Jónas Bergmann Jónsson (1908-2005) fræðslustjóri, frá Torfalæk

Original Digital object not accessible

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Jónas Bergmann Jónsson (1908-2005) fræðslustjóri, frá Torfalæk

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        8.4.1908 - 1.4.2005

        History

        Jónas Bergmann Jónsson, fyrrverandi fræðslustjóri í Reykjavík, fæddist á Torfalæk í Austur-Húnavatnssýslu hinn 8. apríl 1908. Hann lést á Landakotsspítala aðfaranótt 1. apríl síðastliðins, tæplega 97 ára að aldri. Jónas B. var formaður Kennarafélags Laugarnesskóla 1935-43, sat í stjórn Stéttarfélags barnakennara í Reykjavík 1939-42 og í stjórn Sambands íslenskra barnakennara 1942-50. Hann var formaður Barnaverndarnefndar Reykjavíkur 1946-50, formaður forstöðunefndar Námsflokka Reykjavíkur frá 1946-54. Einnig samdi hann kennslubækur og skrifaði greinar um uppeldismál og fræðslumál í blöð og tímarit. Jónas B. tók mikinn þátt í félagsmálum. Hann var formaður Barnaverndarráðs Íslands 1953-57 og framkvæmdastjóri Íþróttaráðs Reykjavíkur frá stofnun þess 1962 og til 1973. Hann sat í stjórn Bandalags íslenskra skáta frá 1950 og var skátahöfðingi Íslands 1958-71. Hann var alla tíð mjög virkur í uppbyggingu aðstöðu skáta að Úlfljótsvatni. Jónas B. sat í stjórn Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands frá stofnun 1949-79 og var ritari í stjórn Rauða kross Íslands 1975-79. Hann sat í fulltrúaráði Sjálfstæðisflokksins um áratugaskeið og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. Jónas var virkur félagi í Oddfellow-reglunni og sat þar í stjórn.
        Jónas B. var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu 1961 og stórriddarakrossi 1972. Þá var hann kjörinn heiðursdoktor við Kennaraháskóla Íslands 2001.
        Útför Jónasar verður gerð frá Dómkirkjunni í dag 8. apríl 2005 og hefst athöfnin klukkan 15.

        Places

        Torfalækur: Reykjavík:

        Legal status

        Jónas B. lauk kennaraprófi 1934 og nam við kennaraskóla í Gautaborg 1938:

        Functions, occupations and activities

        Árið 1928 hóf hann feril sinn sem kennari í Torfalækjarhreppi og kenndi síðan við Laugarnesskóla í Reykjavík til 1943. Jónas varð þá fræðslufulltrúi og síðar fræðslustjóri í Reykjavík og gegndi því starfi í 30 ár. Hann tók virkan þátt í mótun nýrra hugmynda um skóla- og uppeldismál, kynningu nýrrar kennslutækni og hrinti í framkvæmd breyttu skipulagi náms og kennslu í skólum borgarinnar.

        Mandates/sources of authority

        Internal structures/genealogy

        Foreldrar hans voru Jón Guðmundsson, f. 22.1. 1878, bóndi á Torfalæk, d. 7.9. 1967, og Ingibjörg Björnsdóttir, f. 28.5. 1875, húsfreyja á Torfalæk, d. 10.9. 1940.
        Systkini Jónasar B. voru Guðmundur, f. 2.3. 1902, skólastjóri bændaskólans á Hvanneyri, d. 28.11. 2002, Björn Leví, f. 4.2. 1904, læknir, d. 15.9. 1979, Jóhann Frímann, f. 5.2. 1904, starfsmaður hjá Reykjavíkurborg, d. 20.3. 1980, Ingimundur, f. 18.6. 1912, d. 20.5. 1969. Eftirlifandi bróðir er Torfi, f. 28.7. 1915, fyrrverandi bóndi á Torfalæk. Uppeldissystur Jónasar eru Björg Gísladóttir, f. 5.11. 1907, d. 9.7. 1939, Ingibjörg Kristín Pétursdóttir, f. 1.9. 1921, húsfreyja á Blönduósi, og Sigrún Einarsdóttir, húsfreyja í Reykjavík, f.1.4. 1929.
        Eftirlifandi eiginkona Jónasar B. er Guðrún Ö. Stephensen, f. 30.10. 1914. Foreldrar hennar voru Ögmundur H. Stephensen bóndi og Ingibjörg Þorsteinsdóttir húsfreyja. Þau bjuggu í Hólabrekku í Reykjavík. Jónas B. og Guðrún eignuðust fjögur börn. Þau eru
        1) Jón Torfi, f. 9.6. 1947, prófessor, maki Bryndís Ísaksdóttir bókasafnsfræðingur á Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni. Þau eignuðust fjögur börn, Ragnheiði, Guðrúnu Önnu, maki hennar er Jóhannes Magnússon, Kristínu Evu, d. 23.9. 2001, og Stefán Árna.
        2) Ögmundur, f. 17.7. 1948, alþingismaður og formaður BSRB, maki Valgerður Andrésdóttir, líffræðingur á Keldum. Þau eiga þrjú börn, Andrés, Guðrúnu og Margréti Helgu.
        3) Ingibjörg, f. 12.11. 1950, fræðslustjóri, maki Guðmundur Gíslason, bankamaður. Ingibjörg eignaðist þrjú börn með fyrri manni sínum, James Swift, framkvæmdastjóra. Þau eru Emma Marie, Martin Jónas Björn og Björn Patrick. Emma Marie er gift Ívari Meyvantssyni og eiga þau þrjú börn, Benedikt Aron, Klöru Margréti og Sylvíu Kristínu. Guðmundur á tvær dætur og fimm barnabörn.
        4) Björn, f. 20.6. 1954, bókaútgefandi, maki Elísabet Guðbjörnsdóttir, lögfræðingur. Þau eiga þrjú börn, Önnu Lísu, Ingibjörgu og Jónas Bergmann.

        General context

        Relationships area

        Related entity

        Brynleifur Tobíasson (1890-1958) Yfirkennari MA (20.4.1890 - 27.2.1958)

        Identifier of related entity

        HAH02964

        Category of relationship

        family

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Seinnikona Sigurlaugs sonar Brynleifs var Ingibjörg Þ. Stephensen (1936-2001) Ingibjörg var dóttir Þorsteins Ö Stephensen (1904-1991) leikara, systir hans var; Guðrún Ögmundsdóttir Stephensen (1914-2011) kona Jónasar

        Related entity

        Sigríður Stefánsdóttir Stephensen (1841-1889) Flatey ov (25.5.1841 - 18.5.1889)

        Identifier of related entity

        HAH07477

        Category of relationship

        family

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Guðrún kona hans var sonardóttir Hans Stephensen sonar Sigríðar

        Related entity

        Björn Leví Jónsson (1904-1979) Veðurfræðingur frá Torfalæk (4.2.1904 - 15.9.1979)

        Identifier of related entity

        HAH02865

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Björn Leví Jónsson (1904-1979) Veðurfræðingur frá Torfalæk is the sibling of Jónas Bergmann Jónsson (1908-2005) fræðslustjóri, frá Torfalæk

        Dates of relationship

        8.4.1908

        Description of relationship

        Related entity

        Guðmundur Jónsson (1902-2002) skólastjóri Bændaskólans á Hvanneyri (2.3.1902 - 28.11.2002)

        Identifier of related entity

        HAH01286

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Guðmundur Jónsson (1902-2002) skólastjóri Bændaskólans á Hvanneyri is the sibling of Jónas Bergmann Jónsson (1908-2005) fræðslustjóri, frá Torfalæk

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Torfi Jónsson (1915-2009) Torfalæk (28.7.1915 - 17.7.2009)

        Identifier of related entity

        HAH02086

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Torfi Jónsson (1915-2009) Torfalæk is the sibling of Jónas Bergmann Jónsson (1908-2005) fræðslustjóri, frá Torfalæk

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Ingibjörg Björnsdóttir (1875-1940) Torfalæk (28.5.1875 - 10.9.1940)

        Identifier of related entity

        HAH06697

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Ingibjörg Björnsdóttir (1875-1940) Torfalæk is the parent of Jónas Bergmann Jónsson (1908-2005) fræðslustjóri, frá Torfalæk

        Dates of relationship

        8.4.1908

        Description of relationship

        Related entity

        Jón Guðmundsson (1878-1967) Torfalæk (22.1.1878 - 7.9.1967)

        Identifier of related entity

        HAH04909

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Jón Guðmundsson (1878-1967) Torfalæk is the parent of Jónas Bergmann Jónsson (1908-2005) fræðslustjóri, frá Torfalæk

        Dates of relationship

        8.4.1908

        Description of relationship

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH01605

        Institution identifier

        IS HAH

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        28.6.2017

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Maintenance notes