Sigurlaug Björnsdóttir (1896-1989) frá Veðramóti Gönguskörðum

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Sigurlaug Björnsdóttir (1896-1989) frá Veðramóti Gönguskörðum

Parallel form(s) of name

  • Sigurlaug Björnsdóttir (1896-1989) frá Veðramóti Gönguskörðum

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Lauga:

      Description area

      Dates of existence

      25.1.1896 - 15.9.1989

      History

      Sigurlaug var fædd á Veðramóti í Gönguskörðum 25. janúar 1896, yngst tólf barna foreldra sinna. Hún undi vel hag sínum í Höfn, kynntist þar mörgu góðu og skemmtilegu fólki og kunni vel að meta það sem gamla góða Borgin við Sundið hafði upp á að bjóða í fjölbreyttu menningarlífi, sem sveitastúlkan norðan úr Gönguskörðum hafði ekki átt kost á að kynnast áður. En það var gamla sagan. Heimþrá Íslendingsins sagði til sín og enda þótt Sigurlaugu stæðu ýmsar leiðir opnar þarna úti, hélt hún heim til Íslands - forfrömuð og glæsileg ung stúlka, ríkari af lífsreynslu og þroska eftir rúmlega þriggja ára dvöl í Kaupmannahöfn.
      Skömmu eftir heimkomuna lá leið hennar vestur í Vigur til Bjargar systur sinnar og frænda síns Bjarna og var þar til heimilis næstu sjö til átta árin, auk þess sem hún dvaldi einnig um lengri eða skemmri tíma hjá öðrum systkinum sínum og var þeim til halds og trausts, ef einhverja erfiðleika bar að höndum.
      Sigurlaug var fríð kona sýnum, hispurslaus og stolt í fasi. Allt fram til hins síðasta, er hún var rúmföst orðin, gekk hún teinrétt í baki og bar höfuðið hátt. Hún var hreinskiptin og einörð í skoðunum, öll undirmál voru henni fjarri skapi. Eftir að hún lét af störfum sem kennari bjó hún til æviloka hjá Þorbjörgu dóttur sinni.

      Places

      Veðramót: Reykjavík: Kaupmannahöfn: Vigur.

      Legal status

      Sigurlaug fór í Kvennaskólann í Reykjavík og lauk þaðan námi rúmlega tvítug með góðan vitnisburð enda bæði námfús og vel greind. Nokkrum árum síðar hélt hún utan til Kaupmannahafnar til náms í verslunarfræðum. Stundaði hún nám í einn vetur við Hússtjórnarskólann á Ísafirði,

      Functions, occupations and activities

      Fékk síðan atvinnu sem bókhaldari hjá Gyldendahl bókaforlaginu. Um árabil var hún heimavistarstjóri á Grenimel 29 við útibú frá heimavistinni á Sólvallagötu 12. Þetta ver á þeim árum, þegar hússtjórnarskólarnir blómstruðu og færri komust að en vildu. Því var gripið til þess ráðs að færa út heimavistina og "Melflugurnar", eins og stúlkurnar kölluðu sig gjarnan, undu sér mæta vel undir verndarvæng Sigurlaugar, sem hafði lag á að skapa þarna notalegan og heimilslegan anda.

      Mandates/sources of authority

      Hulda heitin Stefánsdóttir skólastjóri kemst svo að orði í æviminningum sínum um heimsókn til frændfólks síns á Veðramóti: - Ég efast um, að nokkurs staðar til sveita hafi veri jafn fríður hópur gjörvilegra systkina og glaðværra. Þegar komið var í bæinn á málum, kváðu við hlátrasköll og heitar umræður um landsins gagn og nauðsynjar. Það var enginn dauða doppuháttur á fólkinu. Mikil gleði og vaskleiki fylgdi þeim systkinum. -

      "Hún var skólans prýði" - sagði Katrín Helgadóttir, fyrrum skólastjóri - "traust, samviskusöm og hlý. Okkur kennurum og nemendum þótti öllum vænt um hana."

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hennar voru Björn Jónsson f. 14. júní 1848 - 23. janúar 1924 Bóndi í Háagerði, Spákonufellssókn, Hún. 1880. Bóndi, hreppstjóri og dannebrogsmaður á Veðramóti í Gönguskörðum, Skag. Hreppstjóri þar, 1890, frá Háagerði á Skagaströnd og kona hans, Þorbjörg Stefánsdóttir 28. september 1855 - 18. maí 1903. Húsmóðir í Háagerði, Spákonufellssókn, Hún. 1880. Húsfreyja að Veðramóti í Gönguskörðum, Skag. 1890, frá Heiði í Gönguskörðum.
      Tíu barnanna komust til fullorðinsára, sex synir og fjórar dætur, öll hið mesta atgervisfólk. Með Sigurlaugu er hið síðasta Veðramóts systkina horfið úr tölu lifenda.
      Systkin hennar voru:
      1) Stefán Þorsteinn Björnsson 3. september 1880 - 5. nóvember 1914 Var í Veðramóti, Sauðárkrókssókn, Skag. 1901. Bóndi í Sjávarborg.
      2) Jón Þorbjargarson Björnsson 15. ágúst 1882 - 21. ágúst 1964 Kennari á Sauðárkróki og síðar skólastjóri þar. Fósturbarn: Geirlaug Björnsdóttir, f. 25.12.1939.
      3) Sigurður Árni Björnsson 22. maí 1884 - 1. maí 1964 Var á Veðramótum, Fagranessókn, Skag. 1890.Oddviti og hreppstjóri á Veðramóti í Gönguskörðum, Skag. Síðar framfærslufulltrúi í Reykjavík. Bóndi á Veðramóti 1920 og 1930. Framfærslufulltrúi í Reykjavík 1945.
      4) Þorbjörn Björnsson 12. janúar 1886 - 14. maí 1970 Bóndi í Geitaskarði, Holtastaðasókn, A-Hún. 1930. Bóndi á Heiði í Gönguskörðum, Skarðshreppi, Skag. og á Geitaskarði í Langadal, A-Hún. Var í Geitaskarði, Engihlíðarhr., A-Hún. 1957. Síðast bús. á Sauðárkróki.
      5) Guðrún Steinunn Björnsdóttir 14. janúar 1887 - 27. september 1976 Húsfreyja í Reykjavík 1945. Síðast bús. í Reykjavík.
      6) Heiðbjört Björnsdóttir 1888 Var á Veðramótum, Fagranessókn, Skag. 1890.
      7) Björg Björnsdóttir 7. júlí 1889 - 24. janúar 1977 Húsfreyja á Vigri, Ögursókn, N-Ís. 1930. Húsfreyja í Vigur, síðast bús. í Ögurhreppi.
      8) Haraldur Heiðbjartur Björnsson 27. júlí 1891 - 9. desember 1967 Leikari í Reykjavík 1930 og 1945. Síðast bús. í Reykjavík
      9) Guðmundur M. Björnsson 20. júlí 1894 - 8. apríl 1956 Bóndi í Tungu, Sauðárkrókssókn, Skag. 1930. Bóndi í Tungu í Gönguskörðum, Skag.
      10) Sigurlaug Björnsdóttir 25. janúar 1896 - 15. september 1989 Skrifstofukona á Knarrarbergi, Munkaþverársókn, Eyj. 1930. Kennari við Húsmæðraskóla Reykjavíkur
      Dóttir hennar var:
      1) Þorbjörg Bjarnar Friðriksdóttir f. 5. nóvember 1929, Var á Knarrarbergi, Munkaþverársókn, Eyj. 1930. Faðir hennar var Jóhannes Friðrik Hansen f. 17. janúar 1891 - 27. mars 1952. Bóndi í Garði í Hegranesi, Skag. Kennari, vegaverkstjóri, oddviti og skáld á Sauðárkróki.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Sigurður Örn Þorbjarnarson (1916-2002) Geitaskarði (27.10.1916 - 15.3.2002)

      Identifier of related entity

      HAH01956

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      27.10.1916

      Description of relationship

      Bróðursonur Sigurlaugar

      Related entity

      Ástríður Friðriksdóttir Hansen (1920-1993) Svaðastöðum (6.6.1920 - 17.10.1993)

      Identifier of related entity

      HAH03694

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      5.11.1929

      Description of relationship

      Sigurlaug var móðir Þorbjargar Bjarnar (1929) faðir hennar var Friðrik Hansen faðir Ástríðar.

      Related entity

      Sigurður Árni Björnsson (1884-1964) Veðramótum (22.5.1884 - 1.5.1964)

      Identifier of related entity

      HAH07248

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Sigurður Árni Björnsson (1884-1964) Veðramótum is the sibling of Sigurlaug Björnsdóttir (1896-1989) frá Veðramóti Gönguskörðum

      Dates of relationship

      25.1.1896

      Description of relationship

      Related entity

      Heiðbjört Björnsdóttir (1893-1988) frá Veðramóti) (6.1.1893 - 24.5.1888)

      Identifier of related entity

      HAH07249

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Heiðbjört Björnsdóttir (1893-1988) frá Veðramóti) is the sibling of Sigurlaug Björnsdóttir (1896-1989) frá Veðramóti Gönguskörðum

      Dates of relationship

      25.1.1896

      Description of relationship

      Related entity

      Björg Björnsdóttir (1889-1977) Vigri (7.7.1889 - 24.1.1977)

      Identifier of related entity

      HAH02716

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Björg Björnsdóttir (1889-1977) Vigri is the sibling of Sigurlaug Björnsdóttir (1896-1989) frá Veðramóti Gönguskörðum

      Dates of relationship

      7.7.1889

      Description of relationship

      Related entity

      Guðmundur Björnsson (1894-1956) Tungu á Skörðum (20.7.1894 -8.4.1956)

      Identifier of related entity

      HAH04102

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðmundur Björnsson (1894-1956) Tungu á Skörðum is the sibling of Sigurlaug Björnsdóttir (1896-1989) frá Veðramóti Gönguskörðum

      Dates of relationship

      25.1.1896

      Description of relationship

      Related entity

      Þorbjörn Björnsson (1886-1970) Geitaskarði (12.1.1886 - 14.5.1970)

      Identifier of related entity

      HAH02137

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Þorbjörn Björnsson (1886-1970) Geitaskarði is the sibling of Sigurlaug Björnsdóttir (1896-1989) frá Veðramóti Gönguskörðum

      Dates of relationship

      25.1.1896

      Description of relationship

      Related entity

      Guðrún Björnsdóttir (1887-1976) frá Veðramóti (14.1.1887 - 27.9.1976)

      Identifier of related entity

      HAH04262

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðrún Björnsdóttir (1887-1976) frá Veðramóti is the sibling of Sigurlaug Björnsdóttir (1896-1989) frá Veðramóti Gönguskörðum

      Dates of relationship

      25.1.1896

      Description of relationship

      Related entity

      Björn Jónsson (1848-1924) Veðramótum (14.6.1848 - 23.1.1924)

      Identifier of related entity

      HAH02845

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Björn Jónsson (1848-1924) Veðramótum is the parent of Sigurlaug Björnsdóttir (1896-1989) frá Veðramóti Gönguskörðum

      Dates of relationship

      25.1.1896

      Description of relationship

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01968

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 23.7.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes