Þórhallur Gunnlaugsson (1886-1966) símstöðvarstjóri Vestmannaeyjum, Breiðabólsstað Vesturhópi

Original Digital object not accessible

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Þórhallur Gunnlaugsson (1886-1966) símstöðvarstjóri Vestmannaeyjum, Breiðabólsstað Vesturhópi

Parallel form(s) of name

  • Þórhallur Andreas Gunnlaugsson (1886-1966) símstöðvarstjóri Vestmannaeyjum, Breiðabólsstað Vesturhópi

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      29.11.1886 - 5.4.1966

      History

      Þórhallur Andreas Gunnlaugsson 29. nóv. 1886 - 5. apríl 1966. Símstöðvarstjóri á Vestmannabraut 22, Vestmannaeyjum 1930. Símritari í Reykjavík og síðar símstöðvarstjóri á Ísafirði og í Vestmannaeyjum. Síðast bús. í Reykjavík.

      Places

      Legal status

      Þórhallur varð gagnfræðingur frá Akureyri árið 1904. Nam símritun í Kaupmannahöfn árin 1910 og 1911.

      Functions, occupations and activities

      Hann var skipaður símritari á Akureyri 1. júlí 1911, starfaði þar til 1. ágúst 1913, að hann varð símritari f Reykjavik. 1. janúar 1918 var Þórhallur skipaður umdæmisstjóri landssímans á Ísafirði og starfaði þar til 1. janúar 1921 að hann var skipaður símstjóri í Vestmannaeyjum og þar var hann jafnframt póstafgreiðslumaður seinustu árin. Þórhallur starfaði sem póst- og símstjóri í Vestmannaeyjum þar til að hann lét af embætti vegna aldurs í árslok 1956. Þá hafði hann verið starfandi ritsímastjóri lengur en nokkur annar, eða í 38 ár.

      Mandates/sources of authority

      Þau hjón voru á meðal stofnenda Golfklúbbs Vestmannaeyja árið 1938 og var Þórhallur formaður klúbbsins frá byrjun til ársins 1945.
      Þórhallur var einnig á meðal fyrstu stofnenda Taflfélags Vestmannaeyja. Þórhallur leikstýrði sýningunni „Hnefaleikarinn“ sem Kvenfélagið Líkn stóð fyrir á páskum 1938.
      Þórhallur var einn af stofnendum Félags íslenzkra símamanna og tók mikinn þátt í störfum félagsins fyrstu árin.

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar; Gunnlaugur Jón Ólafur Halldórsson 3. okt. 1848 - 9. mars 1893. Var í Hofi, Hofssókn, N-Múl. 1860. Aðstoðarprestur á Hofi í Vopnafirði 1872-1874. Prestur á Skeggjastöðum á Langanesströnd 1874-1883 og á Breiðabólstað í Vesturhópi frá 1883 til dauðadags og seinni kona hans; 30.7.1885; Halldóra Kristín Vigfúsdóttir 22. sept. 1855 - 8. apríl 1939. Prestfrú á Breiðabólsstað. Kennslukona í Vestmannaeyjum.
      Fyrri kona Gunnlaugs 7.9.1872; Margrethe Andrea Knudsen 9. júlí 1848 - 17. sept. 1880. Húsfreyja á Skeggjastöðum og á Breiðabólstað í Vesturhópi. Var í Reykjavík, Gull. 1860. Var í Tjarnargötu 1, Reykjavík 5, Gull. 1870.

      Systkini samfeðra;
      1) Halldór Gunnlaugsson 25. ágúst 1875 - 16. des. 1924. Héraðslæknir í Vestmannaeyjum. Húsbóndi í Hvammi, Vestmannaeyjasókn 1910. Drukknaði. Kona hans 22.7.1905; Anna Sigrid Therp Gunnlaugsson 16. feb. 1885 - 22. ágúst 1963. Húsfreyja og verslunarstjóri í Vestmannaeyjum. Húsfreyja í Hvammi, Vestmannaeyjasókn 1910. Fædd Therp Faðir: Peter Christian Therp trésmíðameistari í Kaupmannahöfn. Barnsmóðir hans 5.4.1914: Var í Reykjavík 1910. Vinnukona á Kirkjuvegi 53, Vestmannaeyjum 1930.
      2) Gunnþórunn Halldóra Valgerður Gunnlaugsdóttir 17. ágúst 1878 - 30. apríl 1920. Húsfreyja í Dal, Vestmannaeyjasókn 1910. Húsfreyja á Brekku og í Vestmannaeyjum.
      M1; Jón Konráðsson 15. júlí 1881 - 5. okt. 1901. Verslunarmaður og sjómaður í Mjóafirði, S-Múl. Fórst á heimleið úr róðri.
      M2 3.10.1910; Þorlákur Guðmundsson 28. júní 1886 - 9. maí 1978. Skósmiður. Leigjandi, skósmiður í Dal, Vestmannaeyjasókn 1910. Skósmíðameistari á Klapparstíg 44, Reykjavík 1930. Skósmiður í Reykjavík 1945.

      Kona hans 25.3.1922; Ingibjörg Ólafsdóttir 12.9.1893 - 23.8.1966. Húsfreyja á Vestmannabraut 22, Vestmannaeyjum 1930. Húsfreyja á Ísafirði og í Vestmannaeyjum. Síðast bús. í Reykjavík.

      Börn;
      1) Ása Maria Þórhallsdóttir Gunnlaugsson 23. júlí 1923 - 18. sept. 2010. Var á Vestmannabraut 22, Vestmannaeyjum 1930. Húsfreyja og málari í Flórída. Maður hennar 16.8.1947; Björn Illugi Gunnlaugsson 18. okt. 1917 - 17. okt. 1994. Var í Laxnesi, Lágafellssókn, Kjós. 1930. Fósturfor: Eyjólfur Björnsson og Guðrún Guðmundsdóttir. Skipstjóri í Boston og síðar í Flórída, USA.
      2) Halldór Gunnlaugsson Þórhallsson 27. júlí 1924 - 17. ágúst 1975. Var á Vestmannabraut 22, Vestmannaeyjum 1930. Sýningarstjóri í Vestmannaeyjum, Reykjavík og Kópavogi, síðar auglýsingastjóri í New York í Bandaríkjunum. Síðast bús. í Bandaríkjunum. Kona hans; Þóra Rún Dagbjartsdóttir 2. des. 1931 - 13. nóv. 1976. Síðast bús. í Kópavogi.
      3) Ólafur Friðrik Þórhallsson 25. nóv. 1926 - 13. mars 1993. Verkfræðingur í Ameríku, kvæntur þar Mildred Catherine.

      General context

      Þegar Þórhallur lét af embætti í Vestmannaeyjum fluttust þau Ingibjörg búferlum til Reykjavíkur og hafa verið búsett hér síðan. Þórhallur var skarpgáfaður eins og hann átti kyn til. Hann var hlédrægur og hleypidómalaus, en einbeittur í skoðunum og fastur fyrir, ef því var að skipta. Þórhallur var mjög listrænn og víðlesinn, enda vel heima í bókmenntum, einkum leikbókmenntum. Hann aðstoðaði Leikfélag Vestmannaeyja oft fyrr á árum, sem leiðbeinandi. Þórhallur var afar vel liðinn af viðskiptavinum símans, þá lét hann sér einkar annt um starfsfólk sitt, enda sóttust margir eftir að starfa undir hans stjórn og handleiðslu.

      Relationships area

      Related entity

      Vestmannaeyjar

      Identifier of related entity

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      1.1.1921 - 31.12.1956

      Description of relationship

      Símstjóri þar

      Related entity

      Ísafjörður ((1950))

      Identifier of related entity

      HAH00332

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      1.1.1918 - 1.1.1921

      Description of relationship

      Símritari þar og umdæmisstjóri Landsímans

      Related entity

      Akureyri (1778 -)

      Identifier of related entity

      HAH00007

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      1.7.1911 - 1.8.1913

      Description of relationship

      Símritari þar

      Related entity

      Breiðabólsstaður í Vesturhópi ((890))

      Identifier of related entity

      HAH00181

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      29.11.1886

      Description of relationship

      fæddur þar

      Related entity

      Halldór Gunnlaugsson (1875-1924) læknir Vestmannaeyjum (25.8.1875 - 16.12.1924)

      Identifier of related entity

      HAH04652

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Halldór Gunnlaugsson (1875-1924) læknir Vestmannaeyjum is the sibling of Þórhallur Gunnlaugsson (1886-1966) símstöðvarstjóri Vestmannaeyjum, Breiðabólsstað Vesturhópi

      Dates of relationship

      29.11.1886

      Description of relationship

      samfeðra

      Related entity

      Gunnþórunn Gunnlaugsdóttir (1878-1920) Dal Vestmannaeyjum (17.8.1878 - 30.4.1920)

      Identifier of related entity

      HAH04575

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Gunnþórunn Gunnlaugsdóttir (1878-1920) Dal Vestmannaeyjum is the sibling of Þórhallur Gunnlaugsson (1886-1966) símstöðvarstjóri Vestmannaeyjum, Breiðabólsstað Vesturhópi

      Dates of relationship

      29.11.1886

      Description of relationship

      samfeðra

      Related entity

      Gunnlaugur Halldórsson (1848-1893) prestur Breiðabólsstað í Vesturhópi (3.10.1848 - 9.3.1893)

      Identifier of related entity

      HAH04563

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Gunnlaugur Halldórsson (1848-1893) prestur Breiðabólsstað í Vesturhópi is the parent of Þórhallur Gunnlaugsson (1886-1966) símstöðvarstjóri Vestmannaeyjum, Breiðabólsstað Vesturhópi

      Dates of relationship

      29.11.1886

      Description of relationship

      Related entity

      Halldóra Vigfúsdóttir (1855-1939) Breiðabólsstað (22.9.1855 - 8.4.1939)

      Identifier of related entity

      HAH04735

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Halldóra Vigfúsdóttir (1855-1939) Breiðabólsstað is the parent of Þórhallur Gunnlaugsson (1886-1966) símstöðvarstjóri Vestmannaeyjum, Breiðabólsstað Vesturhópi

      Dates of relationship

      29.11.1886

      Description of relationship

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH09530

      Institution identifier

      IS-HAH

      Rules and/or conventions used

      Að venju eru upplýsingar frá Íslendingabók notaðar, ef þær stangast á við aðrar upplýsingar er þeim bætt við innan hornklofa [ ], ekki er tekin afstaða til mismunandi upplýsinga.

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ skráning 11.9.2023

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes