Identity area
Type of entity
Person
Authorized form of name
Ingibjörg Pálsdóttir Kolka (1926-2015) frá Blönduósi, Hafnarfirði
Parallel form(s) of name
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
1.2.1926 - 12.3.2015
History
Ingibjörg Pálsdóttir Kolka fæddist 1. febrúar 1926 að Sólvöllum í Vestmannaeyjum. Hún andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði 12. mars 2015. Ingibjörg flutti árið 1934 til Blönduóss og ólst þar upp. Hún gekk í Barnaskólann á Blönduósi og stundaði gagnfræðanám í Steinnesi. Lauk námi frá Kvennaskólanum á Blönduósi með afar lofsamlegum vitnisburði. Árið 1946 hélt Ingibjörg til Reykjavíkur til starfa á Ljósmyndastofu Lofts Guðmundssonar, móðurbróður síns. Hún vann þar sérstaklega að litun ljósmynda og redúseringu. Á þeim árum kynntist hún Bergsteini Sigurðssyni, trésmið frá Hjallanesi í Landsveit, f. 11.5. 1919, d. 11.11. 2003. Eignuðust þau eina dóttur. Árið 1947 fluttist Ingibjörg til Blönduóss og vann m.a. í apótekinu á staðnum.
Stúlkan með gullnu lokkana giftist þann 3. nóvember 1951 Zophoníasi Ásgeirssyni frá Blönduósi, vélstjóra, f. 1. júní 1924, d. 27. sept. 2013, en þau höfðu þekkst frá því í æsku. Foreldrar hans voru Hólmfríður Zophoníasdóttir húsmóðir og Ásgeir Þorvaldsson múrarameistari. Síðan fluttust þau til Reykjavíkur þar sem Zophonías stundaði sjómennsku en Ingibjörg vann sem húsmóðir og tók heimaverkefni í ljósmyndun.
Árið 1959 fluttu þau í Hafnarfjörð og frá 1966 bjuggu þau í Smárahvammi 10 nær óslitið uns þau fóru að Hrafnistu 2012. Ingibjörg var listhneigð og fær hannyrðakona, eftir hana liggja mörg fögur útsaumsverk. Hún var annáluð blómakona og mikill dýravinur. Ingibjörg var félagslynd, gestrisin og fróð. Hún naut þess að segja frá á sinn kjarnyrta hátt. Fátt kom henni á óvart.
Útför Ingibjargar fór fram frá Hafnarfjarðarkirkju 23. mars 2015.
Places
Vestmannaeyjar: Blönduós: Hafnarfjörður:
Legal status
Gagnfræðingur frá Steinnesi: Kvsk á Blönduósi:
Functions, occupations and activities
Mandates/sources of authority
Internal structures/genealogy
Faðir hennar var Páll Valdimar G. Kolka frá Torfalæk í A-Hún., læknir í Vestmannaeyjum og héraðslæknir á Blönduósi, f. 25.1. 1895, d. 19.7. 1971. Móðir Ingibjargar var frú Guðbjörg Guðmundsdóttir Kolka frá Hvammi í Kjós, f. 8. okt. 1888, d. 12. júní 1974.
Systkini Ingibjargar:
1) Guðmundur Kolka, f. 21. okt. 1917, d. 23. mars 1957;
2) Perla Kolka, f. 31. maí 1924,
3) Halldóra Kolka Ísberg, f. 3. sept. 1929, d. 2. sept. 2007.
Ingibjörg flutti árið 1934 til Blönduóss og ólst þar upp. Hún gekk í Barnaskólann á Blönduósi og stundaði gagnfræðanám í Steinnesi. Lauk námi frá Kvennaskólanum á Blönduósi með afar lofsamlegum vitnisburði. Árið 1946 hélt Ingibjörg til Reykjavíkur til starfa á Ljósmyndastofu Lofts Guðmundssonar, móðurbróður síns. Hún vann þar sérstaklega að litun ljósmynda og redúseringu.
Á þeim árum kynntist hún Bergsteini Sigurðssyni, trésmið frá Hjallanesi í Landsveit, f. 11.5. 1919, d. 11.11. 2003. Eignuðust þau eina dóttur.
Árið 1947 fluttist Ingibjörg til Blönduóss og vann m.a. í apótekinu á staðnum.
Stúlkan með gullnu lokkana giftist þann 3. nóvember 1951 Zophoníasi Ásgeirssyni frá Blönduósi, vélstjóra, f. 1. júní 1924, d. 27. sept. 2013, en þau höfðu þekkst frá því í æsku. Foreldrar hans voru Hólmfríður Zophoníasdóttir húsmóðir og Ásgeir Þorvaldsson múrarameistari. Síðan fluttust þau til Reykjavíkur þar sem Zophonías stundaði sjómennsku en Ingibjörg vann sem húsmóðir og tók heimaverkefni í ljósmyndun.
Árið 1959 fluttu þau í Hafnarfjörð og frá 1966 bjuggu þau í Smárahvammi 10 nær óslitið uns þau fóru að Hrafnistu 2012. Ingibjörg var listhneigð og fær hannyrðakona, eftir hana liggja mörg fögur útsaumsverk. Hún var annáluð blómakona og mikill dýravinur. Ingibjörg var félagslynd, gestrisin og fróð. Hún naut þess að segja frá á sinn kjarnyrta hátt. Fátt kom henni á óvart.
Börn Ingibjargar Kolka eru fjögur:
1) Ingibjörg Sólveig Kolka Bergsteinsdóttir, f. 15.10. 1947. Maki: Jón Bjarnason, f. 26.12. 1943. Börn: a) Bjarni, maki: Izati Zahra. Dóttir hans: Kristín Kolka. b) Ásgeir, maki: Gerður Bolladóttir. Börn þeirra: Sólveig Kolka, Þórir Kolka og Kjartan Kolka. c) Ingbjörg Kolka, maki: Guðmundur Sæmundsson. d) Laufey Erla, maki: Mikhail Timofeev. Sonur þeirra: Hákon Kolka. e) Katrín Kolka, f. 26.9. 1982, d. 27.2. 2011, maki: Eiríkur Valdimarsson. Sonur þeirra: Valdimar Kolka. f) Páll Valdimar Kolka, maki Sandra Sif Einarsdóttir. Börn þeirra: Katrín Kolka og Einar Kolka.
2) Hólmfríður Kolka Zophoníasdóttir, f. 12.7. 1954. Maki: Böðvar Guðmundsson, f. 14.6. 1948. Börn hennar: a) Zophonías, sambýliskona Eyrún Pétursdóttir. Börn hans: Alexandra Hólmfríður Kolka og Emelía Kolka. b) Elmar. Barn: Kristófer Lár.
3) Guðmundur Kolka Zophoníasson, f. 2.3. 1959. Börn: a) Melína Kolka, b) Páll Kolka.
4) Guðríður Kolka Zophoníasdóttir, f. 19.5. 1964. Unnusti: Jón Bjarki Bentsson, f. 14.9. 1965. Börn hennar: a) Halldór Rúnar, b) Yrsa Kolka, c) Ýmir Kolka.
General context
Relationships area
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the parent of
Ingibjörg Pálsdóttir Kolka (1926-2015) frá Blönduósi, Hafnarfirði
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the parent of
Ingibjörg Pálsdóttir Kolka (1926-2015) frá Blönduósi, Hafnarfirði
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the sibling of

is the spouse of
Ingibjörg Pálsdóttir Kolka (1926-2015) frá Blönduósi, Hafnarfirði
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the cousin of
Ingibjörg Pálsdóttir Kolka (1926-2015) frá Blönduósi, Hafnarfirði
Dates of relationship
Description of relationship
Access points area
Subject access points
Place access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Institution identifier
IS HAH
Rules and/or conventions used
Status
Final
Level of detail
Full
Dates of creation, revision and deletion
GPJ 23.6.2017
Language(s)
- Icelandic
Script(s)
Sources
Maintenance notes
Digital object metadata
Access
Filename
Ingibjrg_Plsdttir_Kolka1926-2015Blndu__si.jpg
Latitude
Longitude
Media type
Image
Mime-type
image/jpeg