Sigurður Erlendsson (1887-1981) Stóru Giljá

Original Digital object not accessible

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Sigurður Erlendsson (1887-1981) Stóru Giljá

Parallel form(s) of name

  • Sigurður Erlendsson Stóru Giljá

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      28.4.1887 - 28.9.1981

      History

      Sigurður Erlendsson bóndi og hreppstjóri á Stóru-Giljá, andaðist 28. september á Héraðshælinu. Hann var fæddur 28. apríl 1887 á Beinakeldu í Torfalækjarhreppi. Ungur að árum vann hann að búi foreldra sinna eins og títt var um sveitir lands vors á þeim tímum. Um skólagöngu var eigi að ræða, vinnan gekk fyrir öllu. Árið 1901 lést faðir hans. Eftir það bjó móðir hans félagsbúi ásamt þeim systkinum næstu átta árin á Beinakeldu, en flyst þá að Stóru-Giljá en Jóhannes sonur hennar hafði flutt þangað nokkru áður. Árið 1916 flytur Sigurður einnig að Stóru-Giljá þar sem hann tók við búi, en eftir það bjuggu þeir bræður félagsbúi allt til ársins 1972. Voru þeir bræður með eindæmum samrýmdir og unnu með einum huga að búi sínu. Upp úr árinu 1916 tóku þeir að byggja upp á jörð sinni. Þá voru hús öll mjög hrörleg orðin á Stóru-Giljá. Reistu þeir eitt mesta íbúðarhús í sveit á Íslandi, á þeim tíma, glæsilega byggingu, sem jafnan var tekið eftir er farið var um garða. Var gestrisni þeirra viðbrugðið, enda jafnan gestkvæmt mjög og mannmargt á heimili þeirra og bærinn frá fornu fari í þjóðbraut. Á þessum fyrstu búskaparárum sínum ræktuðu þeir túnið, græddu upp móa og mela. Jafnan var margt heimilisfólk á Stóru-Giljá, m.a. dvaldi þar löngum fóstursystir þeirra Jóhanna Björnsdóttir, húsmæðrakennari. Hvorugur þeirra bræðra kvæntist og var Sigurbjörg Jónasdóttir frá Litladal ráðskona þeirra um 36 ára skeið. Á heimili þeirra var um langt skeið Sigurður Laxdal Sigurður Laxdal Jónsson 25. apríl 1907 - 10. nóvember 1940 og kona hans Klara Bjarnadóttir 11. ágúst 1911 - 20. janúar 1996 Vinnukona á Torfalæk, Þingeyrasókn, A-Hún. 1930. Húskona á Stóru-Giljá, síðast bús. í Blönduóshreppi. í húsmennsku og ólust börn þeirra upp í skjóli bræðranna, ma. a) Bjarni Ragnar Sigurðarson 14. janúar 1934 - 4. nóvember 1954. Vinnumaður á Stóru-Giljá. b) Guðríður Sigurðardóttir 19. júní 1935 Var á Stóru-Giljá í Torfalækjahr., A-Hún. 1957. c) Þorsteinn Helgi Sigurðsson f. 15. júlí 1937 Var á Stóru-Giljá í Torfalækjahr., A-Hún. 1957. d) Guðrún Sigurðardóttir 31. október 1939 - 14. apríl 2015 Var á Litlu-Giljá, Sveinsstaðahr., A-Hún. 1957. Sjúkrahússtarfsmaður á Blönduósi og í Reykjavík, síðast verslunarmaður í Reykjavík. Síðar var þar og Sigurjón Jónasson 20. júlí 1907 - 25. júní 1969 Fjármaður á Bjarnastöðum, Þingeyrasókn, A-Hún. 1930. Var á Bjarnastöðum, Sveinsstaðahr., A-Hún. 1957. Vinnumaður, á Stóru-Giljá, seinni maður Klöru ásamt tveim sonum þeirra Jónasi f. 5.4.1945 og Hávarði f 17.7.1948. Einnig dvöldu um lengri eða skemmri tíma á heimili þeirra börn Jósefínu systur þeirra. Reyndist Sigurður öllu þessu fólki eins og umhyggjusamur faðir.
      Eins og áður er sagt brugðu þeir bræður búi 1972 og létu það í hendur bróðursonar þeirra Erlendur Guðlaugur Eysteinsson 10. janúar 1932 Var á Beinakeldu í Torfalækjahr., A-Hún. 1957, og dvöldu þeir síðan í skjóli hans og konu hans, Helgu Búadóttur f. 16.5.1938 og nutu þar umönnunar og umhyggju þeirra. Jóhannes lést á Stóru-Giljá 23. október 1977. Sigurður á Stóru-Giljá unni heimabyggð sinni af alhug, enda dvaldi hann aldrei utan hennar og helgaði henni alla krafta sína.

