Identity area
Type of entity
Corporate body
Authorized form of name
Fúlakvísl á Kili
Parallel form(s) of name
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
874-
History
Fúlakvísl, kemur undan Langjökli og fellur í Hvítárvatn.
Places
Legal status
Suður af Kili falla Fúlakvísl, Svartá og Jökulkvísl.
Fúlakvísl kemur upp í vestari Þjófadalnum, í jökulkrók þeim, sem verður norðan við Fögruhlíð. Neðan við þennan jökulkrók, fellur í hana lítil kvísl, sem kemur norðan með jöklinum og rennur eftir daldragi því, sem gengur norður frá dalnum. Upptök hennar er undan Lagjökli (1927 voru upptök hennar ókunn). Önnur kvísl rennur í Fúlukvísl austur af Fögruhlíð. Kemur hún úr skriðjökli þeim, sem gengur niður í Sanddal og fram á Fögruhlíðina. Þriðja kvíslin kemur úr Sanddal. Rennur hún, að sögn, úr litlu vatni, sem liggur innst í Sanddal og Fúlavatn er nefnt (Thoroddsen: Ferðabók II. bd., bls. 193). Mun hún og vatnið hafa aðrensli frá jöklum þeim, sem ganga niður í dalbotninn. Fjórða kvíslin kemur úr eystri Þjófadalnum (Miðdal). Hún er nefnd Þjófadalsá. Er hún lítill bergvatnslækur og fellur í Fúlukvísl norður af Múla. Fimmta kvíslin kemur ofan úr Hrútafelli milli Múla og Þverbrekkna. Loks koma nokkrir smálækir fram úr hlíðum Hrútafells að austan og falla í Fúlukvísl sunnan við Þverbrekkur.
Í Þjófadalnum fellur Fúlakvísl á eyrum, og er þegar allmikið vatn, stórgrýtt og straumhörð. En er dalnum sleppir, kastast áin upp að Kjalhrauni og hefir grafið sér djúpt og þröngt gil meðfram hrauninu, og nær það suður fyrir Þverbrekkur. Undan Múla, neðan við kjaftinn á Þjófadalnum, er gilið hyldjúpt, en örmjótt, svo að breiddin er varla meira en 1-2 metrar, þar sem mjóst er. Þrengsli þessi heita Hlaup. Má þar vel stökkva yfir gilið, og heyrt hefi ég, að þar hafi verið farið með hest. En uggvænlegt er að horfa niður í Hlaupin. Áin byltist djúpt í dimmu gilinu.
Frá Múla rennur Fúlakvísl í stórum sveig austur fyrir Þverbrekkur og vestur með þeim að sunnan upp að hlíðum Hrútafells. Á þeirri leið rennur hún í gljúfri, en er því sleppir, fellur hún fram á eyrar, og hefir fylt framburði allstórt stöðuvatn undir Hrútafelli. Kastast hún síðan á eyrum niður að Baldheiði og er víða reið, en með fram Baldheiði og Hrefnubúðum rennur hún í grunnu gili, er hún hefir skorið sjer milli hrauns og hlíða, og er ófœr á þeirri leið. Frá suðurhorni Hrefnubúða fellur hún fram um breiðar malareyrar og kvíslast síðan út um Hvítárnes, en það er óseyri hennar, er hún hefir borið fram í Hvítárvatn. Venjulega er áin góð yfirferðar á eyrunum neðan við Hrefnubúðir.
Pálmi Hannesson
Functions, occupations and activities
Mandates/sources of authority
Internal structures/genealogy
General context
Relationships area
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Access points area
Subject access points
Place access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Institution identifier
IS HAH
Rules and/or conventions used
Status
Final
Level of detail
Full
Dates of creation, revision and deletion
18.3.2023
Language(s)
- Icelandic
Script(s)
Sources
GPJ
Réttur 1.7.1927. https://timarit.is/page/4089015?iabr=on