Ásgrímur Kristinsson (1911-1988) Ásbrekku

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Ásgrímur Kristinsson (1911-1988) Ásbrekku

Parallel form(s) of name

  • Ásgrímur Kristinsson Ásbrekku

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      29.12.1911 - 20.8.1988

      History

      Ásgrímur Kristinsson 29. desember 1911 - 20. ágúst 1988 Lausamaður á Ási, Undirfellssókn, A-Hún. 1930. Bóndi og skáld í Ásbrekku í Vatnsdal, síðar verkamaður í Reykjavík. Síðast bús. í Reykjavík.
      Með ljóðagerð sinni reis Ásgrímur frá Ásbrekku yfir hversdagsleikann og veitti samferðamönnunum ómælda gleði. Hann var góður fulltrúi bændamenningarinnar.
      Ásgrímur var jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 30. ágúst og jarðsettur í Gufunesskirkjugarði við hlið Guðnýjar konu sinnar.

      Places

      Ás í Vatnsdal; Ásbrekka

      Legal status

      Functions, occupations and activities

      Ásgrímur á leigu jörðina Kötlustaði í Vatnsdal, þá nýgiftur, og árið 1936, þegar hann var 25 ára, stofnuðu þau hjón nýbýlið Ásbrekku í Vatnsdal á einum fimmta hluta jarðarinnar Áss og var landið gjöf frá fósturforeldrum hans. Býlið þurfti að reisa frá grunni, bæði að ræktun og byggingum. Hafði efnahagskreppa bænda þá náð hámarki og voru fjármunir af skornum skammti, svo að ótrúlegt var að nýbygging heillar jarðar gæti orðið veruleiki. Fóru þá og í hönd svokölluð mæðiveikiár er ollu bændum þungum búsifjum. En sigur vannst fyrir afdráttarlausan baráttuhug hjónanna beggja, sem auk þess að fórna kröftum sínum öllum, gættu þess að stilla kröfum í hóf svo að hægt væri að standa í skilum og við skuldbindingar. Hafði bóndaeðli Ásgríms yfirhöndina í lífi hans á þessum árum, en var kryddað af skáldaeðli hans er tóm gafst til. Mjög var leitað til Ásgríms, meðan hann dvaldi í Vatnsdal, við ýmis tækifæri um að koma fram og slá skáldhörpu sína. Tók hann því misjafnlega líklega, en er líða tók að því, sem til stóð, var sem hann fengi innblástur og færðist í aukana. Kastaði hann þá með öllu frá sér hversdagsleikanum og sótti úr sér frá búskaparstritinu. Urðu honum ljóð af munni, oft heil kvæði, á ótrúlega stuttum tíma. Ljóðrænt hrifnæmi var honum eðlisborið og að flytja ljóð með þeim hrynjanda að mjög náði eyrum manna og var vel metið. Samspil bóndans og listamannsins í Ásgrími Kristinssyni gerði hann að eftirsóttum félaga, sem mjög setti svip á menningar- og samkvæmislíf í Vatnsdal meðan hans naut við.

      Mandates/sources of authority

      1 ljóðabók Ásgríms, sem út kom árið 1981, er áberandi mikið af afmælisljóðum til sveitunga hans, bæði karla og kvenna og mátti telja hann hirðskáld Vatnsdælinga um árabil. Þá eru gangnavísur hans landskunnar og lifa á vörum manna margar hverjar góðu lifi. I kvæði Ásgríms, Æskuminning, er þetta erindi:
      Ég hef unnað vorsins veldi,
      vakað einn á fögru kveldi
      og það lyfti anda mínum,
      allt var kyrrt og hljótt.
      Bergði ég af brunni þínum
      bjarta júnínótt.


      Vísan stendur öld og ár
      oft er send til varnar.
      Hún er að benda á bros og tár
      bak við hendingarnar.

