Sigurlaug Margrét Jónasdóttir (1898-1985) Bandagerði

Auðkenni

Tegund einingar

Einstaklingur

Leyfileg nafnaform

Sigurlaug Margrét Jónasdóttir (1898-1985) Bandagerði

Hliðstæð nafnaform

Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum

Aðrar nafnmyndir

Auðkenni fyrir stofnanir

Silla

Lýsing

Fæðingar- og dánarár

30.1.1898 - 10.1.1985

Saga

Húsfreyja á Ásvallagötu 11, Reykjavík 1930. Húsfreyja í Reykjavík 1945. Síðast bús. í Reykjavík.
Hún fæddist í Háagerði á Skagaströnd 30. janúar 1898. Jónasarhúsi Sauðárkróki á fardögum 1898. Uppsalir í Blönduhlíð 1911. Uppsalir (Brekkugata 15) Akureyri 1919. Útför hennar verður gerð frá Dómkirkjunni 17.1.1985, kl. 13.30.

Staðir

Réttindi

Stundaði nám við Gagnfræðaskólann á Akureyri.
Hún sótti námskeið í bókfærslu og sótti tungumálatíma. Varð þetta til þess að hún fékk skrifstofustarf hjá KEA. Féll henni það vel og þar starfaði hún í nokkur ár.

Starfssvið

Skömmu eftir að hún var komin til starfa hjá KEA mætti hún þjóðskáldinu sr. Matthíasi Jochumssyni á götu þar í bænum. Skáldið tók hana tali og spurði hvort hún gæti ekki hjálpað sér við skriftir, því nú væri sjón hans tekin að daprast. Það var freistandi að fá tækifæri til að kynnast göfugmenninu sr. Matthíasi og vera samvistum við slíkt andans stórmenni, þó ekki væri nema stöku sinnum. Fékk hún leyfi hjá húsbónda sínum Sigurði Kristinssyni kaupfélagsstjóra til að vinna fyrir skáldið, þegar það kallaði.

Lagaheimild

Innri uppbygging/ættfræði

Foreldrar; Jónas Sveinsson 4. desember 1873 - 29. mars 1954. Bóndi á Uppsölum í Blönduhlíð, Skag. Kennari, oddviti, bóndi o.fl. á Sauðárkróki og kona hans; Björg Björnsdóttir 14. júlí 1862 - 19. nóvember 1934. Húsfreyja á Sauðárkróki, Uppsölum í Blönduhlíð og á Akureyri. Vk Hemmertshúsi 1901

Fóstursystkini;
1) Ingibjörg Árnadóttir 25. apríl 1901 - 12. ágúst 1927. Ólst upp hjá hjónunum Jónasi Sveinssyni f. 1873 og Björgu Björnsdóttur f. 1862. Húsfreyja og talsímakona á Eskifirði.
2) Jónas Sveinbjörn Björgvin Lárusson 2. desember 1904 - 5. apríl 1958. Bílstjóri á Akureyri 1930. Ólst upp hjá hjónunum Jónasi Sveinssyni f. 1873 og Björgu Björnsdóttur f. 1862. Bifreiðastjóri á Akureyri. Vann síðar við pípulagningar. Síðast bús. í Reykjavík.

Maður hennar 17.5.1925; Jónas Þorbergsson 22. jan. 1885 - 6. júní 1968. Hjá foreldrum í fyrstu en síðan í fóstri og vistum víða í S-Þing. fram um 1900, lengst í Reykjadal. Fór til Vesturheims 1910 frá Breiðumýri, Reykjadal, S-Þing. og dvaldi vestra 6 ár. Bóndi á Arnarvatni í Mývatnssveit um skamma hríð. Síðar ritstjóri Dags og alþingismaður. Útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins 1930-53. Síðast bús. í Reykjavík.
Maki 1, 5. júlí 1917: Þorbjörg Jónsdóttir fædd 16. apríl 1891, dáin 24. desember 1923 húsmóðir. Foreldrar: Jón Þorsteinsson og kona hans Halldóra Metúsalemsdóttir. .

Börn hans og fyrri konu;
1) Hallfríður Jónasdóttir 3. júlí 1918 - 19. júlí 1920.
2) Kolbrún Jónasdóttir 9. júní 1921 - 7. ágúst 1987. Var á Ásvallagötu 11, Reykjavík 1930. Síðast bús. í Reykjavík. F. 8. júní 1921 skv. kb. Maður hennar 25.6.1942; Björn Ólafsson 26. feb. 1917 - 31. mars 1984. Stud. art á Fjólugötu 7, Reykjavík 1930. Fiðluleikari og konsertmeistari. Síðast bús. í Reykjavík.
Börn þeirra;
3) Björg Jónasdóttir Sen 22. maí 1926 - 16. sept. 2015. Var á Ásvallagötu 11, Reykjavík 1930. Skrifstofumaður í Reykjavík 1945. Bús. í Reykjavík. Maður hennar; Jón Sen 9. feb. 1924 - 4. nóv. 2007. Fiðluleikari. Bús. í Reykjavík.
4) Jónas Jónasson 3. maí 1931 - 22. nóv. 2011. Var í Reykjavík 1945. Útvarpsmaður og þáttastjórnandi, tónskáld, leikskáld og rithöfundur í Reykjavík. Starfaði hjá Ríkisútvarpinu um áratugaskeið. Fyrri kona hans; Auður Steingrímsdóttir 6. jan. 1935 - 2. nóv. 2014. Söngkona, flugfreyja og húsfreyja í Reykjavík. Seinni kona hans; Sigrún Sigurðardóttir 18. jan. 1938 - 14. nóv. 2017. Var í Reykjavík 1945. Dagskrárgerðar- og skrifstofumaður hjá Ríkisútvarpinu. Síðast bús. í Reykjavík.
Dóttir þeirra Sigurlaug Margrét dagskrárgerðarmaður hjá RÚV.

Almennt samhengi

Silla var mikið náttúrubarn, kjarkmikil og dugleg. Hafði yndi af því að eltast við búpeninginn út um haga og naut þess að hlynna að nýgræðingi hvort heldur um var að ræða jurtir eða dýr. En margt fer öðruvísi en ætlað er. Á fermingaraldri veiktist Silla og það alvarlega að hún var flutt i sjúkrahúsið á Sauðárkróki. Héraðslæknir Skagfirðinga var þá hinn mæti maður Jónas Kristjánsson, sá er síðar stofnaði Náttúrulækningahælið í Hveragerði. Lauk veikindum hennar á þá leið að taka þurfti af henni annan fótinn. Þótti það ganga kraftaverki næst hve vel tókst til með þá aðgerð. En dugnaður hinnar ungu stúlku og þrek þótti einnig aðdáunarvert. Augljóst mun öllum hvilíkt áfall þetta var fyrir lífsglaða unga stúlku að verða fyrir svo þungri raun. Nú gat hún ekki oftar hlaupið út um hvippinn og hvappinn, stokkið á bak eða leikið við lömb í haga. Allt þetta var þó eftirsóknarvert tápmiklum og glöðum unglingi.

Tengdar einingar

Tengd eining

Akureyri (1778 -)

Identifier of related entity

HAH00007

Flokkur tengsla

associative

Dagsetning tengsla

1920

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Jónas Kristjánsson (1870-1960) læknir (20.9.1870 - 3.4.1960)

Identifier of related entity

HAH09289

Flokkur tengsla

associative

Dagsetning tengsla

1912 - 1913

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Háagerði Skagaströnd ((1943))

Identifier of related entity

HAH00446

Flokkur tengsla

associative

Dagsetning tengsla

1898

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Sauðárkrókur ((1950))

Identifier of related entity

HAH00407

Flokkur tengsla

associative

Dagsetning tengsla

1898 - 1911

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Gagnfræðaskólinn á Akureyri (1902 -)

Identifier of related entity

HAH00008

Flokkur tengsla

associative

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Margrét Sigurðardóttir (1868-1927) Selkirk Manitoba (4.12.1868 - 2.4.1927)

Identifier of related entity

HAH09341

Flokkur tengsla

associative

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Björg Björnsdóttir (1862-1934) Bandagerði (14.7.1862 - 19.11.1934)

Identifier of related entity

HAH02715

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Björg Björnsdóttir (1862-1934) Bandagerði

er foreldri

Sigurlaug Margrét Jónasdóttir (1898-1985) Bandagerði

Dagsetning tengsla

1898

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Sveinbjörn Lárusson (1904-1958) Akureyri (2.12.1904 - 5.4.1958)

Identifier of related entity

HAH09277

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Sveinbjörn Lárusson (1904-1958) Akureyri

er systkini

Sigurlaug Margrét Jónasdóttir (1898-1985) Bandagerði

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Access points area

Efnisorð

Staðir

Occupations

Stjórnsvæði

Authority record identifier

HAH03717

Kennimark stofnunar

IS-HAH

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Að venju eru upplýsingar frá Íslendingabók notaðar, ef þær stangast á við aðrar upplýsingar er þeim bætt við innan hornklofa [ ], ekki er tekin afstaða til mismunandi upplýsinga.

Staða

Loka

Skráningarstaða

Fullt

Skráningardagsetning

GPJ skráning 10.3.2023

Tungumál

  • íslenska

Leturgerð(ir)

Athugasemdir um breytingar

  • Clipboard

  • Flytja út

  • EAC

Related subjects

Tengdir staðir