Kristinn Magnússon (1897-1979) Kleifum

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Kristinn Magnússon (1897-1979) Kleifum

Parallel form(s) of name

  • Kristinn Magnússon (1897-1979) Kleifum

  • Kristinn Magnússon Kleifum

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      13.3.1897 - 26.11.1979

      History

      Kristinn var fæddur að Ægissíðu á Vatnsnesi 13. marz árið 1897, bóndi að Kleifum við Blönduós Fœddur 13. marz 1897-dáinn 26.nóv.1979 andaðist á sjúkrahúsinu á Blönduósi Kristinn Magnússon bóndi að Kleifum við Blönduós og var hann jarðsunginn frá Blönduóskirkju 1. des. að viðstöddu miklu fjölmenni, er sýndi ótvírætt þau ítök sem hinn látni átti í samferðamönnunum. Flest af fólkinu kom heim að Kleifum að athöfninni lokinni og naut veitinga og heimilishlýju fjölskyldunnar fram eftir kvöldi. Gott var þar að vera, sem jafnan á því ágæta heimili. Andlát Kristins bar ekki óvænt að.
      Kristinn Magnússon var bóndi í eðli sínu þótt ekki yrði það hlutskipti hans að reka búskap, fyrr en hann var nokkuð kominn yfir miðjan aldur. Hann fékk 10 ha. lands úr Blönduóslandi árið 1952 og síðar 5 ha. í viðbót. Reistu þau hjónin býlið Kleifar á landinu með hjálp barna sinna. Þarf raunar ekki annað en að líta heim að Kleifum til þess að sjá að þar hefir verið af mikilli alúð og smekkvísi að unnið. Fallegt tún og byggingar blasa við augum vegfarandans og skógarteigar með bæjarlæknum. Býlið hlaut líka 1. verðlaun fyrir snyrtimennsku og umgengni bújarða í fyrsta sinn er slík viðurkenning var veitt í Austur-Húnavatnssýslu, en það var árið 1972 á 20 ára afmæli landnáms á Kleifum.

      Places

      Ægissíða á Vatnsnesi: Gottorp 1903: Reykjavík: Bjarg á Blönduósi: Kleifar:

      Legal status

      Alþýðuskóla á Hvammstanga 1913-1915: KaupmaðurBlönduósi 1925-1944: Útibússtjóri KH 1944-1971: Bóndi:

      Functions, occupations and activities

      Fjölskyldan flutti svo að Gottorp í Víðidal vorið 1903, en vorið 1908 keypti elsti bróðirinn, Guðmundur, Guðrúnarstaði í Vatnsdal, en þá hafði sú jörð verið í eyði í tvö ár. Fóru foreldrar Guðmundar með honum að Guðrúnarstöðum og þeir bræðra hans er ekki voru í burtu farnir. Var Kristinn í þeirra hópi og var þá 11 ára.
      Haustið 1913 stofnaði Ásgeir Magnússon, bróðir Kristins, alþýðuskóla á Hvammstanga. Kristinn dvaldi við nám í skólanum tvo fyrstu veturna, sem hann starfaði, og var þar með búinn að fá allgóða menntun miðað við þær aðstæður er þá voru í skólamálum landsins. Sýndi það sig síðar að Kristni búnaðist vel að þessu námi sínu á langri og fjölbreyttri starfsæfi.
      Á unglingsárum var Kristinn Magnússon „kóngsins lausamaður" í Vatnsdalnum. Hann stundaði vegavinnu, heyskap, sláturhúsvinnu og var við skepnuhirðingu á vetrum. Lét honum þetta allt vel. Hann eignaðist kindur og reiðhesta átti hann. Hann var hestaunnandi og kunni vel að meta og fara með hesta. Er hestamannafélagið Neisti var stofnað árið 1943 var hann einn af stofnendum þess og félagi til æfiloka.
      Haustið 1923 seldi Kristinn allar kindur sínar og fór til Reykjavíkur, þá eftir áramótin. Magnús bróðir hans, síðar ritstjóri Storms, var þá ritstjóri landsmálablaðsins Vörður og vann Kristinn það sem eftir var vetrar við afgreiðslu blaðsins. Urðu nú þáttaskil í lífi Kristins Magnússonar. Einn dag, síðla um veturinn var hann á gangi í borginni. Rakst hann þá þar að, er átti að hefjast uppboð á vörum gjaldþrota fyrirtækis. Honum sýndist ráð að kaupa nokkuð af vörunum og þar sem uppboðshaldara leizt svo á hann að óhætt mundi að slá honum keypti hann nokkuð af varningnum og sendi norður til Blönduóss, þar sem hann seldi hann svo um vorið. Fór hann síðan heim að Guðrúnarstöðum í heyskapinn. Næsta vetur var Kristinn í Reykjavík og starfaði þá við afgreiðslu blaðsins Storms hjá Magnúsi bróður sínum. Og aftur keypti hann vörur og sendi til Blönduóss. Verzlaði hann svo með vörurnar fram að slætti en fór þá heim að Guðrúnarstöðum í heyskapinn. Á hverjum laugardagsmorgni fór Kristinn þó til Blönduóss og stundaði kaupskap sinn. Er þó þarna um vel 40 km vegalengd að ræða og komu nú hestar hans að liði. Er mér í barnsminni er Kristinn reið hjá garði í Þórormstungu á hesti sínum Geisla er hann hafði keypt af föður mínum. Var hesturinn fölrauður með mjög mikið bæði fax og tagl. Faxið var klofið og flaut beggja megin hálsins í jöfnun straumum aftur um bógana og í fang knapans. Kristinn dáði þennan hest sinn og minntist hans oft.

      Haustið 1925 setti Kristinn Magnússon upp fasta verzlun á Blönduósi í húsi Þuríðar Sæmundsen, en byggði sér fljótlega eigið verzlunarhús, þar í næsta nágrenni, á suðurbakka Blöndu. Verzlaði hann þar allt til ársins 1944 að hann, í byrjun ársins, seldi Kaupfélagi Húnvetninga hús sitt og verzlun. Samvinnuhugsjónin átti mikil ítök í Kristni og nú upphófst sá þáttur í lífsstarfi hans sem snéri þar að. Var
      hann upp frá þessu útibússtjóri kaupfélagsins í 27 ár eða til loka starfsaldurs síns.

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Kristinn var fæddur að Ægissíðu á Vatnsnesi 13. marz árið 1897. Þar bjuggu þá foreldrar hans þau Magnús Kristinsson frá Hólabaki í Þingi og kona hans Sigurlaug Guðmundsdóttir frá Enniskoti í Víðidal. Þau voru leiguliðar á jörðinni í 17 ár og eignuðust á þeim tíma 10 börn. Sex synir komust upp og var Kristinn þeirra yngstur.
      Sumarið 1925 var ung eyfirsk stúlka kaupakona í Þórormstungu í Vatnsdal, Ingileif Sæmundsdóttir skipstjóra Sæmundssonar. Fædd var hún í Stærra-Árskógi á Árskógsströnd, en ólst upp á Lómatjörn hjá Guðmundi föðurbróður sínum og Valgerði móðursystur sinni. Móðir Ingileifar og kona Sæmundar skipstjóra, Sigríður Jóhannesdóttir, hafði dáið er Ingileif var aðeins sex ára gömul. Fór Ingileif í Kvennaskólann á Blönduósi um haustið og var í skólanum veturinn 1925-1926. Slík urðu kynni Ingileifar og Kristins Magnússonar að þau gengu í hjónaband 11. des. árið 1926 og hlaut Kristinn þannig stóra vinninginn í happdrætti lífsins, eins og hann orðaði það sjálfur. Þótti jafnræði með þeim ungu hjónunum, enda reyndist svo. Vita það bezt þeir er gerst þekkja til.
      Börn þeirra Kleifahjóna eru þrjú:
      1) Magnús er veitt hefir búi foreldra sinna forstöðu, ásamt því að starfa með eigin vinnuvél á Blönduósi.
      2) Sigrún, búsett í Reykjavík, er gift Jóni Erlendssyni íþróttakennara og eiga þau tvær dætur og einn son.
      3) Ásdís, einnig búsett i Reykjavík, gift Kristjáni Thorlacíus yfirkennara og eiga þau fjórar dætur.
      Þá ólu þau Kleifahjónin upp bróðurdóttur Kristins,
      Jónínu Sveinbjörgu Bjömsdóttur, er búsett var á Akranesi, gift Karli Helgasyni íþróttakennara, en þau slitu samvistum og er Jónína nú búsett í Reykjavík.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Jakob Guðmundsson (1950) Blönduósi (1.4.1950 -)

      Identifier of related entity

      HAH05239

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Kristinn var móðurfaðir Guðlínar konu Gísla sonar Jakobs

      Related entity

      Ásgeir Theódór Magnússon (1886-1969) rithöfundur Reykjavík, frá Ægissíðu (7.3.1886 - 14.8.1969)

      Identifier of related entity

      HAH02081

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Ásgeir Theódór Magnússon (1886-1969) rithöfundur Reykjavík, frá Ægissíðu is the sibling of Kristinn Magnússon (1897-1979) Kleifum

      Dates of relationship

      13.3.1897

      Description of relationship

      Related entity

      Björn Magnússon (1887-1955) kennari og bóndi Rútsstöðum ov (11.9.1887 - 6.12.1955)

      Identifier of related entity

      HAH02873

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Björn Magnússon (1887-1955) kennari og bóndi Rútsstöðum ov is the sibling of Kristinn Magnússon (1897-1979) Kleifum

      Dates of relationship

      13.3.1897

      Description of relationship

      Related entity

      Sigþór Magnússon (1893-1918) Bókari Siglufirði, frá Ægissíðu (11.8.1893 - 7.7.1918)

      Identifier of related entity

      HAH06208

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Sigþór Magnússon (1893-1918) Bókari Siglufirði, frá Ægissíðu is the sibling of Kristinn Magnússon (1897-1979) Kleifum

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Related entity

      Guðmundur Magnússon (1884-1937) Guðrúnarstöðum (5.2.1884 - 10.4.1937)

      Identifier of related entity

      HAH04101

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðmundur Magnússon (1884-1937) Guðrúnarstöðum is the sibling of Kristinn Magnússon (1897-1979) Kleifum

      Dates of relationship

      13.3.1897

      Description of relationship

      Related entity

      Ingileif Sæmundsdóttir (1902-1993) Kleifum (2.6.1902 - 7.6.1993)

      Identifier of related entity

      HAH01513

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Ingileif Sæmundsdóttir (1902-1993) Kleifum is the spouse of Kristinn Magnússon (1897-1979) Kleifum

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Related entity

      Sigþrúður Guðmundsdóttir Blöndal (1926-2010) Guðrúnarstöðum (18.8.1926 - 5.10.2010)

      Identifier of related entity

      HAH01992

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Sigþrúður Guðmundsdóttir Blöndal (1926-2010) Guðrúnarstöðum is the cousin of Kristinn Magnússon (1897-1979) Kleifum

      Dates of relationship

      18.8.1926

      Description of relationship

      Bróðir Guðmundar föður Sigþrúðar

      Related entity

      Kleifar Blönduósi (1952 -)

      Identifier of related entity

      HAH00112

      Category of relationship

      hierarchical

      Type of relationship

      Kleifar Blönduósi is controlled by Kristinn Magnússon (1897-1979) Kleifum

      Dates of relationship

      1952

      Description of relationship

      Related entity

      Verslun Kristins Magnússonar 1933, Blöndubyggð 1Blönduósi (1925-)

      Identifier of related entity

      HAH00627

      Category of relationship

      hierarchical

      Type of relationship

      Verslun Kristins Magnússonar 1933, Blöndubyggð 1Blönduósi is controlled by Kristinn Magnússon (1897-1979) Kleifum

      Dates of relationship

      1933

      Description of relationship

      Related entity

      Bjarg Blönduósi (1911-)

      Identifier of related entity

      HAH00119

      Category of relationship

      hierarchical

      Type of relationship

      Bjarg Blönduósi is controlled by Kristinn Magnússon (1897-1979) Kleifum

      Dates of relationship

      1930

      Description of relationship

      1930 - 1952

      Related entity

      Sigrún Kristinsdóttir (1932-2003) Kleifum (26.3.1932 - 19.4.2003)

      Identifier of related entity

      HAH01923

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Sigrún Kristinsdóttir (1932-2003) Kleifum is the child of Kristinn Magnússon (1897-1979) Kleifum

      Dates of relationship

      23.3.1932

      Description of relationship

      Related entity

      Ásdís Kristinsdóttir (1939) Kleifum (29.4.1939 -)

      Identifier of related entity

      HAH03607

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Ásdís Kristinsdóttir (1939) Kleifum is the child of Kristinn Magnússon (1897-1979) Kleifum

      Dates of relationship

      29.4.1939

      Description of relationship

      Related entity

      Magnús Kristinsson (1930-2000) Kleifum (22.5.1930 - 17.11.2000)

      Identifier of related entity

      HAH02075

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Magnús Kristinsson (1930-2000) Kleifum is the child of Kristinn Magnússon (1897-1979) Kleifum

      Dates of relationship

      22.5.1930

      Description of relationship

      Related entity

      Magnús Kristinsson (1852-1925) Hólabaki (22.9.1852 - 3.10.1925)

      Identifier of related entity

      HAH06669

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Magnús Kristinsson (1852-1925) Hólabaki is the parent of Kristinn Magnússon (1897-1979) Kleifum

      Dates of relationship

      13.3.1897

      Description of relationship

      Related entity

      Sigurlaug Guðmundsdóttir (1853-1927) Hólabaki (30.9.1853 - 30.4.1927)

      Identifier of related entity

      HAH06669

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Sigurlaug Guðmundsdóttir (1853-1927) Hólabaki is the parent of Kristinn Magnússon (1897-1979) Kleifum

      Dates of relationship

      13.3.1897

      Description of relationship

      Related entity

      Jónína Björnsdóttir (1922-2003) Kleifum (16.6.1922 -18.5.2003)

      Identifier of related entity

      HAH01613

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Jónína Björnsdóttir (1922-2003) Kleifum is the child of Kristinn Magnússon (1897-1979) Kleifum

      Dates of relationship

      Description of relationship

      fósturdóttir, bróðurdóttir hans.

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01655

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Að venju eru upplýsingar frá Íslendingabók notaðar, ef þær stangast á við aðrar upplýsinga er þeim bætt við innan hornklofa [ ], ekki er tekin afstaða til mismunandi upplýsinga.

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 1.7.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Sources

        Maintenance notes