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hans; Foreldrar hans voru; Kristinn Bjarnason 19. maí 1892 - 12. júlí 1968 Fósturbarn hjónanna á Ási, Undirfellssókn, Hún. 1901. Bóndi og hagyrðingur á Gafli, Þorkelshólshr. og víðar í Hún. um 1912-24, svo í Vestmannaeyjum lengst af 1924-40 og í Borgarholti, Biskupstungnahr., Árn. til 1951. Eftir það verkamaður í Reykjavík. Bílstjóri og leigjandi á Kirkjuvegi 31, Vestmannaeyjum 1930. Fósturforeldrar: Guðmundur Ólafsson og Sigurlaug Guðmundsdóttir í Ási í Vatnsdal, A-Hún. og barnsmóðir hans; Helga Ingibjörg Benediktsdóttir 11. september 1890 - 27. október 1925 Vinnukona í Ási.
      Systkini Ásgríms samfeðra með fyrrikonu 8.6.1912; Kristín Guðbjörg Sölvadóttir 1. mars 1885 - 17. október 1950 Var á Höfðahólum, Spákonufellssókn, Hún. 1890. Hjú í Steinnesi, Þingeyrasókn, Hún. 1901. Húsfreyja á Gafli í Víðidal, V-Hún. og víðar á þeim slóðum um tíma. Vinnukona í Kirkjustræti 2 , Reykjavík 1930. Var í Reykjavík. Fórst.
      1) Ásdís Kristinsdóttir f 22. júlí 1912 - 7. ágúst 1991 Verkakona og húsfreyja í Kópavogi. Ráðskona í Skaftafelli, Reykjavík 1930. Síðast bús. í Kópavogi. Ásdís giftist 2. maí 1931 Árna Jóhannessyni, bifvélavirkjameistara, fæddur 11. september 1907
      2) Gunnar Kristinsson f 23. september 1913 - 11. janúar 1982 Vinnumaður á Korpúlfsstöðum, Lágafellssókn, Kjós. 1930. Bifreiðarstjóri og fangavörður í Reykjavík.
      3) Bjarni Kristinsson 28. apríl 1915 - 18. febrúar 1982 Var á Hofi, Undirfellssókn, A-Hún. 1930. Fósturfor: Ágúst Böðvar Jónsson og Ingunn Hallgrímsdóttir. Bóndi á Kornsá, Áshr., A-Hún. Vegamótum Blönduósi 1944-1951 og á Stöðlum og í Auðsholtshjáleigu í Ölfusi. Síðar verkamaður á Selfossi. Síðast bús. í Selfosshreppi., kona hans 31.12.1944; Jónína Alexandra Kristjánsdóttir f. 25. nóv. 1925 Blö. d. 30. maí 2011, sjá Langaskúr, Kornsá og Selfossi.
      4) Aðalheiður Jóhanna Kristinsdóttir 18. maí 1916 - 11. nóvember 2014 Vinnukona í Melrakkadal, Víðidalstungusókn, V-Hún. 1930.
      5) Benedikt Ragnar Kristinsson f. 13. mars 1921 - 15. ágúst 2000 Var í Kirkjustræti 2 , Reykjavík 1930. Sjómaður. Fluttist til Höfðaborgar, S-Afríku. Maki I, skildu: Kristine Kristinsson. Maki II, júní 1968: Etel Kristinsson f. 1912. Barnlaus.
      6) Sigríður Ingibjörg Kristinsdóttir 24. apríl 1925 - 17. september 2008 Var í Kirkjustræti 2 , Reykjavík 1930. Húsfreyja í Reykjavík 1945. Húsfreyja og matráðskona í Reykjavík. Ung kynntist hún eiginmanni sínum, Þorvaldi Aðalsteini Eyjólfssyni bifvélavirkjameistara frá Ferjubakka í Borgarhreppi, f. 1915, d. 1978, og gengu þau í hjónaband 25. október 1942.
      Seinni kona Kristins; Guðfinna Ástdís Árnadóttir 19. nóvember 1903 - 5. október 1990 Var í foreldrahúsum á Grund, Vestmannaeyjasókn 1910. Bústýra á Kirkjuvegi 31, Vestmannaeyjum 1930. Húsfreyja í Eyjum fram til 1940 og síðan í Borgarholti í Biskupstungum um 1940-51. Síðan húsfreyja í Reykjavík. Síðast bús. í Reykjavík.
      Barn þeirra:
      7) Jóhanna Árveig Kristinsdóttir 14. desember 1929 - 8. júlí 2002 Var á Kirkjuvegi 31, Vestmannaeyjum 1930. Maður hennar; Jón Óli Þorláksson 15. maí 1924 - 2. febrúar 1982 Járnsmiður, flugmaður og bóndi í Borgarholti í Biskupstungum og á Akureyri. Var á Siglunesi, Siglufirði 1930.
      Fyrrikona Ásgríms 10.9.1933; Ólöf Kristbjörg Sigurbjörnsdóttir 13. janúar 1910 - 31. mars 1946 Vinnukona á Shellstöðinni, Skildinganesi, Reykjavíkursókn, Kjós. 1930. Drukknaði í Vatnsdalsá.
      Barnsmóðir 9.6.1939; Svava Sigurbjörnsdóttir 25. desember 1918 - 30. maí 1987 Var í Aðalstræti 8, Reykjavík 1930. Síðast bús. í Reykjavík. Alsystir Ólafar, fyrrikonu hans.
      Seinni kona hans 8.7.1949; Guðný Guðmundsdóttir 17. desember 1918 - 31. maí 1984 Var á Laugabóli, Hrafnseyrarsókn, V-Ís. 1930. Fósturfor: Guðmundur Ágúst Pálsson og Þórdís
      Guðrún Guðmundsdóttir. Húsfreyja í Reykjavík 1945. Var á Ásbrekku, Áshr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Reykjavík. Fyrrimaður Guðnýjar 20.11.1941; Rögnvaldur Sigurðsson 20. ágúst 1914 - 29. október 1992 Var á Siglufirði 1930. Bókbindari, síðast bús. í Reykjavík. Þau skildu.

