Mosfell Svínavatnshreppi

Identity area

Type of entity

Corporate body

Authorized form of name

Mosfell Svínavatnshreppi

Parallel form(s) of name

Standardized form(s) of name according to other rules

Other form(s) of name

Identifiers for corporate bodies

Description area

Dates of existence

[1300]

History

Mosfell er nyrsta jörðin í Svínadal og liggur við norðvestur enda Svínavatns. Reykjanibban gnæfir þar á fjallöxlinni nokkru norðan og ofan við bæinn. Þar neðar er Grettisskyrta hinn þekkti líbarít fláki sem sést víða að. Byggingarnar eru þar við fjallsræturnar eins og á öðrum bæjum að vestanverðum dalnum. Frá fjallsrótunum niður að vatninu er gottræktunarland með hæfilegum halla, og þar hefur verið ræktað stórt tún. Þetta er ekki stór jörð en má teljast hæg til búskapar. Íbúðarhús byggt 1939, 238 m3, viðbygging 1967 250 m3. . Fjós fyrir 12 gripi. Fjárhús yfir 260 fjár. Hesthús yfir 11 hross. Hlöður 790 og 974 m3. Geymsluhús 160 m3. Tún 35 ha. Veiðiréttur í Svínavatn.

Places

Svínavatnshreppur; Geithamrar; Svínavatn; Einbúi; Merkjalækur; Berjabrekka; Miðdegishögg; Jórunnarskál; Merkikelda; Reykir; Reykjanibba; Grettisskyrta, Hólastóll; Þverárdalur; Grund í Svínadal; Kúluheiði;

Legal status

Jarðardýrleiki x € og so tíundast presti og fátækum; ekki gjaldast hjer af fleiri tíundir. Eigandinn er biskupsstóllinn að Hólum. Abúandinn Hallargeir Helgason.
Landskuld lx álnir. Betalast með ullarvöru uppá landsvísu, og stundum nokkuð í sljettum peníngum, en við því láta umboðsmenn treglega, og taka því eins að annað skorti; afhendist oftast á Grund í Svínadal. Leigukúgildi iii nú sem stendur, en hálft, sem umfram var í tíð Eggerts Jónssonar, hefur nú biskupsins umboðsmaður, Ögmundur Ögmundsson, heitið annarstaðar að ráðstafa; það hefur og ekki lengur verið en tíð Eggerts.
Leigur betalast í smjöri að Þverárdal hjer innan sýslu, eður þar annarstaðar sem biskupsins umboðsmaður tilsegir innan hjeraðs. Kvaðir eru öngvar. Kvikfjenaður i kýr, i kvíga tvævetur mylk, i veturgömul, xlii ær og vii sem skerast eiga, ix sauðir tvævetrir og eldri, vii veturgamlir, xv gymbrar, xv lömb, i hestur, i hross með fyli.
Fóðrast kann i kýr og úngneyti naumlega, xxv ær, x lömb, ii hestar, Torfrista og stúnga næg og má nýta til reiðíngs. Móskurður til eldiviðar meinast vera mega en brúkast ekki.
Hrísrif hefur verið en er nú þrotið. Silúngsveiðivon er góð en brúkast ekki, liggur þó Svínavatn fyrir landinu. Lambaupprekstur á Kúluheiði hefur brúkaður verið fyrir toll.
Engjunum spillir lækjaskriða í fjalli. Vetrarríki fyrir útsynníngum er mikið. Ekki er óhætt kvikfje fyrir foröðum. Kirkjuvegur illur og lángur. Þurfamannaflutníngur í sama máta.

Functions, occupations and activities

Mandates/sources of authority

Internal structures/genealogy

Ábúendur;

<1901 og 1910> Erlendur Hallgrímsson 4. mars 1860 - 17. október 1935 Var á Vatnsskarði, Holtastaðasókn, Hún. 1860. Daglaunamaður á Einarsnesi Blönduósi 1924-1942. Bóndi á Mosfelli. Sambýliskona hans Sigurlaug Hannesdóttir 22.9.1850 - 25.5.1942, barnlaus.

<1920> Benedikt Helgason 2. október 1877 - 28. apríl 1943 Bóndi í Ytra-Tungukoti, Blöndudal, á Skinnastöðum í Húnavatnssýslu, Agnarsbæ Blönduósi 1925 og 1941. Kona hans; Friðrika Guðrún Þorláksdóttir f. 11. des. 1886 d. 18. apríl 1973, frá Giljárseli Sauðadal og kona hans 9.10.1866; Ingibjörg Helgadóttir 5. ágúst 1832 - 2. mars 1882. Var á Efri Torfastöðum, Staðarbakkasókn, Hún. 1845. Vinnukona á Bjargarstöðum, Efranúpssókn, Hún. 1860. Húskona á Litlu-Giljá, Þingeyrarsókn, Hún. 1870. Húskona á Skinnastöðum, síðar vinnukona á Kringlu. Var á Kringlu, Þingeyrasókn, Hún. 1880.

