Kristinn Pálsson (1927-2008), kennari Skagaströnd og Blönduósi.

Auðkenni

Tegund einingar

Einstaklingur

Leyfileg nafnaform

Kristinn Pálsson (1927-2008), kennari Skagaströnd og Blönduósi.

Hliðstæð nafnaform

Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum

Aðrar nafnmyndir

Auðkenni fyrir stofnanir

Lýsing

Fæðingar- og dánarár

22.12.1927 - 12.10.2008

Saga

Kristinn Pálsson fæddist á Hofi á Skagaströnd 22. desember 1927. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Blönduóss 21. október síðastliðinn. Kristinn ólst upp á Hofi til 16 ára aldurs, en þá fluttist fjölskyldan til Skagastrandar (Höfðakaupstaðar) þar sem hann stundaði verkamannavinnu, skipavinnu, vegavinnu, hafnarvinnu o.fl. Vann í síldarverksmiðjunni í 3 sumur og var á síld í tvö sumur á Jóni Finnssyni II.
Kristinn var 3 mánuði í unglingaskóla í Steinnesi hjá sr. Þorsteini B. Gíslasyni. Tvo vetur (1944-1946) á Reykjaskóla í Hrútafirði. Kristinn lauk kennaraprófi frá Kennaraskólanum í Reykjavík 1949.
Kristinn og Guðný byggðu sér heimili að Húnabraut 10 á Blönduósi og bjuggu þar í 40 ár.
Útför Kristins fer fram frá Blönduósskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 15.

Staðir

Hof á Skagaströnd: Skagaströnd 1943: Blönduós 1961:

Réttindi

Kristinn var 3 mánuði í unglingaskóla í Steinnesi hjá sr. Þorsteini B. Gíslasyni. Tvo vetur (1944-1946) á Reykjaskóla í Hrútafirði. Kristinn lauk kennaraprófi frá Kennaraskólanum í Reykjavík 1949.

Starfssvið

Kristinn kenndi við barna- og unglingaskólann í Keflavík í 3 ár (1949-1952). Fór þá norður á Skagaströnd og kenndi þar í 9 ár (1952-1961) við barnaskólann og vann þá í Mjólkurstöðinni á Blönduósi á sumrin. Flutti til Blönduóss 1961 og gerðist kjötbúðarstjóri hjá KH í 4 ár. Kenndi síðan í 9 ár (1965-1974) við barna- og miðskólann á Blönduósi og vann þá alla algenga verkamannavinnu á sumrin. Hætti kennslu 1974 og fór að vinna í Mjólkurstöð SAH í 8 ár (1974-1982), síðan í Byggingavöruverslun KH og endaði starfsferil sinn í súpugerðinni Vilkó árið 1995.
Kristinn tók þátt í ýmsum félagsmálum á Blönduósi. Hann var í stjórn KH í 6 ár og varamaður í hreppsnefnd í 4 ár. Í sóknarnefnd í 18 ár, í kirkjugarðsnefnd í 18 ár, auk þess var hann í barnaverndarnefnd, bókasafnsnefnd og áfengisvarnarnefnd.

Lagaheimild

Innri uppbygging/ættfræði

Foreldrar hans voru hjónin Sigríður Guðnadóttir f. 28.10. 1900 í Hvammi í Holtum, d. 4.3. 1964, og Páll Jónsson kennari og skólastjóri á Skagaströnd, f. 22.12. 1899 á Balaskarði, d. 19.7. 1979.
Systkini Kristins eru: Guðný Málfríður, f. 1929, d. 2005, Guðfinna f. 1930, Jón Sveinn f. 1933, Ingveldur Anna f. 1935 Ásdís f. 1936 og Edda f. 1939.
Kristinn kvæntist 31. október 1953 Guðnýju Pálsdóttur f. 30.3. 1927 á Blönduósi. Foreldrar Guðnýjar voru Hjálmfríður Anna Kristófersdóttir, f. 26.7. 1901, d. 26.11. 1981, og Páll Geirmundsson, f. 19.10. 1895, d. 28.1. 1975, búsett á Blönduósi.
Börn Kristins og Guðnýjar eru:
1) Páll f. 16.8. 1955, kvæntur Ásu Bernharðsdóttur f. 2.11. 1958. Börn: a) Kristinn Geir f. 28.2. 1980, kvæntur Ester Sighvatsdóttur f. 10.7. 1980, dóttir þeirra er Brynhildur Eva f. 4.8. 2004. b) Guðný f. 25.12. 1986. c) Móeiður f. 28.4. 1990.
2) Hjálmfríður f. 2.1. 1961, gift Ólafi G. Sæmundssyni f. 10.9. 1961. Börn: a) Kristinn f. 26.8. 1993. b) Sæmundur f. 2.10. 1995. c) Ólafur f. 5.8. 1999, d. 5.8. 1999. d) Soffía f. 18.7. 2001.

Almennt samhengi

Tengdar einingar

Tengd eining

Leikfélagið á Skagaströnd (1895-)

Identifier of related entity

HAH00200

Flokkur tengsla

associative

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Barnaskólinn á Skagaströnd ((1920))

Identifier of related entity

HAH00351

Flokkur tengsla

associative

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Barnaskólinn á Blönduósi / Blönduskóli (1908)

Identifier of related entity

HAH00062

Flokkur tengsla

associative

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Páll Kristinsson (1955) Blönduósi (16.8.1955 -)

Identifier of related entity

HAH06877

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Páll Kristinsson (1955) Blönduósi

er barn

Kristinn Pálsson (1927-2008), kennari Skagaströnd og Blönduósi.

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Páll Jónsson (1899-1979) skólastjóri á Skagaströnd (22.12.1899 - 19.7.1979)

Identifier of related entity

HAH01825

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Páll Jónsson (1899-1979) skólastjóri á Skagaströnd

er foreldri

Kristinn Pálsson (1927-2008), kennari Skagaströnd og Blönduósi.

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Edda Pálsdóttir (1939-2016) (4.10.1939 - 8.4.2016)

Identifier of related entity

HAH03043

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Edda Pálsdóttir (1939-2016)

er systkini

Kristinn Pálsson (1927-2008), kennari Skagaströnd og Blönduósi.

Dagsetning tengsla

1939 - ?

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Guðfinna Pálsdóttir (1930-2015) Blönduósi (21.9.1930 - 27.4.2015)

Identifier of related entity

HAH01264

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Guðfinna Pálsdóttir (1930-2015) Blönduósi

er systkini

Kristinn Pálsson (1927-2008), kennari Skagaströnd og Blönduósi.

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Jón Pálsson (1933-2023) skólastjóri Skagaströnd, (28.12.1933 - 6.9.2023)

Identifier of related entity

HAH05743

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Jón Pálsson (1933-2023) skólastjóri Skagaströnd,

er systkini

Kristinn Pálsson (1927-2008), kennari Skagaströnd og Blönduósi.

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Guðný Pálsdóttir (1927-2015) Blönduósi (30.3.1927 - 3.12.2015)

Identifier of related entity

HAH01298

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Guðný Pálsdóttir (1927-2015) Blönduósi

er maki

Kristinn Pálsson (1927-2008), kennari Skagaströnd og Blönduósi.

Dagsetning tengsla

1953 - ?

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Emma Jónsdóttir (1890-1976) Spákonufelli (4.8.1890 - 29.2.1976)

Identifier of related entity

HAH03318

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Emma Jónsdóttir (1890-1976) Spákonufelli

is the cousin of

Kristinn Pálsson (1927-2008), kennari Skagaströnd og Blönduósi.

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Húnabraut 10 Blönduósi ((1960))

Identifier of related entity

HAH00825/10

Flokkur tengsla

stigveldi

Type of relationship

Húnabraut 10 Blönduósi

er í eigu

Kristinn Pálsson (1927-2008), kennari Skagaströnd og Blönduósi.

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Access points area

Efnisorð

Staðir

Occupations

Stjórnsvæði

Authority record identifier

HAH01656

Kennimark stofnunar

IS HAH

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Staða

Loka

Skráningarstaða

Fullt

Skráningardagsetning

GPJ 1.7.2017

Tungumál

  • íslenska

Leturgerð(ir)

Athugasemdir um breytingar

  • Clipboard

  • Flytja út

  • EAC

Related subjects

Tengdir staðir