Ingvar Pálsson (1895-1968) Balaskarði

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Ingvar Pálsson (1895-1968) Balaskarði

Parallel form(s) of name

  • Ingvar Stefán Pálsson (1895-1968) Balaskarði

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      25.10.1895 - 18.10.1968

      History

      Ingvar Stefán Pálsson 25. október 1895 - 18. október 1968 Var á Rútstöðum, Auðkúlusókn, Hún. 1901. Bóndi á Balaskarði, Hofssókn, A-Hún. 1930. Bóndi á Balaskarði, Vindhælishr. Þegar Ingvar Pálsson var sjö ára gamall missti hann föður sinn, og ólst, þá upp með móður sinni á ýmsum stöðum, lengst að Ljótshólum í Svinadal, hjá Guðrúnu Eysteinsdóttur og manni hennar, Guðmundi Tómassyni.
      Ingvar Pálsson var bráðþroska, og var gæddur fjölhæfum gáfum eins og hann átti kyn til í báðar ættir. Um góðan árangur námsins, samfara mikilli eðlis greind, vitnaði allt, er Ingvar skrifaði, í bundnu sem óbundnu máli. Á Eldjárnstöðum bjuggu þau hjón í sex ár, en fluttu þá að Smyrlabergi á Ásum, og voru þar eitt ár. Árið 1927 keyptu þau Ingvar og Signý Balaskarð á Laxárdal og fluttu þangað sama ár. Þar bjuggu þau til hinztu stundar Ingvars Þegar Ingvar og Signý hófu búskap á Eldjárnstöðum, með lítinn bústofn, fór í hönd lamandi fjármáiakreppa, er mest hefur orðið á landi bér á þessari öld, samfara var og hörku veðurfar.

      Places

      Kaldakinn á Ásum: Rútsstaðir í Svínadal: Balaskarð:

      Legal status

      Sextán ára fór Ingvar í lýðskólann á Hvítárbakka, og dvaldi þar í tvo vetur, lengri gat skólagangan ekki orðið, þó að hann þráði heitt að menntast meira, því fé skorti til. Ingvar hlaut ágætan vitnisburð frá skólastjóra og kennurum skólans. Próf voru ekki viðhöfð í skólanum:
      Bóndi:

      Functions, occupations and activities

      Sem að líkum lætur, var Ingvari Pálssyni falin mörg trúnaðarstörf í sveit hans og sýslu. Hann var um langt árabil í sveitarstjórn Vindhælishrepps og í sóknarnefnd um langt skeið. Meðan Ingvar á Balaskarði var heill heilsu var hann árlega kosinn fulltrúi á aðalfundi samvinnufélaganna í Húnaþingi, og um skeið var hann í stjórn Kaupfélags Húnvetninga. Á þessum vettvangi sem annars staðar, ötull og farsæll umhótamaður. Var og rómað, að Ingvar veitti hverju góðu móli brautargengi, svo sem orka og aðstæður leyfðu í smærri samtökum s. s. ungmennafélaginu í sveitinni og búnaðarfélaginu reyndist Ingvar skeleggur starfskraftur, laðandi unga fólkið til þátttöku i þróun félagsmálanna.

      Mandates/sources of authority

      Balaskarð er erfið fjallajörð, en landmikið og kostaríkt. Þegar hagur Balaskarðshjóna rýmkaðist eftirr 1940, byrjaði Ingvar þegar að bæta jörð sína með ræktun og byggingum.
      Ingvar Pálsson var ágætur hagyrðingur, þótt fátt hafi birtzt eftir hann, mun nokkru hafa um valdið eðlisgerð hlédrægni, og hins vegar lítil timi til slikrar andlegrar sköpunar, er vel þurfti tii að vanda, svo að hann teldi hæfa íslenzkri þjóð og tungu. Ingvar lýsir þrá sinni og vonum að nokkru, í kvæðinu „Bernskuvonir", er birtist í Húnvetningaljóðum.

      Er höfundurinn hefur sagt ýmsa sína bernskudrauma, bætir hann við:
      „Eins ég þráði að yrkja og skrifa,
      yndislegt þá vœri að lifa.
      Á hátind frægðar helzt að klifa,
      ég hafði lesið oft um slíkt.
      Helzt var mér í huga ríkt
      að syngja ljóð með svanahljómi,
      svo að þjóðar lofgjörð ómi.
      Og það var fleira þessu líkt".

      Internal structures/genealogy

      Ingvar Pálsson fæddist í Köldukinn á Ásum 25. október 1895, og var því tæpra sjötíu og þriggja ára er hann andaðist 18. f.m. Foreldrar Ingvars voru: Páll Pálsson, prests á Bergstöðum í Svartárdal og Elísabet Gísladóttir, Sigurðssonar í Kóngsgarði í Fossárdal. Ingvar var einbirni Páls og Elísabetar, en hún var áður gift Jóni Rafnssyni, bónda í Rugludal, og hafði átt með honum þrjú börn: Ásdísi, er giftist Sveini Guðmundssyni, bónda á Kárastöðum, Kristínu, konu Björns Björnssonar Orrastöðum, og Gísla er lengi bjó að Saurbæ í Vatnsdal.
      Ingvar Pálsson kvæntist eftirlifandi konu sinni, Signýju Benediktsdóttur, (1900-1991) árið 1920, og sama ár byrjuðu þau búskap á Eldjárnstöðum í Blöndudal, erfiðri fjallajörð.
      Börn þeirra Ingvars Pálssonar og Signýjar Benediktsdóttur eru:
      1) Björg Ingvarsdóttir 31. maí 1926 - 15. mars 2014 Var í Balaskarði, Hofssókn, A-Hún. 1930. Var í Balaskarði, Vindhælishr., A-Hún. 1957. Húsfreyja og verkakona í Keflavík, síðar bús. í Njarðvík.
      2) Ástmar Ingvarsson 5. júní 1923 - 10. október 1977 Var í Balaskarði, Hofssókn, A-Hún. 1930. Var í Héðinshöfða, Höfðahr., A-Hún. 1957. Bifreiðarstjóri á Skagaströnd.
      3) Geirlaug Ingvarsdóttir 26. september 1932 Var í Balaskarði, Vindhælishr., A-Hún. 1957. Dóttir hennar með Gunnlaugi H Þórarinssyni (1925-2010), Signý Gunnlaugsdóttir Fædd á Blönduósi 20. október 1967 Látin á Blönduósi 4. maí 2015 Stundaði búskap á Balaskarði og síðar á Syðra-Hóli í Vindhælishreppi.
      4) Elsa Ingvarsdóttir 26. september 1932 - 11. desember 2007 Var í Balaskarði, Vindhælishr., A-Hún. 1957.
      Þær systur hafa unnið heimili foreldra sinna ómetanlegt gagn, sérstaklega eftir að heimilisfaðirinn varð ófær til vinnu.
      Auk barna sinna önnuðust Balaskarðshjónin uppeldi
      0) Ingvar Björnsson, 18. júní 1912 - 28. apríl 1963 Menntaskólanemi á Akureyri 1930. Kennari á Blönduósi, síðar á Akranesi. Ingvar Björnsson kennari var hjá nafna sinum og frænda, frá sjö ára aldri til fermingar. Svo var kært með þeim frændum, að ekki gat betra verið, þó að um faðir og son hefði verið að ræða.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Rútsstaðir Svínavatnshreppi ([1300])

      Identifier of related entity

      HAH00531

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      Description of relationship

      var þar 1901

      Related entity

      Ljótshólar Svínavatnshreppi ([1300])

      Identifier of related entity

      HAH00519

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      Description of relationship

      ólst þar upp

      Related entity

      Gísli Jónsson (1878-1959) Saurbæ (18.1.1878 - 18.5.1959)

      Identifier of related entity

      HAH03773

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Gísli Jónsson (1878-1959) Saurbæ is the sibling of Ingvar Pálsson (1895-1968) Balaskarði

      Dates of relationship

      25.10.1895

      Description of relationship

      Related entity

      Signý Benediktsdóttir (1900-1991) Balaskarði (11.7.1900 - 7.1.1990)

      Identifier of related entity

      HAH01887

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Signý Benediktsdóttir (1900-1991) Balaskarði is the spouse of Ingvar Pálsson (1895-1968) Balaskarði

      Dates of relationship

      4.8.1923

      Description of relationship

      Börn þeirra 1) Ástmar, f. 5.6.1923, d. 10.10.1977. Skagaströnd 2) Björg, f. 31.5.1926, d. 15.3.2014. Keflavík.. 3) Elsa, f. 26.9.1932, d. 11.12.2007. Balaskarði. 4) Geirlaug, f. 26.9.1932. Balaskarði

      Related entity

      Grímur Gíslason (1912-2007) Saurbæ (10.1.1912 - 31.3.2007)

      Identifier of related entity

      HAH01253

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Grímur Gíslason (1912-2007) Saurbæ is the cousin of Ingvar Pálsson (1895-1968) Balaskarði

      Dates of relationship

      10.1.1912

      Description of relationship

      Gísli faðir hans og Ingvar voru hálfbræður sammæðra

      Related entity

      Ingvar Björnsson (1912-1963) kennari Blönduósi og MA (18.6.1912 - 28.4.1963)

      Identifier of related entity

      HAH06501

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Ingvar Björnsson (1912-1963) kennari Blönduósi og MA is the cousin of Ingvar Pálsson (1895-1968) Balaskarði

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Alinn upp á Balaskarði

      Related entity

      Smyrlaberg í Torfulækjarhreppi ((1430))

      Identifier of related entity

      HAH00153

      Category of relationship

      hierarchical

      Type of relationship

      Smyrlaberg í Torfulækjarhreppi is controlled by Ingvar Pálsson (1895-1968) Balaskarði

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Bóndi þar

      Related entity

      Eldjárnsstaðir í Blöndudal ([1200])

      Identifier of related entity

      HAH00199

      Category of relationship

      hierarchical

      Type of relationship

      Eldjárnsstaðir í Blöndudal is controlled by Ingvar Pálsson (1895-1968) Balaskarði

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Bóndi þar

      Related entity

      Balaskarð á Laxárdal fremri (30.4.1890 -)

      Identifier of related entity

      HAH00369

      Category of relationship

      hierarchical

      Type of relationship

      Balaskarð á Laxárdal fremri is owned by Ingvar Pálsson (1895-1968) Balaskarði

      Dates of relationship

      1927

      Description of relationship

      Bjó þar með konu sinni 1927-1968 og kona hans áfram eftir andlát hans;

      Related entity

      Björg Ingvarsdóttir (1926-2014) Keflavík, frá Balaskarði (31.5.1926 - 15.3.2014)

      Identifier of related entity

      HAH01128

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Björg Ingvarsdóttir (1926-2014) Keflavík, frá Balaskarði is the child of Ingvar Pálsson (1895-1968) Balaskarði

      Dates of relationship

      31.5.1926

      Description of relationship

      Related entity

      Geirlaug Ingvarsdóttir (1932) Balaskarði (26.9.1932 -)

      Identifier of related entity

      HAH03719

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Geirlaug Ingvarsdóttir (1932) Balaskarði is the child of Ingvar Pálsson (1895-1968) Balaskarði

      Dates of relationship

      26.9.1932

      Description of relationship

      Related entity

      Elsa Ingvarsdóttir (1932-2007) Balaskarði (26.9.1932 - 11.12.2007)

      Identifier of related entity

      HAH03294

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Elsa Ingvarsdóttir (1932-2007) Balaskarði is the child of Ingvar Pálsson (1895-1968) Balaskarði

      Dates of relationship

      26.9.1932

      Description of relationship

      Related entity

      Ástmar Ingvarsson (1923-1977) Héðinshöfða Skagaströnd (5.6.1923 - 10.10.1977)

      Identifier of related entity

      HAH03691

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Ástmar Ingvarsson (1923-1977) Héðinshöfða Skagaströnd is the child of Ingvar Pálsson (1895-1968) Balaskarði

      Dates of relationship

      5.6.1923

      Description of relationship

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01525

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 9.7.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Sources

        ®GPJ ættfræði
        ÆAHún bls 432
        Húnavaka 1969 bls. 163.
        Tíminn 1.11.1973. http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=256546

        Maintenance notes