Margrét Ingibjörg Ólafsdóttir Barrdal (1880-1960) Winnipeg
- Person
- 24.10.1880 - 10.2.1960
Fór til Vesturheims 1887 frá Aðalbreiðu, Torfastaðahreppi, Hún.
Margrét Ingibjörg Ólafsdóttir Barrdal (1880-1960) Winnipeg
Fór til Vesturheims 1887 frá Aðalbreiðu, Torfastaðahreppi, Hún.
Margrét J Frederiksen (1917-2003) Reykjavík
Margrét Theodóra J. Frederiksen fæddist á Blönduósi hinn 1. mars 1917. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Holtsbúð, Garðabæ, hinn 17. desember síðastliðinn.
Margrét og Harry bjuggu lengst af í Reykjavík en síðar í Garðabæ. Á árunum 1947-1949 bjuggu þau í Kaupmannahöfn og 1962-1964 í Hamborg.
Útför Margrétar fer fram frá Háteigskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15.
Margrét Jakobsdóttir Líndal (1920-2011)
Margrét Jakobsdóttir Líndal var fædd á Lækjamóti í Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu 29. maí 1920. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 8. október 2011. Margrét ólst upp á Lækjamóti þar sem hún kynntist störfum á stóru sveitaheimili og heimilisiðnaði. Þar voru fyrstu kynni hennar af tóvinnu og hreifst hún mjög af þeim vinnubrögðum, sem þá voru óðum að leggjast af, en síðar á ævi sinni rifjaði hún upp þessa þekkingu sína og kenndi öðrum. Útför Margrétar fer fram frá Áskirkju í dag, 21. október 2011 og hefst athöfnin kl. 13.
Margrét Jóhannesdóttir (1910-1976) ráðskona Lundi og Karlsminni Skagaströnd
Margrét Jóhannesdóttir, (sögð Jóhannsdóttir í íslendingabók) 13. júní 1910 - 25. jan. 1976. Var í Lundi, Höfðahr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Kópavogi.
Margrét Jóhannesdóttir (1916-2000) Botnastöðum
Margrét Jóhannesdóttir fæddist á Sauðárkróki 23. maí 1916. Hún lést á dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki mánudaginn 16. október síðastliðinn. Útför Margrétar fer fram frá Sauðárkrókskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14.
Margrét Jóhannesdóttir (1927) Blönduósi
Margrét Jóhannesdóttir (1945) Auðunnarstöðum
Margrét Jóhannesdóttir 27. apríl 1945. Auðunnarstöðum.
Margrét Jónasdóttir (1879-1961) Eyjólfsstöðum
Margrét Oddný Jónasdóttir 10.10.1879 - 4.7.1961. Húsfreyja á Eyjólfsstöðum, Undirfellssókn, A-Hún. 1930. Húsfreyja á Eyjólfsstöðum í Vatnsdal, Áshr., A-Hún
Margrét Jónasdóttir (1903-1992) Urriðaá
Margrét Jónasdóttir 28.8.1903 - 06.6.1992. Vinnukona í Káradalstungu, Undirfellssókn, A-Hún. 1930. Var að Urriðaá, Ytri-Torfustaðahr., V-Hún. 1957. Húsfreyja þar. Síðast bús. í Ytri-Torfustaðahreppi.
Margrét Jónatansdóttir Líndal (1917-1991) frá Holtastöðum
Sviplegt fráfall Margrétar Jónatansdóttur Líndal kom mér sem öðrum á óvart. Þorgeir sonur hennar hringdi til mín síðla dags 12. mars sl. og sagði mér að hún hefði orðið bráðkvödd daginn áður, þarsem þau hjón voru á skíðaferð í Bláfjöllum.
Margrét fæddist á Holtastöðum í Langadal í Húnavatnssýslu 2. september 1917.
