Hulda Þorsteinsdóttir (1913-1988) frá Eyjólfsstöðum

Auðkenni

Tegund einingar

Einstaklingur

Leyfileg nafnaform

Hulda Þorsteinsdóttir (1913-1988) frá Eyjólfsstöðum

Hliðstæð nafnaform

  • Hulda Þorsteinsdóttir (1913-1988) frá Eyjólfsstöðum

Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum

Aðrar nafnmyndir

Auðkenni fyrir stofnanir

Lýsing

Fæðingar- og dánarár

27.3.1913 - 2.9.1988

Saga

Hulda S. Þorsteinsdóttir frá Eyjólfsstöðum í Vatnsdal, síðast til heimilis að Stóragerði 32 í Reykjavík, lést á Landspítalanum föstudaginn 2. sept. sl. Hún hafði átt við nokkra vanheilsu að stríða um alllangt skeið, en veiktist svo skyndilega og þar með voru endalokin ráðin.
Hulda Sigríður, eins og hún hét fullu nafni, fæddist að Eyjólfsstöðum 27. mars 1913. Það varð hlutskipti þeirra systranna, Huldu og Unnu (hún var alltaf kölluð Unna), að halda heimili með foreldrum sínum, og síðar fyrir þau, er þau voru flutt hingað tilReykjavíkur. Lengst af bjuggu þau á Bergstaðastræti 64 og þar létust þau bæði aldin að árum. Þær systurnar unnu þó lengi við verslunarstörf, jafnframt heimilishaldinu, lengst af hjá Ludvig Storr á Laugavegi 15. Ég kom oft á Bergstaðastrætið og var ætíð vel fagnað. Þorsteinn kallaði mig alltaf nafna sinn og fannst mér mikið til um það.

Eftir fráfall þeirra Þorsteins og Margrétar, keyptu þær systur séríbúð í Stóragerði 32 og bjuggu þar til æviloka. Hjúkrunarstörf Huldu voru þó ekki liðin. Um margra áraskeið annaðist hún Unnu systur sína í veikindum hennar, en hún hafði verið heilsutæp í fjölda ára og lést á síðasta ári, löngu farin að kröftum. Sjálf stóð Hulda sterk þar til hún eins og allir aðrir verða að beygja sig fyrir síðasta kalli lífsins, dauðanum. Lífið gerir oft miklar kröfur og ekki er það allra að geta svarað þeim. Hulda bognaði ekki undan þeim byrðum, semá hana voru lagðar.
Ógift barnlaus.

Staðir

Eyjólfsstaðir í Vatnsdal: Reykjavík:

Réttindi

Kvsk á Blönduósi 1933-1934:

Starfssvið

Lagaheimild

Innri uppbygging/ættfræði

Foreldrar hennar voru hjónin Þorsteinn Konráðsson bóndi og kona hans Margrét Jónasdóttir, er bjuggu þar frá árinu 1901-1938. Foreldrar Þorsteins voru hjónin Konráð Konráðsson og Guðrún Þorsteinsdóttir yngri, sem kölluð var, en þau bjuggu að Múla í Línakradal og þar fæddist Þorsteinn. Þau fluttu síðan að Mýrum í Hrútafirði og lést Konráð þar árið 1888, enn á besta aldri. Guðrún flutti að Haukagili í Vatnsdal 1889 með syni sína tvo, Þorstein og Eggert.

Aldamótaárið flutti Þorsteinn að Eyjólfsstöðum. Árið eftir gengur hann að eiga Margréti Oddnýju Jónasdóttur Guðmundssonar bónda þar og konu hans Steinunnar Steinsdóttur. Jónas faðir Margrétar var hálfbróðir Jóhannesar Nordal, föður Sigurðar Nordal.

Þau Þorsteinn og Margrét eignuðust átta börn og tóku eitt í fóstur. Heimilið var því ávallt mannmargt; fjölskyldan sjálf 11 manns auk vinnufólks, sem þá var kallað, sérstaklega á meðan börnin voru ung. Þetta krafðist mikillar orku og athafna. Þorsteinn var völundar smiður; hann byggði nýtt og vandað íbúðarhús 1918, hann var organisti Undirfellskirkju og hann stundaði ætt- og tónlistarfræði auk sjálfs búrekstursins. Margrét var afburða húsmóðir, enda ekki heiglum hentað sjá um svo stórt heimili. Eyjólfs staðaheimilið var orðlagt fyrir rausn og menningarbrag. Börn þeirra hjóna voru sem hér fer á eftir:

  1. Sigurður Jónas, stórkaupm. í Reykjavík, f. 10 maí 1901, d. 16. apríl 1946. Eiginkona Kristín Hannesdóttir frá Stóru-Sandvík í Flóa.
  2. Jóhannes Nordal, iðnrekandi í Reykjavík, f. 18. okt. 1905, d. 12. júní 1937. Eiginkona Anna Gísladóttir frá Saurbæ í Vatnsdal.
  3. Guðrún Margrét, húsmóðir, f. 12. febr. 1907. Eiginmaður Magnús Hannesson, rafvirkjam. frá Stóru-Sandvík í Flóa. Nú látinn.
  4. Unnur Sigurlaug, verslun arm., f. 9. nóv. 1910, d. 6. jan. 1987.
  5. Hulda Sigríður, verslunarm., f. 27. mars 1913, d. 2. september 1988.
  6. Hannes Eggert, stórkaupm. í Reykjavík, f. 19. febr. 1918. Eiginkona Jóhanna Thorlacius.
  7. Konráð, kaupm. í Reykjavík, f. 31. ágúst 1919, d. 10. mars 1978. Eiginkona Steinunn Vilhjálmsdóttir. Þau slitu samvistum.
  8. Kristín, húsmóðir, f. 22. sept. 1924. Eiginmaður Guðlaugur Guðmundsson, kaupm. frá Sunnuhlíð í Vatnsdal.
  9. Fósturd.: Margrét Oddný Jósefsdóttir, húsmóðir, f. 14. ágúst 1917. Eiginmaður Guðmundur Jó hannesson. Nú látinn.

Almennt samhengi

Tengdar einingar

Tengd eining

Margrét Jónasdóttir (1879-1961) Eyjólfsstöðum (10.10.1879 - 4.7.1961)

Identifier of related entity

HAH06622

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Margrét Jónasdóttir (1879-1961) Eyjólfsstöðum

er foreldri

Hulda Þorsteinsdóttir (1913-1988) frá Eyjólfsstöðum

Dagsetning tengsla

1913

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Unnur Þorsteinsdóttir (1910-1987) frá Eyjólfsstöðum (9.11.1910 - 6.1.1987)

Identifier of related entity

HAH02104

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Unnur Þorsteinsdóttir (1910-1987) frá Eyjólfsstöðum

er systkini

Hulda Þorsteinsdóttir (1913-1988) frá Eyjólfsstöðum

Dagsetning tengsla

1913 - ?

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Sigurður Jónas Þorsteinsson (1901-1946) frá Eyjólfsstöðum (10.5.1901 - 16.4.1946)

Identifier of related entity

HAH09235

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Sigurður Jónas Þorsteinsson (1901-1946) frá Eyjólfsstöðum

er systkini

Hulda Þorsteinsdóttir (1913-1988) frá Eyjólfsstöðum

Dagsetning tengsla

1913

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Kristín Þorsteinsdóttir (1924-2004) frá Eyjólfsstöðum (22.9.1924 - 14.1.2004)

Identifier of related entity

HAH01676

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Kristín Þorsteinsdóttir (1924-2004) frá Eyjólfsstöðum

er systkini

Hulda Þorsteinsdóttir (1913-1988) frá Eyjólfsstöðum

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Guðrún Þorsteinsdóttir (1907-1995) frá Eyjólfsstöðum (12.2.1907 - 20.11.1995)

Identifier of related entity

HAH04407

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Guðrún Þorsteinsdóttir (1907-1995) frá Eyjólfsstöðum

er systkini

Hulda Þorsteinsdóttir (1913-1988) frá Eyjólfsstöðum

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Access points area

Efnisorð

Staðir

Occupations

Stjórnsvæði

Authority record identifier

HAH01467

Kennimark stofnunar

IS HAH

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Staða

Loka

Skráningarstaða

Fullt

Skráningardagsetning

GPJ 21.6.2017

Tungumál

  • íslenska

Leturgerð(ir)

Athugasemdir um breytingar

  • Clipboard

  • Flytja út

  • EAC

Related subjects

Tengdir staðir