Staðarbakkakirkja - Staðarbakki í Miðfirði

Identity area

Type of entity

Corporate body

Authorized form of name

Staðarbakkakirkja - Staðarbakki í Miðfirði

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        16.11.1890 -

        History

        Staðarbakkakirkja kirkja að Staðarbakka í Miðfirði. Þar er bændakirkja (útkirkja) sem þjónað hefur verið frá næsta bæ, Melstað, frá árinu 1907. Núverandi kirkja þar var reist árið 1890 og tekur 120 manns í sæti. Hún er úr timbri en altaristöfluna gaf Björn Guðmundur Björnsson kenndur við Torfustahús þar sem hann átti heima á meðan hann stundaði búskap eða Hvammstanga þar sem hann bjó síðari hluta æfinnar, altaristöfluna gaf hann til minningar um son sinn er lést mjög ungur (heimild úr ljóðabókinni "Glæðum" eftir Björn). Altaristöfluna málaði Eyjólfur Eyfells árið 1931 og sýnir hún Krist.

        Saga kirkjunnar

        Staðarbakkakirkja Melstaðarprestakalli í Húnavatnsprófastsdæmi. Staðarbakki er bær og kirkjustaður í Miðfirði, næsti bær við Melstað, sem er einnig kirkjustaður. Staðarbakki var áður prestssetur en nú er þar útkirkja frá Melstað síðan 1907.

        Kaþólskar kirkjur á staðnum voru helgaðar Jóhannesi skírara. Timburkirkjan með turni og lofti og sætum fyrir 120 manns var byggð þar 1890 og vígð 16. nóvember sama ár.

        Halldór Bjarnason frá Gröf í Borgarhreppi var kirkjusmiður. Altaristöfluna málaði Eyjólfur Eyfells árið 1931 og sýnir hún Krist.

        Places

        Staðarbakki; Miðfjörður; Ytri-Torfustaðahreppur; Hvammstangi; Skarfshóll; Króksstaðir; Teigakvísl; Rauðagróf; Barðabrún; Rauðugróf; Þrætutóptarholt; Ranhólagötur; Hrísás; Heygarðsholt; Heygarðsholtsflói; Landamerkjalækur; Hrísássendi; Króksstaðir; Brekkulækur; Mellæk; Miðfjarðará; Króksstaðamelar; Melur; Randhólar; Búrfell; Torfustaðir; Bjarg; Stafhóll; Stafalækur; Torfholt; Torfsvatn; Hrafnshúsahólskelda; Stóri-Bolhóll; Þórarinshóll;

        Legal status

        Functions, occupations and activities

        Mandates/sources of authority

        Internal structures/genealogy

        General context

        Landamerkjaskrá Staðarbakka

        Að norðan ræður merkjum milli Staðarbakka og Melstaðar sjónhending úr norðurenda forns vatnsveitingaskurðar er grafinn var vestur úr Teigakvíslinni uppí Rauðugróf í Barðbrúninni, þar beint vestur af, úr Rauðugróf sjónhending sunnanhalt við Þrætutóptarholt, vestur um holt þau, er Ranhólagöturnar liggja eftir í stóran stein merktan LM, sem er í útnorðurhorni Staðarbakkalands þar sem Staðarbakkaland mætir Ranhólalandi að vestan. Að vestan ræður merkjum milli Staðarbakka og Ranhóla sjónhending úr fyrnefndum landamerkjasteini á Hrísás, þar sem hann er hæstur af Hrísás á vestanverða Bolahóla og er Stóri-Bolhóll suðvesturhorn Staðarbakkalands. Úr Stóra-Bolhól ræður merkjum sjónhending þaðan í holtsnibbu fyrir sunnan Hrafnshúsakeldu, úr þeirri nibbu í norðasta vikið vestur úr Torfsvatni, úr syðsta viki sem gengur austur úr Torfuvatni, svo sem Stafalækur ræður til Stafahóla, úr syðsta Stafhól sjónhending í brúarræsið yfir landamerkjaland, úr því nesi sjónhending í stein á Laughólma merktan LM.,

        Í Stjórnarráði Íslands 26. jan. 1911.
        F.h.r.
        Kl. Jónsson / Eggert Briem

        Lesið fyrir manntalsþingrjetti Húnavatnssýslu að Melstað 7. júní 1911 og innfært í landamerkjabók sýslunnar Nr. 299 bls. 162b.


