Sigríður Alfonsdóttir (1945) Ólafsvík
- HAH08440
- Person
- 19.2.1945 -
Sigríður Alfonsdóttir (1945) Ólafsvík
Sigríður Árnadóttir (1811-1900). Húsfreyja Ytri-Ey og vk Gunnsteinsstöðum Langadal
Sigríður Árnadóttir 13.7.1811 - 30.10.1900. Bjó í Belgsholti, Melakirkjusókn, Borg. 1816. Húsmóðir þar 1835. Þjónustustúlka Armórs bróður síns í Múla í Aðaldal 1840. Ráðskona í Skógum, Skinnastaðarsókn, N-Þing. 1845. Ráðskona 1850 og búandi á Ytriey, Höskuldstaðasókn, Hún. 1860. Húskona á Gunnsteinsstöðum, Holtastaðasókn, Hún. 1870 og 1880. Húsfreyja í Skálholtsstræti 5, Reykjavíkursókn, Gull. 1890. Ógift og barnlaus.
Sigríður Árnadóttir (1863-1943) Blönduósi
Jónína Sigríður Árnadóttir, f. 23. jan. 1863 í Vesturhópi d. 18. febr. 1943, sjá Einarsnes [Sigtryggshúsi} 1901, Zóphaníasarbæ 1920. Hún ekkja Zóphóníasarh. (Jónasarhúsi) 1933.
Sigríður Árnadóttir (1870-1958) Ytra-Hóli
Húsfreyja á Fossi, Hvammssókn, Skag. 1910. Var á Bakka, Blönduóshr., A-Hún. 1957.
frá Þverá í Hallárdal, húsfr. á Ytra-Hóli.
Sigríður Árnadóttir (1880-1965) kennari
Sigríður Árnadóttir 3.6.1880 - 15.7.1965. Kennari í Reykjavík. Sauðá 1880. Ingólfsstræti 6, 1910, ásammt Guðrúnu Espólín í Köldukinn, sennilega námsstúlka hjá henni.
Húsráðandi Sniðjustíg 7 Reykjavík 1920. Ógift og barnlaus.
Sigríður Árnadóttir (1893-1967) Geitaskarð
Sigríður Árnadóttir 4. júlí 1893 - 27. júní 1967. Var í Geitaskarði, Holtastaðasókn, A-Hún. 1930. Húsfreyja. Var í Geitaskarði, Engihlíðarhreppi, A-Hún. 1957. Síðast bús. á Sauðárkróki.
Sigríður Arnljótsdóttir (1879-1965) Læknabústaðnum á Blönduósi
Kristjana Sigríður Arnljótsdóttir f. 3. okt. 1879 d. 18. febr.1965. Húsfreyja í Ingólfsstræti 9, Reykjavík 1930. Húsfreyja á Vopnafirði og víðar.
Sigríður Beinteinsdóttir (1940) Súlunes í Melasveit
Sigríður Sjöfn Beinteinsdóttir 25. júlí 1940.
Sigríður Bergsdóttir (1898-1921) Skeggstöðum
Sigríður Bergsdóttir 5. febrúar 1898 - 18. júní 1921. Húsfreyja á Skeggsstöðum.
Sigríður Bjarnadóttir (1841-1910) Bjarghúsi og Urðarbaki
Sigríður Bjarnadóttir 30.10.1841 - 29.1.1910. Fædd í Vatnahverfi, Hofi Vatnsdal 1845, tökubarn Marðarnúpi 1855, vinnukona á Hólabaki, Þingeyrarsókn, Hún. 1860. Vinnumannsfrú í Breiðabólstað, Breiðabólstaðarsókn, Hún. 1870. Húsfreyja í Bjarghúsi, Breiðabólsstaðarsókn, Hún. 1880 og 1890. Húsfreyja á Urðarbaki, Breiðabólstaðarsókn, Hún. 1901. Grund í Vesturhópi.
Sigríður Bjarnadóttir (1864-1941) Grand Fork N Dakota
Sigríður Bjarnadóttir 23. mars 1864 - 10. apríl 1941. Var í Síðu, Breiðabólstaðarsókn, Hún. 1870. Var á Hrappstöðum, Víðidalstungusókn, Hún. 1880. Fór til Vesturheims 1887 frá Saurbæ í Vatnsdal, Áshreppi, Hún. Var í Thingvalla, Pembina, N-Dakota, USA 1910. Var í Grand Forks, N-Dakota, Bandaríkjunum 1940. Átti 9 börn vestra.
Sigríður Bjarnadóttir (1910-1997) frá Odda
Sigríður Bjarnadóttir fæddist í Reykjavík 26. maí 1910. Eldhússtúlka í Kirkjustræti 8 , Reykjavík 1930. Húsfreyja í Reykjavík 1945, síðast bús. í Reykjavík.
Sigríður ólst upp í Odda á Rangárvöllum frá 8 ára aldri, hjá systur sinni, Önnu Bjarnadóttur, sem gift var séra Erlendi Þórðarsyni sem þar var prestur.
Hún lést í Sjúkrahúsi Suðurlands á Selfossi aðfaranótt 18. mars 1997.
Útför Sigríðar fór fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 24. mars og hófst athöfnin klukkan 13.30.
Sigríður Bjarnadóttir (1949) Bíldudal
Sigríður Bjarnadóttir 2.10.1949 Bíldudal. Afgreiðslustjóri Reykjavík. Kvsk á Blönduósi 1966-1967.
Sigríður Björg Metúsalemsdóttir (1863-1939) prestsfrú Staðarbakka
Sigríður Björnsdóttir (1880-1915) Ægissíðu
Sigríður Hansína Björnsdóttir 12. apríl 1880 - 21. ágúst 1915 af barnsförum. Var á Vatnsenda, Vesturhópshólasókn, Hún. 1901. Húsfreyja á Ægissíðu.
Sigríður Björnsdóttir (1897-1990) frá Kornsá
Hún Sigríður á Laufásveginum, Sigríður Björnsdótttir, er látin, 92ja ára gömul. Það er hár aldur, enda mikið langlífi í ættinni. Kornsá var mikið höfðingjasetur eins og flestir bæir í Vatnsdal á þessum tíma og vildi Sigríður gjarnan kenna sig við Kornsá, þó ætti heima í Reykjavík.
Sigríður var glaðlynd og gamansöm og sérlega skemmtileg á vinafundum. Hún hafði ríka kímnigáfu og sagði skemmtilega frá. Fegurðarsmekk hafði hún góðan, vildi hafa allt í röð og reglu og góða umgengni í kringum sig og var mikið fyrir fallega hluti. Hún keypti aldrei ljótan hlut, allt varð að vera listrænt og smekklegt.
Árið 1925 giftist hún Jóni Árnasyni frá Stóra-Vatnsskarði í Skagafirði. Hann var framkvæmdastjóri hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga og síðar bankastjóri við Landsbanka Íslands og loks við Alþjóðabankann. Í sambandi við störf manns síns var hún mikið í utanlandsferðum og naut þess í ríkum mæli.
En sorgin barði líka að dyrum hjá Sigríði eins og mörgum öðrum. Árið 1948 missti hún einkadóttur sína, Ingunni Guðrúnu, af slysförum, 13 ára gamla. Þess beið hún aldrei bætur. Mann sinn missti hún á nýársdag 1977, og 1984 eldri son sinn, Björn, en Ebba kona hans lést árið 1974. Allur þessi ástvinamissir var henni mjög þungbær, en hún átti því láni að fagna að geta dvalið á eigin heimili til æviloka, þótt auðvitað þyrfti hún á stundum að dvelja á sjúkrahúsum vegna vanheilsu. Alltaf komst hún þó aftur heim og bjó þar í sambýli við Árnason sinn og Gíselu konu hans og naut þar aðhlynningar þeirra og barnabarnanna í ríkum mæli.
Fögur blóm og fallegur gróður voru henni til mikils unaðar og framá síðustu daga hafði hún hug á að láta laga til í garðinum sínum. Nú hefur hún lagt upp í sína hinstu för, þegar náttúran skartar sínu fegursta. Betri kveðjustund getur enginn kosið sér.
Sigríður Björnsdóttir (1902-1975) Skeggstöðum
Vinnukona á Skeggstöðum, Bergstaðasókn, A-Hún. 1930. Var á Blöndudalshólum, Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Bólstaðarhlíðarhreppi. M. Guðmundur Einarsson, bóndi.
Sigríður Björnsdóttir (1907-2001)
Sigríður Björnsdóttir fæddist á Ísafirði 13. janúar 1907. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 20. október síðastliðinn. Sigríður ólst upp fyrstu árin á Ísafirði en fluttist til Reykjavíkur og síðan til Hafnarfjarðar. Sigríður og Árni bjuggu frá árinu 1933 í Einarsnesi 21 (sem þá hét Hörpugata) í Skerjafirði. Þau höfðu bæði mikinn áhuga á ræktun trjáa, berja og ýmissa matjurta og ber garðurinn í Einarsnesinu þess enn vitni. Jarðarberjauppskeran fór t.d. oft yfir 300 pund þegar vel áraði. Sigríður flutti árið 1995 að Hrafnistu í Reykjavík.
Útför Sigríðar fór fram í kyrrþey að hennar ósk í Fossvogskapellu hinn 30. október.
Sigríður Björnsdóttir (1950) Þorlákshöfn, frá Ytra-Hóli
Var á Ytri Hól, Vindhælishr., A-Hún. 1957.
Sigríður Blandon Halling (1917-1968)
Var í Neðri-Lækjardal, Holtastaðasókn, A-Hún. 1930. Hjúkrunarkona í Oxford. Sigríður Árnadóttir Blandon fæddist að Neðri-Lækjardal í Engihlíðarhreppi, A-Húnavatnssýslu þann 5. maí árið 1917. Hún var elzt fimm dætra þeirra hjóna Þorbjargar Jóneyjar Grímsdóttur frá Kirkjubóli, Tungusveit í Strandasýslu, og Árna Ásgríms Erlendssonar, síðar Blandon, frá Fremstagili í Langadal, A-Húnavatnssýslu.
Sigríður ólst upp í glöðum systrahópi, undir handleiðslu ástríkra foreldra. Vafalaust hefur heimilisbragur á æskuheimili hennar mótað skapgerð hennar og lífsviðhorf, í erfð og uppeldi hafði Sigríður hlotið gott veganesti. Hún var góðum gáfum gædd, drenglunduð, kærleiksrík og fórnfús. Hún var skemmtilegur hagyrðingur, þótt ekki hefði hún það í hávegum, slík var hógværð hennar.
Árið 1957 flutti fjölskyldan búferlum til Englands, en þar gekk Sigríður ætíð sem gestur á grund. Ættjarðarást hennar og þrá til Íslands var sterk og einlæg og samband hennar við foreldra sína og systur var svo náið og kærleiksríkt, að til sannrar fyrirmyndar var. Tvisvar kom fjölskyldan hingað í heimsókn og enn var hugsað til Íslandsferðar á þessu sumri. Ekki vildi Sigríður gerast enskur ríkisborgari og snemma hafði hún orð á því við eiginmann sinn, að hún óskaði eftir að hinzti hvilustaður yrði í íslenzkri mold. Ferðin heim varð með öðrum hætti en fyrirhugað var og verður útför Sigríðar gerð í dag frá Fossvogskapellu.
Sigríður Blöndal (1865-1929) prestsfrú Siglufirði
Sigríður Blöndal Lárusdóttir 11. apríl 1865 - 25. febrúar 1929. Húsfreyja á Hvanneyri í Siglufirði.
Sigríður Blöndal Magnúsdóttir Fjeldsted (1888-1963) Reykjavík
Sigríður Blöndal Magnúsdóttir Fjeldsted 11. feb. 1888 - 21. nóv. 1963. Húsfreyja í Reykjavík. Var í Reykjavík 1910.
Sigríður Daníelsdóttir (1890-1979) Litluvöllum í Bárðardal
Húsfreyja á Litluvöllum, Lundarbrekkusókn, S-Þing. 1930. Síðast bús. í Reykjavík.
Sigríður Eggertsdóttir (1877-1907) vk Þórormstungu 1901
Sigríður Guðrún Eggertsdóttir 30. júlí 1877 - 10. feb. 1907. Barn þeirra á Hvoli, Breiðabólstaðarsókn, Hún. 1880. Var á Hvoli, Breiðabólsstaðarsókn, Hún. 1890. Hjú í Þórormstungu, Undirfellssókn, Hún. 1901.
Sigríður Einarsdóttir (1902-1992)
Sigríður Einarsdóttir frá Eyrarlandi Fædd 4. október 1902 Dáin 24. júní 1992 Hún fæddist í dagrenningu þessarar aldar og dó skömmu fyrir sólarlag hennar. Langri ævi merkrar konu er lokið - á meðal okkar hún sofnaði svefninum langa inn í Jónsmessunóttina. Einkennandi fyrir hana, sem unni vorinu svo sem hún lýsti sjálf fyrir skömmu í bréfi: " . . . sem krakki fylltist ég svo sterkri ógn um leið og byrjaði að snjóa og skildi ekki fullorðna fólkið sem tók þessu með jafnaðargeði. Þá byrjaði ég strax að þrá vorið með lítil lömb, grænan gróður, blóm og fuglasöng".
Hún hét Sigríður Einarsdóttir og fæddist, ólst upp og bjó nánast alla sína ævi á Eyrarlandi, nú í Eyjafjarðarsveit.
Hún kvaddi þennan heim á þann veg sem hún var svo oft búin að óska sér - með fullri reisn. Hún skrifaði fyrir tveimur árum: "Þetta sígur allt til þessarar einu áttar sem við öll hljótum að feta, hvort sem okkur er það ljúft eða leitt. Ég segi bara með Davíð: "fyrr að kallið kemur, þá kem ég glaður um borð". Og hún kom svo sannarlega glöð um borð.
Hún skrifaði einnig: "Gamla fólkið okkar er alltaf að kveðja og ég samfagna því og gleðst með þeim sem eiga þörf á hvíldinni".
Útför hennar fer fram á Akureyrarkirkju í dag og enn skrifar hún: "Í þeirri kirkju er hljóður helgiblær, þar líður mér vel." Hún verður lögð til hinstu hvílu við hlið eiginmanns síns, í Kaupangskirkjugarði, í sveitinni hennar fögru.
Sigríður Erna Jóhannesdóttir (1942-2018) Reykjavík
Sigríður Erna Jóhannesdóttir fæddist í Reykjavík 10. janúar 1942.
Hún lést 13. nóvember 2018. Útför Sigríðar fór fram í Bústaðakirkju 26. nóvember 2018, klukkan 13.
Sigríður Fanný Ásgeirsdóttir (1914-2006) Lækjarbakka Skagaströnd
Sigríður Fanný Ásgeirsdóttir fæddist á Höfðahólum á Skagaströnd 14. febrúar 1914. Hún lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi 11. desember síðastliðinn.
Útför Sigríðar verður gerð frá Hólaneskirkju á Skagaströnd í dag og hefst athöfnin klukkan 14.
Sigríður Friðfinnsdóttir (1907-1992) Friðfinnshúsi
Sigríður Friðfinnsdóttir 24. desember 1907 - 26. janúar 1992. Vinnukona á Laugavegi 41, Reykjavík 1930. Var jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 7. febrúar kl. 13.30.
Sigríður Grímsdóttir (1949) Blönduósi
Sigríður Björg Grímsdóttir 23. júní 1949. Var á Grímstungu, Áshr., A-Hún. 1957.
Sigríður Guðbjörg Kristmundsdóttir (1869-1941) Hafursstöðum og Sigurðarhúsi Hólanesi
Sigríður Guðbjörg Kristmundsdóttir 8.2.1869 [2.2.1870] - 15.6.1941. Húsfreyja Hafursstöðum 1910 og 1920 og í Skagastrandarkaupstað 1930. Húsfreyja í Sigurðarhúsi á Hólanesi í Höfðakaupstað, A-Hún.
Sigríður Guðmundsdóttir (1862-1912) vk Blönduósi frá Kollugerði
Sigríður Guðmundsdóttir 12.2.1862 - 12.1.1912. Var á Svangrund, Höskuldsstaðarsókn, Hún. 1870. Vinnukona, ekkja, Möllershúsi á Blönduósi 1890 og 1901. Lausakona, ekkja á Kornsá, Undirfellssókn, A-Hún. 1910.
Sigríður Guðmundsdóttir (1867-1943) Litla-Sandfelli í Skriðdal
Húsfreyja í Litla-Sandfelli og Flögu í Skriðdal. Var á Flögu, Þingmúlasókn, S-Múl. 1930.
Sigríður Guðmundsdóttir (1870-1963) Bakka Blönduósi 1957
Lárína Sigríður Guðmundsdóttir 11. október 1870 - 2. október 1963. Sveitarbarn á Þverá, Spákonufellssókn, Hún. 1880. Vinnukona á Þverá, Spákonufellssókn, Hún. 1890. Var á Bakka, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Verkakona og ráðskona Stefáns bróður síns í Brekkubæ Blönduósi 1930.
Sigríður Guðmundsdóttir (1876-1963) Blönduósi
Sigríður Guðmundsdóttir f. 29. júní 1876 Gunnsteinsstöðum d. 2. okt. 1963. Húsfreyja á Böðvarshúsi Blönduósi 1920 og 1930. Síðast bús. í Reykjavík.
Sigríður Guðmundsdóttir (1892-1977) saumakona frá Kárdalstungu
Sigríður Guðmundsdóttir 13.6.1892 - 15.3.1977. Fædd á Gilsstöðum í Vatnsdal. Saumakona Miðstræti 4, 1920 og Veltusundi 3 b, Reykjavík 1930. Saumakona í Reykjavík 1945. Síðast bús. Aðalstræti 9 í Reykjavík. Lézt 15. marz 1977 að Elli og hjúkrunarheimilinu Grund. Hún var jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 24. marz 1977 kl. 1.30 e.h.
Sigríður Guðmundsdóttir (1896-1955) frá Skraptungu
Erlendína Sigríður Guðmundsdóttir 12. september 1896 - 26. maí 1955 Var síðast í Reykjavík.
Sigríður Guðmundsdóttir (1897-1985) frá Leifsstöðum í Svartárdal,
Sigríður Guðmundsdóttir 22. ágúst 1897 - 4. des. 1985. Var á Leifsstöðum, Bergstaðasókn, Hún. 1901. Húsfreyja í Reykjavík 1930 og 1945. Síðast bús. í Reykjavík.
Sigríður Guðmundsdóttir (1902-1937) Staðarbakka Miðfirði
Húsfreyja á Staðarbakka, Melstaðarsókn, V-Hún. 1930.
Sigríður Guðmundsdóttir (1903-1983)
Húsfreyja á Akureyri. Húsfreyja þar 1930. Síðast bús. á Akureyri.
Sigríður Guðmundsdóttir Elefsen (1900-1982) kennari Krossi
Sigríður Halldóra Guðmundsdóttir Elefsen 18. ágúst 1900 - 8. jan. 1982. Húsfreyja á Siglufirði 1930. Húsfreyja á Siglufirði. Síðast bús. á Siglufirði.
Sigríður Guðrún Torfadóttir (1940-2008) Lögmannshlíð, Eyjafirði
Sigríður Guðrún Torfadóttir (Didda) tækniteiknari fæddist í Lögmannshlíð fyrir ofan Akureyri 14. júní 1940. Hún lést á Akureyri 11. ágúst 2008. Útför Sigríðar Guðrúnar fór fram í kyrrþey.
Sigríður Guðvarðsdóttir (1921-1997)
Sigríður Guðvarðsdóttir fæddist í Reykjavík 1. júlí 1921. Hún lést á Sauðárkróki 26. mars síðastliðinn.
Sigríður Gunnarsdóttir (1916-2005)
Sigríður Gunnarsdóttir fæddist í Grænumýrartungu í Hrútafirði í Strandasýslu 21. ágúst 1916. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 10. september síðastliðinn. Sigríður fæddist og ólst upp í Grænumýrartungu í Hrútafirði. Haustið 2001 flytja þau hjónin í þjónustuíbúðir fyrir aldraða á Dalbraut 21 og eftir missi eiginmanns síns flytur Sigríður í þjónustumiðstöðina á Dalbraut 27.
Útför Sigríðar verður gerð frá Háteigskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.
Sigríður Gunnarsdóttir (1948) Ásgarðsnesi, Þingeyri
Sigríður Gunnarsdóttir 24.8.1948 Ásgarðsnesi, Þingeyri. Kvsk á Blönduósi 1968-1969.
Sigríður Gunnarsdóttir (1954) Stærri-Bæ, Grímsnesi
Sigríður Laufey Gunnarsdóttir 11.3.1954 Stærri-Bæ, Grímsnesi. starfsmaður Seðlabankans. Kvsk á Blönduósi 1972-1973
Sigríður Halldórsdóttir (1906-2001)
Sigríður Halldórsdóttir frá Orrahóli fæddist 12. september 1906 í Magnússkógum í Hvammssveit í Dalasýslu. Sigríður ólst upp í foreldrahúsum í Magnússkógum. Útför Sigríðar fer fram frá Staðarfellskirkju á Fellsströnd í dag og hefst athöfnin klukkan 13.
Sigríður Halldórsdóttir (1919-2001) Urðarbaki
Sigríður Halldórsdóttir fæddist á Efri-Þverá í Vesturhópi 12. mars 1919. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 11. desember síðastliðinn. Sigríður ólst upp á Efri-Þverá við hefðbundin sveitastörf. Lauk námi frá héraðsskólanum að Reykjum 1939. Útför Sigríðar fer fram frá Hvammstangakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14.
Sigríður Hannesdóttir (1860) Kistu
Sigríður Ingibjörg Hannesdóttir 26.6.1860 - 5.11.1944. Húsfreyja á Kistu, Vesturhópshólasókn, Hún. 1901. Húskona á Kistu, Breiðabólsstaðarsókn, V-Hún. 1930. Húskona Haukagili 1890.
Sigríður Hannesdóttir (1909-1991) frá Sólheimum í Svínadal
Húsfreyja í Fischerssundi 1, Reykjavík 1930. Húsfreyja í Reykjavík 1945. Síðast bús. í Reykjavík.
Sigríður Helga Jónsdóttir (1887-1973) Miðsvæði
Sigríður Helga Jónsdóttir 30. sept. 1887 - 17. ágúst 1973. Tökubarn á Hnjúki, Undirfellssókn, Hún. 1890. Húsfreyja á Blönduósi 1930. Húsfreyja á Blönduósi.
Sigríður Hermannsdóttir (1889-1921) Washington. Þingeyrum 1901, vesturheimi 1917
Þingeyrum 1901 og Reykjavík 1910, Fór utan með Es Gullfoss, innrituð í Ellis Island 9.11.1917
Sigríður Hjálmarsdóttir (1834-1908) Holtastaðakoti
Sigríður Hjálmarsdóttir f. 21. jan. 1834 d. 25. febr. 1908. Ljósmóðir og húsfreyja í Holtastaðakoti í Langadal, Engihlíðarhr., A-Hún. Var með föður sínum á Minni-Ökrum í Miklabæjarsókn, Skagafirði 1845. Blönduósi 1880.
Sigríður Hjördís Maggý Friðriksdóttir (1949-2004) Blönduósi
Sigríður Friðriksdóttir fæddist á Blönduósi 18. febrúar 1949. Hún lést á Landspítalanum 13. apríl síðastliðinn. Sigríður og Steindór bjuggu fyrstu búskaparárin í Reykjavík, síðan tvö ár á Selfossi, en eftir það bjuggu þau á Blönduósi til ársins 1991 er fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur.
Sigríður ólst upp hjá foreldrum sínum ásamt systkinum á Blönduósi. Þar gekk hún í grunnskóla og lauk þaðan landsprófi vorið 1965. Starfsferill Sigríðar hefur verið fjölbreyttur í gegnum árin. Eftir að hún eignaðist börnin var hún heimavinnandi um nokkurra ára skeið. Þau hjónin fluttu síðan á Blönduós 1979, þar sem þau bjuggu allt fram til 1991. Á þessum tíma gegndi Sigríður ýmsum störfum. Útför Sigríðar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði.
Sigríður Hólmsteinsdóttir (1952) Ytri-Hofdölum, Skagafirði
Anna Sigríður Hólmsteinsdóttir 16.10.1952 Ytri-Hofdölum, Skagafirði. Kvsk á Blönduósi 1970-1971.
Sigríður Höskuldsdóttir (1933) Kagaðarhóli
Sigríður Hrefna Jónsdóttir (1950) Hjaltabakka
Var á Hjaltabakka,Torfalækjahr., A-Hún. 1957.
Sigríður Hrönn Bjarkadóttir (1957) Blönduósi
Sigríður Hrönn Bjarkadóttir 2. des. 1957, umsjónarmaður félagsstarfs eldri borgara á Blönduósi.
Sigríður Ingibjörg Hjaltalín (1882-1951) Reykjavík
Sigríður Ingibjörg Hjaltalín 6. okt. 1882 - 12. jan. 1951, tvíburi. Var í Möðruvallaskóla, Möðruvallaklaustursókn, Eyj. 1901. Var í Reykjavík 1930. Andaðist á Elliheimilinu Grund, kjörforeldrar Jón Andrésson Hjaltalín f. 21.3.1840, d.15.10.1908 skólastjóri og kona hans 1864; Margrét Guðrún Thorstensen Hjaltalín f. 24.5.1833, d.12.6.1903.
Sigríður Ingibjörg Ólafsdóttir (1858-1934) Dalkoti á Vatnsnesi
Sigríður Ingibjörg Ólafsdóttir 4.2.1858 - 16.1.1934. Var í Hindisvík, Tjarnarsókn, Hún. 1860. Var í Tungu, Tjarnarsókn, Hún. 1880. Var á Gnýsstöðum á Vatnsnesi 1881 og 1883. Húsfreyja í Dalkoti á Vatnsnesi. Var í Múla, Kirkjuhvammssókn, V-Hún. 1930.
Sigríður Ingimundardóttir (1936) Sólheimum
Sigríður Ingimundardóttir 5. júní 1936. Húsmóðir og hannyrðakona Sólheimum Svínavatnshreppi.
Sigríður Jakobsdóttir (1955) Sandgerði
Sigríður Jakobsdóttir 26. nóv. 1955. Akureyri, Kvennaskólanum á Blönduósi 1973-1974.
Sigríður Jensdóttir (1957) Reykjaskóla
Íþróttakennari á Sauðárkróki, var í Reykjaskóla 1975, fædd á Flateyri.
Sigríður Jóhannesdóttir (1851-1890) Glæsibæ Skagafirði
Sigríður Jóhannesdóttir 22. janúar 1851 - 26. október 1890. Húsfreyja í Glæsibæ í Staðarhr., Skag. Var á Hranastöðum, Hrafnagilssókn, Eyj. 1860. [Líklega dáið 26.10.1891]
Sigríður Jóhannsdóttir (1906-1970) Syðstu-Grund í Blönduhlíð.
Sigríður Jónasdóttir (1850-1942) Melstað
Sigríður Jónasdóttir 10. júní 1850 - 15. mars 1942. Húsfreyja á Barði, Melstaðarsókn, V-Hún. 1930. Húsfreyja á Reynivöllum í Kjós og síðar á Mel í Miðfirði.
Sigríður Jónasdóttir (1857-1925) Árbakka
Sigríður Jónasdóttir 17.8.1857 - 14.9.1925. Húsfreyja Holtastöðum 1880, á Syðri-Ey, Höskuldsstaðasókn, Hún. 1890. Húsfreyja í Árbakka, Spákonufellssókn, Hún. 1901.
Sigríður Jónasdóttir (1875-1959) Miðhópi
Sigríður Ingibjörg Jónasdóttir 15.12.1875 -18.4.1959. Ljósmóðir. Var á Miðhópi, Víðidalstungusókn, V-Hún. 1930 og 1957.
Sigríður Jónsdóttir (1806-1892) Sauðanesi og Torfalæk
Sigríður Jónsdóttir 22. sept. 1806 - 20. apríl 1892. Húsfreyja í Sauðanesi, Hjaltabakkasókn, Hún. 1845 og Torfalæk