Identity area
Type of entity
Corporate body
Authorized form of name
Bjarg Blönduósi
Parallel form(s) of name
- Vilmundarstaðir 1914
- Skúlahús
- Þuríðarhús
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
1911-
History
Bjarg 1911. Vilmundarstaðir 1914. Stækkað 1939, á sömu lóð, þó aðeins ofar, stóð hús Jóns Skagfjörð, síðar nefnt Solveigarhús.
Places
Blönduós gamli bærinn; Blöndubyggð 8:
Legal status
Stendur enn.
Functions, occupations and activities
12.6.1911 fær Þuríður Sæmundsdóttir 1800 ferfaðma ræktunarlóð ofan við veginn sem liggur út að Blöndubrúnni. (Síðar lóð Bjarna Pálssonar?). [ATHS hér gæti verið ruglingur og húsið hafi verið Þuríðar / Skúla hús]
25.10.1935 fær Kristinn Magnússon 0,58 ha lóð sem takmarkast af túnlóð Tómasar Jónssonar og Jónasar Illugasonar að sunnan. Túni Snorra Kristjánssonar að austan, og túni Theódórs Kristjánssonar að vestan. Með þessum samningi fellur eldri samningur úr gildi.
15.7.1939 fékk Kristinn Magnússon 1,6 ha lóð er takmarkast af eldri lóð hans að vestan, að sunnan og austan er óræktað land, en að norðan Blanda.
14.1.1942 skrifar Kristinn Magnússon hreppsnefnd og óskar eftir að fá lóð Loðdýraræktunarfélags Húnvetninga. Búið er að rífa flest hús, og fari restin í sumar. Telur hann stóran hluta landsins óhæft til ræktunar, en hann hafi þarna matjurtargarð.
10.10.1946 óskar Kristinn Magnússon eftir að fá leyfi fyrir Shell að setja niður bensíngeymi við útibú Shell. Fyrir eru bensíndælur á staðnum. Samþykkt.
20.7.1947 selur Pétur Guðmundsson, Kristni Magnússyni tún sitt. Hann tekur fram í kaupsamningi, að samkvæmt samningi við Sigríði systur sína , ekkju Böðvars Þorlákssonar, sem áður átti þetta tún, þá eru undanskildir tveir túnblettir, sem hann áður hafði selt þeim Kristni og Páli Kolka.
31.5.1955 hafa Theódór Kristjánsson og Eiríkur Halldórsson keypt tún af hreppnum í mýrunum sunnan Blöndu.
Mandates/sources of authority
Hús þetta byggði Þuríður Sæmundsdóttir 1911. Á sömu lóð þó aðeins ofar, stóð Skagfjörðshús, Jóns Skagfjörð, nefndist síðar Solveigarhús.
Fyrsta virðing á Vilmundarstöðum 18.2.1914; Stærð þess að utanmáli er 7,52 x 5,36 m. Hæð undir þak 5 m. Hús þetta er úr steinsteypu með topprisi 1 meter á hæð. Kjallari er grafinn ½ meter í jörð. Í honum er er steypt skilrúm þvert yfirog öðru megin við það steypt skilrúm eftir lengdinni og er þar sitt herbergið hvoru megin við það. Kjallarinn er allur óafpússaður og allt húsið að utan. Á fyrsta gólfi eru 4 herbergi öll þiljuð, veggfóðruð og máluð. Á öðru gólfi er aðeinslítil geymsla. Þakið er úr heilþykkum borðum á sperrur og þar yfir þakpappi.
Í húsinu er tvöföld múrpípa 1 eldavel og 1 ofn. Önnur múrpípuleiðsla er frá smiðju sem er í þeim enda kjallaranssem er óinnréttaður. Vatnsleiðsla er komin í húsið.
Við útidyr er steyptur skúr 2,38 x 1,5 m. hæð 4,5 m. Undir inngangi er geymsla með útidyrum. Lóð sú er fylgir húseign þessari 400 m2.
Kristinn Magnússon lét stækka húsið 1939. Brunametið 20.1.1940. Magnús bróðir hans skrifar í einni bóka sinna, að hann hefði verslað í þessu húsi nýbyggðu. Í húsinu bjuggu Skúli og Þuríður til 1930.
Sem sjá má af virðingagjörð hefur Skúli verið með smiðju sína í kjallaranum.
Kristinn Magnússon kaupir húsið af Þuríði og býr þar til 1952 er hann flutti að Kleifum. Þá kaupa Eiríkur Halldórsson og Björn sonur hans húsið.
Kaupsamningur var gerður 10.9.1951, en Kristinn hafði afnot af húsinu til 15.6.1952.
Húsinu fylgdi „Sá hluti Möllerslóð er ég hef eignast“ (Sjá afsal 20.7.1947).
8.3.1976 kaupir Konráð Eggertsson neðri hæð Bjargs af Birni.
Internal structures/genealogy
1911-1930- Skúli Benjamínsson f. 23. júlí 1875 d. 1. júlí 1963 sambýliskona; Þuríður Sæmundsdóttir f. 11. ágúst 1863 d. 14. maí 1948, sjá Þuríðarhús 1914.
Hjú og aðrir 1910;
Ingveldur Guðmundsdóttir (4. júní 1872) frá Geithömrum,
dóttir hennar;
Sigríður Guðrún Þorleifsdóttir (1909-2003) sjá Þorleifshús.
Uppeldisdóttir 1920;
1) Kristbjörg Eggertsdóttir f. 16. nóv. 1905 d. 9. des. 1985, Grund Reykjavík.
1930-1952- Kristinn Magnússon f. 13 mars 1897 á Ægissíðu, d. 26. nóv. 1979, maki 11. des. 1926; Ingileif Sæmundsdóttir f. 2. júní 1902, frá Stærra- Árskógi, d. 7. júní 1993, sjá Kleifa.
Börn þeirra;
1) Sæmundur Magnús (1930-2000) Kleifum,
2) Sigrún (1932-2003) Rvík,
3) Ásdís (1939).
Fósturbarn 1930-1940;
1) Jónína Sveinbjörg Björnsdóttir (1922-2003) bróðurdóttir Kristins.
1940- Jón Stefánsson. Gæti verið bróðir Magnúsar kaupmanns eða Jón á Kagaðarhóli.
1952- Eiríkur Halldórsson og Björn sonur hans kaupa húsið 1951, sjá Brúarland.
General context
Relationships area
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Access points area
Subject access points
Place access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Institution identifier
IS HAH-Blö
Rules and/or conventions used
Status
Final
Level of detail
Full
Dates of creation, revision and deletion
GPJ 13.5.2019
Language(s)
- Icelandic
Script(s)
Sources
®GPJ Býlaskrá Blönduóss 1876 - 1957
Upplýsingar um lóðamörk eru fengnar frá Jóni Arasyni (1949) í Skuld.
Skilningur á staðsetningu er alfarið minn. GPJ