        Samföst eign Staðarbakkakirkju í Miðfirði Ytri Torfustaðahreppi, Húnavatnssýslu: Staðarbakki með Skarfshól og Króksstöðum.

        1) Að norðan ræður merkjum milli Staðarbakka og Mels sjónhending úr norðurenda forns vatnsveitingaskurðs, er grafinn var vestur úr Teigakvíslinni, upp í Rauðugróf í Barðabrúninni þar beint vestur af, úr Rauðugróf sjónhending sunnanhallt við Þrætutóptarholt vestur um holt þau, er Ranhólagöturnar liggja eptir í stóran stein, merktan M.L., sem er á útnorðurhorni Staðarbakkalands, þar sem Staðarbakkaland mætir Ranhólalandi að vestan.
        2) Að vestan ræður merkjum milli Staðarbakkakirkju lands og Ranhóla sjónhending úr fyr nefndum landamerkjasteini á Hrísás, þar sem hann er hæstur, af Hrísás á vestanverða Bolahóla, af Bolahólum á Þórarinshól, er á milli Staðarbakkakirkjulands (Skarfshóls) og Búrfells, sjónhending af Þórarinshól efst í glöggan farveg Landamerkjalækjarins upp í Heygarðsholtsflóann, ræður svo Landamerkjalækurinn ofan á móts við stóra flata klöpp, merkta L.M., sunnan í Hrísássendanum, en úr þeirri klöpp sjónhending í Landamerkjavörðu á efra Hríshól.
        3) Að sunnan ræður merkjum milli Staðakirkjulands (Króksstaða) og Brekkulækjar, sjónhending úr Landamerkjavörðunni á efra Hríshólnum í Mellæk, þar sem hann fyrst fær skipan farveg vestur undan Stórhól, og ræður svo Melalækur alla leið merkjum þangað til hann fellur í Miðfjarðará sunnan undir landsuðurhorni Króksstaðamela fyrir austan syðsta ketilinn.
        4) Að austan ræður Miðfjarðarár austasti farvegur út undir svo nefnda Teigakvísl, en úr ræður Teigakvísl til fyrst greindra merkja. B. Staðarkirkja á mánaðar selför fyrir búpening sinn úr Aurriðadal (Búrfells og Randhólum.)

        Mel, 20. júní 1890.
        Þorvaldur Bjarnason sem umráðamaður Melskirkju eigna Mels, Randhóla, Búrfells og Brekkulækjar.
        Hjörtur Líndal eptir umboði prófasts vegna Staðarbakkakirkjulands.
        Jóhann E. Einarsson, eigandi Torfustaða
        Karl Á. Sigurgeirsson, fyrir hönd Bjargs eiganda.
        Guðmundur Jónsson, eigandi Urriðaár (handsalað.)

        Lesið upp á manntalsþingi að Svarðbæli, hinn 5. júní 1891, og innfært í
        landamerkjabók Húnavatnssýslu, No. 275, fol. 143b-4


        Landamerki kirkjujarðarinnar Skarfhóls í Ytri Torfustaðahreppi.

        1) Að norðan og vestan ræður merkjum milli Staðarbakka og Skarfhóls úr syðsta Stafhól, svo sem Stafalælur ræður uppí syðsta vikið austur úr Torfsvatni, svo úr norðasta vikinu verstur úr Torfsvatni sjónhending í holtsnibbu sunnanvið Hrafnshúsahólskeldu. Þaðan sjónhending í Stóra-Bolhól, úr Bolahólum í Þórarinshól.
        2) Að sunnan milli Skarfhóls og Búrfells eru landamerki eins og meðfylgjandi úrdráttur úr landamerkjabók Húnavatnssýslu Nr. 275 tilgreinir. Sjónhending af Þórarinshól efst í glöggan farveg Landamerkjalækjarins upp í Heygarðsholts flóanum ræður svo Landamerkjalækurinn ofan á móts við stóra flata klöpp merkta L.M. sunnan í Hrísásendanum.
        3) Að austan milli Skarfhóls og Króksstaða ræður merkjum sjónhending norður fyrgreindri klöpp sunnan í Hrísásendanum í litla þúfu neðarlega á Torfholti. Þaðan norður í syðsta Stafhól, sunnanvert við Stafalæk.

        Skarfshóli 15. júní 1911.
        Guðm. Gíslason (eigandi Staðarbakka).
        Ólafur Ólafsson (ábúandi á Skarfshól.)
        Eyjólfur Kolbeins prestur á Mel

        Relationships area

        Related entity

        Guðný Helgesen (1828-1885) Staðarbakka (23.9.1828 - 12.11.1885)

        Identifier of related entity

        HAH04161

        Category of relationship

        hierarchical

        Dates of relationship

        1868-1883

        Description of relationship

        húsfreyja þar

        Related entity

        Helgi Sveinsson (1868-1955) fasteignasali (25.10.1868 - 26.3.1955)

        Identifier of related entity

        HAH09299

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        25.10.1868

        Description of relationship

        fæddur þar

        Related entity

        Margrét Sveinsdóttir (1866-1952) frá Staðarbakka (30.9.1866 - 12.7.1952)

        Identifier of related entity

        HAH09301

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        1868

        Description of relationship

        barn þar

        Related entity

        Sigríður Sveinsdóttir (1831-1907) Grímsstöðum á Mýrum (11.7.1831 - 15.1.1907)

        Identifier of related entity

        HAH09347

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        1843

        Description of relationship

        barn þar

        Related entity

        Hvammstangakirkja (21.7.1957 -)

        Identifier of related entity

        HAH00578

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Guðrún Sveinsdóttir (1864-1898) kennari Ísafirði og Keflavík (29.12.1864 - 31.12.1898)

        Identifier of related entity

        HAH04472

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        barn þar 1868

        Related entity

        Sigríður Þorsteinsdóttir (1885-1924) Hvoli V-Hvs 1920 (4.12.1885 - 22.3.1924)

        Identifier of related entity

        HAH07416

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        barn þar 1890

        Related entity

        Lárus Eysteinsson (1853-1890) prestur Staðarbakka (4.3.1853 - 5.5.1890)

        Identifier of related entity

        HAH06574

        Category of relationship

        hierarchical

        Type of relationship

        Lárus Eysteinsson (1853-1890) prestur Staðarbakka controls Staðarbakkakirkja - Staðarbakki í Miðfirði

        Dates of relationship

        20.3.1884 - 5.5.1890

        Description of relationship

        Prestur þar og húsbóndi

        Related entity

        Sigríður Björg Metúsalemsdóttir (1863-1939) prestsfrú Staðarbakka (9.4.1863 - 15.8.1939)

        Identifier of related entity

        HAH06757

        Category of relationship

        hierarchical

        Type of relationship

        Sigríður Björg Metúsalemsdóttir (1863-1939) prestsfrú Staðarbakka controls Staðarbakkakirkja - Staðarbakki í Miðfirði

        Dates of relationship

        1884-1890

        Description of relationship

        Húsfreyja Staðarbakka

        Related entity

        Sveinn Skúlason (1824-1888) prestur Staðarbakka (12.6.1824 - 21.5.1888)

        Identifier of related entity

        HAH09204

        Category of relationship

        hierarchical

        Type of relationship

        Sveinn Skúlason (1824-1888) prestur Staðarbakka controls Staðarbakkakirkja - Staðarbakki í Miðfirði

        Dates of relationship

        1868-1883

        Description of relationship

        Prestur og húsbóndi þar

        Related entity

        Margrét Benediktsdóttir (1880-1967) Staðarbakka (15.7.1880 - 9.5.1967)

        Identifier of related entity

        HAH09211

        Category of relationship

        hierarchical

        Type of relationship

        Margrét Benediktsdóttir (1880-1967) Staðarbakka controls Staðarbakkakirkja - Staðarbakki í Miðfirði

        Dates of relationship

        Description of relationship

        húsfreyja þar

        Related entity

        Sigríður Guðmundsdóttir (1902-1937) Staðarbakka Miðfirði (28.1.1902 - 24.5.1937)

        Identifier of related entity

        Category of relationship

        hierarchical

        Type of relationship

        Sigríður Guðmundsdóttir (1902-1937) Staðarbakka Miðfirði controls Staðarbakkakirkja - Staðarbakki í Miðfirði

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Húsfreyja þar 1930

        Related entity

        Benedikt Guðmundsson (1905-1990) Staðarbakka í Miðfirði (30.11.1905 - 17.1.1990)

        Identifier of related entity

        HAH01106

        Category of relationship

        hierarchical

        Type of relationship

        Benedikt Guðmundsson (1905-1990) Staðarbakka í Miðfirði controls Staðarbakkakirkja - Staðarbakki í Miðfirði

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Bóndi á Staðarbakka

        Related entity

        Þingeyrakirkja (1864 -)

        Identifier of related entity

        HAH00633

        Category of relationship

        hierarchical

        Type of relationship

        Þingeyrakirkja controls Staðarbakkakirkja - Staðarbakki í Miðfirði

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Fitjar í Víðidal [efri og neðri] ((1500))

        Identifier of related entity

        HAH00898

        Category of relationship

        hierarchical

        Type of relationship

        Fitjar í Víðidal [efri og neðri] is owned by Staðarbakkakirkja - Staðarbakki í Miðfirði

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Eigandi jarðarinnar í byrjun 18 aldar

        Related entity

        Eyjólfur Kolbeins Eyjólfsson (1866-1912) prestur á Staðarbakka og Melstað í Miðfirði (20.2.1866 - 1.3.1912)

        Identifier of related entity

        HAH03384

        Category of relationship

        hierarchical

        Type of relationship

        Dates of relationship

        1890-1907

        Description of relationship

        prestur þar 1890-1907

        Related entity

        Melstaðakirkja í Miðfirði (8.6.1947 -)

        Identifier of related entity

        HAH00378

        Category of relationship

        hierarchical

        Type of relationship

        Melstaðakirkja í Miðfirði controls Staðarbakkakirkja - Staðarbakki í Miðfirði

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Ingibjörg Guðmundsdóttir (1895-1979) frá Tannstöðum Miðfirði (3.4.1895 - 14.3.1879)

        Identifier of related entity

        HAH06615

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Ingibjörg Guðmundsdóttir (1895-1979) frá Tannstöðum Miðfirði is the associate of Staðarbakkakirkja - Staðarbakki í Miðfirði

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Barn þar 1910

        Related entity

        Ingibjörg Kristmundsdóttir (1884-1952) frá Þverá í Núpsdalstungu (19.3.1884 - 1.6.1952)

        Identifier of related entity

        HAH06614

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Ingibjörg Kristmundsdóttir (1884-1952) frá Þverá í Núpsdalstungu is the associate of Staðarbakkakirkja - Staðarbakki í Miðfirði

        Dates of relationship

        Description of relationship

        var þar 1910

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH00581

        Institution identifier

        IS HAH-Kir

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ 4.3.2019

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Sources

          Landamerkjabók Húnavatnssýslu, No. 275, fol. 143b-4 5.6.1891
          Landamerkjabók sýslunnar Nr. 299 bls. 162b. 7.6.1911
          Landamerkjabók Húnavatnssýslu Nr. 301 fol. 163b. 23.5.1914

          Maintenance notes