölskyldan bjó alla tíð í Ólafshúsi á Blönduósi. Ingibjörg og Bjarni sitt á hvorri hæðinni eftir lát foreldra sinna.
Strax á unglingsaldri fór Ingibjörg að vinna á sveitabæjum í nágrenni Blönduóss.
Rúmlega tvítug fór Ingibjörg til Eyjafjarðar í Tóvinnuskóla. Þar nam hún prjóna- og saumaskap og meðferð ullar einn vetur. Budda var alla tíð mikil prjónakona. Hún starfaði á prjóna- og saumastofu um tíma, en alla tíð prjónaði hún mikið fyrir vini sína og sveitunga. Einkenni á prjóni Buddu var hvað flíkurnar voru hlýjar, og fræg er lambhúshetta hennar, sem margir Blönduósingar eiga eflaust enn í dag. Annars vann Ingibjörg fjölmörg störf á Blönduósi, eins og í bakaríi, á sjúkrahúsinu og a.m.k. tuttugu og fimm haust vann hún í Sláturhúsi Sölufélagsins. Í Sláturhúsinu vann hún undir verkstjórn Gísla Garðarssonar, sem hún mat mikils. Ingibjörg hafði mjög gaman af trjárækt og garðrækt. Hún byggði sér skjól á túni sínu við Blöndu, og skírði Geitaból. Þar dvaldi Budda sumrin löng þegar hún var hætt að vinna. Þar plantaði hún trjám, ræktaði kartöflur og grænmeti, og leit eftir folaldsmerum á vorin. Í Geitabóli leið henni vel, þar var Budda í sínu ríki. Ingibjörg var praktísk og mjög nýtin eins og hennar kynslóð. Frægt er farartæki hennar, barnavagninn, sem hún notaði til ýmissa flutninga. Budda sagði oft að barnavagn rúmaði margt fleira en börn.
Ingibjörg var mikill dýravinur. Hún hafði kindur í mörg ár heima við Ólafshús, og kunnugir hafa sagt mér að hún hafi verið einstaklega natin við féð.
Ingibjörg hafði mjög gaman af því að spjalla við fólk. Hún gat verið stríðin við þá sem hún taldi hafa efni á að taka stríðni, og oft var stutt í háan og hvellan hlátur hennar. En Buddu var einnig mjög umhugað um þá sem minna máttu sín. Hún gat átt það til að færa fólki eða stofnunum eitthvað sem hún taldi vanta.
Ingibjörg var litríkur persónuleiki, sem ekki fór troðnar slóðir. Það verður sjónarsviptir að henni úr mannlífinu á Blönduósi.
Útför Ingibjargar verður gerð frá Blönduóskirkju í dag 7. mars 2004 og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Ingibjörg Pálsdóttir (1863-1947) Þorfinnsstöðum Vesturhópshólasókn
Foreldrar hennar: Páll Snæbjarnarson 29.10. 1820- 12.01.1909 frá Gilstöðum í Vatnsdal og kona hans 14.09.1851 Ingiríður Ólafsdóttir 11.11. 1827- 23.01.1870
Systkin hennar:
Benedikt f. 30. júlí 1852
Guðmundur f. 10. september 1853
Sigurbjörg f. 8. janúar 1856
Solveig f. 26. febrúar 1858
Kolfinna f. 15. apríl 1859
Jórunn f. 29. desember 1861
Guðrún f. 21. desember 1865
Ingibjörg Pálsdóttir (1861-1912) Reykjum A-Hvs
Húsfreyja á Reykjum, Torfalækjarhr., A-Hún. Var á Akri, Þingeyrasókn, Hún. 1870. Húsfreyja á Reykjum, Þingeyrasókn, Hún. 1901.
Ingibjörg Ólafsdóttir (1886-1976) Skeggstöðum í Svartárdal
Ingibjörg Dagbjört Ólafsdóttir 8. sept. 1886 - 3. apríl 1976. Húsfreyja á Skeggstöðum, Bergstaðasókn, A-Hún. 1930. Var á Skeggsstöðum, Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. 1957. Tóvinnukona. Ógift og barnlaus.
Ingibjörg Ólafsdóttir (1871-1957) Þverárdal
Ingibjörg Ólafsdóttir 6. apríl 1871 - 26. ágúst 1957. Fæðingar Ingibjargar finnst ekki getið í kirkjubókum en við fermingu í Glaumbæjarsókn er hún sögð fædd 7.4.1871. Fór til Vesturheims 1887 frá Vatnsskarði í Seyluhr., Skag. Hún sneri aftur til Íslands og var lengi ráðskona hjá Brynjólfi Bjarnasyni, bónda í Þverárdal.
