Spákonufell

Identity area

Type of entity

Corporate body

Authorized form of name

Spákonufell

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        (1950)

        History

        Spákonufell er landnámsjörð, var ætíð í bændaeign og hið mesta höfuðból. Þar bjó hin fræga Þórdís spákona, sem bærinn heitir eftir. Bærinn stendur við rætur Spákonufells, vel hýstur í gömlum stíl. Spákonufell var kirkjustaður til 1928. Við norðurenda túnsinshefur nú verið reist skilarétt fyrir Höfðahrepp.
        Núverandi eigandi jarðarinnar er Höfðahreppur. Engin hús eru á jörðinni en túnin nytjuð af íbúum í Höfðahreppi.

        Places

        Spákonufell [fjall]; Höfðahreppur; Árbakki; Hrafndalsá; Tungufelli; Kambadalsá [Kambaá]; Smiðjugil; Sæunnarstaðir; Bergsstaðir; Kambadalstjarnir; Almenningur í Skagaheiði; Fossbunga; Fossdalsá; Fjallabaksá; Botnalækur; Botnaflá; Hof; Hofsland; Litlibakki; Botnaflá; Ölduhóll; Brandaskarðsgilsbotn; Harrastaðir; Leynidalir; Borgarhaus; Grenjadalur; Landamerkjagil; Sandlækur; Sandlækjarós; Finnstaðir; Háagerði; Höfðahólar; Kelduós; Grjótrjettin; Spákonufellshöfði; Kornhús; Assistentsstofa; Sandendi; Vindhæli; Hraun; Langatangi; Deildarhamar; Höskuldsstaðkirkja:

        Legal status

        Functions, occupations and activities

        Mandates/sources of authority

        Internal structures/genealogy

        1935- Jakob Jens Jóhannsson 11. apríl 1887 - 5. júní 1935. Bóndi á Finnsstöðum og Spákonufelli á Skagaströnd, A-Hún. Kona hans; Emma Pálína Jónsdóttir 4. ágúst 1890 - 29. feb. 1976. Húsfreyja á Efra-Spákonufelli, Hofssókn, A-Hún. 1930. Húsfreyja á Finnsstöðum og Spákonufelli, Vindhælishr., A-Hún. Síðast bús. í Reykjavík. Nefnd Pálína Emma í Æ.A-Hún. og Lögfr. Spákonufelli til 1948.

        General context

        Um Spákonuarf – Gripla, 1. Hefti (01.01.1980), Bls. 102-134. http://timarit.is/view_page_init.jsp?gegnirId=000507985

        Rekamörk þurfa nokkurrar athugunar við.
        1) Fyrst er talinn Spákonuarfur milli „Varar ennar fornu og Deildarhamars“. Fornavör er í Hraunsvík, og nefnt hóp er á milli Fornuvarar og Deildarhamars. Nafn þessa hamars er ekki á Uppdrætti íslands (1972, 1:250.000), en hann er auðfundinn á uppdrættinum, því að sýslumörkin liggja yfir hann. Þessi rekafjara er ekki víðáttumikil, en er sögð ein hin rekasælasta á öllum Skaga.
        2) Næst er bilið milli Laxár í Nesjum og Fossár. Innan þessara takmarka voru fjórar jarðir í byggð, þegar Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns var skráð (kaflinn um Vindhælishrepp dagsettur 23. október 1708): Saurar í Nesjum, Kálfshamar í Nesjum, Sviðningur í Nesjum og Björg (Bjargir). Segir þar um Saura að rekavon sé lítil, og á jörðin allan viðreka, en hvalreki er Spákonuarfur og hefur ei jörðunni fylgt um langan aldur. Um Kálfshamar er sagt að rekavon sé sæmileg, en hvalrekinn er kallaður Spákonuarfur og heyrir ekki jörðunni til. Síðan er bætt við: „Hvalrekann eiga Höskuldsstaðir og aðrar kirkjur, vide ut supra Höskuldsstöðum“.
        Um næstu tvær jarðir er ekki annars getið en að þær eigi sjálfar allan reka, en hann er að vísu sagður mjög torsóttur niður há björg.
        3) Næsta rekamark frá Rauðaskriðu til Hrafnsár hefur verið endurtekið athugasemdalaust í máldögum Höskuldsstaðakirkju og víðar uns kemur að dómi frá árinu 1634. Guðmundur Hákonarson lögsótti Bjarna Ólafsson, bónda á Bakka undir Brekkum, fyrir að hafa hirt hvalspart, sem Guðmundur taldi eign Þingeyrakirkju og Hvammskirkju. Hvalinn hafi rekið á Bakkafjöru, og hafi bæði Höskuldsstaðamenn og Spákonufellsmenn tekið hlut sinna kirkna af þessum hval í samræmi við máldaga. Því næst bar Guðmundur fram gamlan kirknanna máldaga er tíðlega almennilega kallast Spákonuarfur, hann svo hljóðandi: Spákonuarfur er frá milli Fornuvör og vestur til Deildarhamars, þar næst vestur til Laxár og Fossár, þá frá Rauðaskriðu til Rafnsár, þá í Hellirsvík til marks við Finnsstaði; fyrir Finnsstöðum fimmdeildur, hverfa þrír hlutir til Spákonuarfs en tveir til lands; fyrir Árbakka er Spákonuarfur að öllum hluta, þá næst inn frá Þórlaugardys og í miðja Selvík. Heldur nú áðurskrifaður Guðmundur að hvalinn hafi á fjöru rekið í því takmarki sem máldaginn tilvísar og ákveður (frá Rauðaskriðu til Rafnsár). Bjarni bóndi hefur lagt fram bréf frá 1568, þar sem eigandi Bakka lýsir rekaeign jarðarinnar svo að Bakki eigi land og reka í Stóruþúfu fyrir innan Rafnsá og hálfa Þrætuvík í reka, og hennar land og reki sé útí Rauðasuntu (svo) eð neðra og þar réttsýnis uppá Sinubrún og svo gagnvart inn í Rafnsá eð efra . . .‘.
        Í dómsforsendum segja dómarar m. a.: með því vér vitum að Spákonuarfur eður máldagi er að nokkru leyti fyrir jarðarinnar Bakka landi út frá Rafnsá, er bréf Páls (eiganda jarðarinnar 1568) vill allan frá sneyða, en fáum nú ei fullkomlega að vita hvört hann er að öllu leyti fyrir þessarar jarðar landi, sakir ókunnugleika þess örnefnis Rauðaskriðu (er í áður skrifuðum máldaga stendur) hvört hún er utar fyrir Bakkalandi en hvalinn rak upp, eður kann sunnar vera . . .
        Dómarar biðja Guðmund Hákonarson segja hvar Rauðaskriða sé á þessu svæði, og reynist satt að hún sé út frá því plássi sem oftgreindan hval á rak, þann Bjarni að sér tók, þá dæmum vér þann hvalpart eigu Guðmundar Hákonarsonar Þingeyra og Hvamms kirkna vegna, slíkt sem kirkjunum til heyrir eftir máldaganum, og Bjarna Ólafsson skyldugan fullum gjöldum Guðmundi H. syni svara fyrir hvalinn . . . en geti Guðmundur ekki votta leitt um Rauðaskriðu (sem fyrr er téð) þá líst oss lögmaður með skynsömum mönnum verði það landspláss yfir sjá og álykti hvar líklegast og réttast sé sú oftnefnd Rauðaskriða vera muni sem máldaginn vísar til, því hún er óbrigðanlega eftir því hann greinir einhvörs staðar um það pláss . . .
        Örnefnin Rauðaskriða og Hrafnsá eru bæði ókunn nú á dögum, og kemur brátt aftur að því máli, en hér er vert að líta á ummæli frá 1708 í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns um reka fyrir heimalandi á Bakka (þar nefndur Litli-Bakki): Rekavon lítil af trjávið fyrir heimalandi, en um hvalreka vita menn ógjörla að undirrjetta, en þykjast heyrt hafa áður hafi hjer hval rekið, og þann hafi eigandi að sjer tekið og síðan hafi dómur á gengið og dæmt þennan hval frá jörðinni til Höskuldsstaðakirkju og annara kirkna, sem eiga ítak í Spákonuarf, og kunna nálægir hjer um ei framar að undirrjetta.

        Relationships area

        Related entity

        Sverrir Björnsson Fossdal (1924-1997) Skagaströnd (12.6.1924 - 7.10.1997)

        Identifier of related entity

        HAH02003

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        12.6.1924

        Description of relationship

        fæddur þar

        Related entity

        Auðun Hafsteinn Björnsson Fossdal (1921-1962) Skagaströnd (2.2.1921 - 26.2.1962)

        Identifier of related entity

        HAH02519

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        2.2.1921

        Description of relationship

        fæddur þar

        Related entity

        Auðun Hafsteinn Björnsson Fossdal (1921-1962) Skagaströnd (2.2.1921 - 26.2.1962)

        Identifier of related entity

        HAH02519

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        2.2.1921

        Description of relationship

        fæddur þar

        Related entity

        Jakob Jósepsson (1842-1907) Árbakka (27.1.1842 - 20.2.1907)

        Identifier of related entity

        HAH05230

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        27.1.1842

        Description of relationship

        Fæddur þar

        Related entity

        Herdís Ólafsdóttir (1896-1926) kennari Blönduósi (7.9.1896 - 28.1.1926)

        Identifier of related entity

        HAH07608

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        barn þar

        Related entity

        Rósa Sumarliðadóttir (1917-1969) Ak frá S-Ey (25.9.1917 - 28.6.1969)

        Identifier of related entity

        HAH03623

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Tökubarn Efra Spákonufelli 1920

        Related entity

        Guðrún Sigurðardóttir (1890-1960) Spákonufelli ov (25.10.1890 - 4.5.1960)

        Identifier of related entity

        HAH09226

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        barn þar 1901

        Related entity

        Pétur Pálsson (1916-1997) frá Brandaskarði (28.10.1916 - 20.2.1997)

        Identifier of related entity

        HAH01843

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        28.10.1916

        Description of relationship

        fæddur þar

        Related entity

        Spákonufellsey ((1950))

        Identifier of related entity

        HAH00194

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Skriður í Húnavatnssýslum (874 -)

        Identifier of related entity

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        – Spákonufell: …Svo hagar til að kippkorn fyrir ofan bæinn á Spákonufelli er mikið og hátt og dregst nokkuð að sér ofan, en efst á því eru vegghamrar og sýnist engri skepnu þar fært upp að komast. Norðan í því heita Leyningsdalir eða Leynidalir. …Í þeim dölum eða lægðum er einna best beitiland í fjallinu svo ofarlega sem þeir eru þó. Er þar bæði víðir nógur og reyniviðarhríslur nokkrar. …Séra Eirík grunar nú að ekki sé allt með feldu um hag Grákollu og lætur hann nú leita hennar inn í Leyningsdali. Þar fannst Kolla dauð. Hafði Þórdís hryggbrotið hana með stóru bjargi sem hún hafði fleygt (með göldrum) norður af hömrunum á Spákonufellsborg, ofan í dalina og Kolla orðið undir (sögn um grjóthrun?). …en þegar hann lét vettlinginn falla (meiri galdrar) kom hann lítið eitt við eggjarnar á fjallinu og varð af því skruðningur nokkur. …En þegar hann raknaði við sá hann að Þórdís lá dauð undir hömrunum. Hafði vettlingur prestsins orðið að þungum kletti (sögn um grjóthrun?) á leið niður og hryggbrotið hana (Jón Árnason, Íslenskar þjóðsögur og ævintýri).

        Related entity

        Halldór Jónsson (1893-1981) Hróarsstaðaseli (3.3.1893 - 3.2.1981)

        Identifier of related entity

        HAH04668

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Barn þar 1901

        Related entity

        Vindhælishreppur (1000-2002) (1000-2002)

        Identifier of related entity

        HAH10007

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Höskuldsstaðakirkja (1963) Vindhælishreppi (31.3.1963 -)

        Identifier of related entity

        HAH00326

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Sameiginleg rekamörk

        Related entity

        Höfðahólar Höfðakaupsstað ((1930))

        Identifier of related entity

        HAH00450

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Sameiginleg landamerki

        Related entity

        Háagerði Skagaströnd ((1943))

        Identifier of related entity

        HAH00446

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Sameiginleg landamerki

        Related entity

        Finnstaðir á Skagaströnd ((1920))

        Identifier of related entity

        HAH00271

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Sameiginleg landamerki

        Related entity

        Kambakot ((1950))

        Identifier of related entity

        HAH00340

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Sameiginleg landamerki

        Related entity

        Skagaströnd / Höfðakaupsstaður ((1930))

        Identifier of related entity

        HAH00438

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Sameiginleg landamerki

        Related entity

        Hof á Skaga ((1930))

        Identifier of related entity

        HAH00422

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Sameiginleg landamerki

        Related entity

        Árbakki í Vindhælishreppi ((1950))

        Identifier of related entity

        HAH00610

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Fritz Hendrik Magnússon (1890-1965) (6.5.1890 - 19.10.1965)

        Identifier of related entity

        HAH03481

        Category of relationship

        hierarchical

        Type of relationship

        Dates of relationship

        um1930

        Description of relationship

        Related entity

        Benedikt Frímann Magnússon (1873-1955) kennari Spákonufelli (24.6.1873 - 18.12.1955)

        Identifier of related entity

        HAH02566

        Category of relationship

        hierarchical

        Type of relationship

        Dates of relationship

        Description of relationship

        bóndi þar

        Related entity

        Ástríður Jónsdóttir (1850-1914) Spákonufelli og Finnsstöðum (2.10.1850 - 26.10.1914)

        Identifier of related entity

        HAH03697

        Category of relationship

        hierarchical

        Dates of relationship

        Description of relationship

        húsfreyja þar

        Related entity

        Jakob Jóhannsson (1887-1935) Spákonufelli á Skagaströnd (11.4.1887 - 5.6.1935)

        Identifier of related entity

        HAH05223

        Category of relationship

        hierarchical

        Type of relationship

        Dates of relationship

        Description of relationship

        bóndi þar

        Related entity

        Emma Jónsdóttir (1890-1976) Spákonufelli (4.8.1890 - 29.2.1976)

        Identifier of related entity

        HAH03318

        Category of relationship

        hierarchical

        Type of relationship

        Dates of relationship

        1935

        Description of relationship

        Related entity

        Spákonufellskirkja (1300-2012)

        Identifier of related entity

        HAH00457

        Category of relationship

        hierarchical

        Type of relationship

        Spákonufellskirkja is controlled by Spákonufell

        Dates of relationship

        1852

        Description of relationship

        1852-1928

        Related entity

        Jens Benediktsson (1910-1946) prestur Hvammi á Laxárdal ytri (13.8.1910 - 1.12.1946)

        Identifier of related entity

        HAH05277

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Dates of relationship

        13.8.1910

        Description of relationship

        fæddur þar

        Related entity

        Rósa Pálsdóttir (1911-2002) Bjargi á Skagaströnd (1.9.1911 - 1.5.2002)

        Identifier of related entity

        HAH01878

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Dates of relationship

        1.9.1911

        Description of relationship

        fædd þar

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH00456

        Institution identifier

        IS HAH-Bæ

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ 4.3.2019

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Sources

          Landamerkjabók Húnavatnssýslu No. 91, fol. 47b – 48. 23.5.1889
          Húnaþing II
          Um Spákonuarf – Gripla, 1. Hefti (01.01.1980), Bls. 102-134. http://timarit.is/view_page_init.jsp?gegnirId=000507985

          Maintenance notes