Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Sólveig Sigvaldadóttir (1938-1985) Kúfustöðum
Hliðstæð nafnaform
- Erna Sólveig Sigvaldadóttir (1938-1985)
- Erna Sólveig Sigvaldadóttir
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
21.6.1938 - 1.2.1985
Saga
Erna Sólveig Sigvaldadóttir 21. júní 1938 - 1. febrúar 1985 Halldórsstöðum í Saubæjarhreppi. Hún lést af slysförum við bústörf 1. febrúar 1985 og var jarðsungin frá Bergsstaðakirkju 9. febrúar.
Staðir
Kúfustaðir í Svartárdal; Halldórsstaðir í Saurbæ Ef.:
Réttindi
Hún sótti farkennslu hjá Bjarna Jónassyni í Blöndudalshólum. Skólagangan hélt áfram á Húsmæðraskólanum að Löngumýri.
Starfssvið
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar hennar; Steinunn Elísabet Björnsdóttir 4. janúar 1899 - 7. febrúar 1994 Húsfreyja á Kúfustöðum, Bergstaðasókn, A-Hún. 1930 og maður hennar; 18.4.1921; Sigvaldi Halldórsson 30. september 1897 - 16. maí 1979 Bóndi á Kúfustöðum, Bergstaðasókn, A-Hún. 1930. Bóndi í Stafni í Svartárdal, A-Hún.
Systkini Ernu;
1) Sigurður Fanndal Sigvaldason 6. júlí 1923 - 24. apríl 1981 Var á Kúfustöðum, Bergstaðasókn, A-Hún. 1930. Bóndi á Kúfustöðum. Ókvæntur.
2) Þórir Hólm Sigvaldason 30. janúar 1925 - 11. júní 1992 Var á Kúfustöðum, Bergstaðasókn, A-Hún. 1930. Bóndi í Stafni. Ókvæntur.
3) Guðrún Halldóra Sigvaldadóttir 3. júlí 1927 - 30. apríl 2014 Var á Kúfustöðum, Bergstaðasókn, A-Hún. 1930. Húsfreyja og saumakona í Kópavogi. Maður hennar 21.7.1966; Haukur Björgvinsson 9. apríl 1935
4) Birna María Sigvaldadóttir 28. febrúar 1935 - 23. apríl 2013 Húsfreyja á Barkarstöðum í Bólstaðarhlíðarhreppi. Maður hennar; Þorkell Sigurðsson 23. mars 1933 - 7. október 2008 Bóndi á Barkarstöðum í Svartárdal, A-Hún. Var á Barkarstöðum, Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. 1957.
5) Jón Björgvin Sigvaldason 25. mars 1942, vélstjóri Sauðárkróki, kona hans; Guðríður María Stefánsdóttir 24. júlí 1945.
Uppeldissystir;
0) Elsa Heiðdal 26. júní 1928 Ólst upp hjá Sigvalda móðurbróður sínum f. 1897 og Steinunni konu hans, f. 1899. Var á Skeggsstöðum, Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. 1957. Móðir hennar; Þóra Halldórsdóttir 20. febrúar 1906 - 6. maí 1995 Vetrarstúlka á Akureyri 1930. Var lengi símastúlka hjá Ríkisútvarpinu við Skúlagötu. Ógift.
Maður Sólveigar; Hreinn Gunnarsson 28. febrúar 1932 - 27. desember 1994 Fæddur 25.2.1932 skv. kb. Bóndi Halldórsstöðum.
Dóttir þeirra;
1) Rósa Steinunn Hreinsdóttir 19. mars 1968
Almennt samhengi
Erna Sólveig Sigvaldadóttir var fædd að Stafni í Svartárdal 21. júní 1938. Hún var næst yngst sex barna Sigvalda Halldórssonar bónda að Stafni i Svartárdal og konu hans Steinunnar Björnsdóttur. Erna Sólveig dvaldist í föðurhúsum á fyrstu árum ævi sinnar og hóf þegar tök voru á að sýsla við búskapinn heima. Hún sótti farkennslu hjá Bjarna Jónassyni í Blöndudalshólum. Skólagangan hélt áfram á Húsmæðraskólanum að Löngumýri. Árið 1966 kynntist Erna Sólveig eftirlifandi manni sínum Hreini Gunnarssyni frá Tjörnum í Saurbæjarhreppi. Þau hófu síðan búskap á Halldórsstöðum í Saurbæjarhreppi. Eina barn sitt, Rósu Steinunni, eignuðust þau árið 1968. Erna Sólveig var mjög hæglát og stillt. Jafnframt traust og ábyggileg. Duglyndi átti hún ekki langt að sækja og eins þann eiginleika að geta umgengist skepnur af nærgætni og hlýju. Erna Sólveig lést af slysförum við bústörf 1. febrúar 1985 og var jarðsungin frá Bergsstaðakirkju 9. febrúar.
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er systkini
Sólveig Sigvaldadóttir (1938-1985) Kúfustöðum
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er systkini
Sólveig Sigvaldadóttir (1938-1985) Kúfustöðum
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
is the grandparent of
Sólveig Sigvaldadóttir (1938-1985) Kúfustöðum
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Skráningardagsetning
GPJ 10.4.2018
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Heimildir
®GPJ ættfræði http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=6349106