Identity area
Type of entity
Person
Authorized form of name
Sigríður Guðmundsdóttir (1862-1912) vk Blönduósi frá Kollugerði
Parallel form(s) of name
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
12.2.1862 - 12.1.1912
History
Sigríður Guðmundsdóttir 12.2.1862 - 12.1.1912. Var á Svangrund, Höskuldsstaðarsókn, Hún. 1870. Vinnukona, ekkja, Möllershúsi á Blönduósi 1890 og 1901. Lausakona, ekkja á Kornsá, Undirfellssókn, A-Hún. 1910.
Places
Legal status
Functions, occupations and activities
Mandates/sources of authority
Sigríður þótti góður kvenkostur og skorti ekki biðla. Guðmundu föður hennar þótti vænst um hana af börnum sínum, enda bar hún nafn móður hans.
Er piltar fóru að manga til við hana, sagðist hann engum gefa Siggu sína og alls ekki láta hana fyrir lítið. Sigríður lofaðist mann er hét Jón Jónsson kynjaður af Vatnsnesi.
Guðmundur sagði að Jón hefði goldið sér sex ær fyrir hana og héldu gárungarnir þeirri sögu á lofti.
Út frá því orti Ketilríður Friðgeirsdóttir
Sinnishalla seimagná
Sat hjá rollunérðri.
Fraus ei pollum ástar á
Úti í Kollugerði.
Internal structures/genealogy
Foreldrar hennar; Guðmundur Helgason 21. júlí 1829 - 9. sept. 1915. Flutti með foreldrum frá Holtastöðum í Langadal út í Vatnahverfi, líklega að Breiðavaði 1844. Var á Breiðavaði, Holtastaðasókn, Hún. 1845. Fór frá Breiðavaði í vinnumennsku að Mosfelli í Svínadal, A-Hún. 1849 og var þar til 1851 er hann flutti að Torfalæk á Ásum. Flutti frá Hjaltabakka á Ásum að Þverá í Spákonufellssókn 1859. Vinnumaður á Þverá, Spákonufellssókn, Hún. 1860. Húsmaður á Svangrund, Höskuldsstaðarsókn, Hún. 1870. Bóndi í Kollugerði á Skagaströnd. Foreldrar. skv. Borgfirskum æviskrám IV. bindi 339: Helgi Guðmundsson, f. 21.8.1801 og Sigríður Guðbrandsdóttir, það er rangt, og kona hans 29.9.1860; Efemía Gísladóttir 13. október 1835 - 2. febrúar 1921. Var á Sölvabakka, Höskuldstaðasókn, Hún. 1845. Vinnukona á Þverá, Spákonufellssókn, Hún. 1860. Húsmannsfrú á Svangrund, Höskuldsstaðarsókn, Hún. 1870. Húsfreyja í Kollugerði.
Systkini hennar;
1) Gísli Guðmundsson 23. ágúst 1868 - 28. september 1953 Bóndi og meðhjálpari. Bóndi á Sölvabakka í Engihlíðarhr., A.-Hún. Verkamaður á Lindargötu 43 b, Reykjavík 1930. Kona Gísla 5.12.1896; Anna Halldóra Bessadóttir 4. júlí 1877 - 27. júlí 1952 Húsfreyja á Sölvabakka í Engihlíðarhr., A-Hún. Faðir hennar Bessi Þorleifsson.
2) Guðlaugur Guðmundsson 14. september 1870 - 6. febrúar 1951 Var á Vakursstöðum, Hofssókn, A-Hún. 1930. Verkamaður á Hnappsstöðum og bóndi á Sæunnarstöðum í Vindhælishr., A-Hún. Kona hans 3.5.1895; Arnbjörg Þorsteinsdóttir 25. júlí 1872 - 13. nóvember 1963 Var á Vakursstöðum, Hofssókn, A-Hún. 1930. Var í Sævarlandi, Höfðahr., A-Hún. 1957.
3) Ragnheiður Guðmundsdóttir 6. september 1873 - 13. október 1951 Húsfreyja í Skrapatungu í Laxárdal fremri, A-Hún. Fór þaðan til Vesturheims 1900.
4) Sigurlaug Halla Guðmundsdóttir 10. febrúar 1876 - 8. september 1963 Húsfreyja á Núpi, Hofssókn, A-Hún. 1930. Var á Núpi, Vindhælishr., A-Hún. 1957. Húsfreyja. Maður hennar; Jón Guðmundsson 5. desember 1877 - 14. ágúst 1959 Barn þeirra í Valdarásseli, Víðidalstungusókn, Hún. 1880. Var á Núpi, Vindhælishr., A-Hún. 1957. Bóndi.
5) Samúel Guðmundsson 25. desember 1878 - 11. júlí 1951. Húsbóndi í Reykjavík 1910. Múrarameistari í Reykjavík. Kona hans; Ingibjörg Danivalsdóttir 17. maí 1879 - 18. júní 1954 Húsfreyja í Reykjavík 1910. Faðir hennar Danival Kristjánsson (1845-1925). Dóttir Samúels; Emelía (1916-1994) kona Sigurðar Möller (1915-1970) sonur Þorbjargar Pálmadóttur (1884) og Jóhanns Möller (1883).
Maður hennar 30.6.1881; Jón Jónsson um 1852, vinnumaður Björnólfsstöðum 1880, fæddur í Tjarnarsókn. Jón og Sigríður voru stutt saman því hann varð bráðkvaddur inni í sölubúð Jóhanns Möllers á Blönduósi, þau barnlaus.
Barnsfaðir hennar; Bogi Sigurðsson 8.3.1858 - 23.6.1930. Verslunarþjónn á Skagaströnd, Spákonufellssókn, Hún. 1880. Húsbóndi í Verslunarhúsinu í Búðardal, Hjarðarholtssókn, Dal. 1901. Kaupmaður og símstjóri í Búðardal. „Mikilhæfur maður og einkar vel að sér í þjóðlegum fræðum.“ Segir í Eylendu.
Dóttir þeirra
1) Alvilda María Friðrika Bogadóttir 11.3.1887 - 22.3.1955; Húsfreyja í Þrándarkoti, Hjarðarholtssókn, Dal. 1930. Húsfreyja í Ljárskógaseli og Þrándarkoti í Laxárdalshr., Dal.
General context
Relationships area
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the associate of
Sigríður Guðmundsdóttir (1862-1912) vk Blönduósi frá Kollugerði
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the sibling of
Sigríður Guðmundsdóttir (1862-1912) vk Blönduósi frá Kollugerði
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the sibling of
Sigríður Guðmundsdóttir (1862-1912) vk Blönduósi frá Kollugerði
Dates of relationship
Description of relationship
Access points area
Subject access points
Place access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Maintained by
Institution identifier
IS HAH
Rules and/or conventions used
Status
Final
Level of detail
Full
Dates of creation, revision and deletion
GPJ skráning 10.11.2020
Language(s)
- Icelandic
Script(s)
Sources
®GPJ ættfræði
sjá Mannaferðir og fornar slóðir bls 170, eftir M.B.