Margrét Jónína Jakobsdóttir (1892-1984) Sigríðarstöðum Vesturhópi
Margrét Jónína Jakobsdóttir 8.5.1892 - 19.3.1984. Vinnukona í Ásbjarnarnesi, Vesturhópshólasókn, V-Hún. 1930. Var í Ásbjarnarnesi, Þverárhr., V-Hún. 1957. Síðast bús. í Þverárhreppi.
Margrét Jónína Karlsdóttir (1893-1991)
Var á Bjargi, Staðabakkasókn, V-Hún. 1930. Húsfreyja í Reykjavík 1945. Síðast bús. í Reykjavík. Í dag, þriðjudaginn 3. september, fer fram útför Margrétar Jónínu Karlsdóttur, lengi húsfreyju á Birkimel 6 hér í borg, sem andaðist 25. ágúst sl. Hún fæddist á Bjargi í Miðfirði fyrsta sumardag 1893, sem þá bar upp á 20. apríl.
Margrét var forkunnarfríð sýnum, höfðingleg í fasi og allri framkomu, ljúf í viðmóti og allri umgengni ásamt góðvild og hlýju í garð allra samferðamanna á lífsleiðinni.
Margrét Jónsdóttir (1835-1927) Vesturhópshólum
Margrét Jónsdóttir 27. nóvember 1835 - 15. september 1927. Brekku í Víðimýrarsókn 1835. Húsmóðir í Vesturhópshólum, Vesturhópshólasókn, Hún. 1880. Var í Reykjavík 1910.
Margrét Jónsdóttir (1854-1941) Ytri-Bakka Hörgárdal
Margrét Ásdís Jónsdóttir 1. mars 1854 - 18. apríl 1941. Var á Þrastarhóli, Möðruvallarklausturssókn, Eyj. 1860. Húsfreyja í Sæborg, Möðruvallaklausturssókn, Eyj. 1930.
Margrét Jónsdóttir (1875-1956) kennari Kvsk 1932-1939
Margrét Jónsdóttir 24. mars 1875 - 28. apríl 1956. Handavinnukennari á Akureyri 1930 og Kvsk á Blönduósi 1932-1939.
Margrét Jónsdóttir (1891-1956) Akranesi
Margrét Jónsdóttir 15.2.1891 - 9.11.1956. Húsfreyja á Vesturgötu 10, Akranesssókn, Borg. 1930. Húsfreyja Lambhúsum á Akranesi 1916
Margrét Jónsdóttir (1898-1984) frá Balaskarði
Var á Höskuldsstöðum, Hofssókn, A-Hún. 1930. Fósturforeldrar Jón Pálsson og Margrét Sigurðardóttir. Síðast bús. í Reykjavík. Kjörbarn: Margrét Guðrún Sveinbjarnardóttir, f. 05.01.1947 í Reykjavík.
Margrét Jónsdóttir (1912-2004) frá Fjalli í Kolbeinsdal
Jónína Margrét Jónsdóttir fæddist á Kaldrana á Skaga 10. júní 1912. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Skagafjarðar 23. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jón Klemensson frá Höfnum á Skaga, f. 1883, d. 1935, og Guðrún Ólöf Sigurðardóttir frá Ósbrekku, Ólafsfirði, f. 1883, d. 1972. Systkini Margrétar voru Klemensína Guðný, f. 1908, d. 1966 og Árni Svanberg, f. 1919, d. 1957.
Árið 1936, giftist Margrét, Víglundi Péturssyni, bónda og verkamanni, úr Svarfaðardal, f. 9.12. 1908, d. 1986. Sonur Margrétar og Víglundar er Pétur Símon Víglundsson tæknifulltrúi hjá Vinnueftirlitinu á Sauðárkróki, f. 28.8. 1937, kona hans er Anna Sigríður Hróðmarsdóttir mynd- og leirlistakona, f. 7.2. 1941. Þau eru búsett í Lundi í Varmahlíð. Fríða Ólafsdóttir, f. 1933, dóttir Guðnýjar systur Margrétar ólst upp hjá Margréti og Víglundi frá fimm ára aldri til þrettán ára aldurs. Leit Margrét alltaf á hana sem fósturdóttur sína. Fríða er gift Guðmundi Matthíassyni, f. 1932. Þau eru búsett á Ísafirði.
Pétur eignaðist fimm börn með fyrri konu sinni, Rögnu Efemíu Guðmundsdóttur, f. 23. 11.1938. Þau eru: 1) Guðmundur Svanberg, f. 1956, kvæntur Elísabetu Guðmundsdóttur, f. 1958, búsett í Mosfellsbæ. Þeirra börn eru; Sólveig Ragna, f. 1982, Gunnhildur Edda, f. 1984 og Guðmundur Smári, f. 1990. Auk þeirra á Guðmundur, Hugrúnu Helgu, f. 1977, með fyrri konu sinni Margréti Stefánsdóttur, f. 1955. Hugrún Helga er í sambúð með Arinbirni Þórarinssyni, f. 1974 og eiga þau soninn Elmar Atla, f. 2001. 2) Margrét Björg, f. 1957, gift Björgvini M. Guðmundssyni, f. 1954, búsett á Sauðárkróki. Þeirra börn eru: Katrín Eva, f. 1977, gift Stefáni, f. Jónssyni, f. 1972, þau eiga tvö börn; Kristófer Fannar, f. 1995 og Jónínu Margréti, f. 2002, Efemía Hrönn, f. 1982, Stefanía Fanney, f. 1985 og Viktor Sigvaldi, f. 1985. 3) Víglundur Rúnar, f. 1959, kvæntur Hafdísi E. Stefánsdóttur, f. 1959, búsett í Varmahlíð. Þeirra börn eru: Pétur Fannberg, f. 1983 og Ellen Ösp, f. 1987. 4) Sólborg Alda, f. 1962, gift Hallgrími H. Gunnarssyni, f. 1947, búsett í Mosfellsbæ. Þeirra dóttir er Brynhildur, f. 1995. 5) Ragnar Pétur, f. 1971, búsettur í Reykjavík. Börn hans og fyrrverandi konu hans Dóru Ingibjargar Valgarðsdóttur, f. 1972 eru; Margrét Petra, f. 1993, Halla Sigríður, f. 1999 og Haukur Steinn, f. 2001.
Margrét var í vist frá fimmtán ára aldri á Harrastöðum á Skagaströnd til 1931. Hún var síðan á Hólum í Hjaltadal í fimm ár, fyrst sem nemandi en síðan sem vinnukona. Þar kynntist hún eiginmanni sínum. Eftir það stundaði hún búskap og ýmis störf. Margrét og Víglundur bjuggu lengst af á Fjalli í Kolbeinsdal í Skagafirði og í Ásgeirsbrekku í Viðvíkursveit. Þau fluttu til Akureyrar 1958 en þegar Víglundur lést flutti hún til Sauðárkróks. Síðustu þrjú æviárin dvaldi hún á Heilbrigðisstofnun Skagafjarðar. Margrét var góðum skáldagáfum gædd og eftir hana hafa birst ljóð, sögur og frásagnir í blöðum og tímaritum undir skáldanafninu Margrét Jónsdóttir frá Fjalli.
Margrét Jónsdóttir (1915-1988) Blönduósi
Var á Akureyri 1930. Fósturfor: Jakob Karlsson og Kristín Sigurðardóttir. Var í Ágústshúsi, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Blönduóshreppi. Leikkona. F. 24. janúar 1915 skv. kb.
Margrét Valdimarsdóttir, móðir Möggu, var góð leikkona og hafði fallega söngrödd. Hún féll frá í blóma lífsins, daginn eftir að Magga fæddist.
Magga hlaut nafn hennar og leik- og sönghæfileika í vöggugjöf. Magga talaði alltaf um fósturforeldra sína og fóstursystur með mikilli ást og virðingu og samband systranna var einstaklega náið og kærleiksríkt.
Fósturfaðir hennar, Jakob Karlsson, var útibússtjóri Eimskipafélagsins á Akureyri og mikill at hafnamaður. Hann rak umfangsmikið bú á Lundi og var þar jafnan margt í heimili. Systurnar ólust uppvið öll algeng störf, úti sem inni. Magga minntist líka oft á góðan heimilisanda og margt var sér til gamans gert innan vébanda heimilisins.
Margrét Jónsdóttir (1954) Ártúnum
Var í Ártúnum, Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. 1957.
Margrét Jósefína Sigurðardóttir (1904-1996)
Margrét Sigurðardóttir fæddist á Eiðsstöðum í Blöndudal 3. janúar 1904. Hún lést á Héraðssjúkrahúsinu á Blönduósi 8. apríl síðastliðinn. Margrét var að hluta til alin upp hjá þeim hjónum Sveini Geirssyni og Sigrúnu Gunnarsdóttur, sem um nokkurt skeið bjuggu í Sléttárdal í Svínavatnshreppi og leit jafnan á þau sem fósturforeldra sína. Eftir það flutti hún í öldrunaríbúð við Héraðshælið á Blönduósi ásamt Soffíu systur sinni sem þá var orðin ekkja, og héldu þær þar heimili saman. Útför Margrétar fer fram frá Blönduóskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14.00
Margrét Katrín Jónsdóttir (1874-1954) Djúpavogi, Vopnafirði og Reykjavík
Margrét Katrín Jónsdóttir 31. des. 1874 - 13. júní 1954. Húsfreyja á Lækjargötu 8, Reykjavík 1930. Húsfreyja á Djúpavogi, Vopnafirði. Húsfreyja í Reykjavík 1945.
Margrét Kjartansdóttir (1965) Blönduósi
Margrét Arndís Kjartansdóttir f. 29. september 1965 Blönduósi
Margrét Kolka Haraldsdóttir (1948)
Margrét Kolka Haraldsdóttir f. 13.11. 1948, Reykjavík
Margrét Konráðsdóttir (1899-1974) Skagaströnd
Margrét Konráðsdóttir 2.9.1899 - 17.9.1974. Saumakona á Hringbraut 144, Reykjavík 1930. Vinnukona á Hofstöðum, Helgafellssókn, Snæf. 1920. Var í Höfðahr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Reykjavík.
Margrét Kristinsdóttir (1930-2012) Hafnarfirði
Margrét Kristinsdóttir fæddist í Reykjavík 26. mars 1930. Hún lést 24. nóvember 2012.
Útför Margrétar fer fram frá Jófríðarstaðarkirkju í Hafnarfirði í dag, 3. desember 2012, kl. 13.
Margrét Kristjánsdóttir (1887-1964) Þorsteinshúsi
Margrét Kristjánsdóttir 6. okt. 1887 - 19. maí 1964. Húsfreyja Þorsteinshúsi. Var í Margrétarhúsi [Þorsteinshúsi], Blönduóshr., A-Hún. 1957.
Margrét Kristjánsdóttir (1923-1996) Tröð í Önundarfirði
Margrét Kristjánsdóttir fæddist 3. febrúar 1923 á Vöðlum í Önundarfirði. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Eir 20. febrúar 1996. Útför Margrétar var gerð frá Bústaðakirkju 1.3.1996 og hófst athöfnin klukkan 13.30.
Margrét Kristjánsdóttir (1926-1999) Vatnsdalshólum
Margrét Kristjánsdóttir 5. mars 1926 - 4. júlí 1999. Var á Gauksmýri, Kirkjuhvammssókn, V-Hún. 1930. Bóndi á Vatnsdalshólum frá 1965.
Lengst voru þær mæðgur að Gauksmýri, þar andaðist Halldóra. Þá var Margrét á sjötta ári. Eftir að Margrét missti móður sína var hún í fóstri þar til hún kom að Grafarkoti í VesturHúnavatnssýslu. Þar var hún lengst samfellt eða til 15 ára aldurs, hjá Hólmfríði Helgu Jósefsdóttur (1876-1945) og Guðmundi Guðmundssyni (1873-1960). Frá Grafarkoti fór Margrét til föður síns að Vatnsdalshólum. Þegar faðir hennar andaðist árið 1970 tók Margrét við búinu.
Í Vatnsdalshólum bjó hún að undanskildum þrem árum á Hvammstanga og síðustu tveim árum ævi sinnar á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi.
Andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Margrét Kristófersdóttir (1884-1950) Vegamótum
Margrét Kristófersdóttir (1920-2004) Kúludalsá, frá Litlu-Borg
Margrét Aðalheiður Kristófersdóttir fæddist að Litlu-Borg í Vestur-Húnavatnssýslu 28. október 1920. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 2. apríl síðastliðinn. Útför Margrétar Aðalheiðar fer fram frá Akraneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14.
Margrét Lárusdóttir Stiesen (1898-1989)
Þann 24. ágúst sl. andaðist Margrét Lárusdóttir á endurhæfingardeild Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur, 91 árs. Margrét hét fullu nafni Jósefína Margrét Lárusdóttir Stiesen og fæddist 1. jan 1989 á Spákonufelli við Skagaströnd. Fram eftir ævi vann Margrét ýmis störf til sveita á Norðurlandi en 1932 flutti hún suður á land, þangað sem systir hennar hafði gifst Jóhanni Guðmundssyni frá Öxney.
Margrét var á heimili uppeldisdóttur sinnar, Sigríðar, frá því hún hóf búskap, og allt þar til hún flutti í eigið húsnæði 1968.
Guðrún Margrét Leifsdóttir 12. feb. 1938. Ljósmóðir frá Vindfelli í Vopnafirði.
Margrét Magnúsdóttir (1848-1921) frá Valdalæk
Júlíana Margrét Magnúsdóttir 14.9.1848 - 20.3.1921. Var í Hlíð, Kirkjuhvammssókn, Hún. 1860. Húsfreyja á Stöpum á Vatnsnesi, Hún.
Margrét Magnúsdóttir (1850-1945) Gilsstöðum
Margrét Magnúsdóttir 30. júní 1850 - 4. maí 1945 Húsfreyja á Gilsstöðum. Húsfreyja í Reykjavík 1910. Húsfreyja á Skólavörðustíg 25, Reykjavík 1930. Ekkja
Margrét Magnúsdóttir Ólsen (1857-1922) Stórólfshvoli Rang.
Margrét Magnúsdóttir Olsen 2. júní 1857 - 20. febrúar 1922 Var á Þingeyrum, Þingeyrarsókn, Hún. 1860. Húsfreyja á Stórólfshvoli, Stórólfshvolssókn, Rang. 1901. Húsfreyja í Reykjavík 1910.
Margrét Pétursdóttir (1883-1932) Blönduósi
Margrét Pétursdóttir f. 12.6.1883 - 8.9.1932. Péturshúsi Blönduósi (Hótelið) 1920.
Margrét Pétursdóttir (1892-1963) Stóru-Borg
Björg Margrét Pétursdóttir 3. nóvember 1892 - 17. júní 1963 Húsfreyja á Stóru-Borg, Vesturhópshólasókn, V-Hún. 1930. Var í Syðri-Stóru-Borg, Þverárhr., V-Hún. 1957.
Margrét Pétursdóttir (1912-2002)
Margrét Pétursdóttir var fædd að Holti í Ásum í Austur-Húnavatnssýslu 5. desember 1912. Margrét ólst upp á Holti fyrstu æviár sín en fjölskyldan flutti þaðan til Blönduóss. Snemma hóf Margrét að vinna fyrir sér og var í vist og vinnumennsku víða um land. Margrét flutti til Akureyrar árið 1939 og bjó þar alla tíð síðan. Hún tók virkan þátt í starfsemi Félags eldri borgara á Akureyri þegar hún lét af störfum, tómstundastarfi af ýmsu tagi og átti fast sæti í ferðalögum félagsins um landið. Hún stundaði alla tíð nokkuð umfangsmikla kartöflurækt og þá hafði hún mikla unun af því að fara til berja. Ástríða hennar á þeim vettvangi var mikil og þótt heilsunni hrakaði með árunum var hún ætíð mætt í Kollugerðismóa um miðjan ágúst að huga að berjum. Margrét ferðaðist mikið um landið, einkum með stéttarfélagi sínu Iðju og Félagi eldri borgara. Í þeim ferðum orti hún mikið af lausavísum og var yrkisefnið gjarnan það sem fyrir augu bar sem og gamanmál tengd ferðafélögunum.
Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 15. apríl 2002.
Útför Margrétar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Margrét Reginbaldsdóttir (1895-1955) Þverárdal
Sigríður Margrét Reginbaldsdóttir 10. mars 1895 - 28. apríl 1955. Húsfreyja í Þverárdal í Bólstaðarhlíð, A-Hún. Húsfreyja á Gili í Borgarsveit, Skag. Síðar á Sauðárkróki.
Margrét Sigríður Sveinbergsdóttir (1945) Sæbóli
Margrét Sigurðardóttir (1867-1947) Höskuldsstöðum
Margrét Sigurðardóttir 16. október 1867 - 22. febrúar 1947. Prófastsfrú á Höskuldsstöðum , frá Sæunnarstöðum.
Margrét Sigurðardóttir (1868-1927) Selkirk Manitoba
Margrét Stefanía Sigurðardóttir 4. des. 1868 - 2. apríl 1927. Var á Grænhóli í Sjávarborgarsókn, Skag. 1870. Fór til Vesturheims 1900 frá Hofsstaðaseli í Viðvíkurhreppi, Skag. Húsfreyja nærri Gimli og síðar í Selkirk, Manitoba, Kanada. Var í Selkirk, Manitoba, Kanada 1916.
Margrét Sigurðardóttir (1869-1962) Hvammi í Langadal
Margrét Sigurðardóttir 19. ágúst 1869 - 25. feb. 1962. Var í Bakka, Undirfellssókn, Hún. 1870. Tökubarn á Svertingsstöðum, Melstaðarsókn, Hún. 1880. Vinnukona á Marðarnúpi, Undirfellssókn, Hún. 1890. Vinnukona á Holtastöðum, Holtastaðasókn, Hún. 1901. Lausakona í Yzta-Gili, Holtastaðasókn, A-Hún. 1930. Húskona í Hvammi. Ógift. Manga með svartan vanga.
Margrét Sigurðardóttir (1919-1999) Enni
Arína Margrét Sigurðardóttir, húsfreyja og verslunarmaður, fæddist í Enni í Refsborgarsveit í Engihlíðarhreppi í A-Húnavatnssýslu hinn 10. september 1919. Hún lést á heimili sínu í Reykjavík 16. apríl síðastliðinn. A. Margrét ólst upp í Enni og bjó þar til 19 ára aldurs þegar hún fluttist til Reykjavíkur þar sem hún bjó síðan alla tíð til dauðadags.
Útför A. Margrétar fór fram í kyrrþey 23. apríl, að ósk hennar sjálfrar.
Margrét Sigurjónsdóttir (1888-1921) Akureyri
Margrét Sigurjónsdóttir Rist 20.7.1888 - 5.8.1921 af barnsförum. Var á Flatartungu, Silfrastaðasókn, Skag. 1890. Húsfreyja á Akureyri um 1911-21.
Margrét Sigvaldadóttir Blöndal (1830-1890) Hvammi Vatnsdal
Margrét Ólöf Sigvaldadóttir 29. júní 1830 - 3. október 1890 Var í Grímstungu, Grímstungusókn, Hún. 1845. Húsfreyja í Hvammi, Undirfellssókn, Hún. 1860. Nefnd Ólöf Margrét í Æ.A-Hún.
Margrét Snæbjörnsdóttir (1912-1983) Siglufirði
Margrét Snæbjörnsdóttir 8. ágúst 1912 - 13. desember 1983. Tökubarn Hvammi á Mýrum 1920. Vetrarstúlka á Akureyri 1930. Húsfreyja á Siglufirði, Húsavík og víðar. Síðast bús. í Reykjavík.
Margrét Stefánsdóttir (1873-1940) frá Flögu
Margrét Ingibjörg Stefánsdóttir 8. sept. 1873 - 29. mars 1940. Ráðskona Konráðs bróður síns í Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi. Síðast bústýra á Búðum á Snæfellsnesi. Fatasaumskennari. Dó ógift og barnlaus.
Margrét Sveinsdóttir (1866-1952) frá Staðarbakka
Margrét Sveinsdóttir 30. september 1866 - 12. júlí 1952. Húsfreyja í Garðastræti 13, Reykjavík 1930.
Margrét Þórðardóttir (1841-1938) prestfrú Hjaltabakka og Gaulverjabæ
Margrét Andrea Þórðardóttir 5.8.1841 - 5.1.1938. Ekkja á Sólvallagötu 33, Reykjavík 1930. Var í Reykjavík 1845. Húsfreyja í Gaulverjabæ. Nefndist Margarethe Andrea.
Margrét Þórðardóttir Ragúels (1901-1931) Akureyri
Olga Margrét Þórðardóttir Ragúels 2. jan. 1901 - 6. maí 1931. Skrifstofustúlka á Akureyri 1930. Kjörfor: Jóhann Ragúelsson Ragúels og Guðrún Davíðsdóttir Ragúels.
Margrét Þorsteinsdóttir (1836-1893) Skeggstöðum Svartárdal
Margrét Þorsteinsdóttir 16.5.1836 - 21.9.1893. Var á Ásastöðum [Æsustöðum], Bólstaðahlíðarsókn, Hún. 1845. Húsfreyja á Skeggstöðum, Bólstaðarhlíðarsókn, Hún. 1880. Húsfreyja á Skeggsstöðum í Svartárdal, A-Hún.
Margrét Þorsteinsdóttir (1874-1965) Hlíð Vatnsnesi
Margrét Þorsteinsdóttir (1881-1976) Hellissandi
Var í Lykkju, Útskálasókn, Gull. 1890. Húsfreyja á Hellissandi, Ingjaldshólssókn, Snæf. 1920. Síðast bús. í Reykjavík.
Margrét Þorvaldsdóttir (1944) Bræðraborg, Blönduósi
Margrét Þorvaldsdóttir 7. júní 1944, Bræðraborg, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Kvennaskólinn 1961-1962.
Margrét Tryggvadóttir (1911-2004) Stóru-Borg
Margrét Tryggvadóttir fæddist á Stóru-Borg í Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu 24. september 1911. Heimili hennar stóð þar lengst af og þar lést hún 26. júlí síðastliðinn. Margrét var húsfreyja á Stóru-Borg og um tíma sá hún á vetrum um söng- og danskennslu í farskóla Þverárhrepps en þar á heimilinu og á ýmsum fleiri bæjum var farskólinn hluta vetrar þar til hann lagðist af með tilkomu nýs skólahúsnæðis á Þorfinnsstöðum í Vesturhópi.
Útför Margrétar fer fram frá Breiðabólsstað í Vesturhópi í Vestur-Húnavatnssýslu í dag og hefst athöfnin klukkan 14.
Margrét Valdemarsdóttir (1949) Drangey, Skagaströnd
Margrét Valdemarsdóttir 18.6.1949. Var í Drangey, Höfðahr., A-Hún. 1957. Kvsk á Blönduósi 1966-1967.
María Auður Guðmundsdóttir (1885-1906) Unuhúsi
Var í Mjóstræti 8, Reykjavíkursókn, Gull. 1890.
María Benediktsdóttir (1919-2000) Mælifellsá
María Benediktsdóttir fæddist í Skálholtsvík í Strandasýslu 12. maí 1919. Húsfreyja á Mælifellsá á Efribyggð 1941-43, Brekkukoti í sömu sveit 1943-46 og Ljósalandi á Neðribyggð 1946-73 og síðar í Reykjavík og Kópavogi. Var á Óspakseyri í Óspakseyrarsókn, Strand. 1930. Fósturforeldrar Maríu voru Sigurgeir Ástgeirsson, bóndi og kaupmaður á Óspakseyri, og kona hans, Jensína Guðmundsdóttir. María stundaði húsmæðranám í Kvennaskólanum á Blönduósi 1938-1939.
Hún lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 14. janúar 2000. Útför Maríu fór fram frá Digraneskirkju 21.1.2000 og hófst athöfnin klukkan 15.
María Björnsdóttir (1916-2007) Björnshúsi Blönduósi
María Björg Björnsdóttir fæddist á Svangrund í Refasveit í A-Húnavatnssýslu 7. febrúar 1916.
Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 10. júlí 2007. Útför Maríu var gerð frá Bústaðakirkju 19.7.2007 og hófst athöfnin klukkan 13.
María Claessen (1880-1964) Reykjavík
María Kristín Valgarðsdóttir Claessen 25.4.1880 - 24.6.1964. Húsfreyja í Reykjavík 1910. Húsfreyja á Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík 1930.
María Emilía Eyjólfsdóttir (1891-1976) Pálmalundi
Tökubarn á Márstöðum, Undirfellssókn, Hún. 1901. Húsfreyja á Bergsstöðum við Kaplaskjólsveg, Reykjavík 1930. Ekkja. Síðast bús. í Reykjavík. Systir Haraldar Eyjólfssonar í Gautsdal,
María Gréta Sigurðardóttir (1926-2017) Sandgerði
María Gréta Sigurðardóttir [Maria Greta Abbey] 26. jan. 1926 - 3. jan. 2017. Sandgerði, lést á heimili sínu í Bel Air Maryland USA. Kvsk á Blönduósi 1943-1944
Minningarathöfn var haldin 13.5.2017 kl. 14
María Guðfinnsdóttir (1952) Keflavík
María Guðbjörg Guðfinnsdóttir 17.9.1952 Keflavík. Kvsk á Blönduósi 1969-1970.
María Guðmannsdóttir (1924-1996)
María Guðmannsdóttir (Lillý) fæddist í Hafnarfirði 19. febrúar 1924. Hún andaðist á Sjúkrahúsi Suðurnesja 4. júní síðastliðinn. Þau María og Lúðvík byggðu sér heimili á Skólavegi 18, Keflavík, og bjuggu þar lengst af. María helgaði sig heimilinu þar til hún hóf störf í mötuneyti Varnarliðsins árið 1967. Þar starfaði hún allt þar til hún veiktist alvarlega í ársbyrjun 1992 og dvaldi á Sjúkrahúsi Suðurnesja upp frá því. Árið áður, eða 1991, höfðu þau flust að Kirkjuvegi 1 í Keflavík (Hornbjarg), og hugðust eiga þar rólegt ævikvöld. Útför Maríu verður gerð frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14.
María Guðrún Steingrímsdóttir (1927-2013)
María Guðrún Steingrímsdóttir fæddist í Miklagarði í Saurbæ í Dalasýslu 6. júní 1927. Hún andaðist á Landspítalanum í Fossvogi, mánud. 4. feb. sl.Útför Maríu verður gerð frá Kópavogskirkju í dag, föstudaginn 15. feb. 2013, og hefst athöfnin kl. 15. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði.
María Hallgrímsdóttir (1905-1994) læknir Rvk
María Hallgrímsdóttir var fædd í Reykjavík 21. ágúst 1905. Hún lést í hjúkrunarheimilinu Eir 16. desember 1994. María lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1925 og embættisprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 1931. Það ár hélt hún til Danmerkur og starfaði þar sem læknir fram til ársins 1940, er hún hvarf aftur til Íslands og setti upp læknastofu í Reykjavík. Árið 1951 hóf hún störf við fæðingardeild Landspítalans og starfaði þar næstu 24 árin.
María var ógift og barnlaus. Útför hennar var gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík 29.12.1994.