Þorleifur Ingvarsson (1900-1982) Sólheimum

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Þorleifur Ingvarsson (1900-1982) Sólheimum

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        9.10.1900 - 27.8.1982

        History

        Þorleifur Ingvarsson 9.10.1900 - 27.8.1982. Bóndi á Sólheimum í Svínavatnshr., A-Hún. Bóndi á Sólheimum, Auðkúlusókn, A-Hún. 1930. Var á Sólheimum, Svínavatnshr., A-Hún. 1957.
        Hann var fæddur 9. október árið 1900 í Sólheimum í Svínavatnshreppi. Tæpra tveggja ára missti Þorleifur móður sína. Var honum þá komið í fóstur til Hannesar Sveinbjörnssonar og konu hans Þorbjargar Jónsdóttur, er þá bjuggu á Geithömrum og síðar í Sólheimum.
        Árið 1922 kom hann heim frá Noregi og hóf búskap á hálfum Sólheimum. Hóf hann búskapinn af stórhug og bjartsýni og varð brátt í röð fremstu bænda í sveit sinni. Árið 1927 réðist til hans ráðskona, Sigurlaug Hansdóttir, vestan úr Vatnsdal, hin ágætasta kona er öllum vildi gott gjöra. Varð heimili þeirra þekkt rausnarheimili þar sem m.a. gamalt fólk, er hvergi átti höfði sínu að halla, átti sér athvarf.
        Hann andaðist 27. ágúst 1982 á Héraðshælinu. Útför hans var gerð frá Svínavatnskirkju 4. september 1982.

        Places

        Legal status

        Ungur að árum fór hann í Unglingaskóla á Hvammstanga og var þar við nám vetrarlangt. Síðan fór hann utan til Noregs þar sem hann dvaldi í eitt og hálft ár og kynnti sér búskaparháttu Norðmanna. Einnig mun hann hafa stundað nám um tíma við lýðskóla.

        Functions, occupations and activities

        Mandates/sources of authority

        Internal structures/genealogy

        Foreldrar hans; Ingvar Þorsteinsson 20.10.1838 [29.9.1837] - 21.1.1916. Var á Grund, Auðkúlusókn, Hún. 1860. Hreppstjóri og bóndi í Sólheimum og sambýliskona hans; Kristín Gísladóttir 19. júní 1857 - 19. sept. 1901. Var í Auðkúluseli, Auðkúlusókn, Hún. 1860. Húsfreyja í Sólheimum.
        Fyrri kona Ingvars 2.11.1866; Ingiríður Pálmadóttir 1815 - 2. júlí 1886. Var á Holtastað, Holtastaðarsókn, Hún. 1816, þau barnlaus. Fyrri maður hennar; 16.10.1833; Andrés Þorleifsson 1809 - 23. apríl 1865 Bóndi á Stóra-Búrfelli, Svínavatnssókn, Hún. 1845. Bróðir hennar; Erlendur (1820-1888) í Tungunesi.

        Bróðir hans;
        1) Steingrímur Ingvarsson 28.6.1897 - 9.10.1947. Bóndi í Hvammi í Vatnsdal. Bóndi þar 1930. Kona hans 5.7.1920; Theódóra Hallgrímsdóttir 9. nóvember 1895 - 13. maí 1992 Húsfreyja í Hvammi, Undirfellssókn, A-Hún. 1930. Var á Hofi, Áshr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Áshreppi.

        Sambýliskona hans; Sigurlaug Hansdóttir Önnudóttir 22.6.1889 [5.7.1889] - 16.3.1980. Sólheimum. Barnsfaðir hennar 4.8.1912; Guðmundur Jónsson 14.7.1877 - 8.8.1953, sjómaður Helgastöðum Reykjavík. Sonur hans Kristmann Guðmundsson rithöfundur. Bróðir hennar samfeðra; Jónbjörn Gíslason (1879-1969).

        Börn þeirra
        1) Lára Sigríður Guðmundsdóttir, f. 4.8.1912 - 5.10.1997. Vinnukona í Kaupfélagshúsinu, Höskuldsstaðasókn, A-Hún. 1930. Bús. í Blönduóshr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Reykjavík. Maður hennar 16.7.1945: Jón Sveinberg Jónsson 6. júlí 1910 - 29. nóvember 1977. Var í Reykjavík 1910. Lausamaður í Stóradal, Svínavatnssókn, A-Hún. 1930. Bús. í Blönduóshr., A-Hún. 1957. Verslunarmaður, bifreiðarstjóri og fulltrúi á Sæbóli, Blönduósi. Síðast bús. í Reykjavík
        2) Fjóla Þorleifsdóttir 20. ágúst 1928 - 6. nóvember 2007 Var á Sólheimum, Auðkúlusókn, A-Hún. 1930. Ljósmóðir víða í Skagafirði, síðast á Sauðárkróki. Formaður Kvenfélags Sauðárkróks um árabil og síðar formaður Félags eldriborgara. Fjóla giftist 9. október 1950 Ingólfi Guðmundssyni bifvélavirkja, f. 19.4. 1929, d. 16.6. 1991. Foreldrar hans voru Guðmundur Árnason bóndi á Þorbjargarstöðum og kona hans Kristín Árnadóttir.
        3) Ingvar Þorleifsson 17. mars 1930 - 8. júlí 2016. Var á Sólheimum, Svínavatnshr., A-Hún. 1957. Bóndi að Sólheimum í Svínavatnshreppi. Hreppstjóri, hreppsnefndarmaður og gegndi ýmsum félags- og trúnaðarstörfum. Kona hans 27.12.1958; Sigríður Ingimundardóttir 5. júní 1936. Húsmóðir og hannyrðakona Sólheimum Svínavatnshreppi.
        4) Steingrímur Th. Þorleifsson f. 27.4. 1932. tæknifræðingur Reykjavík. Kona hans; Ethel Marita Jöderholm Þorleifsson 17. feb. 1934.
        5) Svanhildur Sóley Þorleifsdóttir 9. sept. 1934 - 13. apríl 1988. Var í Skála, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Húsfreyja og gangastúlka á Blönduósi. Maður hennar; Ragnar Annel Þórarinsson 1.10.1924 - 12.3.2017. Var á Steinnesi, Þingeyrasókn, A-Hún. 1930. Var í Skála, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Vörubílstjóri á Blönduósi.
        Uppeldissdóttir er;
        6) Sjöfn Ingólfsdóttir 17. júlí 1939 Var á Sólheimum, Svínavatnshr., A-Hún. 1957, maki Bjarni Ólafsson, þau eiga tvö börn. Faðir Sjafnar: Ingólfur Helgason, heildsali, f. 17. júlí 1916.

        General context

        Þorleifur Ingvarsson var maður vel greindur, fríður sýnum, gleðimaður á góðri stund og hrókur alls fagnaðar á mannamótum. Hann var söngmaður ágætur og hafði háa og bjarta tenórrödd. Hann var félagsmálamaður mikill og eindreginn samvinnumaður. Honum voru því falin trúnaðarstörf í þágu sveitar sinnar og sýslu. Var hreppstjóri um skeið. Sat í sveitarstjórn um árabil, og var yfir tuttugu ár í stjórn Búnaðarfélags Svínavatnshrepps, elsta búnaðarfélagi landsins og formaður þess um skeið.
        Um áratugi var hann deildarstjóri sveitar sinnar í Kaupfélagi Húnvetninga og fulltrúi á fjölda aðalfunda félagsins. Þá var hann síðasti formaður Svínvetningabrautarfélagsins, eða þar til félagið var lagt niður þegar það hafði lokið hlutverki sínu.
        Um árabil hafði hann með höndum forðagæslustörf í sveit sinni, auk annarra trúnaðarstarfa er hann gegndi af mikilli samviskusemi og dugnaði.

        Árið 1970 brá hann búi og fól það í hendur syni sínum Ingvari, en þeir höfðu þá um skeið búið félagsbúi. Var það þá orðið eitt af stærstu búum sýslunnar. Sama ár fluttu þau Þorleifur og Sigurlaug til Reykjavíkur til sonar þeirra Steingríms og bjuggu þar í tvö ár. Festu þau eigi rætur þar, en fluttu aftur norður og settust að hjá dóttur sinni, Svanhildi og Ragnari manni hennar á Blönduósi. Atti hann heimili sitt þar til dauðadags.

        Sama ár og þau fluttu norður reistu þau sér sumarhús í Sólheimum þar sem þau dvöldu á sumrum. Voru þau óþreytandi í að fegra umhverfi þess og bar lóðin í kring vott um smekkvísi þeirra og elju. Þorleifur í Sólheimum var maður vinmargur og vinsæll meðal samferðamanna sinna. Hann var stórhuga framfaramaður og hreinskiptinn í viðskiptum og minnisstæður persónuleiki þeim er honum kynntust.

        Relationships area

        Related entity

        Jónbjörn Gíslason (1879-1969) Köldukinn, verslm Rvk og múrari Kanada (22.7.1879 - 29.10.1969)

        Identifier of related entity

        HAH06564

        Category of relationship

        family

        Dates of relationship

        22.6.1889

        Description of relationship

        Sigulaug kona Þorleifs var systir Jónbjörns samfeðra

        Related entity

        Sigríður Jónasdóttir (1875-1959) Miðhópi (15.12.1875 - 18.4.1959)

        Identifier of related entity

        HAH09424

        Category of relationship

        family

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Þorleifur var sambýlismaður Sigurlaugar hálfsystur Sigríðar

        Related entity

        Geithamrar í Svínadal ([1300])

        Identifier of related entity

        HAH00269

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        fósturbarn þar 1902

        Related entity

        Steingrímur Ingvarsson (1897-1947) Hvammi í Vatnsdal

        Identifier of related entity

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Steingrímur Ingvarsson (1897-1947) Hvammi í Vatnsdal is the sibling of Þorleifur Ingvarsson (1900-1982) Sólheimum

        Dates of relationship

        9.10.1900

        Description of relationship

        Related entity

        Þorsteinn Þorsteinsson (1842-1921) Grund í Svínadal (4.12.1842 - 1.8.1921)

        Identifier of related entity

        HAH09432

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Þorsteinn Þorsteinsson (1842-1921) Grund í Svínadal is the cousin of Þorleifur Ingvarsson (1900-1982) Sólheimum

        Dates of relationship

        9.10.1900

        Description of relationship

        bróðursonur

        Related entity

        Sólheimar í Svínadal ([1300])

        Identifier of related entity

        HAH00472

        Category of relationship

        hierarchical

        Type of relationship

        Sólheimar í Svínadal is controlled by Þorleifur Ingvarsson (1900-1982) Sólheimum

        Dates of relationship

        9.10.1900 - 1970

        Description of relationship

        Fæddur þar, síðar húsbóndi 1922-1970

        Related entity

        Svanhildur Þorleifsdóttir (1934-1988) Blönduósi, frá Sólheimum í Svínadal (9.9.1934 - 13.4.1988)

        Identifier of related entity

        HAH02054

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Svanhildur Þorleifsdóttir (1934-1988) Blönduósi, frá Sólheimum í Svínadal is the child of Þorleifur Ingvarsson (1900-1982) Sólheimum

        Dates of relationship

        9.9.1934

        Description of relationship

        Related entity

        Ingvar Þorleifsson (1930-2016) Sólheimum (17.3.1930 - 8.7.2016)

        Identifier of related entity

        HAH02397

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Ingvar Þorleifsson (1930-2016) Sólheimum is the child of Þorleifur Ingvarsson (1900-1982) Sólheimum

        Dates of relationship

        17.3.1930

        Description of relationship

        Related entity

        Fjóla Þorleifsdóttir (1928-2007) (20.8.1928 - 6.11.2007)

        Identifier of related entity

        HAH03435

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Fjóla Þorleifsdóttir (1928-2007) is the child of Þorleifur Ingvarsson (1900-1982) Sólheimum

        Dates of relationship

        20.8.1928

        Description of relationship

        Related entity

        Lára Sigríður Guðmundsdóttir (1912-1997) Sæbóli (4.8.1912 - 5.10.1997)

        Identifier of related entity

        HAH01705

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Lára Sigríður Guðmundsdóttir (1912-1997) Sæbóli is the child of Þorleifur Ingvarsson (1900-1982) Sólheimum

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Stjúpdóttir hans

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH07437

        Institution identifier

        IS HAH

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ 14.3.2021

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Sources

          ®GPJ ættfræði 14.3.2021
          Íslendingabók
          ÆAHún bls 873
          Húnavaka 1983. https://timarit.is/page/6347595?iabr=on

          Maintenance notes