Siglufjörður

Identity area

Type of entity

Corporate body

Authorized form of name

Siglufjörður

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        1614 -

        History

        Hinn forni Sigluneshreppur náði yfir bæði Siglufjörð og Héðinsfjörð og samsvaraði landnámi Þormóðs ramma. Var hann kenndur við bæinn Siglunes, sem framan af var höfuðból sveitarinnar og síðar kirkjustaður og mikil verstöð. Árið 1614 var ný kirkja reist á Hvanneyri við Siglufjörð, en nafnið Hvanneyrarhreppur mun ekki hafa verið tekið upp fyrr en á 18. öld. Verslun hófst í hreppnum 1788 og Siglufjörður varð að löggiltum verslunarstað árið 1818. Þá var 161 íbúi í hreppnum, þar af 8 í kaupstaðnum. Einni öld síðar, árið 1918, fékk Hvanneyrarhreppur kaupstaðarréttindi og hét eftir það Siglufjarðarkaupstaður.

        Fjörðurinn er lítill og þröngur, umlukinn háum og bröttum fjöllum. Þar er mjög góð höfn frá náttúrunnar hendi en undirlendi lítið, nema inn af botni fjarðarins og á Hvanneyrinni vestan hans, og þrengdist því fljótt að byggðinni þegar fólki fjölgaði. Snjóflóðahætta er víða mikil í firðinum og 12. apríl 1919 fórust 9 manns í snjóflóði í ofurlitlu þorpi sem þá var risið austan fjarðarins og um sama leyti 7 í Engidal, sem er vestan Siglufjarðar en í Hvanneyrarhreppi, og 2 í Héðinsfirði, auk þess sem mörg mannvirki eyðilögðust, þar á meðal fyrsta stóra fiskimjölsverksmiðja á Íslandi. Alls fórust því 18 manns í hreppnum í þessari snjóflóðahrinu.

        Í bænum bjuggu 1219 manns árið 2015, sem er mikil fækkun frá blómaskeiði bæjarins á fjórða og fimmta áratugnum. Árið 1950 bjuggu 3100 manns á Siglufirði og var það þá fimmti stærsti kaupstaður landsins, auk þess sem fjöldi aðkomumanna kom þangað til vinnu um stundarsakir og í brælum þegar ekki gaf til veiða lágu tugir eða jafnvel hundruð skipa á firðinum. Þetta blómaskeið Siglufjarðar var afleiðing mikilla síldveiða fyrir Norðurlandi sem hófust árið 1903. Það voru Norðmenn sem hófu veiðarnar en fljótlega fóru Íslendingar sjálfir að veiða síldina og þá varð Siglufjörður helsti síldarbærinn vegna góðrar hafnaraðstöðu og nálægðar við miðin. Þar voru nokkrar síldarbræðslur, þar á meðal sú stærsta á landinu, og yfir 20 söltunarstöðvar þegar best lét.

        Herring2.jpg

        Á síldarárunum, eins og þau urðu síðar kölluð, var mikið um að vera á Siglufirði og oft mikið um farandverkafólk sem vann í törnum og fékk vel greitt fyrir miðað við það sem annars staðar fékkst, sem varð til þess að Siglufjörður var stundum kallaður Klondike Íslands. Sum árin var verðmæti síldarútflutnings frá Siglufirði yfir 20% af öllum útflutningi Íslendinga. Siglfirðingar minnast þessa tímabils enn í dag, því í bænum er starfandi Síldarminjasafn og árlega er haldin „Síldarævintýrið á Sigló“ um verslunarmannahelgi. Áður en síldin kom til sögunnar hafði Siglufjörður einkum verið þekktur fyrir hákarlaveiðar en þar var mikil hákarlaútgerð.

        Halla fór undan fæti á sjötta áratugnum, þegar síldin brást mörg ár í röð og íbúum fækkaði. Afli jókst aftur en árið 1964 hvarf síldin af norðlenskum miðum og 1968 alveg af Íslandsmiðum. Allöflug togaraútgerð hófst frá Siglufirði upp úr 1970, auk þess sem loðnubræðsla var stunduð í gömlu síldarbræðslunni og seinna kom rækjuvinnsla til sögunnar. Þó hefur íbúum fækkað jafnt og þétt en heldur hefur hægt á fækkuninni á síðustu árum.

        Í janúar 2006 samþykktu Siglfirðingar og Ólafsfirðingar í kosningum að sameina bæjarfélögin tvö. Sameiningin gekk í gildi 11. júní 2006 að afloknum sveitarstjórnarkosningum 27. maí. Í kosningu um nafn á sameinað sveitarfélag varð tillagan „Fjallabyggð“ ofan á.

        Places

        Legal status

        Siglufjörður er bær sem stendur við samnefndan fjörð á mið-Norðurlandi nyrst á Tröllaskaga. Siglufjörður var áður sjálfstætt bæjarfélag en er nú ásamt Ólafsfirði hluti af sveitarfélaginu Fjallabyggð. Íbúar eru rúm 1200.

        Functions, occupations and activities

        Mandates/sources of authority

        Einn þekktasti íbúi Siglufjarðar á fyrri tíð var séra Bjarni Þorsteinsson, sem varð sóknarprestur Siglufjarðar 1888 og gegndi því embætti í hálfa öld. Hann lét til sín taka í mörgum framfaramálum en er þó þekktastur fyrir tónverk sín og söfnun íslenskra þjóðlaga, en óhætt er að segja að hann hafi bjargað mörgum þeirra frá glötun. Nú er Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar rekið á Siglufirði og var það vígt árið 2006 í tilefni af aldarafmæli útkomu þjóðlagasafns Bjarna. Einnig er árlega haldin þjóðlagahátíð á Siglufirði. Síldarminjasafnið á Siglufirði er eitt virtasta safn landsins og það eina sem hlotið hefur evrópsku safnaverðlaunin. Ljóðasetur Íslands tók til starfa á Siglufirði árið 2011. Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, vígði setrið við hátíðlega athöfn þann 8. júlí það ár. Á setrinu er leitast við að kynna gestum íslenskan kveðskap á fjölbreyttan og lifandi hátt. Ljóðahátíðin Glóð hefur verið haldin árlega á Siglufirði frá árinu 2007 og mörg af þekktustu ljóðskáldum landsins hafa komið þar fram auk heimamanna. Það eru Ungmennafélagið Glói og Félag um Ljóðasetur Íslands sem standa að hátíðinni. Alþóðlega samvinnuverkefnið REITIR hefur einnig verið haldið árlega á Siglufirði síðan 2012.

        Internal structures/genealogy

        Síldarsaga Siglufjarðar; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1959
        En Óskar sagði bara þegðu Gotti; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1974
        Ævintýrin á Siglufirði; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1971
        Búðarráp á Siglufirði; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1996
        Jarðgöng til Úlfsdala; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1959
        Frá Siglufirði í Fljót; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1944
        Siglufjörður; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1925
        Systurskip Tröllafoss; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1948

        General context

        Relationships area

        Related entity

        Jóninna Sveinsdóttir (1900-1976) ljósmóðir Miðfirði (5.1.1900 - 4.10.1976)

        Identifier of related entity

        HAH06602

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        1.6.1944 - 1970

        Description of relationship

        Related entity

        Steinunn Sveinsdóttir (1934-2019) Siglufirði (6.1.1934 - 3.2.2019)

        Identifier of related entity

        HAH06273

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        6.1.1934

        Description of relationship

        fædd þar

        Related entity

        Snorri Dalmar Pálsson (1917-2006) Akureyri (28.12.1917 - 2.2.2006)

        Identifier of related entity

        HAH08786

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        28.12.1917

        Description of relationship

        fæddur þar

        Related entity

        Sigríður Blöndal (1865-1929) prestsfrú Siglufirði (11.4.1865 - 25.2.1929.)

        Identifier of related entity

        HAH07078

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        1888 - 1929

        Description of relationship

        Prestsfrú Hvanneyri

        Related entity

        Margrét Eggertsdóttir (1868-1929) Siglufirði (23.8.1868 - 13.9.1929)

        Identifier of related entity

        HAH06399

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        búsett þar

        Related entity

        Kristín Kristjánsdóttir (1894-1977) Hóli Siglufirði (12.12.1894 - 22.6.1977)

        Identifier of related entity

        HAH09496

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Húsfreyja Hóli

        Related entity

        Ingiríður Hannesdóttir (1871-1922) Þröm í Langholti (1.9.1871 - 1.1952)

        Identifier of related entity

        HAH09394

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Húsfreyja þar

        Related entity

        Þuríður Gunnarsdóttir (1913-1958) Siglufirði (13.2.1913 - 13.9.1958)

        Identifier of related entity

        HAH09124

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Húsfreyja þar

        Related entity

        Sigþór Magnússon (1893-1918) Bókari Siglufirði, frá Ægissíðu (11.8.1893 - 7.7.1918)

        Identifier of related entity

        HAH06208

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Bóksali þar

        Related entity

        Hreggviður Þorsteinsson (1880-1931) kaupmaður á Ísafirði (5.10.1880 - 21.1.1931)

        Identifier of related entity

        HAH06411

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Verslunarstjóri þar

        Related entity

        Wilhelm Marzilíus Jónsson (1869-1938) verslunarmaður Jaðri Skagaströnd (2.3.1869 - 25.8.1938)

        Identifier of related entity

        HAH06594

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Kaupmaður og bókhaldari á Siglufirði 1930

        Related entity

        Siglufjarðarkirkja (1614 -)

        Identifier of related entity

        HAH00918

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        1614

        Description of relationship

        Related entity

        Helga Dóra Ottósdóttir (1949) Siglufirði (28.8.1949 -)

        Identifier of related entity

        HAH06946

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Túngöru 20, 1971

        Related entity

        Kári Snorrason (1935) Blönduósi (14.9.1935 -)

        Identifier of related entity

        HAH06205

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        14.9.1935

        Description of relationship

        fæddur þar

        Related entity

        Páll Friðrik Halldórsson (1875-1941) frá Meðalheimi, verslunarstjóri á Akureyri (24.3.1875 - 10.11.1941)

        Identifier of related entity

        HAH06521

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Verslunarstjóri þar

        Related entity

        Halldór Guðmundsson (1889-1975) Siglufirði (23.5.1889 - 28.1.1975)

        Identifier of related entity

        HAH04649

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Útgerðarmaður og kaupmaður á Siglufirði.

        Related entity

        Guðrún Björnsdóttir (1884-1973) skólastjóri (28.6.1884 - 15.12.1973)

        Identifier of related entity

        HAH04225

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        bæjarfulltrúi þar

        Related entity

        Guðfinna Thorberg (1865-1900) Höfn í Siglufirði, frá Gröf á Vatnsnesi (4.7.1865 - 6.1.1900)

        Identifier of related entity

        HAH03881

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Húsfreyja Höfn

        Related entity

        Halldóra Einarsdóttir (1865-1957) Kirkjubæ (24.1.1865 - 6.9.1957)

        Identifier of related entity

        HAH04705

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Húsfreyja þar

        Related entity

        Þóra Jónsdóttir (1895-1966) skáldkona Siglunesi, frá Kirkjubæ í Norðurárdal (23.8.1895 - 23.10.1966)

        Identifier of related entity

        HAH06452

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Húsfreyja á Siglunesi

        Related entity

        Björg Þorkelsdóttir (1883-1972) Refsstöðum á Laxárdal fremri ov (19.6.1883 - 19.1.1972)

        Identifier of related entity

        HAH02759

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        1932-1943

        Description of relationship

        Húsfreyja Efri-Skútu

        Related entity

        Páll Dalmar Sigurjónsson (1894-1970) ritstjóri Siglufirði (9.6.1894 - 18.1.1970)

        Identifier of related entity

        HAH06458

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        frá 1907

        Description of relationship

        Barn þar

        Related entity

        Ásgeir Jónsson (1871-1923) Sellátrum við Reyðarfjörð (31.1.1871 - 2.12.1923)

        Identifier of related entity

        HAH03625

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        búsettur þar

        Related entity

        Hólmfríður Sigurjónsdóttir (1899-1992) Hafnarfirði (5.8.1899 - 13.8.1992)

        Identifier of related entity

        HAH06691

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        frá 1907

        Description of relationship

        barn þar

        Related entity

        Sigurjón Júlíus Nordal Sigurjónsson (1901-1967) Reykjavík (12.7.1901 - 7.12.1967)

        Identifier of related entity

        HAH06503

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        frá 1907

        Description of relationship

        Related entity

        Sveinn Ásmundsson (1909-1966) byggingameistari Blönduósi, frá Ásbúðum á Skaga, (16.6.1909 - 26.2.1966)

        Identifier of related entity

        HAH06493

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Byggingameistari þar

        Related entity

        Jóhann Georg Sigurjónsson (1903-1970) Siglufirði (18.3.1901 - 7.12.1967)

        Identifier of related entity

        HAH05308

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        frá 1907

        Description of relationship

        Related entity

        Jósep Lárusson Blöndal (1875-1966) Siglufirði (19.8.1875 - 8.6.1966)

        Identifier of related entity

        HAH06549

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Jósep Lárusson Blöndal (1875-1966) Siglufirði is the associate of Siglufjörður

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Símstöðvarstjóri og kaupmaður á Siglufirði. Síldarmatsmaður

        Related entity

        Tröllaskagi (874 -)

        Identifier of related entity

        HAH00884

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Tröllaskagi is the associate of Siglufjörður

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH00917

        Institution identifier

        IS HAH

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ skráning 4.7.2020

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Maintenance notes