Identity area
Type of entity
Corporate body
Authorized form of name
Saurar á Skaga
Parallel form(s) of name
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
(1930)
History
Bærinn stendur örskammt frá sjó. Tún er raklent, en beit allgóð bæði til lands og sjávar. Laxá í Nesjum rennur til sjávar norðan við túnið. Íbúðarhús byggt 1967 stærð 119 2. Fjárhús með kjallara byggð 1936 úr torfi og grjóti fyrir 140 fjár. Fjárhús með kjallara byggð 1961 úr asbest fyrir 60 fjár. Votheysgeymsla 32 m3. Rétt norðan við Kálfshamarsvík er eyðibýlið Saurar, sem var mikið í fréttum snemma árs 1964 vegna draugagangs sem þar átti að vera en síðar þótti allt benda til þess að Sauraundrin ættu sér aðrar orsakir.
Tún 5,6 ha. Veiðiréttur í Laxá í Nesjum.
Places
Vindhælishreppur; Skagabyggð; Kálfhamarsvík; Laxá í Nesjum; Kálfhamarsnes; Einarsnes; Steinholt; Kálfhamarsflói; Digruvarða; Steindalsbrún; Sviðningsborgir; Selhóll; Laxárós; Ós; Draughylstjarnir; Illakelda við Laxá; Kálfshamar; Tjörn;
Legal status
Spákonuarfur er fyrir landi Saura við sjó.
Functions, occupations and activities
Mandates/sources of authority
Sauraundrin
Internal structures/genealogy
Eigandi 1975;
Björgvin Guðmundsson 30. sept. 1920 - 29. des. 1995. Sandgerði. Var í Skagastrandarkaupstað 1930. Var á Melstað, Höfðahr., A-Hún. 1957. Var í Skagastrandarkaupstað 1930.
Ábúendur;
1937-1965; Guðmundur Einarsson 27. feb. 1892 - 24. apríl 1973. Háseti í Skagastrandarkaupstað 1930. Bóndi á Saurum á Skaga, A-Hún. Síðast bús. í Sandgerði. Kona hans; Margrét Benediktsdóttir 14. okt. 1896 - 1. jan. 1973. Var í Borgarlæk, Hvammsókn, Skag. 1901. Húsfreyja á Saurum í Skagahr., síðast bús. í Sandgerði.
1965- Benedikt Guðmundsson 21. jan. 1926 - 17. des. 1992. Var á Saurum, Skagahr., A-Hún. 1957. Bóndi. Síðast bús. í Skagahreppi.
General context
Landamerkjaskrá fyrir jörðinni Saurum í Vindhælishreppi.
(Að sunnan frá sjó ræður bein lína úr hamrinum milli Kálfhamarsness og Einarsness í vörðu á Steinholtinu, þaðan í vörðu, sem hlaðin er í Kálfhamarsflóa, þaðan í Digruvörðu), þaðan í vörðu á Steindalsbrúninni og þaðan í stein á há Sviðningsborgunum, sem merktur er L.M., þaðan ræður bein lína í vörðu, sem hlaðin er norðan í svokölluðum Selhól, ræður þá merkjum bein lína eptir því, sem vörðu vísa í syðri enda Draughylstjarnar, og þaðan í stein á brúninni fyrir austan, sem einnig er merktur með stöfunum L.M., frá nýnefndum steini ræður merkjum bein lína í vörðu, sem hlaðin er milli Saurasundanna, og þaðan eptir því sem vörður vísa, til Illukeldu við Laxá, og er þar á árbakkanum við kelduna hlaðin varða, frá Illukeldu ræður Laxá merkjum allt til sjáfar. Að vestan frá Laxárósi suður til Hamarsins milli ofannefndra nesja, ræður sjór merkjum.
Jörðinni Saurum tilheyrir hálf laxveiði í Laxá móts við Ós.
Spákonuarfur er fyrir landi Saura við sjó.
Gjört að Viðvík á Skagaströnd, 22. maí 1890
Jónína Þórey Jónsdóttir eigandi jarðarinnar.
Framanrituðum landamerkjum eru undirritaðir samþykkir:
Halldór Árnason vegna Kálfshamars.
B.G. Blöndal umboðsmaður Þingeyrarkl.jarða, vegna Tjarnar.
Jóhann Jósepsson vegna Óss.
Lesið upp á manntalsþingi að Viðvík, hinn 22. maí 1890, og innfært í landamerkjabók Húnavatnssýslu, No. 163, fol. 85.
Vottar;
Lárus Blöndal
Relationships area
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Access points area
Subject access points
Place access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Institution identifier
IS HAH-Bæ
Rules and/or conventions used
Status
Final
Level of detail
Full
Dates of creation, revision and deletion
GPJ 9.4.2019
Language(s)
- Icelandic
Script(s)
Sources
Landamerkjabók Húnavatnssýslu, No. 163, fol. 85.
Húnaþing II bls 84.