Jón Guðmundsson (1892-1992) Sölvabakka

Original Digital object not accessible

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Jón Guðmundsson (1892-1992) Sölvabakka

Parallel form(s) of name

  • Jón Guðmundsson Sölvabakka

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      26.11.1892 - 3.7.1992

      History

      Minning: Jón Guðmundsson Sölvabakka Fæddur 26. nóvember 1892 Dáinn 3. júlí 1992 Þeim fækkar ört hérna megin grafar sem fæddir voru á síðustu öld. Þeir, sem enn eru á lífi eða hafa lifað fram undir þetta, eiga það sameiginlegt að muna tvenna tímana. Þeir hafa lifað ótrúlegar breytingar, tekið sjálfir þátt í þeim hver á sína vísu og kunnað frá ýmsu að segja, sem óðum er að hverfa í djúp gleymskunnar.
      Einn þessara manna var Jón Guðmundsson á Sölvabakka, sem andaðist 3. þ.m. á Héraðshælinu á Blönduósi á 100. aldursári. Augljóst virðist að ekki hafi verið auður í garði hjá ungu hjónunum á Sölvabakka sem þar voru að byrja búskapinn árið 1924. Búferlaflutningarnir, sem að framan er getið, voru síst til þess fallnir að svo gæti verið. En þau voru samhent, vinnufús og úrræðasöm. Jón var ötull við að nytja sjávargagn jarðarinnar og dró þaðan marga björg í bú. Þau hrepptu þó áföll, sem aðrir bændur á þeirri tíð, af völdum verðfalls og fjárpesta. Eigi að síður höfðu þau sigur í sinni baráttu. Þau eignuðust jörðina sína, bættu hana og byggðu upp og komu upp sínum myndarlega barnahópi. Þau hættu búskap árið 1964 og skömmu síðar tók yngsti sonurinn, Jón Árni, við jörðinni ásamt konu sinni Björgu Bjarnadóttur og hafa þau gert jörðina að stórbýli. Jón á Sölvabakka var gæfumaður. Hann náði því marki, sem hann hafði sett sér ungur, að verða efnalega sjálfstæður bóndi og hann átti fagurt ævikvöld. Um aldarfjórðungsskeið dvaldi hann heima á Sölvabakka í skjóli sonar og tengdadóttur, en hún reyndist honum frábær að umhyggjusemi er árin færðust yfir. Hann var heilsugóður með afbrigðum, las og skrifaði gleraugnalaust og hélt skýrri hugsun til síðustu stundar. Hann naut þess að sjá jörð og bú, sem honum þótti svo vænt um, eflast og dafna í höndum ungu hjónanna og studdi sjálfur að hagsæld heimilisins meðan kraftar leyfðu. Hann fylgdist einnig með afkomendum sínum og konu sinnar, sem sífellt voru að vaxa úr grasi, og hann gat svo sannarlega verið ánægður með hópinn sinn. Hann tók þátt í gleði fólksins, fór á þorrablót og aðrar samkomur, og í jólaboðunum síðustu vakti hann á því athygli að hann hefði lifað 100 jól.
      Jón hafði frábært minni af svo gömlum manni að vera, einkum er laut að viðburðum fyrri tíðar. Hann var í lægra meðallagi að vexti, grannur og nokkuð lotinn í herðum, en þegar hann sagði frá var eins og hann færðist í aukana. Skilmerkilegt málfarið og glampinn í augum hans sýndi að löngu liðnir atburðir stóðu honum ljóslifandi fyrir sjónum. Hann bjó yfir miklum fróðleik um fyrri tíðar lífshætti, sem að litlu leyti mun hafa varðveist. Yfir honum hvíldi æðruleysi og ró öldungsins, en þó átti hann í senn kjark og bjartsýni, viljann til að lifa lífinu hvern dag sem guð gaf. Sú var og gæfa hans að þurfa ekki á sjúkrahús nema fáa daga.

      Places

      Hjaltabakkakot: Brún Svartárdal: Sölvabakki 1924-1992:

      Legal status

      Functions, occupations and activities

      Bóndi:

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Jón á Sölvabakka var fæddur í Hjaltabakkakoti 26. nóvember 1892, sonur hjónanna Guðnýjar Sæbjargar Finnsdóttur og Guðmundar Guðmundssonar, sem að mestu voru af húnvetnsku bergi brotin. Hann hóf búskap í Skrapatungu árið 1915 ásamt Finni bróður sínum og hafði þá haft bústaðaskipti með foreldrum sínum sex eða sjö sinnum frá fæðingu.
      Árið 1920 kvæntist hann Magdalenu Karlottu Jónsdóttur frá Balaskarði, mikilli mannkostakonu. Þau hófu búskap á Brún í Svartárdal, en fluttu búsetu sína tvívegis áður en þau byrjuðu búskap á Sölvabakka, en þar varð síðan heimili þeirra til dauðadags.
      Magdalena kona Jóns andaðist 1972, en þau hjónin eignuðust þessi börn:

      1. Jón Árni, dó 14 ára gamall.
      2. Guðmundur Jón, verkamaður á Blönduósi, var kvæntur Ingibjörgu Jónsdóttur frá Akri. Þau hjón eru bæði látin.
      3. Guðný Sæbjörg, húsfreyja, gift Finni Kristjánssyni bónda, Skerðingsstöðum, Reykhólasveit.
      4. Ingibjörg Þórkatla, húsfreyja á Blönduósi, gift Einari Guðlaugssyni frá Þverá.
      5. Finnbogi Gunnar, járnsmiður í Reykjavík, kvæntur Sigurbjörgu Sigfúsdóttur frá Breiðavaði.
      6. Sigurður Kristinn, húsasmiður á Blönduósi, kvæntur Guðrúnu Ingimarsdóttur frá Skeggsstöðum í Svarfaðardal.
      7. Jón Árni, bóndi á Sölvabakka, kvæntur Björgu Bjarnadóttur frá Haga.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Einar Húnfjörð Guðlaugsson (1920-2008) Blönduósi (30.3.1920 - 1.4.2008)

      Identifier of related entity

      HAH01184

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      6.5.1948

      Description of relationship

      faðir Þórkötlu konu Einars

      Related entity

      Ari Jónsson (1906-1979) sýsluskrifari Blönduósi (8.5.1906 - 3.12.1979)

      Identifier of related entity

      HAH01543

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      17.7.1920

      Description of relationship

      Magðalena kona Jóns var systir Ara.

      Related entity

      Guðný Pálsdóttir (1866-1942) Balaskarði (11.9.1866 - 13.6.1942)

      Identifier of related entity

      HAH04173

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      17.7.1920

      Description of relationship

      Kona Jóns á Sölvabakka var Magðalena (1892-1972) ´dóttir Guðnýar.

      Related entity

      Emma Jónsdóttir (1890-1976) Spákonufelli (4.8.1890 - 29.2.1976)

      Identifier of related entity

      HAH03318

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      17.7.1920

      Description of relationship

      Jón á Sölvabakka var giftur Magdalenu systur Emmu.

      Related entity

      Daníel Halldór Magnússon (1954) (11.11.1954 -)

      Identifier of related entity

      HAH03007

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Kona Helga (1973) sonar Daníels var Valgerður K Sverrisdóttir (1975) dóttir Karlottu Sigríðar (1955) Sigurðardóttur Kr Jónssonar sonar Jóns á Sölvabakka

      Related entity

      Grund Blönduósi (1897-1930) /Klaufin (1897 -)

      Identifier of related entity

      HAH00651

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      1897

      Description of relationship

      Barn þar

      Related entity

      Sigríður Guðmundsdóttir (1896-1955) frá Skraptungu (12.9.1896 - 26.5.1955)

      Identifier of related entity

      HAH03332

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Sigríður Guðmundsdóttir (1896-1955) frá Skraptungu is the sibling of Jón Guðmundsson (1892-1992) Sölvabakka

      Dates of relationship

      12.9.1896

      Description of relationship

      Related entity

      Finnur Guðmundsson (1891-1971) Skrapatungu og Blönduósi (9.3.1891 - 10.5.1971)

      Identifier of related entity

      HAH03427

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Finnur Guðmundsson (1891-1971) Skrapatungu og Blönduósi is the sibling of Jón Guðmundsson (1892-1992) Sölvabakka

      Dates of relationship

      26.11.1892

      Description of relationship

      Related entity

      Árni Magnús Guðmundsson (1900-1923) (20.10.1900 - 8.2.1923)

      Identifier of related entity

      HAH03558

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Árni Magnús Guðmundsson (1900-1923) is the sibling of Jón Guðmundsson (1892-1992) Sölvabakka

      Dates of relationship

      20.10.1900

      Description of relationship

      Related entity

      Magðalena Jónsdóttir (1892-1972) Sölvabakka (7.12.1892 - 3.4.1972)

      Identifier of related entity

      HAH04441

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Magðalena Jónsdóttir (1892-1972) Sölvabakka is the spouse of Jón Guðmundsson (1892-1992) Sölvabakka

      Dates of relationship

      17.7.1920

      Description of relationship

      Related entity

      Bóndaklettur við Sölvabakka ((1880))

      Identifier of related entity

      HAH00393

      Category of relationship

      hierarchical

      Type of relationship

      Bóndaklettur við Sölvabakka is owned by Jón Guðmundsson (1892-1992) Sölvabakka

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Related entity

      Sölvabakki á Refasveit ((1950))

      Identifier of related entity

      HAH00220

      Category of relationship

      hierarchical

      Type of relationship

      Sölvabakki á Refasveit is controlled by Jón Guðmundsson (1892-1992) Sölvabakka

      Dates of relationship

      1924

      Description of relationship

      1924-1964

      Related entity

      Finnbogi Jónsson (1930-2004) frá Sölvabakka (7.7.1930 - 9.1.2004)

      Identifier of related entity

      HAH09468

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Finnbogi Jónsson (1930-2004) frá Sölvabakka is the child of Jón Guðmundsson (1892-1992) Sölvabakka

      Dates of relationship

      7.7.1930

      Description of relationship

      Related entity

      Jón Árni Jónsson (1921-1935) Sölvabakka (5.5.1921 - 5.7.1935)

      Identifier of related entity

      HAH05507

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Jón Árni Jónsson (1921-1935) Sölvabakka is the child of Jón Guðmundsson (1892-1992) Sölvabakka

      Dates of relationship

      5.5.1921

      Description of relationship

      Related entity

      Ingibjörg Jónsdóttir (1928-2022) Blönduósi (25.9.1928 - 12.4.2022)

      Identifier of related entity

      HAH06446

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Ingibjörg Jónsdóttir (1928-2022) Blönduósi is the child of Jón Guðmundsson (1892-1992) Sölvabakka

      Dates of relationship

      25.9.1928

      Description of relationship

      Related entity

      Guðmundur Jónsson (Gúi) (1925-1983) frá Sölvabakka (17.3.1925 - 13.5.1983)

      Identifier of related entity

      HAH04067

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðmundur Jónsson (Gúi) (1925-1983) frá Sölvabakka is the child of Jón Guðmundsson (1892-1992) Sölvabakka

      Dates of relationship

      17.3.1925

      Description of relationship

      Related entity

      Árni Jónsson (1937-2004) Sölvabakka (7.10.1937 - 9.3.2004)

      Identifier of related entity

      HAH01565

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Árni Jónsson (1937-2004) Sölvabakka is the child of Jón Guðmundsson (1892-1992) Sölvabakka

      Dates of relationship

      7.10.1937

      Description of relationship

      Related entity

      Guðný Finnsdóttir (1864-1923) Skrapatungu (20.9.1864 - 13.10.1923)

      Identifier of related entity

      HAH04185

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðný Finnsdóttir (1864-1923) Skrapatungu is the parent of Jón Guðmundsson (1892-1992) Sölvabakka

      Dates of relationship

      26.11.1892

      Description of relationship

      Related entity

      Guðmundur Guðmundsson (1856-1935) Svangrund (4.8.1856 - 8.9.1935)

      Identifier of related entity

      HAH04027

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðmundur Guðmundsson (1856-1935) Svangrund is the parent of Jón Guðmundsson (1892-1992) Sölvabakka

      Dates of relationship

      26.11.1892

      Description of relationship

      Related entity

      Sigurður Kr. Jónsson (1933-2017) Blönduósi (8.7.1933 - 23.8.2017)

      Identifier of related entity

      HAH10013

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Sigurður Kr. Jónsson (1933-2017) Blönduósi is the child of Jón Guðmundsson (1892-1992) Sölvabakka

      Dates of relationship

      8.8.1933

      Description of relationship

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01570

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 26.6.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes