Auðkenni
Tegund einingar
Fyrirtæki/stofnun
Leyfileg nafnaform
Samkomuhúsið Aðalgötu 1 Blönduósi
Hliðstæð nafnaform
- Möllers verslun 1876
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
1927 -
Saga
Samkomuhúsið (nú Aðalgata 1), sem byggt var á árunum 1925— '27, var lengi helzta funda- og samkomuhús sýslunnar.
Þar stóð áður verslunarhús Möllers og Thomasar Jerovsky
Staðir
Blönduós gamlibærinn Aðalgata 1;
Húsið stendur á mótum Aðalgötu og Blöndubyggðar. Húsið var tekið í notkun 1927 og er hár kjallari, hæð og ris. Inngangar eru frá götu og garðhlið. Aftan við húsið við Blöndubyggð er Hillebrandtshús, elsta húsið í þorpinu.
Réttindi
Möllersverslunarhús 1876 - brann 21. des 1914. Íbúðarhúsið og sölubúðin voru grænmáluð. Samkomuhúsið var reist á grunni verslunarhússins
Starfssvið
Árið 1957 bundust nokkur félög og félagasamtök samtökum um að reisa félagsheimili. Blönduóshreppur var þar í broddi fylkingar. Það er hið myndarlegasta hús með danssal, kvikmyndasal með stóru leiksviði og rúmgóðu anddyri, auk smærri fundarsala og félagaherbergja. Hefur það reynzt mikil lyftistöng fyrir allt félagslíf í kauptúninu. Það stendur við Húnabrautina utan ár. Húsvörður er Eyþór Elíasson.
Lagaheimild
Fyrsti eigandi húss; Félag um samkomuhús A-Húnvetninga hf. stofnað 26.mars.1925. Stór hluthafi í félaginu var Lárus Ólafsson,
sem síðan byggði húsið.
Upphafleg notkun: Sparisjóður, samkomuhús, veitingasala
Upphafleg gerð húss:
Tegund Steinsteypt og pússað.
Þakgerð Risþak
Þakklæðning Bárujárn
Undirstaða Steinsteypt
Útlit Hár kjallari, hæð og ris
Helstu breytingar:
• Stór gluggi hefur verið settur á suðurgafl í risi e.1972
• Reykháfar fjarlægðir - ártal óvisst (áó)
• Svalir settar á suðurgafl húss og brunastigi - (áó)
• Dyrum fjölgað á neðri hæð að Aðalgötu - (áó)
• Þakgluggar settir á hús -
Innri uppbygging/ættfræði
1912-1914- Sigurður Berndsen kaupmaður f. 17. des 1889 d 5. mars 1963, maki; Margrét Pétursdóttir f. 2. ágúst 1893 d. 11. nóv. 1965 sjá Kistu.
1933 og 1951- Þorvaldur Þórarinsson f. 16. nóv. 1899 Hjaltabakka, d. 2. nóv. 1981. Skrifstofumaður á Lindargötu 43 b, Reykjavík 1930. Skrifstofumaður á Blönduósi, síðar bókari í Reykjavík. Var í Böðvarshúsi, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Maki 12. nóv. 1926 (sk), Ragnheiður Brynjólfsdóttir f. 22. maí 1901, d. 10. júní 1994, frá Ytri-Ey. Böðvarshúsi 1957.
Börn þeirra;
1) Sigríður Þóra (1927-2001) Garðabæ,
2) Kristín Bryndís McRainey (1928-2008). Var á Lindargötu 43 b, Reykjavík 1930. M: Donald D. McRainey, d. 1968. Barn: Susanna M. Walker.
3) Gissur (1929-2018). Loftskeytamaður, skrifstofustjóri og framkvæmdastjóri. Var á Ytri-Ey, Hofssókn, A-Hún. 1930. Dóttursonur Brynjólfs Lýðssonar og Kristínar Guðmundínu Indriðadóttur.
4) Þráinn (1934),
5) Þór (1937-2001). Húsasmiður og múrari. Síðast bús. í Reykjavík.
6) Ásgeir (1944). Var í Böðvarshúsi, Blönduóshr., A-Hún. 1957.
Barn Þorvalds með Þóreyju Jónsdóttur (1900-1966) sjá Miðsvæði;
7) Inga (1926-2012). Var í Hjallalandi, Þingeyrasókn, A-Hún. 1930. Var í Straumnesi, Höfðahr., A-Hún. 1957.
Barn Þorvalds með Huldu Jónsdóttur (1903-1965) Akranesi;
8) Örlygur (1926-2013). Var í Tjarnarhúsum, Akranesssókn, Borg. 1930. Flugmaður og flugumsjónarmaður og fékkst einnig við ýmis störf tengd sjávarútvegi.
Barn Þorvalds með Guðrúnu Rósu Jóhannsdóttur (1906-1956) Rvík.;
9) Bergþóra Sigríður (1927-1995). Var í Hafnarfirði 1930. Fósturfor: Sigurjón Jóhannsson og Þóra Gísladóttir. Síðast bús. í Hafnarfirði.
Barn Þorvalds með Helgu Sigríði Valdimarsdóttur (1913-1993) sjá Vegamót;
10) Hjördís Bára (1941) sjá Miðsvæði.
1951- Óðinn Már Jónsson (1946) sonur Sigríðar Þóru (sjá ofar) og Jóns Rafns Oddssonar (1926-2015). Var í Víkurkauptúni, Víkursókn, V-Skaft. 1930. Sjómaður og útgerðarmaður á Ísafirði.
1946 og 1951- Sigurgeir Magnússon f. 27. sept. 1913 d. 5. ág. 2007. Húsgagnasmiður í Reykjavík og á Blönduósi. Flutti aftur til Reykjavíkur og vann þar ýmis störf. Vinnumaður á Krossárbakka, Óspakseyrarsókn, Strand. 1930. Var í Hreppshúsinu, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Maki 11. des. 1937; Kristín Jóhanna Guðmundsdóttir f. 30. mars 1918 d. 30. des 1987. Var á Blönduósi 1930. Var í Hreppshúsinu, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Reykjavík. Sjá Máfaberg / Mágaberg,
Hreppshús 1957. Rvík.
Börn þerra;
1) Magnús (1937-1937).
2) Sigurbjörg Bára (1938).
3) Sævar Frímann (1940-1999). Var í Hreppshúsinu, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Bifreiðastjóri, síðast bús. í Reykjavík.
4) Ægir Frímann (1945),
5) Unnur Hrönn (1947). Var í Hreppshúsinu, Blönduóshr., A-Hún. 1957.
6) Friðrik Ósfjörð (1949). Var í Hreppshúsinu, Blönduóshr., A-Hún. 1957.
7) Þórdís (1957). Var í Hreppshúsinu, Blönduóshr., A-Hún. 1957.
Almennt samhengi
Árið 1876 lét Thomsen kaupmaður reisa verslunarhús á þessum stað. Húsið sneri í austur vestur
og kom húsgrindin tilhöggvin frá Noregi, (sjá mynd á bls. 6). Gekk það undir nafninu Möllersbúð.
Húsið brann 21. des. 1914. Síðar var reist á þessum stað steinhús, Samkomuhúsið, sem sneri í
suður og norður. En stjórn hússins ákvað árið 1926 áður en til byggingar þess kom að svo skyldi
vera, því ekki náðist samkomulag við Magnús Stefánsson á Flögu, annan þáverandi eiganda
Hemmertshússins, sem stóð austan við lóðina, um lóðarstækkun í þá átt. Þetta var all
myndarlegt hús á þeirra tíma vísu. Um áratuga skeið var Samkomuhúsið aðal funda- og
skemmtihús staðarins. Þar var einnig rekin greiðasala. Fyrst af Ingibjörgu Ólafsdóttur fram til
ársins 1932 en síðan af Ragnheiði Brynjólfsdóttur um margra ára skeið. Nú er húsið notað til
íbúðar og sem gistihús.
BYGGINGARLAG, EFNI og ÁSTAND
Samkomuhúsið er byggt 1926, steinsteypt tveggja hæða hús (hár kjallari og hæð) með risi. Það hefur verið með steinsteypuáferð frá upphafi og er nú málað að utan. Aðalbreytingar eru gerðar eftir 1972 en þá er stór gluggi settur á suðurgafl hússins og svalir með timburhandriði ásamt brunastiga frá þeim úr járni. Gluggar hafa einnig verið augnstungnir í tímans rás, en á mynd frá 1930 má sjá í húsinu upprunalegan póstaglugga. Tveir reykháfar voru í byrjun á húsinu, en þeir hafa verið fjarlægðir. Ástand hússins er nokkuð gott, breytingar mætti þó fella betur að húsinu.
Frágangur lóðar er ófullnægjandi og þarf að laga.
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
controls
Samkomuhúsið Aðalgötu 1 Blönduósi
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH-Blö
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 22.5.2019
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Heimildir
Guðmundur Paul; ®Býlaskrá Blönduóss 1875-1957
file:///C:/Users/Notandi/OneDrive%20-%20Bl%C3%B6ndu%C3%B3sb%C3%A6r/Husakonnun-a-Blonduosi-2015-lokahefti.pdf