Bjarni Guðmundsson (1934) Botnastöðum

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Bjarni Guðmundsson (1934) Botnastöðum

Parallel form(s) of name

  • Bjarni Valgeir Guðmundsson (1934) Botnastöðum

  • Bjarni Valgeir Guðmundsson Botnastöðum

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      21.10.1934 -

      History

      Bjarni Valgeir Guðmundsson 21. október 1934 Jörfa á Álftanesi. Forsetabílstjóri

      Places

      Síðumúli; Fjall í Sæmundarhlíð; Botnastaðir í Svartárdal; Jörfi á Álftanesi:

      Legal status

      Functions, occupations and activities

      Forsetabílstjóri:

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hans; Guðmundur Jónsson 6. mars 1904 - 25. desember 1988 Ársmaður í Síðumúla, Gilsbakkasókn, Mýr. 1930. Bóndi á Fjalli og Botnastöðum í Svartárdal, síðar verkamaður í Reykjavík. Síðast bús. á Seltjarnarnesi og kona hans 29.12.1929; Anna Guðrún Bjarnadóttir 29. desember 1909 - 26. febrúar 1993 Var í Síðumúla, Gilsbakkasókn, Mýr. 1930. Var á Botnastöðum, Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. 1957. Síðast bús. á Seltjarnarnesi.
      Systkini Bjarna;
      1) Óskar Guðmundsson 21. ágúst 1930 - 8. júní 1956 af slysförum. Var í Síðumúla, Gilsbakkasókn, Mýr. 1930. Prentari. Hann átti eignarhlut i bát og fór í róður að kvöldi 7. júní 1956. Hann kom ekki lifandi aftur úr þeirri ferð. Kona hans; Auður María Sigurhansdóttir 23. ágúst 1930 - 23. desember 2011, Sm. hennar; Ólafur Sigurður Alexandersson 10. júlí 1928 - 31. janúar 1998 Var á Grettisgötu 45 a, Reykjavík 1930. Síðast bús. í Reykjavík. Dætur Auðar og Óskars eru: Hrafnhildur húsmóðir, f. 9. janúar 1952, gift Jónasi Sigfússyni skrifstofumanni, þau eiga þrjú börn; og Anna húsmóðir, f. 1. ágúst 1954, gift Gesti Arnarssyni rafvirkjameistara, þau eiga fjögur börn.
      Prentarinn, 3.-4. tölublað (01.06.1956), Blaðsíða 13. http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=5619618
      2) Gunnlaugur Guðmundsson 29. júní 1942 Var á Botnastöðum, Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. 1957. Múrari Grund Garðabæ
      3) Jón Eyjólfur Guðmundsson 17. júní 1945 Var á Botnastöðum, Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. 1957. Ástralíu
      Kona Bjarna; kona hans; María Birna Sveinsdóttir 18. mars 1936
      Börn Bjarna og Maríu eru
      1) Sveinn Bjarnason, f. 16.7.1957, verkamaður, búsettur á Jörfa;
      2) Salbjörg Bjarnadóttir, f. 11.4. 1966, sölumaður, búsett á Álftanesi og á hún tvö börn, Óskar Örn Þórhallsson, f. 22.7.1986, og Júlíönu Kristbjörgu Þórhallsdóttur, f. 30.1. 1989;
      3) Anna María Bjarnadóttir, f. 22.4.1969, húsmóðir í Reykjavík, gift Jónasi Þórissyni húsasmið og eiga þau eina dóttur, Marey Jónasdóttur, f. 8.10.1993.

      General context

      Bjarni fæddist í Reykjavík en ólst upp í foreldrahúsum á Fjalli í Sæmundarhlíð í Skagafirði til tólf ára aldurs og síðan á Botnastöðum í Svartárdal í Húnavatnssýslú. Bjarni fiutti til Reykjavíkur 1951, hóf nám í bifvélavirkjun, lauk sveinsprófi í þeirri iðngrein og starfaði síðan við greinina í tuttugu og þrjú ár. Hann hóf störf hjá forsetaembættinu 1980 og hefur starfað þar síðan. Fjölskylda Bjarni kvæntist 24.5.1958 Maríu Birnu Sveinsdóttur, f. 18.3.1936, fulltrúa hjá Pósti og síma. Foreldrar hennar: Sveinn Erlendsson, b. á Breiðabólstöðum á Álftanesi, og k.h., Júlíana K. Björnsdóttir húsfreyja.
      Bræður Bjarna: Óskar Guðmundsson, f. 1930, d. 1956, prentari í Reykjavík; Gunnlaugur Guðmundsson, f. 1942, múrarameistari á Álftanesi; Jón Eyjólfur Guðmundsson, f. 1944, húsasmíöameistari í Ástralíu. Foreldrar Bjarna voru Guðmundur Jónsson, f. 6.3.1904, nú látinn, bóndi á Botnastöðum og síðast starfsmaður Pósts og síma í Reykjavík, og k.h., Anna Guðrún Bjarnadóttir, f. 29.12.1910, nú látin, húsfreyja.
      Ætt Guðmundur var bróðir Þórðar, afa Þórarins Tyrfingssonar yfirlæknis, og bróðir Helgu, ömmu Pálma Gíslasonar, formanns UMFÍ. Guðmundur var sonur Jóns, skálds á Háreksstöðum, bróður Guðrúnar skáldkonu, Sæmundar, guðfræðings og skálds og Jóhanns, alþm. í Sveinatungu, föður Guðmundar, bæjarfulltrúa í Reykjavík, afa Sveins Rúnars læknis og Óttars Felix framkvæmdastjóra Haukssona. Jón var sonur Eyjólfs, skálds og hreppstjóra í Sveinatungu Jóhannssonar, og Helgu Guðmundsdóttur, b. á Sámsstöðum, bróður Sigurðar, afa Jóns Helgasonar, skálds og prófessors. Meðal annarra bræðra Guðmundar voru Jónas og Gísli, afar Steins Dofra ættfræðings. Guðmundur var sonur Guðmundar, ættföður Háafellsættarinnar Hjálmarssonar. Móðir Helgu var Guðrún Þorsteinsdóttir, b. á Hallkelsstöðum, Hjálmarssonar.
      Móðir Guðmundar á Botnastöðum var Ragnhildur Þórðardóttir, b. á Brekku, Jónssonar, og Halldóru Tímotheusdóttur. Anna Guðrún var dóttir Bjarna, smiðs í Glæsibæ í Skagafirði, bróður Sigurlaugar, móður Jakobs Benediktssonar orðabókaritstjóra. Önnur systir Bjarna var Hallfríður, amma Stefáns Guðmundssonar alþm. Bjarni var sonur Sigurðar, b. á Stóra-Vatnsskarði, bróður Stefáns, afa Stefáns íslandi, og bróður Jóns, langafa Ingibjargar, móður Bjarna Dags dagskrárgerðarmanns. Sigurður var sonur Bjarna, skyttu í Sjávarborg, Jónssonar, hreppstjóra í Álftagerði, Bjarnasonar. Móðir Sigurðar var Guðrún Þorsteinsdóttir, hreppstjóra og skálds á Reykjavöllum, Pálssonar, bróður Sveins landlæknis. Móðir Bjarna var Salbjörg Sölvadóttir, b. á Steini, Ólafssonar. Móðir Önnu Guðrúnar var Valgerður, systir Árna Hafstað, afa Árna Hjartarsonar jarðfræðings og Árna Árnasonar, ritstjóra hjá Námsgagnastofnun. Valgerður var dóttir Jóns, hreppstjóra og dbrm. á Hafsteinsstöðum, Jónssonar, hreppstjóra á Hóli, Jónssonar. Móðir Jóns var Sigríður Magnúsdóttir, hreppstjóra á Halldórsstöðum í Laxárdal, Ásmundssonar. Móðir Valgerðar var Steinunn, systir Páls, hreppstjóra á Ysta-Mói, og Sveins, hreppstjóra á Felh, dóttir Árna, hreppstjóra á Ysta-Mói, Þorleifssonar. Bjarni tekur á móti gestum í hátíðarsal íþróttahúss Bessastaðahrepps í kvöld kl. 20.00. http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=195696&pageId=2720264&lang=is&q=Bjarni%20Valgeir%20Guðmundsson

      Relationships area

      Related entity

      Pálmi S Gíslason (1938-2001) frá Grænuhlíð (2.7.1938 - 22.7.2001)

      Identifier of related entity

      HAH01406

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Guðmundur faðir Bjarna var bróðir Þórðar, afa Þórarins Tyrfingssonar yfirlæknis, og bróðir Helgu, ömmu Pálma Gíslasonar, formanns UMFÍ.

      Related entity

      Árni Hafstað Jónsson (1883-1969) búfræðingur í Vík, Staðarhreppi (23.5.1883 - 22.6.1969)

      Identifier of related entity

      HAH01067

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Móðuramma Bjarna var Valgerður, systir Árna Hafstað

      Related entity

      Anna Guðrún Bjarnadóttir (1909-1993) Botnastöðum (29.12.1909 - 26.2.1993)

      Identifier of related entity

      HAH02333

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Anna Guðrún Bjarnadóttir (1909-1993) Botnastöðum is the parent of Bjarni Guðmundsson (1934) Botnastöðum

      Dates of relationship

      21.10.1934

      Description of relationship

      Related entity

      Guðmundur Jónsson (1904-1988) Botnastöðum (6.3.1904 - 25.12.1988)

      Identifier of related entity

      HAH04081

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðmundur Jónsson (1904-1988) Botnastöðum is the parent of Bjarni Guðmundsson (1934) Botnastöðum

      Dates of relationship

      21.10.1934

      Description of relationship

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH02669

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 22.10.2018

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Sources

        ®GPJ ættfræði
        Dagblaðið Vísir - DV, 240. tölublað (21.10.1994), Blaðsíða 34. http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=2720264

        Maintenance notes