Ingibjörg Markúsdóttir (1829-1916) Ási Vatnsdal
Húsfreyja í Ási í Vatnsdal
Ingibjörg Margrét Magnúsdóttir (1848-1932) Flögu
Ingibjörg Margrét Daníelsdóttir (1931-1989)
Ingibjörg M. Daníelsdóttir, Þórukoti Fædd 23. mars 1931 Dáin 26. ágúst 1989. Ingibjörg er fædd að Valdarási í Víðidal 23. mars 1931. Árið 1962 flutti Ingibjörg ásamt börnum sínum heim í Þórukot þarsem hún gerist ráðskona hjá Pétri bróður sínum.
Ingibjörg Magnúsdóttir (1849-1946) Klömbrum og Blönduósi
Húsfreyja í Reykjavík 1910. Var í Borgarnesi 1930. Húsfreyja Friðfinnshúsi og Læknabústaðnum, frá Grenjaðarstöðum
Ingibjörg Lovísa Albertsdóttir (1895-1955) Páfastöðum
Var á Páfastöðum, Glaumbæjarsókn, Skag. 1930.
Ingibjörg Lárusdóttir (1930-2010) frá Vindhæli
Guðrún Ingibjörg Lárusdóttir fæddist á Vindhæli á Skagaströnd 12. júlí 1930. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi 20. september 2010.
Ingibjörg ólst upp á Vindhæli á Skagaströnd til 5 ára aldurs en þá flutti fjölskyldan í þorpið á Skagaströnd. Ingibjörg bjó ásamt fjölskyldu sinni á Jökuldal í 12 ár, fyrst á Hauksstöðum og síðan á Gilsá. Árið 1963 flutti fjölskyldan til Skagastrandar, en þar bjó Ingibjörg til ársins 1996 þegar hún flutti í íbúðir aldraðra í Nestúni á Hvammstanga.
Ingibjörg verður jarðsungin frá Hvammstangakirkju í dag, 1. október 2010, klukkan 15.
Ingibjörg Lárusdóttir (1883-1977) Fjósum
Ingibjörg Lárusdóttir 19.9.1883 – 30.6.1977. Húsfreyja og ráðskona á Botnastöðum, Bergstaðasókn, A-Hún. 1930. Húsfreyja á Fjósum og Botnastöðum í Svartárdal, A-Hún., síðar á Siglufirði og Akranesi. Ekkja í Reykjavík 1945. Síðast bús. á Akranesi. Fædd 16.9.1883 skv. kb.
Ingibjörg Lárusdóttir (1860-1949) Ólafshúsi
Ingibjörg Lárusdóttir 3. des. 1860 - 19. júní 1949. Rithöfundur, síðar kaupmaður, Ólafshúsi á Blönduósi 1889-1949.
Ingibjörg Kristmundsdóttir (1884-1952) frá Þverá í Núpsdalstungu
Ingibjörg Kristmundsdóttir 19.3.1884 - 1.6.1952. Var á Melstað, Melstaðarsókn, Hún. 1890. Staðarbakka 1910, lausakona Aðalbóli 1920, Ráðskona bróður síns í Hafnarfirði 1930. Ógift barnlaus
Ingibjörg Kristmundsdóttir (1861-1937) Kötlustöðum
Ingibjörg Kristmundsdóttir 31. des. 1861 - 22. feb. 1937. Vinnukona á Breiðabólstað í Vatnsdal 1893. Húsfreyja á Kötlustöðum. Húsfreyja á Marðarnúpi, Undirfellssókn, A-Hún. 1930.
Ingibjörg Kristjánsdóttir (1942) frá Hæli
Ingibjörg Kristjánsdóttir, verkakona og húsmóðir á Blönduósi, f. 26. júní 1942,
Ingibjörg Kristjánsdóttir (1926-2014) Brúsastöðum
Ingibjörg Margrét Kristjánsdóttir, Donna, fæddist á Brúsastöðum í Vatnsdal, A-Hún. 4. október 1926 og ólst þar upp. Ingibjörg og Guðmundur bjuggu á Ytri-Kárastöðum, Vatnsnesi, V-Hún. á móti fósturforeldrum Guðmundar
Eftir 18 ára búskap flutti fjölskyldan suður, bjó um skeið á Akranesi en settist svo að í Mosfellssveit. Þar starfaði Ingibjörg við umönnunarstörf á Reykjalundi og Guðmundur var ullarmatsmaður á Álafossi þar til hann lést langt um aldur fram 1979. Húsfreyja á Ytri-Kárastöðum á Vatnsnesi, síðar bús. í Mosfellsbæ þar sem hún starfaði við umönnun, síðast verkakona í Reykjavík.
Árið 1994 kynntist hún sambýlismanni sínum, Árna St. Hermannssyni, f. 28.7. 1929, d. 25.4. 2013. Árni var ekkjumaður, hann átti átta börn og fjölmarga afkomendur.