      Places

      Beinakelda: Stóra-Giljá:

      Legal status

      Functions, occupations and activities

      Vegna mannkosta sinna voru Sigurði snemma falin mörg trúnaðarstörf sveitar sinnar. Hann sat í hreppsnefnd Torfalækjarhrepps frá 1922-1962 þar af oddviti 1946-1962. Hreppstjóri sveitar sinnar 1945-1969. Sat í sóknarnefnd Þingeyrakirkju í 53 ár og jafnlengi meðhjálpari kirkjunnar.
      Hann sat í skattanefnd og yfirskattanefnd um árabil. Átti sæti í stjórn Kaupfélags Húnvetninga um 12 ára skeið og var kjörinn heiðursfélagi kaupfélagsins 1967 á áttræðisafmæli sínu. Sat í áratugi í stjórn Búnaðarfélags Torfalækjarhrepps og var kjörinn heiðursfélagi félagsins 1970. Hann var gangnaforingi sveitar sinnar um áratugi. Í öllum störfum sínum reyndist hann trúr og dyggur svo af bar. Þar hugsaði hann fyrst og fremst um hag þeirra, er trúðu honum fyrir málefnum sínum.
      Útför Sigurðar á Stóru-Giljá fór fram frá Þingeyrakirkju 6. október.

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hans voru Erlendur Eysteinsson bóndi þar, er ættaður var frá Orrastöðum og kona hans Ástríður Helga Sigurðardóttir frá Hindisvík á Vatnsnesi en hún var föðursystir þeirra bræðra sr. Sigurðar og Jóhannesar Norland. Hann ólst upp í föðurgarði í hópi átta systkina er á legg komust og eru nú öll látin.
      Þeir bræður ólu upp Ásgerði Guðmundsdóttur, systurdóttur sína en hún er búsett á Akureyri.

      General context

      Í hugum Íslendinga skipar Stóra-Giljá stóran sess, er rekja má til upphafs kristniboðs á Islandi. öll þekkjum við þessa sögu og hefir hún rækilega verið rifjuð upp nú á kristniboðsári 1981 með hátíðarhöldum hér í Húnaþingi. Staðurinn hefir nú um langan aldur verið vel setinn og hýstur eins og slíkum stað ber.

      Relationships area

      Related entity

      Sigurbjörg Jónasardóttir (1895-1991) Litlu-Giljá (6.8.1895 - 26.4.1991)

      Identifier of related entity

      HAH01929

      Category of relationship

      temporal

      Dates of relationship

      1937

      Description of relationship

      Ráðskona hjá þeim bræðrum

      Related entity

      Guðmundur Frímannsson (1892-1918) Hvammi og Stóru-Giljá (28.5.1892 - 30.11.1918)

      Identifier of related entity

      HAH04012

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      13.7.1913

      Description of relationship

      Jósefína kona Guðmundar var systir Sigurðar

      Related entity

      Beinakelda Torfalækjarhreppi ((1300))

      Identifier of related entity

      HAH00550

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      28.4.1887

      Description of relationship

      fæddur þar

      Related entity

      Beinakelda Torfalækjarhreppi ((1300))

      Identifier of related entity

      HAH00550

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      28.4.1887

      Description of relationship

      fæddur þar

      Related entity

      Lárus Erlendsson (1896-1981) frá Beinakeldu, San Francisco, California (7.10.1896 - 10.9.1981)

      Identifier of related entity

      HAH08936

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Lárus Erlendsson (1896-1981) frá Beinakeldu, San Francisco, California is the sibling of Sigurður Erlendsson (1887-1981) Stóru Giljá

      Dates of relationship

      7.10.1896

      Description of relationship

      Related entity

      Jósefína Erlendsdóttir Hansen (1894-1937) frá Stóru Giljá (2.11.1894 - 19.11.1937)

      Identifier of related entity

      HAH02513

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Jósefína Erlendsdóttir Hansen (1894-1937) frá Stóru Giljá is the sibling of Sigurður Erlendsson (1887-1981) Stóru Giljá

      Dates of relationship

      2.11.1894

      Description of relationship

      Related entity

      Jóhannes Erlendsson (1891-1977) Stóru-Giljá (21.5.1891 - 23.10.1977)

      Identifier of related entity

      HAH05438

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Jóhannes Erlendsson (1891-1977) Stóru-Giljá is the sibling of Sigurður Erlendsson (1887-1981) Stóru Giljá

      Dates of relationship

      21.5.1891

      Description of relationship

      Related entity

      Ragnhildur Erlendsdóttir (1888-1974) Syðra Vallholti Skagafirði

      Identifier of related entity

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Ragnhildur Erlendsdóttir (1888-1974) Syðra Vallholti Skagafirði is the sibling of Sigurður Erlendsson (1887-1981) Stóru Giljá

      Dates of relationship

      8.8.1888

      Description of relationship

      Related entity

      Guðrún Erlendsdóttir (1886-1966) Tindum (28.5.1886 - 1.7.1966)

      Identifier of related entity

      HAH04284

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðrún Erlendsdóttir (1886-1966) Tindum is the sibling of Sigurður Erlendsson (1887-1981) Stóru Giljá

      Dates of relationship

      28.5.1886

      Description of relationship

      Related entity

      Eysteinn Erlendsson (1889-1969) Beinakeldu (28.8.1889 - 27.10.1969)

      Identifier of related entity

      HAH03389

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Eysteinn Erlendsson (1889-1969) Beinakeldu is the sibling of Sigurður Erlendsson (1887-1981) Stóru Giljá

      Dates of relationship

      28.8.1889

      Description of relationship

      Related entity

      Guðrún Eysteinsdóttir (1851-1917) Hamri (23.12.1851 - 22.2.1917)

      Identifier of related entity

      HAH04286

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðrún Eysteinsdóttir (1851-1917) Hamri is the cousin of Sigurður Erlendsson (1887-1981) Stóru Giljá

      Dates of relationship

      1887

      Description of relationship

      Erlendur faðir Sigurðar var bróðir Guðrúnar

      Related entity

      Jóhann Eiríkur Jónsson (1921-2004) Beinakeldu (19.8.1921 - 20.3.2004)

      Identifier of related entity

      HAH01547

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Jóhann Eiríkur Jónsson (1921-2004) Beinakeldu is the cousin of Sigurður Erlendsson (1887-1981) Stóru Giljá

      Dates of relationship

      Description of relationship

      giftur Ingibjörgu Eysteinsdóttur Erlendssonar á Beinakeldu

      Related entity

      Stóra-Giljá Torfalækjarhreppi ((950))

      Identifier of related entity

      HAH00479

      Category of relationship

      hierarchical

      Type of relationship

      Stóra-Giljá Torfalækjarhreppi is owned by Sigurður Erlendsson (1887-1981) Stóru Giljá

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Bóndi þar

      Related entity

      Ástríður Sigurðardóttir (1860-1938) Beinakeldu (9.9.1860 - 1.4.1938)

      Identifier of related entity

      HAH03696

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Ástríður Sigurðardóttir (1860-1938) Beinakeldu is the parent of Sigurður Erlendsson (1887-1981) Stóru Giljá

      Dates of relationship

      28.4.1887

      Description of relationship

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01943

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 19.7.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Sources

        ®GPJ ættfræði
        Íslendingabók
        Föðurtún bls. 175.
        Húnavaka 1982. https://timarit.is/page/6347318?iabr=on

        Maintenance notes