Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Benedikt Gröndal Sveinbjarnarson (1826-1907) skáld
Hliðstæð nafnaform
- Benedikt Sveinbjarnarson (1826-1907)
- Benedikt Gröndal (1826-1907)
- Benedikt Gröndal Sveinbjarnarson
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
6.10.1826 - 2.8.1907
Saga
Benedikt Gröndal Sveinbjarnarson 6. október 1826 - 2. ágúst 1907 Skáld og kennari, adjúnkt í Reykjavík. Var í Skálanum, Bessastaðasókn, Gull. 1845.
Benedikt var afar fjölhæfur maður. Hann var snilldar teiknari, lagði sig eftir náttúrufræði og tungumálum, var ljóðskáld í rómantískum anda og samdi leikrit og sögur. Hann lést í litlu húsi sem lengi stóð að baki Vesturgötu 16, en þar bjó hann síðustu ár ævi sinnar. Húsið hefur nú verið endurbyggt og flutt að Fischersundi og nefnist Gröndalshús.
Staðir
Skálar 1845 og Bessastaðir á Álftanesi: Reykjavík:
Réttindi
Hann lærði í Bessastaðaskóla og nam síðan náttúrufræði og bókmenntir við Hafnarháskóla.
Starfssvið
Benedikt Gröndal var einn af stofnendum Hins íslenska náttúrufræðifélags (HÍN) og fyrsti formaður þess. Formannstíð hans var 1889-1900. Hann var einnig einn af stofnendum Náttúrugripasafns Íslands og annaðist rekstur þess um árabil.
Hann kenndi síðan nokkur ár við Lærða skólann í Reykjavík en hélt svo aftur utan og dvaldi um tíma í Þýskalandi og Belgíu. Eftir það fór hann aftur í Hafnarháskóla og lauk þaðan meistaraprófi í norrænum fræðum fyrstur Íslendinga.
Lagaheimild
Frægasta verk Benedikts er líklega Heljarslóðarorrusta, gamansaga um orrustuna við Solferino 1859 og ýmsa samtímaatburði aðra, erlenda sem innlenda. Söguna skrifaði hann í stíl fornaldarsagna og er fyndni hennar ekki síst fólgin í þeim fáránleika sem skapast af því.
Skáldsagan Sæmd eftir Guðmund Andra Thorsson, sem út kom 2013, fjallar um Benedikt Gröndal og samskipti hans við Björn M. Ólsen.
http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=3307124
http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=1495086
Heljarslóðarorusta netútgáfa: https://www.snerpa.is/net/sma/helj.htm
Endurminningar Gröndals, Dægradvöl; þar er meðal annars að finna merkar heimildir um sögu Reykjavíkur á 19. öld.
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar hans voru; Sveinbjörn Egilsson 24. febrúar 1791 - 17. ágúst 1852 Dr. theol, rektor Lærða skólans. Var í Innri-Njarðvík, Kirkjuvogssókn, Gull. 1801. „Maður vel að sér, lærður og fornfróður, líka skáld“, segir Espólín. og kona hans; Helga Benediktsdóttir 9. júní 1800 - 6. ágúst 1855. Var í Nesi, Reykjavíkursókn, Gull. 1801. Var í Skálanum, Reykjavíkursókn, Gull. 1816. Húsfreyja á Bessastöðum og Eyvindarstöðum á Álftanesi og síðar í Reykjavík
Kona hans; Ingigerður Tómasdóttir Zoëga 29. janúar 1845 - 19. nóvember 1881. Húsfreyja í Reykjavík. Var í Garðhúsi, Garðasókn, Borg. 1845.
Saman eignuðust þau þrjár dætur en tvær þeirra dóu á unga aldri.
1) Magdalena Þuríður Benediktsdóttir Gröndal 1874 - 22. mars 1876
2) Helga Benediktsdóttir Gröndal 21. september 1875 - 4. apríl 1937. Húsfreyja í Meðalfellskoti í Kjós, síðar í Hafnarfirði. Maður hennar; Þórður Edilonsson 16. september 1875 - 14. september 1941. Héraðslæknir í Hafnarfirði 1930. Héraðslæknir í Meðalfellskoti í Kjós, síðar í Hafnarfirði.
3) Magdalena Þuríður Benediktsdóttir Gröndal 23. febrúar 1879 - 3. nóvember 1880
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
is the cousin of
Benedikt Gröndal Sveinbjarnarson (1826-1907) skáld
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er barnabarn
Benedikt Gröndal Sveinbjarnarson (1826-1907) skáld
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 14.11.2017
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Heimildir
®GPJ ættfræði
Íslendingabók