Margrét Jónína Karlsdóttir (1893-1991)

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Margrét Jónína Karlsdóttir (1893-1991)

Parallel form(s) of name

  • Margrét Jónína Karlsdóttir (1893-1991) Bjargi

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      20.4.1893 - 25.8.1891

      History

      Var á Bjargi, Staðabakkasókn, V-Hún. 1930. Húsfreyja í Reykjavík 1945. Síðast bús. í Reykjavík. Í dag, þriðjudaginn 3. september, fer fram útför Margrétar Jónínu Karlsdóttur, lengi húsfreyju á Birkimel 6 hér í borg, sem andaðist 25. ágúst sl. Hún fæddist á Bjargi í Miðfirði fyrsta sumardag 1893, sem þá bar upp á 20. apríl.
      Margrét var forkunnarfríð sýnum, höfðingleg í fasi og allri framkomu, ljúf í viðmóti og allri umgengni ásamt góðvild og hlýju í garð allra samferðamanna á lífsleiðinni.

      Places

      Bjarg í Miðfirði: Akureyri: Reykjavík:

      Legal status

      Functions, occupations and activities

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Hún fæddist á Bjargi í Miðfirði fyrsta sumardag 1893, sem þá bar upp á 20. apríl, dóttir hjónanna Karls Ásgeirs Sigurgeirssonar og Ingibjargar Jóhannesdóttur, sem þar bjuggu allan sinn búskap. Foreldrar Karls voru Þingeyingar að ætt, hjónin Vigdís Halldórsdóttir og Sigurgeir Pálsson. Hann var annálað glæsimenni, fríður og höfðinglegur, allra manna mestur í vexti og sterkastur og iðkaði mjög íþróttir. Hann hafði söngrödd mikla og fagra og var víða kirkjuforsöngvari. Um Vigdísi er sagt, að hún væri "ágætiskona, í góðu meðallagi há og samsvaraði sér vel, glaðleg í viðmóti, með góðlegan, hreinan og fallegan svip". Hún dó 55 ára að aldri 1886. Þau Sigurgeir áttu 8 börn, sem komust til fullorðinsára. Þar af fluttust 5 til Vesturheims, Páll, Halldór, Ásdís, Arinbjörn og Ingunn.
      Sigurgeir fluttist vestur aldamótaárið. Hann andaðist árið 1925, 96 ára að aldri. Þeir feðgar tóku sér ættarnafnið Bardal þegar vestur kom og voru mjög vel þekktir, framtakssamir og duglegir landnemar.
      Helga, dóttir Sigurgeirs og Vigdísar, var móðir bændahöfðingjans Lárusar í Grímstungu og hans ágætu systkina.
      Guðrún Aðalbjörg, dóttir Sigurgeirs og Vigdísar, giftist, en dó ung og átti ekki afkomendur.
      Foreldrar Ingibjargar, konu Karls á Bjargi, voru hjónin Ólöf Jónsdóttir frá Hindisvík og Jóhannes, gullsmiður og bóndi á Auðunnarstöðum, Guðmundsson.
      Á þessu góða heimili ólst Margrét, elzta barn þessara hjóna, upp, ásamt fimm glæsilegum systkinum, sem nú eru öll látin. Þau voru: Vigdís, f. 12. okt. 1894, d. 11. maí 1914; Páll Sigurður, f. 8. nóv. 1896, bóndi á Bjargi; d. 26. marz 1980, Ólöf Ingibjörg, f. 12. maí 1898, d. 27. júní 1943; Sigurgeir, f. 29. marz 1908, bóndi á Bjargi, d. 4. okt. 1976, og Jóhannes, f. 22. maí 1909, d. 1. september 1920.
      Margrét giftist Axel Vilhelmssyni verslunarmanni 14. okt. 1917. Þau stofnuðu heimili á Akureyri og bjuggu þar, unz Axel lézt 31. marz 1927 frá fjórum ungum börnum þeirra hjóna. Þau voru:
      1) Anna, f. 24. ágúst 1918, ekkja, búsett á Hvammstanga;
      2) Karl Jóhannes, f. 7. ágúst 1920, d. 5. maí 1943, mikill músíkmaður og snilldarteiknari, gleðigjafi og vinsæll af öllum, sem kynntust honum;
      3) Páll, strætisvagnastjóri, Rvík, f. 29. júní 1922, d. 15. júlí 1988, kvæntur Sigríði Halldórsdóttur;
      4) Sigurgeir, vélstjóri, Rvík, f. 27. maí 1926, kvæntur Jónínu Guðmundsdóttur.
      Margrét átti son með Birni Jónssyni. Það er hinn frægi harmonikumeistari
      5) Grettir, f. 2. maí 1931, kvæntur Ernu Geirjónsdóttur.

