Identity area
Type of entity
Authorized form of name
Parallel form(s) of name
Pálmi S Gíslason (1938-2001) Grænuhlíð
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
History
Pálmi Sigurður Gíslason fæddist á Bergstöðum í Svartárdal í A-Húnavatnssýslu 2. júlí 1938. Hann lést af slysförum 22. júlí síðastliðinn.
Pálmi lauk samvinnuskólaprófi 1959. Hann var í starfsnámi hjá HB í Kaupmannahöfn sumarið 1959 og starfskynningu hjá Andelsbanken vorið 1973. Pálmi var verslunarstjóri hjá Kaupfélagi Húnvetninga '59-61, starfsmaður hjá HB í Danmörku '61-63, verslunarstjóri hjá KRON '63-68 og framkvæmdastjóri hjá UMSK sumarið '68. Pálmi var starfsmaður Samvinnubankans frá 1968, útibússtjóri frá 1977, og síðar hjá Landsbankanum eftir yfirtöku Landsbankans á Samvinnubankanum. Lengst af var Pálmi útibússtjóri á Suðurlandsbraut, síðar á Miklubraut og eftir sameiningu útibúa einnig í Háaleiti. Hann lét af störfum sem útibússtjóri í maí sl. en fór þá í hlutastarf hjá UMFÍ. Pálmi var formaður íþróttanefndar Ungmennasambands A-Húnvetninga '60-61, í stjórn frjálsíþróttadeildar Breiðabliks í mörg ár og um tíma í stjórn Breiðabliks, í stjórn Ungmennasambands Kjalarnesþings og í mörgum landsmótsnefndum bæði á vegum UMSK og UMFÍ, í varastjórn UMFÍ '69-73, var formaður UMFÍ '79-93, og hefur setið í fjölmörgum nefndum fyrir ungmennafélagshreyfinguna. Pálmi sat í stjórn NSU frá '80 til dauðadags, í stjórn Bréfaskólans '80-82, í mörg ár í stjórn Starfsmannafélags Samvinnubankans, í stjórn félags útibússtjóra Samvinnubankans frá upphafi og síðar Landsbankans. Pálmi sat í undirbúningsnefnd að stofnun Landssambands íslenskra samvinnustarfsmanna, LÍS, '73 og í framkvæmdastjórn LÍS '73-79. Í stjórn KPA '74-79. Hann var í ritnefnd tímaritsins Hlyns í mörg ár, hefur setið í mörgum nefndum á vegum LÍS og Sambands íslenskra bankamanna og sat í stjórn Landssamtaka hjartasjúklinga. Pálmi birti nokkrar smásögur og ljóð á yngri árum og skrifaði greinar í blöð og tímarit um margvíslegt efni og hefur auk þess samið og flutt ýmiss konar skemmtiefni. Hann var sæmdur Riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu 1994, Gullmerki UMFÍ 1978, Heiðursorðu ÍSÍ 1987 og Silfurblika 1998.
Útför Pálma fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði á morgun, mánudag, og hefst athöfnin klukkan 15.
Places
Bergsstaðir í Svartárdal: Bifröst: Kaupmannahöfn: Blönduós: Reykjavík
Legal status
Samvinnuskólapróf 1959:
Functions, occupations and activities
Bankaútibússtjóri: Formaður UMFÍ 1979-1993:
Mandates/sources of authority
Internal structures/genealogy
Hinn 13. júlí 1961 kvæntist Pálmi eftirlifandi eiginkonu sinni, Stellu Guðmundsdóttur skólastjóra, f. 1941. Foreldrar hennar voru Guðmundur Þorláksson náttúrufræðingur og Elísabeth Þorláksson. Börn Pálma og Stellu eru
1) Gísli Pétur verktaki, f. 1962, sambýliskona Björk Árnadóttir. Barn þeirra er Gunnur Ýr, úr fyrri sambúð með Hjördísi Ásgeirsdóttur á Gísli Stellu Sif sem alist hefur upp hjá honum. Hjördís átti fyrir Pál Lúthersson sem dvalið hefur langdvölum á heimili Stellu og Pálma.
2) Guðmundur Atli verktaki, f. 1963, var kvæntur Sigrúnu Óskarsdóttur, þeirra dóttir er Stella Rún. Fyrir á Sigrún Heiðrúnu Lind og Óskar Pétur.
3) Elísabet Helga uppeldisfræðingur, f. 1965, eiginmaður Guðmundur Pétur Guðmundsson, afbrotafræðingur og kúluvarpari. Þeirra börn eru Karen Ósk, Pálmi, Linda Björk og Vilhelm.
Pálmi og Stella tóku auk þess
4) Ármann Þór Guðmundsson í fóstur í nokkur ár.
General context
Relationships area
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Access points area
Subject access points
Place access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Institution identifier
Rules and/or conventions used
Status
Level of detail
Dates of creation, revision and deletion
GPJ 19.6.2017
Language(s)
Icelandic
Script(s)
Sources
®GPJ ættfræði 19.6.2017
Íslendingabók
mbl 22.7.2001. https://www.mbl.is/greinasafn/grein/617670/?item_num=16&searchid=2435f9ce6ac845889608412d218a2b6a00441fa6
mbl 29.7.2001. https://www.mbl.is/greinasafn/grein/618749/?item_num=3&searchid=f4b8064d8af730649882ea1e5dc13b8ff92b8dee