      Börn Ásgríms og fyrrikonu;
      1) Guðmundur Ólafs Ásgrímsson 26. desember 1934 bóndi Ásbrekku, kona hans; Ólafía Sigurlaug Pétursdóttir 8. apríl 1942 Var í Miðhúsum, Sveinsstaðahr., A-Hún. 1957.
      2) Þorsteinn Erlings Ásgrímsson 23. september 1936 - 8. maí 1999 Var á Ásbrekku, Áshr., A-Hún. 1957. Bóndi á Varmalandi, síðast bús. á Sauðárkróki. Kona hans; Halldóra Ingibjörg Sigurðardóttir 16. febrúar 1934 - 5. apríl 2018 Bóndi á Varmalandi í Sæmundarhlíð og starfaði jafnframt við kennslu í nokkur ár, síðar bús. á Sauðárkróki þar sem hún starfaði við umönnun. Síðast bús. á Sauðárkróki.
      3) Sigurlaug Ingibjörg Ásgrímsdóttir 23. mars 1938 bankastarfsmaður Reykjavík, ógift.
      4) Ólafur Sigurbjörn Ásgrímsson 10. desember 1945 bankastarfsmaður Reykjavík, kona hans; Kristjana Sigurðardóttir 24. október 1943
      Barn Ásgríms og Svövu;
      5) Lilja Huld Sævars 9. júní 1939 Garðabæ. M1; Árni Pétursson 18. maí 1927 - 20. maí 1981 Síðast bús. í Reykjavík. Hét áður Ernst Michalik, foreldrar frá Tékkóslóvakíu. Arkitekt í Reykjavík. M2; Magnús Jóhannsson 24. desember 1928 - 16. október 2011 Var á Patreksfirði 1930. Kaupmaður í Reykjavík.
      Barn Guðnýjar;
      6) Snorri Rögnvaldsson 4. 7.1942 - 9. 7. 2004 Var á Ásbrekku, Áshr., A-Hún. 1957. Bifreiðastjóri í Reykjavík. Kona hans; Svanfríður Kristín Guðmundsdóttir 24.7. 1949
      Börn Ásgríms og Guðnýjar;
      7) Guðrún Ása Ásgrímsdóttir 13. október 1948 bókari Reykjavík, maður hennar; Ólafur Rúnar Árnason 9. mars 1948 húsgagnasmiður.
      8) Ólöf Hulda Ásgrímsdóttir 12. mars 1951 Skrifstofustj. Mosfellsbæ. M1; Guðmundur Sigurjónsson 29. júlí 1948 bifreiðastj, þau skildu. M2; Pálmi Bjarnason 26. nóvember 1949 kerfisfræðingur.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Steingrímur Helgason (1864-1894) organisti Svínavatni (18.12.1864 - 8.5.1894)

      Identifier of related entity

      HAH06651

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      1911

      Description of relationship

      Helga móðir Ásgríms var dóttir Benedikts á Hrafnabjörgum bróður Steingríms

      Related entity

      Guðmann Helgason (1868-1949) Snæringsstöðum (17.12.1868 - 16.10.1949)

      Identifier of related entity

      HAH03945

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Ásgrímur var sonur Helgu Ingibjargar (1890-1925) dóttur Guðrúnar Ólafsdóttur (1864-1955) 3ju konu Benedikts bróður Guðmanns.

      Related entity

      Guðrún Jónsdóttir (1832-1915) Akri (22.6.1832 - 11.4.1915)

      Identifier of related entity

      HAH04363

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      1911

      Description of relationship

      Móðir Ásgríms var Helga Ingibjörg dóttir Benedikts Jóhannesar Helgasonar (1850-1907), 1. kona hans var Sigríður (1829) systir Guðrúnar

      Related entity

      Sigurlaug Guðmundsdóttir (1868-1960) Ási Vatnsdal (12.6.1868 - 3.5.1960)

      Identifier of related entity

      HAH06673

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      29.12.1911

      Description of relationship

      fóstursonur

      Related entity

      Ásdís Kristinsdóttir (1912-1991) (22.7.1912 - 7.8.1991)

      Identifier of related entity

      HAH01078

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Ásdís Kristinsdóttir (1912-1991) is the sibling of Ásgrímur Kristinsson (1911-1988) Ásbrekku

      Dates of relationship

      22.7.1912

      Description of relationship

      samfeðra

      Related entity

      Gunnar Kristinsson (1913-1982) fangavörður Reykjavík (23.9.1913 - 11.1.1982)

      Identifier of related entity

      HAH04526

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Gunnar Kristinsson (1913-1982) fangavörður Reykjavík is the sibling of Ásgrímur Kristinsson (1911-1988) Ásbrekku

      Dates of relationship

      23.9.1913

      Description of relationship

      Samfeðra

      Related entity

      Sigríður Kristinsdóttir (1925-2008) frá Þingeyrarseli (24.4.1925 - 17.9.2008)

      Identifier of related entity

      HAH01900

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Sigríður Kristinsdóttir (1925-2008) frá Þingeyrarseli is the sibling of Ásgrímur Kristinsson (1911-1988) Ásbrekku

      Dates of relationship

      24.4.1925

      Description of relationship

      Samfeðra

      Related entity

      Aðalheiður Jóhanna Kristinsdóttir (1916-2014) (18.5.1916 - 11.11.2014)

      Identifier of related entity

      HAH02236

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Aðalheiður Jóhanna Kristinsdóttir (1916-2014) is the sibling of Ásgrímur Kristinsson (1911-1988) Ásbrekku

      Dates of relationship

      18.5.1916

      Description of relationship

      Samfeðra

      Related entity

      Bjarni Kristinsson (1915-1982) Kornsá, Vegamótum og Selfossi (28.4.1915 - 18.2.1982)

      Identifier of related entity

      HAH02692

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Bjarni Kristinsson (1915-1982) Kornsá, Vegamótum og Selfossi is the sibling of Ásgrímur Kristinsson (1911-1988) Ásbrekku

      Dates of relationship

      28.4.1915

      Description of relationship

      Samfeðra

      Related entity

      Jónína Benediktsdóttir (1895-1981) Steinnesi frá Hrafnabjörgum (19.10.1895 - 13.5.1981)

      Identifier of related entity

      HAH07384

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Jónína Benediktsdóttir (1895-1981) Steinnesi frá Hrafnabjörgum is the cousin of Ásgrímur Kristinsson (1911-1988) Ásbrekku

      Dates of relationship

      1911

      Description of relationship

      systur sonur

      Related entity

      Kötlustaðir í Vatnsdal ((1930))

      Identifier of related entity

      HAH00177

      Category of relationship

      hierarchical

      Type of relationship

      Kötlustaðir í Vatnsdal is controlled by Ásgrímur Kristinsson (1911-1988) Ásbrekku

      Dates of relationship

      1936

      Description of relationship

      Related entity

      Ásbrekka í Vatnsdal (1935 -)

      Identifier of related entity

      HAH00034

      Category of relationship

      hierarchical

      Type of relationship

      Ásbrekka í Vatnsdal is controlled by Ásgrímur Kristinsson (1911-1988) Ásbrekku

      Dates of relationship

      1937

      Description of relationship

      1937-1954 og 1956-1963-

      Related entity

      Sigurlaug Ásgrímsdóttir (1938) frá Ásbrekku (23.9.1938 -)

      Identifier of related entity

      HAH05971

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Sigurlaug Ásgrímsdóttir (1938) frá Ásbrekku is the child of Ásgrímur Kristinsson (1911-1988) Ásbrekku

      Dates of relationship

      23.3.1938

      Description of relationship

      Related entity

      Ása Ásgrímsdóttir (1948) Ásbrekku (13.10.1948 -)

      Identifier of related entity

      HAH04238

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Ása Ásgrímsdóttir (1948) Ásbrekku is the child of Ásgrímur Kristinsson (1911-1988) Ásbrekku

      Dates of relationship

      13.10.1948

      Description of relationship

      Related entity

      Guðmundur Ólafs Ásgrímsson (1934) Ásbrekku (26.12.1934 -)

      Identifier of related entity

      HAH03972

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðmundur Ólafs Ásgrímsson (1934) Ásbrekku is the child of Ásgrímur Kristinsson (1911-1988) Ásbrekku

      Dates of relationship

      26.12.1934

      Description of relationship

      Related entity

      Ingibjörg Benediktsdóttir (1890-1925) frá Hrafnabjörgum Svínadal (11.9.1890 - 27.10.1925)

      Identifier of related entity

      HAH07421

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Ingibjörg Benediktsdóttir (1890-1925) frá Hrafnabjörgum Svínadal is the parent of Ásgrímur Kristinsson (1911-1988) Ásbrekku

      Dates of relationship

      29.12.1911

      Description of relationship

      Related entity

      Þorsteinn Erlings Ásgrímsson (1936-1999) frá Ásbrekku (23.9.1936 - 8.5.1999)

      Identifier of related entity

      HAH02152

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Þorsteinn Erlings Ásgrímsson (1936-1999) frá Ásbrekku is the child of Ásgrímur Kristinsson (1911-1988) Ásbrekku

      Dates of relationship

      23.9.1936

      Description of relationship

      Related entity

      Kristinn Bjarnason (1892-1968) Ási í Vatnsdal (19.3.1892 - 12.7.1968)

      Identifier of related entity

      HAH01654

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Kristinn Bjarnason (1892-1968) Ási í Vatnsdal is the parent of Ásgrímur Kristinsson (1911-1988) Ásbrekku

      Dates of relationship

      29.12.1911

      Description of relationship

      Related entity

      Guðmundur Ólafsson (1867-1936) Ási (13.10.1867 - 10.12.1936)

      Identifier of related entity

      HAH04109

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðmundur Ólafsson (1867-1936) Ási is the parent of Ásgrímur Kristinsson (1911-1988) Ásbrekku

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Ásgrímur var fóstursonur Guðmundar

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH03643

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 28.5.2018

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes