Barnaskólinn á Skagaströnd

Identity area

Type of entity

Corporate body

Authorized form of name

Barnaskólinn á Skagaströnd

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        (1920)

        History

        Saga skólahalds á Skagaströnd nær allt aftur á síðustu öld. Þá var farkennsla við lýði og svo var einnig fyrstu fjóra áratugi þessarar aldar. Kennslan var þá allt frá 2-3 vikum og upp í 2-3 mánuði á ári. Kennslustaðirnir voru margir allt til ársins 1922 að keypt var sérstakt húsnæði undir skólann í kauptúninu. Var það hús úr steinsteypu, byggt árið 1912 sem verslunarhús og stóð á Hólanesi við sjóinn. Þar var kennt til ársins 1958. Kennslustofur voru tvær.

        Árið 1939 varð kauptúnið að sjálfstæðu sveitarfélagi og það sama haust var komið á fót ,,fastaskóla”. Fyrsta skólaárið, 1939-1940, var kennt frá 17. október til 10. maí, alls 135 daga. Nemendur voru þá samtals 46 í 2 bekkjardeildum. Einn kennari starfaði við skólann, Páll Jónsson, og var hann jafnframt skólastjóri. Eftir því sem fólki fjölgaði í kauptúninu óx nemendafjöldinn smátt og smátt, fleiri deildir komu til og kennurum fjölgaði. Kennt var 6 daga vikunnar og var það gert allt til ársins 1973. Skólinn var tvísetinn og þrengsli mikil, sérstaklega eftir að unglingadeild var bætt við árið 1948. Því var brugðið á það ráð að byggja nýtt skólahús og var það tekið í notkun 2. nóvember 1958. Þá voru 117 nemendur í 7 bekkjardeildum. Hins vegar voru kennslustofur aðeins 4 og því skólinn áfram tvísetinn.

        Nemendum hélt áfram að fjölga fram yfir 1960 og náði hámarki, um 150, skólaárið 1963-1964. Vegna slæms árferðis á sjötta og sjöunda áratugnum fækkaði aftur í kauptúninu og þar með nemendum sem urðu fæstir, rúmlega 100, skólaárið 1971-1972. Þá fór þeim aftur að fjölga, með betri tíð og blómum í haga, og voru nemendur að meðaltali um 140 á níunda áratugnum. Síðan hefur leiðin legið aftur niður á við og skólaárið 2011-2012 voru nemendur alls 100.

        Árið 1982 var tekin í notkun ný viðbygging við skólann og batnaði þá hagur hans töluvert er ýmsar sérgreinastofur og bókasafn bættust við. Nýtt íþróttahús var svo tekið í notkun 14. mars 1998. Í því eru einnig þrjár kennslustofur og þá var loksins hægt að einsetja skólann að fullu en það var gert þá um haustið.

        Fjöldi kennara var nokkuð jafn fram yfir 1970, eða um 4-6. Með lengingu skólans, fleiri vikustundum og minni kennsluskyldu hefur þeim fjölgað jafnt og þétt síðan og nú eru 13 stöðugildi í kennslu við skólann. Af kennurum starfaði Elínborg Jónsdóttir lengst, fyrst sem fastur kennari frá 1945-1985 og síðan sem bókavörður og stundakennari í tíu ár í viðbót, alls hálfa öld. Þá hefur Ólafur Bernódusson kennt við skólann frá árinu 1972, að undanskildu einu orlofsári og einu ári þegar hann ætlaði sér að hætta að kenna. Ólafur hefur því starfað við skólann í 43 ár.

        Páll Jónsson var skólastjóri frá 1939-1966, þá tók sonur hans, Jón Pálsson, við stjórninni og var til ársins 1986, að undanskildu einu ári, 1973-1974, er Jóhanna Kristjánsdóttir gegndi skólastjórn í námsorlofi Jóns. Árið 1986 tók Páll Leó Jónsson við og var í fimm ár, eða til 1991 en þá tók Ingibergur Guðmundsson, við stjórnartaumunum. Veturinn 2002 – 2003 gegndi Stella Kristjánsdóttir stöðu skólastjóra vegna námsleyfis Ingibergs. Haustið 2005 tók Hildur Ingólfsdóttir við skólastjórn úr höndum Ingibergs er hann lét af störfum við skólann. Hildur var í námsleyfi frá árinu 2013 og í hennar fjarveru stýrði Vera Valgarðsdóttir skólanum. Hildur lét svo formlega af störfum við skólann vorið 2016 og hefur Vera verið skólastjóri.

        Í upphafi var nafn skólans: Barnaskólinn í Höfðakaupstað, síðar Barna- og unglingaskólinn í Höfðakaupstað en svo var ákveðið að gefa skólanum sérstakt nafn og hlaut hann þá nafnið Höfðaskóli.

        Við skólann starfaði til fjölda ára Elínborg Jónsdóttir. Hún byrjaði að kenna við skólann árið 1945 og hætti árið 1985. Hún hætti þó ekki að starfa við skólann, heldur tók að sér stundakennslu og umsjón bókasafns, til ársins 1995, þá 74 ára gömul. Elínborg lést þann 7. janúar 2007

        Places

        Skagaströnd

        Legal status

        Functions, occupations and activities

        Mandates/sources of authority

        Internal structures/genealogy

        María Jóhannesdóttir 24. júlí 1878 - 23. júní 1946. Húsfreyja í Barnaskólanum í Höfðahreppi, A-Hún.

        Guðrún Ólöf Sigurðardóttir 23. des. 1886 - 8. maí 1972. Húsfreyja í Hólagerði í Hofssókn, A-Hún. 1930. Húsfreyja í Kambakoti og síðar í Barnaskólanum í Höfðahr., A-Hún. Síðast bús. á Sauðárkróki. Maður hennar 25.7.1908; þá látinn Jón Klemensson 23. sept. 1884 - 19. maí 1935. Sjómaður í Hólagerði í Hofssókn, A-Hún. 1930. Bóndi í Kambakoti á Skagaströnd. Síðar bóndi á Kaldrana á Skaga og í Árbakkabúð hjá Höfðakaupstað.

        Elín Jóhanna Guðmundsdóttir 24. mars 1883 - 14. ágúst 1944. Húsfreyja í Barnaskólanum í Höfðahreppi, A-Hún. maður hennar 22.8.1912; Óskar Tryggvi Þorleifsson 10. júní 1892 - 16. sept. 1968. Sjómaður og smiður á Skagaströnd og Sauðárkróki. Útgerðarmaður í Skagastrandarkaupstað 1930. Þau skildu.

        Einar Ragnar Guðmundsson 6. mars 1906 - 19. nóv. 1984. Formaður í Höfðakaupstað, síðar sjómaður í Hafnarfirði. Sambýliskona hans; Eðvarðsína Kristjánsdóttir 29. jan. 1909 - 27. apríl 1944. Húsfreyja í Höfðakaupstað , Hún. Vinnukona á Álfhóli, Hofssókn, A-Hún. 1930. Þau skildu.

        General context

        Relationships area

        Related entity

        Páll Jónsson (1899-1979) skólastjóri á Skagaströnd (22.12.1899 - 19.7.1979)

        Identifier of related entity

        HAH01825

        Category of relationship

        hierarchical

        Dates of relationship

        1939-1966

        Description of relationship

        Skólastjóri 1939-1966

        Related entity

        María Magnúsdóttir (1919-2016) frá Syðra- Hóli (1.5.1919 - 2.2.2016)

        Identifier of related entity

        HAH05408

        Category of relationship

        hierarchical

        Dates of relationship

        Description of relationship

        kennari þar

        Related entity

        Skagaströnd / Höfðakaupsstaður ((1930))

        Identifier of related entity

        HAH00438

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Elínborg Margrét Jónsdóttir (1921-2007) Kennari á Skagaströnd (30.6.1921 - 7.1.2007)

        Identifier of related entity

        HAH01197

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        1945

        Description of relationship

        Kennari 1945-1985

        Related entity

        Kristinn Pálsson (1927-2008), kennari Skagaströnd og Blönduósi. (22.12.1927 - 12.10.2008)

        Identifier of related entity

        HAH01656

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        1952-1961

        Description of relationship

        Kennari þar

        Related entity

        Björk Axelsdóttir (1942) kennari Kúskerpi (14.1.1942 -)

        Identifier of related entity

        HAH02766

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        kennari þar

        Related entity

        Ragnar Þorsteinsson (1914-1999) kennari Reykjaskóla (28.2.1914 - 17.9.1999)

        Identifier of related entity

        HAH01857

        Category of relationship

        hierarchical

        Type of relationship

        Ragnar Þorsteinsson (1914-1999) kennari Reykjaskóla controls Barnaskólinn á Skagaströnd

        Dates of relationship

        1938

        Description of relationship

        Skólastjóri þar

        Related entity

        Jón Pálsson (1933-2023) skólastjóri Skagaströnd, (28.12.1933 - 6.9.2023)

        Identifier of related entity

        HAH05743

        Category of relationship

        hierarchical

        Type of relationship

        Jón Pálsson (1933-2023) skólastjóri Skagaströnd, controls Barnaskólinn á Skagaströnd

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Skólastjóri þar

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH00351

        Institution identifier

        IS HAH-Skag

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ 15.4.2019

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Sources

          ÆAHún bls 214, 217, 218 og 221

          Maintenance notes