Ingibjörg Kristjana Guðmundsdóttir (1921-2010) Naustavík

Original Digital object not accessible

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Ingibjörg Kristjana Guðmundsdóttir (1921-2010) Naustavík

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        22.7.1921 - 14.11.2010

        History

        Ingibjörg Kristjana Guðmundsdóttir fæddist í Naustvík, Árneshreppi, Strandasýslu 22. júlí 1921. Var í Naustvík, Árnesssókn, Strand. 1930. Starfaði lengst af á veitingahúsum í Reykjavík. Kvsk á Blönduósi 1943-1944.
        Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 14. nóvember 2010. Útför Ingibjargar fór fram frá Bústaðakirkju 22. nóvember 2010, og hófst athöfnin kl. 15.

        Places

        Naustvík

        Legal status

        Ingibjörg lauk hefðbundnu námi frá Finnbogastaðaskóla 1935 og stundaði nám við Húsmæðraskólann á Blönduósi veturinn 1943-1944.

        Functions, occupations and activities

        Hún starfaði alla tíð utan heimilis nema þegar dætur hennar voru ungar og vann þá við ýmislegt sem og við hefðbundin sveitastörf í Naustvík. Hún var í vist á Akureyri og í Reykjavík en einnig hjá sveitungum. Lengst af vann hún á veitingahúsum, á Gildaskálanum í Aðalstræti og síðar á Aski skömmu eftir að hann komst í rekstur og þar til hún hætti störfum.

        Mandates/sources of authority

        Ingibjörg gegndi trúnaðarstörfum fyrir Félag starfsfólks á veitingahúsum á árunum 1980-1992.

        Internal structures/genealogy

        Foreldrar; Guðmundur Árnason 29. maí 1889 - 2. apríl 1972. Bóndi í Naustvík, Árnesssókn, Strand. 1930. Bóndi í Naustvík í Árneshreppi frá 1917 og kona hans; Steinunn Guðmundsdóttir 29. sept. 1896 - 19. feb. 1986. Húsfreyja í Naustvík, Árnesssókn, Strand. 1930. Húsfreyja í Naustvík frá 1917.

        Systkini;
        1) Anna Margrét Guðmundsdóttir 29.7.1917, d. 2.3.2010. Var í Naustvík, Árnesssókn, Strand. 1930. Húsfreyja í Reykjavík.
        2) Þórarna Kristjana Guðmundsdóttir f. 8.10.1919, d. 3.8.1920,
        3) Sveinn Guðmundsson 14.4.1923, d. 4.11.1991. Trésmíðameistari í Reykjavík. Var í Naustvík, Árnesssókn, Strand. 1930.
        4) Guðfinna Magney Guðmundsdóttir 3. maí 1926 - 1. jan. 2003. Var í Naustvík, Árnesssókn, Strand. 1930. Stundaði í búskap í Reykjarfirði í Árneshr. í 43 ár. Síðast bús. á Hólmavík.
        5) Áslaug Halla Guðmundsdóttir 22. okt. 1929. Var í Naustvík, Árnesssókn, Strand. 1930.
        6) Kjartan Ólafs Guðmundsson 16. apríl 1932 - 10. des. 2021.
        7) Guðbjörg Jóna Guðmundsdóttir 5. des. 1935 - 31. júlí 2018. Húsfreyja í Guðlaugsvík í Bæjarhreppi. Síðast bús. í Reykjavík.
        8) Þóra Kristín Guðmundsdóttir f. 15.12.1938

        Maður hennar 4.1.1948. Ágúst Ísfeld Sigurðsson 2. ágúst 1924 - 10. júlí 2013. Fiskmatsmaður og síðar verkstjóri í frystihúsum. Var í Bergstaðastræti 6 c, Reykjavík 1930. Þau skildu.
        Sambýlismaður Ingibjargar Kristjönu frá 1981 var; Jónas Kristjánsson, f. 28.9. 1921, d. 9.3. 1998. Nemi í Reykjavík 1945. Vélstjóri í Reykjavík.

        Dætur Ingibjargar og Ágústs eru;
        1) Soffía Guðrún, f. 15.3. 1947. Fyrri maki Soffíu Guðrúnar er Friðrik H. Ólafsson, f. 25.9. 1946; þau skildu. Börn þeirra eru Erlendur Steinar, f. 5.9. 1965, og Ingibjörg Sunna, f. 9.5. 1972. Maki Erlendar Steinars er Inga Margrét Birgisdóttir, f. 26.9. 1969. Börn þeirra eru Ingibjörg Hulda, f. 14.10. 2003, og Ólafur Helgi, f. 14.10. 2003. Maki Ingibjargar Sunnu er Óðinn Gunnarsson, f. 4.4. 1975; þau skildu. Sonur þeirra er Óðinn Þór, f. 10.10. 1993. Síðari maki Soffíu Guðrúnar er Einar Jónsson, f. 5.10. 1945. Sonur þeirra er Einar Smári, f. 19.2. 1990.
        2) Ósk Sigurrós, f. 12.7. 1949. Maki; Þorsteinn Tryggvason, f. 11.5. 1946. Börn þeirra eru Ágúst Reynir, f. 25.2. 1974, og Fanney Rós, f. 7.9. 1978. Fyrri maki Ágústs Reynis er Ólöf Jóna Sigurjónsdóttir, f. 16.3. 1976; þau skildu. Dætur þeirra eru Ósk Sigurrós, f. 19.4. 1999, og Sóley María, f. 27.12. 2003. Seinni maki Ágústs Reynis er Kittý Johansen, f. 11.8. 1974. Dóttir þeirra er Ísabella Kittý, f. 15.4. 2010. Maki Fanneyjar Rósar er Árni Hrafn Gunnarsson, f. 29.2. 1980. Sonur þeirra er Gunnar Tryggvi, f. 20.12. 2007.

        General context

        Relationships area

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH07931

        Institution identifier

        IS-HAH

        Rules and/or conventions used

        Að venju eru upplýsingar frá Íslendingabók notaðar, ef þær stangast á við aðrar upplýsingar er þeim bætt við innan hornklofa [ ], ekki er tekin afstaða til mismunandi upplýsinga.

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ skráning 4.12.2022

        Language(s)

          Script(s)

            Maintenance notes