Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Sigurður Árnason (1880-1959) Höfnum á Skaga
Hliðstæð nafnaform
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
2.5.1880 - 10.6.1959
Saga
Sigurður Árnason 2. maí 1880 - 10. júní 1959. Ólst upp í Höfnum með foreldrum og síðar móður. Fyrirvinna á búi móður sinnar þar um tíma frá um 1890 fram til 1913. Óðalsbóndi í Höfnum 1913-42. Bóndi í Höfnum, Hofssókn, A-Hún. 1930. Flutti til Reykjavíkur 1942 og var þar síðan. „Gaf eitt herbergi á Nýja Stúdentagarðinum. Skyldi nefnt Hafnir og menn af Hafnaætt sitja fyrir dvöl þar, síðan almennt Húnvetningar.“ segir í Eftirmælaskrá Jóns Skagan.
Staðir
Réttindi
Starfssvið
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar; Árni Sigurðsson 7. mars 1835 - 17. júlí 1886. Bóndi og hreppstjóri í Höfnum á Skaga, A-Hún. Var í Höfnum, Hofssókn, Hún. 1845. „Mikill búhöldur og fésæll, rausnarsamur, höfðingi í lund og skörungur“ segir í ÍÆ. og seinni kona hans 31.7.1879; Jóninna Þórey Jónsdóttir 14. október 1852 - 14. apríl 1938 Var í Stykkishólmi 1930. Húsfreyja í Höfnum á Skaga. Var í Stykkishólmi, Snæf. 1920.
Fyrrikona Árna 20.10.1856; Margrét Guðmundsdóttir 3. maí 1832 - 15. júlí 1878. Húsmóðir í Höfnum.
Systkini með fyrrikonu;
1) Arnór Árnason 16. febrúar 1860 - 24. apríl 1938. Prestur í Tröllatungu í Tungusveit 1886-1904 og síðar í Hvammi í Laxárdal ytri, Skag. 1907-1935. Prestur og bóndi í Hvammi í Laxárdal, Hvammssókn, Skag. 1910 og 1930. M1 3.9.1886; Stefanía Sigríður Stefánsdóttir 10. desember 1857 - 7. júní 1893 Húsfreyja í Tröllatungu. Var í Nýjabæ, Kálfatjarnarsókn, Gull. 1860. M2 16.6.1894; Ragnheiður Eggertsdóttir 28. september 1862 - 1. janúar 1937. Var í Skarði, Skarðssókn, Dal. 1930. Húsfreyja í Hvammi, Hvammssókn, Skag. Var þar 1910.
2) Sigurður Árnason 21. september 1861 - 12. febrúar 1927. Stud. art. á Hlh. Vesturbæ, Reykjavík 1880. Stud. art., fór til Vesturheims 1882 frá Höfnum, Vindhælishreppi, Hún. Bjó í Selkirk. Hermaður í kanadíska hernum í fyrri heimsstyrjöld.
3) Sigurlaug Björg Árnadóttir Knudsen 5. nóvember 1863 - 24. apríl 1949. Kennslukona á Laugalandi, Munkaþverársókn, Eyj. 1890. Prestsfrú á Breiðabólsstað í Vesturhópi, Hún. Kennari á Sauðárkróki 1930. Maður hennar; Diðrik Ludvig Knudsen 9. febrúar 1867 - 30. apríl 1930. Prestur á Þóroddsstað í Köldukinn, Þing. 1892-1904, á Bergsstöðum í Svartárdal, Hún. 1904-1914 og í Breiðabólstað í Vesturhópi, V-Hún. frá 1914 til dauðadags.
4) Halldór Árnason 28. júní 1865 - 5. janúar 1959. Var í Höfnum, Hofssókn, Hún. 1870. Sonur bónda á Höfnum, Hofssókn, Hún. 1880. Stúdent og sýsluskrifari í Hún. Fór til Vesturheims 1901 frá Blönduósi, Torfalækjarhreppi, Hún.
5) Elísabet Margrét Árnadóttir 8. júlí 1869 - 25. september 1872. Var í Höfnum, Hofssókn, Hún. 1870.
6) Árni Árnason 9. janúar 1875 - 3. júní 1941. Bóndi og umboðsmaður í Höfðahólum á Skagaströnd, síðar í Reykjavík. Ekkill á Ásvallagötu 27, Reykjavík 1930, bjó í Reykjavík til æviloka. Kona Árna; Ingibjörg Pálsdóttir 12. janúar 1873 - 11. nóvember 1930. Húsfreyja á Höfðahólum á Skagaströnd. Fyrri kona Árna Árnasonar.
Alsystkini;
7) Margrét Árnadóttir 12. ágúst 1884 - 29. okt. 1985. Húsfreyja í Stykkishólmi, Snæf. 1920 og 1930. Ekkja í Reykjavík 1945, síðast bús. þar. Maður hennar; Páll Friðrik Vídalín Bjarnason 16.10.1873 - 28.10.1930. Geitaskarði 1880, Þverárdal 1890, Sýslumaður á Sauðárkróki 1910, síðar í Gamla Apótekinu Stykkishólmi 1920.
Sambýliskona hans; Guðrún Stefánsdóttir 23. júlí 1890 - 6. janúar 1992. Var í Kumbravogum, Stokkseyrarsókn, Árn. 1901. Rjómabústýra. Húsfreyja í Höfnum á Skaga í A-Hún um allmörg ár. Ráðskona á Höfnum, Hofssókn, A-Hún. 1930. Síðast bús. í Reykjavík.
Barnsmóðir hans 8.6.1902; Guðríður Rafnsdóttir 23. nóvember 1876 - 22. mars 1932. Húsfreyja á Höfða-Hólum, Hofssókn, A-Hún. 1930. Tökubarn á Keldulandi, Hofssókn, Hún. 1880. Fósturdóttir á Keldulandi, Hofssókn, Hún. 1890. Maður hennar 18.9.1905; Ásgeir Klemensson 15. október 1879 - 4. október 1938 Bóndi á Höfða-Hólum, Hofssókn, A-Hún. 1930. Var á Geirbjarnarstöðum, Þóroddsstaðasókn, S-Þing. 1880. Bóndi á Höfðahólum. Meðal barna þeirra var Axel (1906-1965) á Höfðahólum
Sonur hans;
1) Árni Sigurðsson 8. júní 1902 - 31. mars 1981. Bóndi á Þóreyjarnúpi, Víðidalstungusókn, V-Hún. 1930. Síðast bús. í Reykjavík.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er foreldri
Sigurður Árnason (1880-1959) Höfnum á Skaga
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er systkini
Sigurður Árnason (1880-1959) Höfnum á Skaga
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er systkini
Sigurður Árnason (1880-1959) Höfnum á Skaga
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er systkini
Sigurður Árnason (1880-1959) Höfnum á Skaga
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er maki
Sigurður Árnason (1880-1959) Höfnum á Skaga
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS-HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Að venju eru upplýsingar frá Íslendingabók notaðar, ef þær stangast á við aðrar upplýsingar er þeim bætt við innan hornklofa [ ], ekki er tekin afstaða til mismunandi upplýsinga.
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ skráning 2.3.2023
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Heimildir
®GPJ ættfræði 2.3.2023
Íslendingabók
Föðurtún bls. 18, 19.