Guðrún Jónsdóttir (1900-1995) Bjarnastöðum

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Guðrún Jónsdóttir (1900-1995) Bjarnastöðum

Parallel form(s) of name

  • Guðrún Jónsdóttir Bjarnastöðum

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      25.11.1900 - 1.12.1995

      History

      Guðrún Jónsdóttir fæddist á Másstöðum í Vatnsdal 25. nóvember 1900. Hún lést á Héraðssjúkrahúsinu á Blönduósi 1. desember síðastliðinn. Útför Guðrúnar fer fram frá Þingeyrarkirkju í dag. Eftir lát Elínborgar stóð Guðrún ljósmóðir, systir Jóns, fyrir búi með honum í nokkur ár, væn kona og vönduð. En árið 1919 hafði ung og gjörvuleg kona komið sem kaupakona að Sveinsstöðum. Hét hún Halldóra Gestsdóttir og var systir Gests Gestssonar kennara sem þá var í Skólahúsinu í Sveinsstaðahreppi. Þau systkin voru frá Hjarðardal í Dýrafirði. Þau Halldóra og Jón á Másstöðum gengu í hjónaband og bjuggu saman á Másstöðum í 27 ár. Þau eignuðust dótturina Elínborgu Margréti, síðar kennara á Skagaströnd, árið 1921 og er hún nú ein eftirlifandi þeirra systra. Þær eldri dætur Jóns voru nú orðnar gjafvaxta og Þorbjörg gift. Guðrún hleypti heimdraganum og fór aftur á Kvennaskólann 1919­1920 og síðar til Ísafjarðar á árunum 1922­-1924 að læra karlmannafatasaum. En Guðrún, líkt og þær systur allar, var hög í höndum. Um þessar mundir átti ungur bóndason heima á Bjarnastöðum. Hann hét Pálmi Zophaníasson og var nokkru yngri en Guðrún. Pálmi hafði mikið hrokkið hár og hafði gullfallega rithönd. Faðir hans var löngu látinn en móðirin, Guðrún Pálmadóttir, var systir Sigurðar Pálmasonar kaupmanns á Hvammstanga. Hún var skörungskona sem lifði til hárrar elli í skjóli Zophaníasar Zophaníassonar, bílstjóra á Blönduósi.

      Þau Guðrún og Pálmi felldu hugi saman og hófu búskap á Bjarnastöðum árið 1929. Bjarnastaðir voru lítil jörð og jarðnæðið minnkaði við það að bóndi þar á bæ hafði skipt á miklu stórþýfðu landi sem lá að landi Hnausa og svonefndum Skýjubakka sem var votengi utar í sveitinni. Heyskapur var óhægur á Skýjubakka, en þessi skipti sýna hve bændur á fyrri tímum áttu erfitt með jarðarbætur, því nú er slétt og mikið tún þar sem stóra kargaþýfið var áður, og enginn hefði látið það af hendi nú. Heyskapur utan túns á Bjarnastöðum var því yfirleitt óhægur, og aldrei var heyjað á Skýjubakka eftir að ég kom norður, 1942, heldur leigðar engjar frá Hjallalandi á hólmum í Flóðinu, tveimur bæjarleiðum framar í dalnum. Flóðið er stórt og fagurt vatn í ytri hluta Vatnsdals. Þar hópast svanir á haustin og þar er mikil lax- og silungsgengd, og eiga Bjarnastaðir sinn hlut í þeirri búbót sem fiskurinn er. Engan fisk veit undirrituð betri en sjógengna bleikju úr ósnum. Þau Guðrún og Pálmi settust því ekki að á jörð sem kalla mætti hæga, enda féll þeim sjaldan eða aldrei verk úr hendi. Í búskapartíð Guðrúnar og Pálma voru húsakynni lengst af úr torfi og var baðstofan meira en 100 ára. Útihús voru einnig úr sama efni. Ekki minnist undirrituð þó annars en að þarna væri alltaf hreint og þokkalegt og okkur leið vel í hlýju þeirra jarð- og náttúruefna sem umvafði okkur í bænum. Viðarþiljur og trégólf, torfþekja og þykkir veggir. Eins og áður sagði féll Guðrúnu sjaldan verk úr hendi. Hún söng oft við vinnu sína og kenndi mér stelpukrakkanum marga góða vísuna. Hún kenndi mér líka ýmislegt til verka, sem ég nýt enn góðs af. Aldrei var þó nein vinnuharka á Bjarnastöðum og við Elli yngsti sonur hjónanna höfðum nægan tíma til leikja og leti. Synirnir á bænum voru þrír Jón Pálmi, Zophanías og Ellert. Pálmi bóndi var listaskrifari og hefði e.t.v. notið sín betur á öðrum vettvangi en í búskap. Hann gerði lengi markaskrá þeirra Húnvetninga. Pálmi lést í ágúst 1971 en þá var nokkru áður búið að reisa steinhús á Bjarnastöðum og jafna gamla bæinn við jörðu. Ellert sonur þeirra hjóna hafði nú tekið við búi á Bjarnastöðum og kvænst Vigdísi Bergsdóttur, vænni konu ættaðri úr Sandgerði, og bjó Guðrún í skjóli þeirra til æviloka. Einkar vel fór á með Vigdísi og Guðrúnu. Það er mikil gæfa þegar svo vel tekst til. Eldri synirnir bjuggu líka í nágrenninu, fyrst á Hjallalandi og hin síðari ár í Hnausum. Það var því ætíð skammt milli Guðrúnar og sona hennar. Ellert og Vigdís eignuðust þrjú börn, en fyrir átti Vigdís tvær dætur. Fjölskyldan er samhent og veit ég að Guðrún leit á sig sem ömmu og langömmu allra barna og barnabarna Vigdísar.

      Saga Guðrúnar á Bjarnastöðum hart nær heila öld er saga tímabils þar sem hvað mestar breytingar hafa orðið með þjóðinni. Í öllu þessu tók Guðrún lifandi þátt. Með jafnri lund og æðruleysi kljáðist hún við kreppuna á fyrstu búskaparárum sínum og tók líka fegins hendi þeim þægindum sem um síðir komu á Bjarnastaði. Eftir að hún var sjálf hætt búskap annaðist hún oft heimilisstörfin á Bjarnastöðum. Það var einkum þegar Vigdís vann annars staðar með búskapnum. Á efri árum stundaði hún líka mikið hannyrðir og myndirnar sem hún gerði og gaf okkur ættingjum og vinum eru okkur hjartfólgnar gersemar unnar af vandvirkni og ótrúlega vel gerðar. Hannyrðum hætti Guðrún þó að mestu um nírætt, taldi sig ekki sjá nægilega vel lengur. Áfram las hún sér til ánægju og minnið var trútt til æviloka en henni var farin að förlast heyrn. Fyrir stuttu datt Guðrún og lærbrotnaði og upp úr þeim veikindum stóð Guðrún ekki. Sex dögum eftir að við höfðum sótt hana heim til að árna henni heilla á 95 ára afmælinu fékk hún hægt andlát.

      Places

      Másstaðir í Vatnsdal: Bjarnastaðir: Kvsk á Blönduósi 1917-1918 og aftur 1919-1920:

      Legal status

      Kvsk á Blönduósi 1917-1918 og aftur 1919-1920:
      lærði karlmannafatasaum á Ísafirði 1922-1924

      Functions, occupations and activities

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hennar voru Jón Kristmundur Jónsson og Elínborg Margrét Jónsdóttir frá Másstöðum.
      Systur Guðrúnar voru Þorbjörg, f. 4.1. 1900, d. sept. 1952, Oddný, f. 27.10. 1902, d. 11.1. 1989, og einnig átti hún eina hálfsystur samfeðra en það er Elínborg Margrét, f. 30.1. 1921.

      1. apríl 1929 giftist Guðrún Pálma Zophoníassyni, f. 28.1. 1904, d. 28.8. 1971.
        Þau hjón eignuðust þrjá syni:
        1) Jón Pálma, f. 2.5. 1930;
        2) Zophonías, f. 28.4. 1931, þeir búa báðir í Hnausum 1;
        3) Ellert f. 16.4. 1938, kvæntur Vigdísi Th. Bergsdóttur, f. 28.2. 1941. Þau búa á Bjarnastöðum en börn þeirrra eru Gunnar, f. 24.1. 1965, Pálmi, f. 21.6. 1966, og Oddný Rún, f. 30.12. 1973, en fyrir átti Vigdís Pálínu Bergeyju f. 27.10. 1960, og Heklu, f. 8.5. 1963.
        Barnabarnabörn Guðrúnar eru orðin sex.

      Fóstursonur Guðrúnar var;
      Þorbjörn Ólafsson 10. des. 1920 - 4. sept. 2005. Var á Bjarnastöðum, Þingeyrasókn, A-Hún. 1930. Fósturforeldrar Pálmi Zophoníasson og Guðrún Jónsdóttir. Verkamaður í Reykjavík 1945. Síðast bús. í Reykjavík og kona hans 1942; Vigdís Hólmfríður Ingimarsdóttir 26. júlí 1918 - 5. ágúst 1993. Var á Hvammstanga 1930. Húsfreyja í Reykjavík 1945. Síðast bús. í Reykjavík. Þau slitu samvistir eftir 26 ára sambúð.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Zophonías Zophoníasson (1906-1987) Zophoníasarhúsi Blönduósi (6.7.1906 - 10.5.1987)

      Identifier of related entity

      HAH02125

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      27.4.1929

      Description of relationship

      Guðrún var gift Pálma bróður Zophoníasar

      Related entity

      Benedikt Benjamínsson (1878-1953) Þórðarhús (17.5.1878 - 5.11.1953)

      Identifier of related entity

      HAH02561

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      27.4.1929

      Description of relationship

      Guðrún var gift Pálma Zophoníassyni fyrra hjónabandsbarni Guðrúnar Pálmadóttur konu Benedikts

      Related entity

      Guðrún Pálmadóttir (1878-1960) Æsustöðum (4.1.1878 - 26.7.1960)

      Identifier of related entity

      HAH04463

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      27.4.1929

      Description of relationship

      Maður Guðrúnar á Bjarnastöðum var Pálmi sonur Guðrúnar Solveigar

      Related entity

      Halldóra Gestsdóttir (1890-1977) Másstöðum (2.5.1890 - 17.9.1977)

      Identifier of related entity

      HAH04708

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      14.9.1920

      Description of relationship

      dóttir fyrri konu Jóns Kr

      Related entity

      Guðrún Þorbjörnsdóttir (1946) (6.11.1946 -)

      Identifier of related entity

      HAH03544

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      6.11.1946

      Description of relationship

      Þorbjörn faðir Guðrúnar var alinn upp hjá Guðrúnu á Bjarnastöðum

      Related entity

      Þór Þorbjörnsson (1944) (13.8.1944 -)

      Identifier of related entity

      HAH03567

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Guðrún var uppeldismóðir Þorbjörns föður Þórs

      Related entity

      Kvennaskólinn á Blönduósi 1911-1920 (1911-1920)

      Identifier of related entity

      HAH00115 -11-20

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      1917-1920

      Description of relationship

      námsmey þar 1917-1918 framhaldsnám þar 1919-1920

      Related entity

      Másstaðir í Þingi ((1930))

      Identifier of related entity

      HAH00504

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      25.11.1900

      Description of relationship

      fædd þar

      Related entity

      Þorsteinn Guðmundsson (1926-1996) frá Másstöðum (10.2.1926 - 22.2.1996)

      Identifier of related entity

      HAH02153

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Þorsteinn Guðmundsson (1926-1996) frá Másstöðum is the sibling of Guðrún Jónsdóttir (1900-1995) Bjarnastöðum

      Dates of relationship

      10.2.1926

      Description of relationship

      Uppeldisbróðir

      Related entity

      Elínborg Margrét Jónsdóttir (1921-2007) Kennari á Skagaströnd (30.6.1921 - 7.1.2007)

      Identifier of related entity

      HAH01197

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Elínborg Margrét Jónsdóttir (1921-2007) Kennari á Skagaströnd is the sibling of Guðrún Jónsdóttir (1900-1995) Bjarnastöðum

      Dates of relationship

      30.6.1921

      Description of relationship

      samfeðra

      Related entity

      Þorbjörg Jónsdóttir (1900-1952) frá Másstöðum (4.1.1900 -24.11.1952)

      Identifier of related entity

      HAH06505

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Þorbjörg Jónsdóttir (1900-1952) frá Másstöðum is the sibling of Guðrún Jónsdóttir (1900-1995) Bjarnastöðum

      Dates of relationship

      25.11.1900

      Description of relationship

      Related entity

      Oddný Jónsdóttir (1902-1989) Hnausum (27.10.1902 - 11.1.1989)

      Identifier of related entity

      HAH01778

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Oddný Jónsdóttir (1902-1989) Hnausum is the sibling of Guðrún Jónsdóttir (1900-1995) Bjarnastöðum

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Alsystkin

      Related entity

      Pálmi Zóphoníasson (1904-1971 Bjarnastöðum (28.1.1904 - 28.8.1971)

      Identifier of related entity

      HAH07444

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Pálmi Zóphoníasson (1904-1971 Bjarnastöðum is the spouse of Guðrún Jónsdóttir (1900-1995) Bjarnastöðum

      Dates of relationship

      27.4.1929

      Description of relationship

      Börn þeirra; 1) Jón Pálmi, f. 2.5. 1930, ókv bóndi Hnausum 1 2) Zophonías, f. 28.4. 1931, ókv bóndi Hnausum 1 3) Ellert f. 16.4. 1938, kvæntur Vigdísi Th. Bergsdóttur, f. 28.2. 1941. Þau búa á Bjarnastöðum

      Related entity

      Bjarnastaðir í Þingi ((900))

      Identifier of related entity

      HAH00068

      Category of relationship

      hierarchical

      Type of relationship

      Bjarnastaðir í Þingi is controlled by Guðrún Jónsdóttir (1900-1995) Bjarnastöðum

      Dates of relationship

      1928

      Description of relationship

      1928-1975

      Related entity

      Zophonías Pálmason (1931) Hnausum 1 (28.4.1931 -)

      Identifier of related entity

      HAH06083

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Zophonías Pálmason (1931) Hnausum 1 is the child of Guðrún Jónsdóttir (1900-1995) Bjarnastöðum

      Dates of relationship

      28.4.1931

      Description of relationship

      Related entity

      Jón Pálmason (1930) Hnausum (2.5.1930 -)

      Identifier of related entity

      HAH05681

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Jón Pálmason (1930) Hnausum is the child of Guðrún Jónsdóttir (1900-1995) Bjarnastöðum

      Dates of relationship

      2.5.1930

      Description of relationship

      Related entity

      Ellert Pálmason (1938) Bjarnastöðum í Þingi (16.4.1938 -)

      Identifier of related entity

      HAH03284

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Ellert Pálmason (1938) Bjarnastöðum í Þingi is the child of Guðrún Jónsdóttir (1900-1995) Bjarnastöðum

      Dates of relationship

      16.4.1938

      Description of relationship

      Related entity

      Elínborg Margrét Jónsdóttir (1868-1914) Másstöðum (21.11.1868 - 8.9.1914)

      Identifier of related entity

      HAH03230

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Elínborg Margrét Jónsdóttir (1868-1914) Másstöðum is the parent of Guðrún Jónsdóttir (1900-1995) Bjarnastöðum

      Dates of relationship

      25.11.1900

      Description of relationship

      Related entity

      Jón Kr. Jónsson (1867-1947) Másstöðum í Þingi (28.6.1867 - 28.8.1947)

      Identifier of related entity

      HAH05643

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Jón Kr. Jónsson (1867-1947) Másstöðum í Þingi is the parent of Guðrún Jónsdóttir (1900-1995) Bjarnastöðum

      Dates of relationship

      25.11.1900

      Description of relationship

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01327

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 21.5.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Sources

        ®GPJ ættfræði
        ÆAHún bls 1022

        Maintenance notes