1930-1964- Júlíus Jónsson 19. júlí 1896 - 17. maí 1991 Var á Mosfelli, Svínavatnshr., A-Hún. 1957. Bóndi þar, síðast bús. í Svínavatnshreppi. Kona hans; Guðrún Sigvaldadóttir 6. sept. 1905 - 1. ágúst 1981. Húsfreyja á Mosfelli, Auðkúlusókn, A-Hún. 1930. Var á Mosfelli, Svínavatnshr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Svínavatnshreppi.

1964- Einar Árni Höskuldsson 28. nóvember 1939 - 24. nóvember 2017. Bóndi, hrossaræktandi og tamningamaður á Mosfelli í Svínavatnshreppi. Síðast bús. á Blönduósi.Kona hans; Bryndís Júlíusdóttir f. 28. apríl 1945 Mosfelli.

um 2000- Sólveig Sigríður Einarsdóttir 4. maí 1966, organisti á Blönduósi og Digraneskirkju, kórstjóri,
Húnaþing II bls 251

General context

Landamerki fyrir jörðinni Mosfelli í Svínavatnshreppi

Að sunnan, móts við Geithamra land, eru merki úr vörðu, er stendur á bakkanum við Svínavatn og í stein rjett þar fyrir ofan, er verða höggnir á stafirnir L.M., svo liggja merki í lækjardrag rjett fyrir sunnan Einbúa, þaðan upp í Merkjalæk, sem fellur ofan Berjabrekku, svo úr Merkjalæk beina línu upp í há hnjúk, (Miðdegishögg), þá liggja merki til norðurs út háfjall og í miðja Jórunnarskál, svo ofan miðja hólana, sem eru fyrir neðan skálina, síðan eru merki ofan með Merkikeldu, ein og vörður til vísa, ofan til Svínavatns á móts við Reykjaland, liggur svo land með Svínavatni allt á móts við fyrst nefndu vörðu á vatnsbakkanum.

Mosfelli, 1. febr. 1891.
E. Halldórsson eigandi Mosfells og Reykja.
Þorsteinn Þorsteinsson, umráðamaður Geithamars.

Lesið upp á manntalsþingi að Svínavatni, hinn 19. maí 1892, og innfært í
landamerkjabók Húnavatnssýslu, No. 286, fol. 152b.

Relationships area

Related entity

Steinunn Guðbjörg Árnadóttir (1898-1990) frá Geithömrum (18.6.1898 - 11.5.1990)

Identifier of related entity

HAH09133

Category of relationship

associative

Dates of relationship

18.6.1898

Description of relationship

fædd þar

Related entity

Reykir við Reykjabraut ([1300])

Identifier of related entity

HAH00561

Category of relationship

associative

Dates of relationship

19.5.1892

Description of relationship

Sameiginlegur eigandi

Related entity

Margrét Helgadóttir (1871-1955) Ráðskona á Beinakeldu (14.7.1871 - 9.4.1955)

Identifier of related entity

HAH09159

Category of relationship

associative

Dates of relationship

Description of relationship

Lausakona þar 1920

Related entity

Anton Júlíusson (1932-2016) Mosfelli (23.4.1932 - 10.3.2016)

Identifier of related entity

HAH06127

Category of relationship

associative

Dates of relationship

1939

Description of relationship

Fósturarn þar

Related entity

Benedikt Benediktsson (1858-1921) Hæli og Hamrakoti (4.5.1858 - 20.5.1921)

Identifier of related entity

HAH02560

Category of relationship

associative

Dates of relationship

4.5.1858

Description of relationship

fæddur þar

Related entity

Skriður í Húnavatnssýslum (874 -)

Identifier of related entity

Category of relationship

associative

Dates of relationship

Description of relationship

– Mosfell: …Engjunum spillir lækjarskriða í fjalli. (Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns, Svínavatnshreppur 1706).

Related entity

Höskuldur Sveinn Björnsson (1990) Mosfelli (14.5.1990)

Identifier of related entity

Category of relationship

associative

Dates of relationship

14.5.1990

Description of relationship

Barn þar

Related entity

Aðalheiður Benediktsdóttir (1917-2010) frá Beinakeldu (9.6.1917 - 1.2.2010)

Identifier of related entity

HAH03187

Category of relationship

associative

Dates of relationship

9.6.1917

Description of relationship

fædd þar

Related entity

Svínavatnshreppur ((1000-2019))

Identifier of related entity

HAH00228

Category of relationship

associative

Dates of relationship

Description of relationship

Related entity

Svínadalur ((1000-2019))

Identifier of related entity

HAH00517

Category of relationship

associative

Dates of relationship

Description of relationship

Related entity

Geithamrar í Svínadal ([1300])

Identifier of related entity

HAH00269

Category of relationship

associative

Dates of relationship

19.5.1892

Description of relationship

Sameiginleg landamörk

Related entity

Kristján Benediktsson (1849-1923) landnámsmaður Point Roberts á Kyrrahafsstönd frá Hrafnabjörgum (27.11.1849 - 26.9.1923)

Identifier of related entity

HAH06582

Category of relationship

associative

Type of relationship

Dates of relationship

23.11.1849

Description of relationship

fæddur þar

Related entity

Hóladómkirkja og Hólar í Hjaltadal ((1930))

Identifier of related entity

HAH00009

Category of relationship

hierarchical

Type of relationship

Hóladómkirkja og Hólar í Hjaltadal

is the owner of

Mosfell Svínavatnshreppi

Dates of relationship

Description of relationship

Eign Hólastóls 1705

Related entity

Bryndís Júlíusdóttir (1945) Mosfelli (28.4.1945 -)

Identifier of related entity

HAH02938

Category of relationship

hierarchical

Type of relationship

Bryndís Júlíusdóttir (1945) Mosfelli

controls

Mosfell Svínavatnshreppi

Dates of relationship

1964

Description of relationship

frá 1964

Related entity

Einar Höskuldsson (1939-2017) Mosfelli (28.11.1939 - 24.11.2017)

Identifier of related entity

HAH03097

Category of relationship

hierarchical

Type of relationship

Einar Höskuldsson (1939-2017) Mosfelli

controls

Mosfell Svínavatnshreppi

Dates of relationship

1964

Description of relationship

frá 1964

Related entity

Guðrún Sigvaldadóttir (1905-1981) Mosfelli (6.9.1905 - 1.8.1981)

Identifier of related entity

HAH04457

Category of relationship

hierarchical

Type of relationship

Guðrún Sigvaldadóttir (1905-1981) Mosfelli

controls

Mosfell Svínavatnshreppi

Dates of relationship

1930

Description of relationship

1930-1964

Related entity

Júlíus Jónsson (1896-1991) Mosfelli (19.7.1896 - 17.5.1991)

Identifier of related entity

HAH01628

Category of relationship

hierarchical

Type of relationship

Júlíus Jónsson (1896-1991) Mosfelli

controls

Mosfell Svínavatnshreppi

Dates of relationship

1930

Description of relationship

1930-1964

Related entity

Guðrún Þorláksdóttir (1886-1973) Agnarsbæ Blönduósi (11.12.1886 - 18.4.1973)

Identifier of related entity

HAH03473

Category of relationship

hierarchical

Type of relationship

Dates of relationship

um1920

Description of relationship

Related entity

Benedikt Helgason (1877-1943) Ytra-Tungukoti, Blöndudal (2.10.1877 - 28.4.143)

Identifier of related entity

HAH02571

Category of relationship

hierarchical

Type of relationship

Dates of relationship

um1920

Description of relationship

Related entity

Erlendur Hallgrímsson (1860-1935) frá Meðalheimi (4.3.1860 - 17.10.1935)

Identifier of related entity

HAH03343

Category of relationship

hierarchical

Type of relationship

Erlendur Hallgrímsson (1860-1935) frá Meðalheimi

controls

Mosfell Svínavatnshreppi

Dates of relationship

1.2.1891

Description of relationship

Access points area

Subject access points

Place access points

Occupations

Control area

Authority record identifier

HAH00520

Institution identifier

IS HAH-Bæ

Rules and/or conventions used

Status

Final

Level of detail

Full

Dates of creation, revision and deletion

GPJ 8.4.2019

Language(s)

  • Icelandic

Script(s)

Sources

Guðmundur Paul
Jarðabók Páls Vidalín 1706. Bls 325
file:///C:/Users/Notandi/AppData/Local/Microsoft/Windows/INetCache/IE/TYHI81U1/H%C3%BAnavatnss%C3%BDsla.pdf
Landamerkjabók Húnavatnssýslu, No. 286, fol. 152b.
Húnaþing II bls 251

Maintenance notes

  • Clipboard

  • Export

  • EAC

Related subjects

Related places