Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Páll Briem (1856-1904) amtmaður Akureyri
Hliðstæð nafnaform
- Páll Eggertsson Briem (1856-1904) amtmaður Akureyri
- Páll Jakob Briem (1856-1904) amtmaður Akureyri
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
- Páll Jakob Eggertsson Briem (1856-1904) amtmaður Akureyri
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
19.10.1856 - 17.12.1904
Saga
Amtmaður og alþingismaður á Akureyri. Bankastjóri við Íslandsbanka. Riddari af Dannebrog. Var á Espihóli, Hrafnagilssókn, Eyj. 1860. frá Espihóli, sýslumaður í Rang, amtmaður
Fæddur á Espihóli í Eyjafirði
Staðir
Réttindi
Stúdentspróf Lsk. 1878. Lögfræðipróf Hafnarháskóla 1884.
Starfssvið
Amtmaður og alþingismaður
Var fulltrúi hjá yfirréttarmálaflutningsmanni í Kaupmannahöfn 1884–1885. Hlaut 1885 styrk úr landssjóði til rannsókna á íslenskum lögum og vann að þeim í Reykjavík og Kaupmannahöfn 1885–1886. Sýslumaður í Dalasýslu 1886–1887, sat að Staðarfelli. Málaflutningsmaður við landsyfirréttinn 1887–1890. Sýslumaður í Rangárvallasýslu 1890–1894, sat fyrst í Odda, en síðan í Árbæ í Holtum. Skipaður frá 12. september 1894 amtmaður í norður- og austuramtinu, fluttist þá til Akureyrar, lausn með biðlaunum 1. ágúst 1904, er amtmannsembættin voru lögð niður. Varð þá bankastjóri við Íslandsbanka og fluttist til Reykjavíkur.
Skrifstofustjóri Alþingis 1885. Bæjarfulltrúi á Akureyri 1897–1900 og 1903–1904. Lögfræðingur (1897–1901).
Lagaheimild
Riddari af Dannebrog
Hvatamaður að stofnun Ræktunarfélags Norðurlands og formaður þess 1903–1904. Samdi frumvarp til stofnlaga um Búnaðarfélag Íslands. Sat á Búnaðarþingi 1901. Yfirskoðunarmaður landsreikninganna 1887 og 1889. Skipaður 1901 formaður milliþinganefndar í fátækramálum.
Ritaði greinar í tímarit og blöð um lögfræði og landsmál.
Ritstjóri: Dýravinurinn (1885).
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar; Eggert Ólafur Gunnlaugsson Briem 15. okt. 1811 - 11. mars 1894. Varð sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu 1848. Bjó á Espihóli 1848-1861. Sýslumaður á Espihóli, Hrafnagilssókn, Eyj. 1860. Settur amtmaður í Norður- og Austuramti 1852-53. Varð sýslumaður í Skagafjarðarsýslu 1861. Bjó á Reynistað í Skagafirði. Sýslumaður á Hjaltastöðum, Flugumýrarsókn, Skag. 1870. Varð riddari af Dannebrog 30.8.1880. Fyrrverandi sýslumaður í Lækjargötu 6, Reykjavíkursókn, Gull. 1890 og kona hans 18.8.1845; Ingibjörg Eiríksdóttir Briem 16. september 1827 - 15. september 1890. Var á Hamri, Borgarsókn, Mýr. 1835. Húsfreyja á Reynistað í Skagafirði.
Systkini;
1) Eiríkur Briem 17. júlí 1846 - 27. nóvember 1929. Skólapiltur á Espihóli, Hrafnagilssókn, Eyj. 1860. Prófastur, húsbóndi á Steinnesi, Þingeyrasókn, Hún. 1880. Fjarverandi. Prestaskólakennari, alþingismaður og prófessor í Reykjavík. Var í Reykjavík 1910. „Að mörgu hinn merkasti maður“, segir Einar prófastur. Kona hans 2.7.1874; Guðrún Gísladóttir 28. janúar 1848 - 2. mars 1893. Prestfrú. Var í Höfða, Vallanessókn, N-Múl. 1860. Prófastskona, húsfreyja í Steinnesi, Þingeyrasókn, Hún. 1880. Húsfreyja á Bókhlöðustíg 2, Reykjavíkursókn, Gull. 1890. Sonur þeirra var Eggert (1879-1939) í Viðey.
2) Gunnlaugur Eggertsson Briem 18. ágúst 1847 - 24. ágúst 1897. Var á Espihóli, Hrafnagilssókn, Eyj. 1860. Sýslufullmektugur á Reynistað, Reynistaðarsókn, Skag. 1880. Verslunarstjóri og alþingismaður í Hafnarfirði. Kona hans 7.11.1877; Frederike Caroline Briem Claessen 19. nóvember 1846 - 2. maí 1930. Var á Reynistað, Reynistaðarsókn, Skag. 1880. Húsfreyja í Hraunprýði, Garðasókn, Gull. 1890. Var í Reykjavík 1910. Var í Reykjavík. Ekkja frá Hafnarfirði. Nefnd Frederikke C. J. Briem í Alamanki.1932. Fædd Claessen.
3) Kristín Eggertsdóttir Claessen 14. október 1849 - 10. desember 1881. Var á Espihóli, Hrafnagilssókn, Eyj. 1860. Maður hennar 7.11.1876; Jean Valgard van Deurs Classen 9. október 1850 - 27. desember 1918. Kaupmaður á Sauðárkróki, síðar landsféhirðir í Reykjavík. Húsbóndi í Reykjavík 1910. Börn þeirra meðal annars; Ingibjörg (1878-1970) kona Jóns Þorlákssonar (1877-1935) fyrsta formanns Sjálfstæðisflokksins. María (1880-1964) móðir Gunnars Thoroddsen (1910-1983) borgarstjóra og forsætisráðherra. Kristín (1926) móðir Sólveigar Láru vígslubiskups á Hólum, faðir hennar var Guðmundur Benediktsson (1924-2005) ráðuneytisstjóri.
4) Ólafur Briem 28. janúar 1851 - 19. maí 1925. Bóndi og alþingismaður á Álfgeirsvöllum á Efribyggð, Skag. Kona hans 6.9.1884; Halldóra Pétursdóttir Briem 26. desember 1853 - 5. júlí 1937. Var í Valadal, Víðimýrarsókn, Skag. 1870. Var í Grímstungu í Vatnsdal 1875. Húsfreyja á Álfgeirsvöllum. Ekkja á Lindargötu 1 b, Reykjavík 1930. Fyrri maður hennar 20.5.1875; Þorsteinn Eggertsson 3. febrúar 1836 - 29. ágúst 1881 Var á Þóreyjarnúpi, Víðidalstungusókn, Hún. 1845. Var í Grímstungu, Grímstungusókn, Hún. 1870 og einnig 1875. Bóndi í Haukagili í Vatnsdal.
5) Halldór Briem 5. september 1852 - 29. júní 1929. Prestur og kennari, síðast bókavörður í Reykjavík. Húsbóndi í Reykjavík 1910. Var á Espihóli, Hrafnagilssókn, Eyj. 1860. Kona hans 30.9.1880; Susanna „Susie“ Taylor Briem 28. mars 1861 - 29. desember 1937. Húsfreyja í Reykjavík 1910. Ekkja á Laufásvegi 6, Reykjavík 1930. Nefnd Susie Briem á manntali 1930. Amerísk.
6) Elín Rannveig Briem 19. október 1856 - 4. desember 1937. Var á Hjaltastöðum, Flugumýrarsókn, Skag. 1870. Ráðskona á Bókhlöðustíg 7, Reykjavík 1930. Ekkja. Fyrrverandi skólaforstöðukona. Skólastjóri og kennari Kvsk á Blönduósi. Rit: Kvennafræðarinn 1889. Maður hennar 1.6.1895; Sæmundur Eyjólfsson 10. janúar 1861 - 18. maí 1896. Var í Síðumúla, Síðumúlasókn, Mýr. 1870. Búfræðingur frá Ólafsdalsskóla. Kennari, guðfræðingur og rithöfundur. M2 21.5.1903; Stefán Jónsson 27. október 1856 - 5. maí 1910. Var í Miklabæ, Miklabæjarsókn, Skag. 1860. Verslunarstjóri Gránufélagsins á Sauðárkróki. Systir hans Anna Hólmfríður (1856-1946) kona sra Pálma Þóroddssonar (1862-1955), þau voru foreldrar Þorbjargar (1884-1944) konu Jóhanns Möller (1883-1926) og Jóns S Pálmasonar (1886-1976) á Þingeyrum eiginmanns Huldu Á Stefánsdóttur skólastjóra Kvsk á Blönduósi. Sonur Stefáns var Jón Stefánsson (1881-1962) listmálari.
7) Sigurður Eggertsson Briem 12. september 1860 - 19. maí 1952. Sýslumaður, hæstaréttardómari og síðar póstmálastjóri í Reykjavík. Húsbóndi í Reykjavík 1910. Póstmálastjóri á Tjarnargötu 20, Reykjavík 1930. Kona hans 22.6.1899; Guðrún Ísleifsdóttir Briem f. 25. maí 1876 - 7. nóvember 1951. Húsfreyja í Reykjavík 1910. Húsfreyja á Tjarnargötu 20, Reykjavík 1930. Húsfreyja í Reykjavík 1945. Dóttir þeirra var Ása (1902-1947) kona Jóns Kjartanssonar (1893-1962) ritstjóra Morgunblaðsins og Ísafoldar.
8) Sigríður Eggertsdóttir Briem 14. nóvember 1862 - 9. janúar 1913. Kennari og húsmóðir. Húsfreyja á Bókhlöðustíg, Reykjavík. 1901. Maður hennar 8.6.1895; Helgi Eyjólfur Jónsson 31. október 1852 - 6. júní 1905. Var í Ökrum, Akrasókn, Mýr. 1860. Kaupmaður í Vallarstræti 4, Reykjavíkursókn, Gull. 1890. Kaupmaður í Borgarfirði og síðar bankaritari í Reykjavík.
9) Kristján Vilhjálmur Briem 18. janúar 1869 - 1. júní 1959. Prestur í Goðdölum í Skagafirði 1894-1899 og á Staðastað, Snæf. 1901-1912. Húsbóndi í Reykjavík 1910. Bankaritari á Hverfisgötu 98, Reykjavík 1930. Kona hans 19.4.1894; Steinunn Pétursdóttir Briem 10. mars 1870 - 31. maí 1962. tónlistarkennari.
10) Jóhanna Katrín Kristjana Eggertsdóttir Briem 2. febrúar 1872 - 4. desember 1962 Húsfreyja á Skólavörðustíg 4 c, Reykjavík 1930. Prestfrú á Hálsi í Fnjóskadal, í Gaulverjabæ í Flóa og Reykholti í Borgarfirði. Síðast bús á Laugarbökkum í Ölfusi, Árn. Maður hennar 27.7.1893; sra Einar Pálsson 24. júlí 1868 - 27. janúar 1951 Prestur á Hálsi í Fnjóskadal, Þing. 1893-1903, í Gaulverjabæ, Árn. 1903-1908 og í Reykholti, Borg.1908-1930. Uppgjafaprestur á Skólavörðustíg 4 c, Reykjavík 1930. Síðast skrifstofumaður í Reykjavík.
M1 19.3.1886; Kristín Guðmundsdóttir Briem 13. mars 1865 - 24. október 1887.
M2 21.6.1895; Álfheiður Helga Helgadóttir Briem 11. nóvember 1868 - 28. september 1962 Húsfreyja á Akureyri. Húsfreyja í Reykjavík 1910. Ekkja á Tjarnargötu 24, Reykjavík 1930.
Börn;
1) Kristinn Pálsson Briem 8. okt. 1887 - 18. júní 1970. Kaupmaður á Sauðárkróki 1930. Kaupmaður á Sauðárkróki.
2) Þórhildur Pálsdóttir Briem 7. des. 1896 - 12. mars 1991. Var í Reykjavík 1910. Húsfreyja í Bergstaðastræti 76, Reykjavík 1930. Húsfreyja í Reykjavík 1945.
3) Eggert Ólafur Pálsson Briem 6. júní 1898 - 8. maí 1985. Fyrrverandi skrifstofumaður á Tjarnargötu 24, Reykjavík 1930. Fulltrúi í Reykjavík.
4) Friede Ingibjörg Pálsdóttir Briem 7. okt. 1900 - 12. sept. 1997. Var í Reykjavík 1910. Húsfreyja í Reykjavík. Kennari og rak eigin fjölritunarstofu um árabil.
5) Helgi Pálsson Briem 18. júní 1902 - 2. ágúst 1981. Sendiherra í Svíþjóð, Þýskalandi og víðar. Var í Reykjavík 1910. Bankastjóri á Marargötu 3, Reykjavík 1930.
6) Kristín Þórdís Briem 1. apríl 1904 - 22. okt. 1998. Símamær, ritari og verslunarmaður. Var í Reykjavík 1910. Vélritari á Tjarnargötu 24, Reykjavík 1930. Síðast bús. í Reykjavík.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er foreldri
Páll Briem (1856-1904) amtmaður Akureyri
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er systkini
Páll Briem (1856-1904) amtmaður Akureyri
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er systkini
Páll Briem (1856-1904) amtmaður Akureyri
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS-HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Að venju eru upplýsingar frá Íslendingabók notaðar, ef þær stangast á við aðrar upplýsingar er þeim bætt við innan hornklofa [ ], ekki er tekin afstaða til mismunandi upplýsinga.
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ skráning 22.10.2023
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Heimildir
®GPJ ættfræði 22.10.2023
Íslendingabók
Alþingi. https://www.althingi.is/altext/cv/is/cv/P%C3%A1ll_Briem/457/?nfaerslunr=457
Athugasemdir um breytingar
Stafræn eining metadata
Aðgengi
Heiti skjals
P__ll_Jakob_Eggertsson_Briem1856-1904amtma__ur_Akureyri.jpg
Latitude
Longitude
Gerð miðla
Mynd
Mime-type
image/jpeg