Pétur Pétursson (1920-1979) frá Bollastöðum

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Pétur Pétursson (1920-1979) frá Bollastöðum

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        23.3.1920 - 13.1.1979

        History

        Pétur Pétursson, frá Bollastöðum, varð bráðkvaddur 13. janúar 1979. Hann var fæddur 23. mars 1920 að Eyhildarholti í Skagafirði. Pétur var kominn út af kunnum skagfirskum og eyfirskum bændahöfðingjum. Voru forfeður hans kunnir atorku- og framfaramenn og margir sterkir persónuleikar. Ungur að árum missti hann móður sína. Hún lést í blóma lífsins frá 9 börnum. Var honum því komið fyrir hjá frænku sinni Unni Pétursdóttur Bollastöðum í Blöndudal, þar sem hann ólst upp. Reyndist hún honum ætíð sem besta móðir.
        Pétur Pétursson var ötull og góður starfsmaður, félagslyndur og ágætur starfsfélagi, er ávallt var reiðubúinn til að leggja góðu málefni lið og vildi hvers manns vandræði leysa. Hann vann hylli allra þeirra er kynntust honum náið, sakir fjölhæfra gáfna og víðtækrar þekkingar m.a. á bókmenntasviðinu. Hann var sannur hugsjónamaður er vildi jafnan bæta og treysta hag þeirra er höllum fæti stóðu í þjóðfélaginu.

        Places

        Eyhildarholt í Skagafirði: Bollastaðir: Blönduós:

        Legal status

        Veturinn 1935—1936 var hann við nám í héraðsskólanum í Reykholti í Borgarfirði, en veturinn eftir stundaði hann búfræðinám við bændaskólann að Hólum og lauk þaðan búfræðiprófi vorið 1937.

        Functions, occupations and activities

        Eftir nám hvarf hann heim að Bollastöðum og tók við búi og bjó þar ásamt fóstru sinni allt til ársins 1942. Árið 1949 gerðist Pétur starfsmaður Kaupfélags Húnvetninga og vann þar um 12 ára skeið. Síðan vann hann ýmis störf, einkum hjá Vegagerð ríkisins og sýslusjóði m.a. við sýsluskjalasafn A.-Húnavatnssýslu, en hann lagði mikla rækt við það. Haustið 1977 hóf hann skrifstofustörf hjá Rafmagnsveitum ríkisins á Blönduósi og starfaði þar til dauðadags.

        Pétur var mikill félagshyggjumaður og voru honum því falin ýmis störf í þágu félagsmála. Hann sat í hreppsnefnd Blönduóshrepps á árunum 1952-1960. Formaður Verkalýðsfélags A.-Húnvetninga 1966-1976. Átti hlut að stofnun Verslunarfélags Húnvetninga og var fyrsti formaður þess. Sat um skeið í atvinnumálanefnd og var fulltrúi við samningagerðir í vinnudeilum. Vann mikið að bókasafnsmálum og sat í stjórn bókasafnsins, svo og í stjórn búnaðarfélags sveitar sinnar á búskaparárum sínum. Auk margra annarra trúnaðarstarfa, er hann gegndi í þágu almannaheilla fyrir byggðarlag sitt og samfélag.

        Mandates/sources of authority

        Internal structures/genealogy

        Foreldrar hans voru Pétur Jónsson f. 6. apríl 1892 - 30. september 1964. Bóndi í Eyhildarholti, Rípurhr. og Brúnastöðum, Lýtingsstaðahr., Skag. Síðar gjaldkeri í Tryggingarstofnunar ríkisins. Bóndi á Brúnastöðum, Knappstaðasókn, Skag. 1930, síðar gjaldkeri og kona hans Þórunn Sigurhjartardóttir f. 5. maí 1890 - 18. desember 1930 Húsfreyja í Skagafirði. Húsfreyja á Brúnastöðum, Knappstaðasókn, Skag. 1930, frá Urðum í Svarfaðardal.
        Þann 21. september 1941 kvæntist hann konu sinni, Bergþóru Önnu Kristjánsdóttur f.14.5.1918 -9.5.2011. Var á Köldukinn, Blönduósssókn, A-Hún. 1930. Var í Húsi Péturs Péturssonar, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Húsfreyja og verslunarstarfsmaður á Blönduósi. Bjuggu þau fyrsta búskaparár sitt að Bollastöðum, en vorið 1942 festu þau kaup á jörðinni Brandsstöðum í sömu sveit. Þar bjuggu þau allt til vorsins 1949, en þá fluttu þau til Blönduóss. Reistu þau þar húsið Húnabraut 7, þar sem hann bjó til dauðadags.

        Eignuðust þau hjón 4 börn en þau eru:
        1) Þórunn Pétursdóttir f. 23. apríl 1942 Var í Húsi Péturs Péturssonar, Blönduóshr., A-Hún. 1957, starfsstúlka á pósthúsinu á Blönduósi. Hún var gift Ara Hermannssyni f. 5. janúar 1941 - 25. ágúst 1973. Var í Sæmundsenshúsi, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Gjaldkeri, síðast bús. í Blönduóshreppi.
        2) Kristján Rúnar Pétursson f. 20. október 1947 Var í Húsi Péturs Péturssonar, Blönduóshr., A-Hún. 1957, starfsmaður hjá Pólarprjón,
        3) Pétur Arnar Pétursson f. 21. ágúst 1950 Var í Húsi Péturs Péturssonar, Blönduóshr., A-Hún. 1957, deildarstjóri við Kaupfélag Húnvetninga á Blönduósi, kvæntur Helgu Lóu Pétursdóttur f. 14. október 1953 úr Reykjavík,
        4) Guðrún Soffía Pétursdóttir f. 14. júní 1956 Var í Húsi Péturs Péturssonar, Blönduóshr., A-Hún. 1957, búsett á Skagaströnd, en maður hennar er Guðjón Guðjónsson sjómaður.
        Auk þess eignaðist Pétur son,
        1) Pálmi Pétursson f. 5.3.1940, bifreiðarstjóra í Reykjavík. Hann er elstur barna Péturs, kvæntur Birnu Björgvinsdóttur. Kjörmóðir: Sigurjóna !Karlotta Jóhannsdóttir, f. 24.12.1909.
        Móðir hans var Guðrún Jónsdóttir f. 1. september 1921 - 3. júlí 1988. Var í Kjós, Árnesssókn, Strand. 1930. Talsímakona, síðast bús. í Reykjavík
        Einnig tóku þau hjón einn uppeldisson, er var bróðursonur og nafni Péturs.
        0) Pétur Jónsson f. 28. janúar 1942. Fósturf. skv. Reykjahl.: Pétur Pétursson bóndi og skrifstofumaður á Blönduósi og k.h. Bergþóra Kristjánsdóttir. Hann er sjómaður í Reykjavik. Ólst hann upp hjá þeim frá tveggja til 16 ára aldurs. Foreldrar hans voru Jón Pétursson (1914-1972) Brúnastöðum í Fljótum og Kristín Guðlaug Kristófersdóttir (1913-1999), vinnukona á Geithellum, Djúpavogssókn, S-Múl. 1930. Síðast bús. í Reykjavík.

        General context

        Relationships area

        Related entity

        Karlotta Jóhannsdóttir (1909-2004) kennari KVSK (24.12.1909 - 7.5.2004)

        Identifier of related entity

        HAH01967

        Category of relationship

        family

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Karlotta ól upp Pálma son Péturs,

        Related entity

        Bryndís Guðjónsdóttir (1965) Skagaströnd (28.12.1965;)

        Identifier of related entity

        HAH02935

        Category of relationship

        family

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Guðjón bróðir Bryndísar er giftur Guðrúnu Soffíu dóttur Péturs

        Related entity

        Bollastaðir í Blöndudal ([1200])

        Identifier of related entity

        HAH00075

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        barn þar

        Related entity

        Bergþóra Kristjánsdóttir (1918-2011) Péturshúsi Blönduósi (14.5.1918 - 9.5.2011)

        Identifier of related entity

        HAH01112

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Bergþóra Kristjánsdóttir (1918-2011) Péturshúsi Blönduósi is the spouse of Pétur Pétursson (1920-1979) frá Bollastöðum

        Dates of relationship

        21.9.1941

        Description of relationship

        Börn þeirra: 1) Þórunn Pétursdóttir f. 23. apríl 1942. 2) Kristján Rúnar Pétursson f. 20. október 1947. 3) Pétur Arnar Pétursson f. 21. ágúst 1950. 4) Guðrún Soffía Pétursdóttir f. 14. júní 1956. Auk þess eignaðist Pétur son, 1) Pálmi Pétursson f. 5.3.1940. Uppeldissonur. Pétur Jónsson f. 28. janúar 1942.

        Related entity

        Pétur Pétursson (1862-1919) Bollastöðum (23.7.1862 - 17.9.1919)

        Identifier of related entity

        HAH07387

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Pétur Pétursson (1862-1919) Bollastöðum is the cousin of Pétur Pétursson (1920-1979) frá Bollastöðum

        Dates of relationship

        1920

        Description of relationship

        bróður sonur

        Related entity

        Halldóra Pétursdóttir Briem (1853-1937) Álfgeirsvöllum (26.12.1853 - 5.7.1937)

        Identifier of related entity

        HAH04728

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Halldóra Pétursdóttir Briem (1853-1937) Álfgeirsvöllum is the cousin of Pétur Pétursson (1920-1979) frá Bollastöðum

        Dates of relationship

        1920

        Description of relationship

        Pétur faðir hans var sonur Jóns bróður Halldóru

        Related entity

        Guðjón Ebbi Guðjónsson (1983 Skagaströnd (2.5.1983 -)

        Identifier of related entity

        HAH03889

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Guðjón Ebbi Guðjónsson (1983 Skagaströnd is the grandchild of Pétur Pétursson (1920-1979) frá Bollastöðum

        Dates of relationship

        2.5.1983

        Description of relationship

        Related entity

        Húnabraut 7 / Péturshús 1949 (1949 -)

        Identifier of related entity

        HAH00665

        Category of relationship

        hierarchical

        Type of relationship

        Húnabraut 7 / Péturshús 1949 is owned by Pétur Pétursson (1920-1979) frá Bollastöðum

        Dates of relationship

        1949

        Description of relationship

        Related entity

        Brandsstaðir í Blöndudal ([1300])

        Identifier of related entity

        HAH00076

        Category of relationship

        hierarchical

        Type of relationship

        Brandsstaðir í Blöndudal is owned by Pétur Pétursson (1920-1979) frá Bollastöðum

        Dates of relationship

        1942-1949

        Description of relationship

        bóndi þar

        Related entity

        Guðrún Pétursdóttir (1956) Blönduósi (14.6.1956 -)

        Identifier of related entity

        HAH04462

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Guðrún Pétursdóttir (1956) Blönduósi is the child of Pétur Pétursson (1920-1979) frá Bollastöðum

        Dates of relationship

        14.6.1956

        Description of relationship

        Related entity

        Pétur Arnar Pétursson (1950) Blönduósi (21.8.1950 -)

        Identifier of related entity

        HAH06281

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Pétur Arnar Pétursson (1950) Blönduósi is the child of Pétur Pétursson (1920-1979) frá Bollastöðum

        Dates of relationship

        21.8.1950

        Description of relationship

        Related entity

        Kristján Rúnar Pétursson (1947) Péturshúsi / Húnabraut 7 (20.10.1947 -)

        Identifier of related entity

        HAH06068

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Kristján Rúnar Pétursson (1947) Péturshúsi / Húnabraut 7 is the child of Pétur Pétursson (1920-1979) frá Bollastöðum

        Dates of relationship

        20.10.1947

        Description of relationship

        Related entity

        Þórunn Pétursdóttir (1942) Blönduósi (23.4.1942 -)

        Identifier of related entity

        HAH05973

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Þórunn Pétursdóttir (1942) Blönduósi is the child of Pétur Pétursson (1920-1979) frá Bollastöðum

        Dates of relationship

        23.4.1942

        Description of relationship

        Related entity

        Pálmi Pétursson (1940) Kvsk á Blönduósi (5.3.1940 -)

        Identifier of related entity

        HAH05975

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Pálmi Pétursson (1940) Kvsk á Blönduósi is the child of Pétur Pétursson (1920-1979) frá Bollastöðum

        Dates of relationship

        5.3.1940

        Description of relationship

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH02200

        Institution identifier

        IS HAH

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ 25.8.2017

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Sources

          ®GPJ ættfræði

          Maintenance notes