      1. júlí 1933 giftist Margrét Arinbirni Árnasyni frá Neðri-Fitjum í Víðidal, ágætum manni. Þeirra heimili var áþekkt Bjargsheimilinu, þar ríkti glaðværð og gestrisni, hjálpsemi og umhyggja, ef eitthvað bjátaði á hjá náunganum, og engin fyrirhöfn annarra vegna talin eftir.
        Sonur þeirra hjóna er
        6) Árni, orgel- og fiðlusnillingur, f. 8. sept. 1934, kvæntur Lydíu Haraldsdóttur.
        Margrét eignaðist mannvænleg börn. Hið sama má segja um tengdabörnin og barnabörnin, allt er þetta gott og vel gefið fólk.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Jóhannes Karlsson (1909-1920) frá Bjargi í Miðfirði (22.5.1909 - 1.9.1920)

      Identifier of related entity

      HAH05462

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Jóhannes Karlsson (1909-1920) frá Bjargi í Miðfirði is the sibling of Margrét Jónína Karlsdóttir (1893-1991)

      Dates of relationship

      22.5.1909

      Description of relationship

      Related entity

      Sigurgeir Karlsson (1908-1976) Bjargi í Miðfirði (29.3.1908 - 4.10.1976)

      Identifier of related entity

      HAH04501

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Sigurgeir Karlsson (1908-1976) Bjargi í Miðfirði is the sibling of Margrét Jónína Karlsdóttir (1893-1991)

      Dates of relationship

      29.3.1908

      Description of relationship

      Related entity

      Axel Valdimar Vilhelmsson (1890-1927) Hvammstanga og Akureyri (21.2.1890 - 31.3.1927)

      Identifier of related entity

      HAH02530

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Axel Valdimar Vilhelmsson (1890-1927) Hvammstanga og Akureyri is the spouse of Margrét Jónína Karlsdóttir (1893-1991)

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Börn þeirra; 1) Anna Vilhelmína Axelsdóttir 24. ágúst 1918 - 11. júlí 2010 Bjargi, 2) Karl Jóhannes Axelsson 7. ágúst 1920 - 5. maí 1943 3) Páll Axelsson 29. júní 1922 - 15. júlí 1988 4) Sigurgeir Axelsson 27. maí 1926 - 18. júní 2001 Börn Margrétar 5) Grettir Björnsson, f. 2.5.1931, d. 20.10.2005, faðir hans var Björn Ingvar Jónsson, bóndi á Torfastöðum í Miðfirði, f. 1.10.1905, d. 6.3.1982. 6) Árni Arinbjarnarson 8. september 1934 - 1. mars 2015 Faðir hans var Finnur Arinbjörn Árnason 16.8.1904 - 11.1.1999 Símamaður í Reykjavík 1945.

      Related entity

      Lárus Björnsson (1889-1987) Grímstungu (10.12.1889 - 27.5.1987)

      Identifier of related entity

      HAH01709

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Lárus Björnsson (1889-1987) Grímstungu is the cousin of Margrét Jónína Karlsdóttir (1893-1991)

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Related entity

      Karl Axelsson (1920-1943) Bjargi í Miðfirði (7.8.1920 - 5.5.1943)

      Identifier of related entity

      HAH09043

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Karl Axelsson (1920-1943) Bjargi í Miðfirði is the child of Margrét Jónína Karlsdóttir (1893-1991)

      Dates of relationship

      7.8.1920

      Description of relationship

      Related entity

      Árni Arinbjarnarson (1934-2015) Fiðluleikari (8.9.1934 - 1.3.2015)

      Identifier of related entity

      HAH03519

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Árni Arinbjarnarson (1934-2015) Fiðluleikari is the child of Margrét Jónína Karlsdóttir (1893-1991)

      Dates of relationship

      8.9.1934

      Description of relationship

      Related entity

      Grettir Björnsson (1931-2005) harmonikuleikari (2.5.1931 - 20.10.2005)

      Identifier of related entity

      HAH01251

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Grettir Björnsson (1931-2005) harmonikuleikari is the child of Margrét Jónína Karlsdóttir (1893-1991)

      Dates of relationship

      2.5.1931

      Description of relationship

      Related entity

      Sigurgeir Axelsson (1926-2001) (27.5.1926 - 18.6.2001)

      Identifier of related entity

      HAH01957

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Sigurgeir Axelsson (1926-2001) is the child of Margrét Jónína Karlsdóttir (1893-1991)

      Dates of relationship

      27.5.1926

      Description of relationship

      Related entity

      Karl Ásgeir Sigurgeirsson (1863-1958) Bjargi í Miðfirði (1.10.1863 - 8.8.1958)

      Identifier of related entity

      HAH06656

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Karl Ásgeir Sigurgeirsson (1863-1958) Bjargi í Miðfirði is the parent of Margrét Jónína Karlsdóttir (1893-1991)

      Dates of relationship

      20.4.1893

      Description of relationship

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01750

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 5.7.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes