Guðbjartur Guðmundsson (1937-2015) ráðunautur Blönduósi

Auðkenni

Tegund einingar

Einstaklingur

Leyfileg nafnaform

Guðbjartur Guðmundsson (1937-2015) ráðunautur Blönduósi

Hliðstæð nafnaform

  • Guðbjartur Guðmundsson ráðunautur Blönduósi

Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum

Aðrar nafnmyndir

Auðkenni fyrir stofnanir

Lýsing

Fæðingar- og dánarár

1.12.1937 - 12.1.2015

Saga

Guðbjartur ólst upp í Tálknafirði, hann fór á sjóinn og vann við almenn sveitarstörf. Árið 1959 fór hann til náms á Hvanneyri, Akranesi og Akureyri og útskrifaðist frá Hvanneyri sem búfræðikandídat árið 1965.
Árið 1965 fluttu hann og Margrét á Blönduós og starfaði hann þar sem ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Austur-Húnvetninga í yfir fjörutíu ár ásamt því að starfa við Ræktunarsamband Austur-Húnvetninga.
Guðbjartur var mikill félagsmálamaður, hafði mikinn áhuga á íþróttum, spilaði bridge og var ötull stuðningsmaður Umf. Hvatar og heiðursfélagi í Ungmennasambandi Austur-Húnvetninga. Hann var virkur félagi í Lions í yfir fjörutíu ár og starfaði mikið að bæjarmálum og var virkur þátttakandi í Framsóknarflokknum.
Útför Guðbjarts fór fram frá Blönduóskirkju 24. janúar 2015, og hófst útförin kl. 14.

Staðir

Kvígindisfell Tálknafjörður: Hvanneyri: Akranes: Akureyri: Blönduós:

Réttindi

Starfssvið

Lagaheimild

Búfræðingur frá Hvanneyri: Ráðunautur:

Innri uppbygging/ættfræði

Guðbjartur Guðmundsson fæddist að Kvígindisfelli í Tálknafirði 1. desember 1937. Hann lést á Sjúkrahúsi Akureyrar 12. janúar 2015.
Foreldrar hans voru Þórhalla Oddsdóttir, f. 12.7. 1899, d. 3.8. 1997, og Guðmundur K. Guðmundsson, f. 6. 5. 1890, d. 6. 6. 1967. Guðbjartur var þrettándi af sautján systkinum og eru níu þeirra á lífi.

Hinn 20. júní 1964 kvæntist Guðbjartur eftirlifandi eiginkonu sinni Margréti Ásmundsdóttur, f. 5.3. 1938, og eignuðust þau þrjár dætur.
1) Ragney, f. 22. 3. 1963, hennar sonur er Kristinn Ólafsson, unnusta Mareva Nardelli.
2) Þórhalla, f. 19.11. 1964, hennar maki 30.12.2000; Vilhjálmur K. Stefánsson, börn þeirra eru Margrét Arna, unnusti Ágúst Þorvaldsson, Guðbjartur Sindri, unnusta Ágústa Rós Ingibjörnsdóttir, og dóttir Vilhjálms af fyrra hjónabandi er Hildur Björg, dóttir hennar er Brynhildur Þorbjörg Þórhallsdóttir.
3) Jónína Margrét, f. 15.2. 1981, hennar maki er Sigurjón Þór Vignisson, börn þeirra eru Freyja Rán og Jónatan Þór.

Almennt samhengi

Tengdar einingar

Tengd eining

Búnaðarsamband Austur Húnavatnssýslu (1928-2016) (1928-2016)

Identifier of related entity

HAH10001

Flokkur tengsla

associative

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Margrét Ásmundsdóttir (1938-2015) Húnabraut 34 Blönduósi (5.3.1938 - 11.11.2015)

Identifier of related entity

HAH01740

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Margrét Ásmundsdóttir (1938-2015) Húnabraut 34 Blönduósi

er maki

Guðbjartur Guðmundsson (1937-2015) ráðunautur Blönduósi

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Húnabraut 34 Blönduósi ((1960))

Identifier of related entity

HAH00825/34

Flokkur tengsla

stigveldi

Type of relationship

Húnabraut 34 Blönduósi

er í eigu

Guðbjartur Guðmundsson (1937-2015) ráðunautur Blönduósi

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Access points area

Efnisorð

Staðir

Occupations

Stjórnsvæði

Authority record identifier

HAH01258

Kennimark stofnunar

IS HAH

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Staða

Loka

Skráningarstaða

Fullt

Skráningardagsetning

18.5.2017

Tungumál

  • íslenska

Leturgerð(ir)

Athugasemdir um breytingar

  • Clipboard

  • Flytja út

  • EAC

Related subjects

Tengdir staðir