Hún lést á hjúkrunarheimilinu Eir 18. janúar 2014. Jarðarför Ingibjargar fór fram í kyrrþey 29.1. 2014 að hennar eigin ósk að Lágafelli, Mosfellsbæ.
Ingibjörg Kristjánsdóttir (1922-2010) Sauðárkróki
Ingibjörg Kristjánsdóttir húsmóðir, Bárustíg 6, Sauðárkróki, fæddist 11. september 1922. Ingibjörg var í foreldrahúsum til fjögurra ára aldurs en fór þá í fóstur til skyldfólks, þar sem hún ólst upp. Húsfreyja á Sauðárkróki. Gegndi ýmsum félagsstörfum. Fósturforeldrar: Sigurður Þórðarson, f. 19.7.1888 - 1947 kaupfélagsstjóri frá Nautabúi í Skagafirði og Ingibjörg Sigurlaug Sigfúsdótir, f. 23.9.1890. Kvsk á Blönduósi 1943-1944.
Þau bjuggu á Sauðárkróki alla sína hjúskapartíð. Hún vann við verslunarstörf
Hún lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki 2. janúar 2010. Útför Ingibjargar fór fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 9. janúar 2010 og hófst athöfnin kl. 14.
Ingibjörg Kristjana Guðmundsdóttir (1921-2010) Naustavík
Ingibjörg Kristjana Guðmundsdóttir fæddist í Naustvík, Árneshreppi, Strandasýslu 22. júlí 1921. Var í Naustvík, Árnesssókn, Strand. 1930. Starfaði lengst af á veitingahúsum í Reykjavík. Kvsk á Blönduósi 1943-1944.
Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 14. nóvember 2010. Útför Ingibjargar fór fram frá Bústaðakirkju 22. nóvember 2010, og hófst athöfnin kl. 15.
Ingibjörg Kristín Lárusdóttir (1923-1989)
Ingibjörg fæddist 17. febrúar 1923, dóttir hjónanna Sigurbjargar Sigurvaldadóttur og Lárusar F. Björnssonar kaupmanns á Fjölnisvegi 20. Ólst hún upp ásamt þremur systrum sínum, þeim Sigurrósu og Valdísi, sem báðar eru búsettar í Reykjavík, og Birnu, sem síðar fluttist til Bandaríkjanna ásamt fjölskyldu sinni og hefur verið bú sett þar í mörg ár. Sigurbjörg og Lárus bjuggu fyrstu árin á heimaslóðum, fyrir norðan, en fluttust þá til Reykjavíkur og eftir fá ár byggðu þau myndarlegt hús á Fjölnisvegi 20 og bjuggu þar síðan meðan heilsa entist og þar ólust dæturnar upp.
Bergur var ekki heilsusterkur maður og átti á síðustu árum sínum við alvarleg veikindi að stríða. Þá komu ekki hvað síst í ljós eðlisþættir Ingu, sem mestu varða er á reynir, kærleikur og fórnfýsi. Þótt sjálf væri hún ekki hraust, átti hún þrek til að létta manni sínum erfiðar veikindastundir og hlú að honum svo vel, sem framast mátti verða, uns yfir lauk.
Snemma á búskaparárunum byggðu þau hjónin sér sumarbústað og fékk Bergur til þess land í heimahögum sínum. Hann var hagleiksmaður og notaði frístundirnar vel. Og áður en langir tímar liðu var risið upp snoturt hús með vaxandi trjám í kring. Þarna átti fjölskyldan ótal ánægjustundir, í friði og ró, með fagurt útsýni fyrir augum.
Ingibjörg Kolka Bergsteinsdóttir (1947) Hólum, Blönduósi og Reykjavík
Ingibjörg Sólveig Kolka Bergsteinsdóttir fædd 15. október 1947 þroskaþjálfi.
Ingibjörg Karlsdóttir (1919-2014) Blönduósi
Ingibjörg Karlsdóttir fæddist á Gunnfríðarstöðum, Svínavatnshreppi, A-Hún.,16. apríl 1919. Hún lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi 3. september 2014.
Ingibjörg ólst upp frá þriggja ára aldri í Vatnahverfi, Engihlíðarhr., A-Hún., hjá systkinunum Ingibjörgu, Guðbjörgu og Þorsteini Eggertsbörnum. Ingibjörg og Guðmundur byrjuðu sinn búskap í Vatnahverfi, síðan bjuggu þau í Neðri-Lækjardal uns þau fluttu á Blönduós 1964.
Útför hennar fer fram frá Blönduóskirkju í dag, 13. september, kl. 14.
Ingibjörg Júlíusdóttir (1919-2012) frá Hólskoti í Vatnsdal
Ingibjörg Júlíusdóttir fæddist í Hólskoti í Vatnsdal í A.-Hún. 13. ágúst 1919. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum 23. febrúar síðastliðinn. Ingibjörg fór tæplega þriggja ára í fóstur til móðursystur sinnar, Þórunnar Björnsdóttur f. 1891, d. 1979 og eiginmanns hennar Björns Þorsteinssonar f. 1877, d. 1953 að Miðhópi í Vatnsdal. Ingibjörg stundaði nám við Kvennaskólann 1934-7 og fór í læri í kjólasaum hjá Guðlaugu Jónsdóttur, sem rak Saumastofu Guðlaugar að Lækjargötu 4. Starfaði hún lengst af við kjólasaum á heimili sínu.
Útför Ingibjargar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 2. mars 2012, og hefst athöfnin kl. 13.
Ingibjörg Jósefsdóttir (1882-1955) Grund og Einarsnesi
Ingibjörg Jósefsdóttir 31. des. 1882 - 10. okt. 1955. Hjú á Svínavatni, Svínavatnssókn, Hún. 1901. Húskona í Kringlu, Blönduósssókn, A-Hún. 1930. Húskona á Grund í Svínadal, síðast bús. á Blönduósi.
Ingibjörg Jónsdóttir Kolka (1916-2005) Hemmertshúsi
Ingibjörg Jónsdóttir Kolka fæddist í Reykjavík 3. nóvember 1916. Hún andaðist á Hjúkrunarheimilinu Skjóli 14. nóvember síðastliðinn. Ingibjörg og Guðmundur hófu búskap á Blönduósi, en bjuggu lengst af í Reykjavík. Hún hafði unnið verslunar- og skrifstofustörf fyrir hjónaband og eftir andlát eiginmanns síns sneri hún aftur til starfa hjá Sjóvátryggingafélagi Íslands, þar sem hún starfaði þar til hún fór á eftirlaun.
Útför Ingibjargar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.
Ingibjörg Jónsdóttir (1947) Stóru-Ökrum Skagafirði
Ingibjörg Bjarklund Jónsdóttir 13.9.1947 Stóru-Ökrum Skagafirði. Reykjavík. Kvsk á Blönduósi 1966-1967.
Ingibjörg Jónsdóttir (1928-2022) Blönduósi
Ingibjörg Þórkatla Jónsdóttir 25. september 1928, Imma. Var á Sölvabakka, Holtastaðasókn, A-Hún. 1930. Var í Húsi Einars Guðlaugssonar, Blönduóshr., A-Hún. 1957.
Ingibjörg Jónsdóttir (1922-2006)
Ingibjörg Jónsdóttir ljósmóðir fæddist á Gemlufalli í Dýrafirði hinn 31. desember 1922. Hún andaðist á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund hinn 18. nóvember síðastliðinn.
Ingibjörg Jónsdóttir (1914-2009) frá Tungukoti
Ingibjörg Jónsdóttir var fædd 31. mars 1914 í Tungukoti í Kirkjuhvammshreppi í V-Húnavatnssýslu. Hún lést á Dvalarheimilinu Grund 5. apríl 2009. Ingibjörg ólst upp hjá foreldrum sínum í Tungukoti og síðar að Garðsvík á Vatnsnesi. Síðan fluttist hún að Svalbarði og þaðan til Reykjavíkur 1949.
Ingibjörg var við nám við Húsmæðraskólann á Blönduósi veturinn 1935-1936. Einnig var hún nemandi við Reykjaskóla í Hrútafirði og síðan starfsmaður skólans í einn vetur.
Ingibjörg vann fulla vinnu ásamt húsmóðurstörfum og barnauppeldi. Hún starfaði m.a. í áratugi á næturvöktum á Kleppsspítala.
Barnabörn Ingibjargar eru 14, langömmubörnin 22 og langalangömmubarnið er eitt
Útför Ingibjargar fer fram frá Langholtskirkju í dag og hefst athöfnin kl 15.
Ingibjörg Jónsdóttir (1891-1974) Reynhólum
freyja á Þverá, Efri-Núpssókn, V-Hún. 1930. Var á Reynhólum, Ytri-Torfustaðahr., V-Hún. 1957. Húsfreyja á Reynihólum. Síðast bús. í Ytri-Torfustaðahreppi.
Ingibjörg Jónsdóttir (1863-1964) Blöndudalshólum
Ingibjörg Solveig Jónsdóttir 15. ágúst 1863 - 3. júní 1944. Húsfreyja á Blöndudalshólum, Holtastaðasókn, A-Hún. 1930. Húsfreyja í Mjóadal og Finnstungu.
Ingibjörg Jónsdóttir (1848-1929) Hvallátrum
Ingibjörg Jónsdóttir 11. sept. 1848 - 2. nóv. 1929. Húsfreyja í Hvallátrum. Var í Reykjavík 1910.
Ingibjörg Jónsdóttir (1831-1894) Umsvölum
Var á Orrastöðum, Þingeyrarsókn, Hún. 1845. Húsfreyja í Umsvölum, Þingeyrarsókn, Hún. 1860. Húsfreyja á Leysingjastöðum. Húsfreyja í Stóruborg, Breiðabólstaðarsókn, Hún. 1870. Húsfreyja á Leysingjastöðum, Þingeyrasókn, Hún. 1880. Húsfreyja á Hæl, Þingeyrasókn, Hún. 1890.
Ingibjörg Jónína Níelsdóttir (1918-2013) Marðarnúpi
Ingibjörg Jónína Níelsdóttir fæddist að Kóngsbakka í Helgafellssveit 23. febrúar 1918. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum 11. júní 2013. Ingibjörg ólst upp hjá ömmu sinni, Ingibjörgu Kristmundsdóttur og manni hennar Jóni Baldvinssyni, og bjó með þeim og Jennýju móðursystur sinni víða í Vatnsdalnum, fyrst að Snæringsstöðum, síðan Breiðabólsstað, Marðanúpi og Sveinsstöðum og loks að Hvammi. Hún stundaði nám í Kvennaskólanum á Blönduósi í hálfan annan vetur, 1937-1938, en fluttist til Reykjavíkur í stríðsbyrjun og gerðist vinnukona hjá betri borgurum bæjarins. Hún vann síðar við saumaskap, m.a. hjá Belgjagerðinni, og við ræstingar í Vogaskóla í áraraðir. Húsmóðurstarfið og uppeldi fimm barna var þó hennar aðalstarf í áratugi. Heimili hennar og Gísla í Ferjuvogi 15 stóð öllum opið, jafnt vinum þeirra og barnanna sem ættingjum að austan og norðan.
Útför Ingibjargar verður gerð frá Grensáskirkju í dag, 19. júní 2013, og hefst athöfnin kl. 13.
Ingibjörg Jónasdóttir (1950) fræðslustjóri Reykjavík
Ingibjörg Jónasdóttir 12. nóv. 1950. Reykjavík,
Ingibjörg Jónasdóttir (1899-1978) Breiðabólsstað
Ingibjörg Jónasdóttir 31. október 1899 - 4. apríl 1978. Húsfreyja á Breiðabólsstað, Þingeyrasókn, A-Hún. 1930. Var á Breiðabólsstað, Sveinsstaðahr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Sveinsstaðahreppi.
Ingibjörg Jóna Jónsdóttir (1923-2000) kjólameistari frá Bolungarvík
Ingibjörg Jóna Jónsdóttir, kjólameistari, fæddist í Bolungarvík 14. apríl 1923. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítalans - háskólasjúkrahúss í Fossvogi 29. desember síðastliðinn.
Ingibjörg stundaði barna- og unglingaskólanám í Bolungarvík. Hún var í Húsmæðraskólanum á Laugalandi í Eyjafirði veturinn 1942 til 1943 og lauk síðar iðnnámi í Reykjavík. Hún tók sveinspróf í kjólasaum og varð meistari í þeirri grein. Síðar sigldi hún til Svíþjóðar og stundaði þar nám í handavinnukennslu. Þegar heim kom tók hún að sér að kenna saumaskap og handavinnu á námskeiðum víða um land, aðallega þó á Vestfjörðum. Þá varð hún handavinnukennari Húsmæðraskólans á Blönduósi í fjóra vetur árin 1946 til 1950 og munu hinir fjölmörgu nemendur hennar minnast hennar með þökk og virðingu. Hún var áhugasamur kennari, iðin, dugleg og drífandi.
Eftir að Ingibjörg Jóna flutti suður og hætti kennslu setti hún upp saumastofu í Reykjavík. Síðar sameinuðu þau stofur sínar, hún og Guðmundur Ísfjörð Bjarnason klæðskeri, og fengu þau brátt húsnæði í Kirkjuhvoli bak við Dómkirkjuna í Reykjavík. Sameiginlega stofnuðu þau svo fataverslunina Pandóru og ráku hana í Kirkjuhvoli þar til 1985 er þau seldu, höfðu þá verslað í yfir 30 ár. Guðmundur Kr. sem varð eiginmaður Ingibjargar, eins og fram kemur hér á eftir, átti ásamt öðrum heildverslunina J. Ásgeirsson og Jónsson og flutti það fyrirtæki m.a. inn fatnað til sölu í Pandóru.
Útför Ingibjargar fer fram frá Háteigskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30.
Ingibjörg Jóna Ísaksdóttir Briem (1889-1979)
Húsfreyja á Melstað, Melstaðarsókn, V-Hún. 1930. Síðast bús. í Reykjavík. Á Melstað var og miðstöð félagslífs sveitarinnar. Þar var samkomustaður, unz Ungmennafélagið Grettir reisti samkomuhús á Laugarbakka, þar sem nú er félagsheimilið Ásbyrgi. Prestshjónin
studdu með ráðum og dáð alla félagsstarfsemi í héraðinu, einkum þó söng- og leikstarf. Prestsfrúin sá um fjölmargar erfidrykkjur. Eitt sinn fór fram á heimilinu búnaðarnámskeið, sem stóð í viku.
Allan þennan tíma fengu ráðunautar og kunningjar úr sýslunni margvíslega fyrirgreiðslu og var þó engum öðrum gestum vísað frá. Oft var barnaslbóli staðsettur á Melstað. Voru þar stundum um 20 börn í heimili. Melstaður er og var í þjóðbraut. Þangað komu gestir víða að úr öllum stéttum og af ýmsu þjóðerni.
Ingibjörg Jóhannsdóttir (1947-2016) Sólheimum, Sæmundarhlíð
Ingibjörg M. Jóhannsdóttir fæddist 10. apríl 1947 í Sólheimum í Sæmundarhlíð. Inga ólst upp í Sólheimum við hin ýmsu sveitastörf sem tíðkuðust á þessum árum. Inga og Siggi bjuggu í Reykjavík þar til þau fluttu í Holtsmúla í Skagafirði vorið 2009.
Inga lést 7. júlí 2016 í Reykjavík. Útför Ingu fór fram frá Sauðárkrókskirkju 21. júlí 2016, kl. 14.
Ingibjörg Jóhannsdóttir (1930-2001) Bæ í Hrútafirði
Ingibjörg Jóhannsdóttir (1888-1947) Hamarsgerði
Ingibjörg Jóhannsdóttir 1. des. 1888 - 31. maí 1947. Húsfreyja í Hamarsgerði á Fremribyggð og víðar í Skagafirði. Húskona á Lýtingsstöðum, Mælifellssókn, Skag. 1930.
Ingibjörg Jóhannesdóttir (1875-1957) Efra-Núpi
Ráðskona á Efra-Núpi, Efri-Núpssókn, V-Hún. 1930. Var á Útibleiksstöðum, Melssókn í Miðfirði, Hún. 1901.
Ingibjörg Jófríður Kristjánsdóttir (1873-1943) Baldursheimi Blönduósi
Var á Syðrikárastöðum, Kirkjuhvammssókn, Hún. 1880. Húsfreyja á Sólheimum í Svínavatnshr., A-Hún. Húsfreyja í Baldursheimi, Höskuldsstaðasókn, A-Hún. 1930.
Ingibjörg Jakobsdóttir (1952) hjúkrunafræðingur Hvammstanga
Var í Miðtúni, Hvammstangahr., V-Hún. 1957.
Ingibjörg Jakobsdóttir (1924-1997)
Ingibjörg Jakobsdóttir fæddist 13. ágúst 1924. Hún lést á Landakotsspítala 6. apríl síðastliðinn. Var á Rauðhólum, Hofssókn, N-Múl. 1930. Síðast bús. í Reykjavík.
Útför Ingibjargar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Ingibjörg Jakobsdóttir (1883-1955) Rvk frá Illugastöðum á Vatnsnesi
Húsfreyja í Reykjavík. Holti á Vatnsnesi 1910 og Engey 1920.
Ingibjörg Ingólfsdóttir (1900-1983) Litluborg
Ingibjörg Jóhanna Ingólfsdóttir 17.11.1900 - 4.8.1983. Húsfreyja á Gauksmýri, Kirkjuhvammssókn, V-Hún. 1930. Síðast bús. á Akranesi.
Ingibjörg Ingimundardóttir (1866-1946) vk Torfalæk
Vinnukona á Torfalæk.
Ingibjörg Hólmfríður Sigurðardóttir (1880-1969) Steiná
Ingibjörg Hólmfríður Sigurðardóttir 22. desember 1880 - 28. júní 1969 Húsfreyja á Steiná í Bergstaðasókn, A-Hún. 1930. Húsfreyja á Steiná í Svartárdal í Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. Var á Steiná í Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. 1957.
Ingibjörg Hjálmarsdóttir Bergmann (1913-2013) Öxl
Ingibjörg Bergmann Hjálmarsdóttir fæddist á Blönduósi 20. janúar 1913. Hún andaðist á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi 1. ágúst 2013. Útför Ingibjargar verður gerð frá Þingeyrarkirkju í dag, 12. ágúst 2013, og hefst athöfnin kl. 14.
Ingibjörg Hjálmarsdóttir (1956) Hólkoti, Unadal, Skagafirði
Ingibjörg Ásta Hjálmarsdóttir 10.3.1956 Hólkoti, Unadal, Skagafirði. Kvsk á Blönduósi 1972-1973
Ingibjörg Hillers (1918-2005) Selfossi
Ingibjörg Þorvaldsdóttir Hillers fæddist á Sauðárkróki 14. maí 1918. Hún lést í Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi 7. maí síðastliðinn. Ingibjörg fæddist á Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki, flutti með foreldrum sínum að Brennigerði í Skarðshreppi 1920, þar sem þau bjuggu í tíu ár, en fluttu að þeim liðnum aftur til Sauðárkróks. Hún var gædd listrænum hæfileikum, söng í Kirkjukór Sauðárkróks og lék m.a. annað aðalhlutverkið í Pilti og stúlku eftir Jón Thoroddsen. Hún flutti á Selfoss 1941 og átti þar heima síðan. Hún stundaði þar ýmis tilfallandi störf. Hún hafði yndi af heimilishaldi og hlutu þau Börge verðlaun fyrir fallegan blómagarð við heimili þeirra í Heiðmörk 3 á Selfossi.
Útför Ingibjargar Þorvaldsdóttur Hillers fór fram frá Selfosskirkju laugardaginn 21. maí, í kyrrþey, að ósk hinnar látnu.
Ingibjörg Helga Hraundal (1955) Reykjavík
Ingibjörg Helga Hraundal 13. sept. 1955. Kjörfor.: Ingibjörg S. Hraundal, f. 24.6.1909 og Guðmundur H. M. Hraundal, f. 23.7.1914. Móðir hennar;
Ingibjörg Guttormsson (1914-1955) Vesturheimi
Guðrún Ingibjörg Guttormsson Hunt 15.9.1914 - 21.7.1955. Riverton, Manitoba, Kanada. Lést á Almenna sjúkrahúsinu í Winnipeg.
Útför hennar var gerð 25.7.1955, jarðsett í Saint James Cemetery Winnipeg.
Ingibjörg Gunnlaugsdóttir (1922-1994) kennari frá Bakka í Víðidal
Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, Neskinn 2, Stykkishólmi, var fædd á Bakka í Víðidal í V-Húnavatnssýslu 7. júní 1922. Hún lést á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi að kvöldi 16. ágústs síðastliðins. Ingibjörg var húsmóðir eftir að hún hætti kennslu en var póstafgreiðslumaður í Stykkishólmi frá 1966-1985. Ingibjörg stundaði nám við Kennaraskóla Íslands frá 1940-1943. Hún var kennari árin 1943-1950 í Vestmannaeyjum og Bakkafirði og í Stykkishólmi frá 1946.
Útför Ingibjargar fer fram frá Stykkishólmskirkju í dag.
Ingibjörg Gunnarsdóttir (1924-2015) Þverárdal, A-Hún
Ingibjörg Gunnarsdóttir fæddist á Æsustöðum í Langadal 11. október 1924. Ingibjörg ólst upp í Þverárdal í A-Hún. Var í Þverárdal, Bergstaðasókn, A-Hún. 1930. Ath. strikað yfir. Skrifstofustarfsmaður á Akureyri.
Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri 5. maí 2015. Jarðarförin fór fram í kyrrþey 12. maí 2015.
Ingibjörg Gunnarsdóttir (1921-2011) frá Svínavatni
Ingibjörg Gunnarsdóttir fæddist á Svínavatni í Austur-Húnavatnssýslu 23. maí 1921. Hún andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni hinn 30. ágúst 2011. Ingibjörg ólst upp á Svínavatni og gekk þar í barna- og unglingaskóla og útskrifaðist síðan frá Húsmæðraskólanum á Blönduósi. Hún fluttist til Reykjavíkur og stundaði þar ýmis störf meðfram því að sjá um annasamt heimili.
Útför Ingibjargar fer fram frá Fossvogskapellu í dag, 13. september 2011, og hefst athöfnin kl. 15.
Ingibjörg Guðrún Sigurðardóttir (1848-1922) Mjóadal
Ingibjörg Guðrún Sigurðardóttir 11. júlí 1848 - 6. mars 1922. Var á Reykjum, Þingeyrarsókn, Hún. 1860. Húsmóðir á Æsustöðum og Mjóadal frá 1895 til æviloka.
Ingibjörg Guðmundsdóttir (1952-2001) frá Brúarhlíð
Ingibjörg Steinunn Guðmundsdóttir frá Brúarhlíð, Blöndudal Austur-Húnavatnssýslu, fæddist á Blönduósi 8.6.1952 og lést á Héraðssjúkrahúsinu á Blönduósi 10. júní síðastliðinn. Steina gekk ekki heil til skógar allt sitt líf vegna andlegrar fötlunar. Hún varð snemma dugleg, sterk og góður vinnukraftur og var heima í foreldrahúsum allt til ársins 1997 er hún seldi afkomendum sínum jörðina og flutti til Blönduóss ásamt frænda sínum Haraldi Eyþórssyni, f. 06.08.1927, sem annaðist hana frá því er hún missti foreldra sína til dauðadags. Seinustu árin er hún var á Blönduósi rækti hún vinnu og félagsstarf hjá Iðju fatlaðra á Blönduósi og einnig vinnu í þvottahúsi sjúkrahússins á Blönduósi.
Útför Steinunnar fer fram frá Bólstaðarhlíðarkirkju fimmtudaginn 21. júní og hefst athöfnin kl. 14.00.
Ingibjörg Guðmundsdóttir (1948) frá Eiríksstöðum
Var á Eiríksstöðum, Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. 1957.
Ingibjörg Guðmundsdóttir (1932) Nýpukoti, V-Hún
Ingibjörg Guðmundsdóttir 3. maí 1932. Var á Jörfa, Þorkelshólshr., V-Hún. 1957. Kvsk á Blönduósi 1950-1951.
Reynir og Ingibjörg hófu búskap í Árnesi í Víðidal, þau fluttu þaðan í Múla í Línakradal og síðan að Jörva í Víðidal. Árið 1958 keyptu þau jörðina Útibleiksstaði í Miðfirði. Árið 1972 fluttu þau á Laugarbakka í Miðfirði
Ingibjörg Guðmundsdóttir (1911-1994) úr Kjörvogi
Ingibjörg Guðmundsdóttir var fædd 11. júní 1926 í Kjörvogi í Strandasýslu. Hún lést á heimili sínu í Hafnarfirði 2. október síðastliðinn. Ingibjörg sinnti ýmsum störfum frá unga aldri en síðustu 17 árin vann hún í eldhúsi St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði á morgun.
Ingibjörg Guðmundsdóttir (1897-1985) Tungu
Ingibjörg Guðmundsdóttir 28. júní 1897 - 5. feb. 1985. Var á Gilsbakka, Efri-Núpssókn, Hún. 1901. Húsfreyja á Katadal, Breiðabólsstaðarsókn, V-Hún. 1930. Var í Tungu, Þverárhr., V-Hún. 1957. Síðast bús. í Þverárhreppi.
Ingibjörg Guðmundsdóttir (1895-1979) frá Tannstöðum Miðfirði
Ingibjörg Guðmundsdóttir 3. apríl 1895 - 14. mars 1979. Hnausakoti 1901, Staðarbakka 1910. Barnfóstra Óðinsgötur 22 Reykjavík 1920. Húsfreyja í Hafnarfirði 1930. Síðast bús. í Hafnarfirði.
Ingibjörg Guðmundsdóttir (1889-1916) Böðvarshólum
Var á Böðvarshólum, Breiðabólstaðarsókn, Hún. 1901.
Ingibjörg Guðmundsdóttir (1887-1974) frá Mjóadal
Ingibjörg Guðmundsdóttir 15. maí 1887 - 18. júní 1974. Húsfreyja í Síðumúla, Gilsbakkasókn, Mýr. 1930. Kennari, síðast bús. í Hvítársíðuhreppi.
Ingibjörg Guðmundsdóttir (1868) ljósmóðir vesturheimi
Ingibjörg Guðmundsdóttir Goodmundson 20. júní 1868. Var í Kollugerði, Höskuldsstaðarsókn, Hún. 1870. Tökustúlka á Gafli, Auðkúlusókn, Hún. 1880. Ljósmóðir Skagaströnd 1890. Fór til Vesturheims 1894 frá Hæl, Torfalækjarhreppi, Hún. Winnipeg 1911. Innflytjandi í Kanada frá USA (ND?) 1903
Ingibjörg Guðmundsdóttir (1867-1916) Steinnesi
Ingibjörg Guðmundsdóttir 5. mars 1867 - 1. maí 1916 Húsmóðir í Steinnesi.
Ingibjörg Guðmundsdóttir (1851-1939) Neðri-Brunná frá Hvammi í Svartárdal
Húsfreyja í Neðri-Brunná í Saurbæ, Dal. Var í Bergstaðastræti 21, Reykjavík 1930.
Ingibjörg Guðlaugsdóttir (1886-1971) Sogni í Kjós, Klínikdama Blö
Ingibjörg Guðlaugsdóttir [Imba] 30. mars 1886 - 8. des. 1971. Var á Héraðshælinu, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Reykjavík. Ógift Vestmannaeyjum 1920.
Lengst af hefur hún dvalið hjá læknishjónunum á Blönduósi, Páli Kolka og Guðbjörgu konu hans, eða í full 30 ár og á hún þar heimili nú. Og hygg ég að svo muni áfram verða á meðan.
Annaðist flestar svæfingar á árunum frá 1930 og 1956