Margrét Ásmundsdóttir (1938-2015) Húnabraut 34 Blönduósi

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Margrét Ásmundsdóttir (1938-2015) Húnabraut 34 Blönduósi

Parallel form(s) of name

  • Margrét Ásmundsdóttir Blönduósi

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      5.3.1938 - 11.11.2015

      History

      Margrét Ásmundsdóttir fæddist í Dal í Borgarnesi 5. mars 1938. Hún lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut 11. nóvember 2015. Margrét ólst upp í Borgarnesi hjá foreldrum sínum sem bjuggu ásamt föðursystur hennar og hennar börnum í Dal. Margrét var yngsta barnið í hópnum. Hún gekk í barna- og gagnfræðaskólann í Borgarnesi. Árið 1965 fluttu Margrét og Guðbjartur á Blönduós þar sem hann starfaði sem ráðunautur Austur-Húnvetninga í yfir 40 ár. Útför Margrétar fer fram frá Blönduóskirkju í dag, 21. nóvember 2015, klukkan 13.

      Places

      Dalur í Borgarnesi: Blönduós:

      Legal status

      Húsmæðraskólinn á Varmalandi:

      Functions, occupations and activities

      Hún tók mikinn þátt í skátastarfi og varð meðal annars Gilwell-skáti, söng í kór og var í leikfimihópi. Eftir gagnfræðaskólann vann hún í Mjólkursamlaginu í Borgarnesi. Í kringum tvítugt var hún í húsmæðraskólanum á Varmalandi fjóra vetur, fyrst sem nemandi og síðan í þrjá vetur sem aðstoðarstúlka og aðstoðarkennari. Margrét var að mestu leyti heimavinnandi en vann á sláturhúsinu allmörg haust, í Blindraiðjunni Björk, Pólarprjóni og leikskólanum. Einnig passaði hún oft börn á heimili sínu og aðstoðaði börn við heimanám.

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hennar voru Jónína Kristín Eyvindsdóttir, f. 26.1. 1901, d. 13.9. 1982, og Ásmundur Jónsson, f. 27.4. 1892, d. 4.12. 1967.
      Margrét var yngst tíu systkina og er Valdimar bróðir hennar einn á lífi. Systkini Margrétar eru í aldurs röð; Guðbjörg eldri sem dó ung, Björn, Ragnar, Ragnheiður, Þórdís, Guðbjörg yngri, Eyvindur, Jón Benedikts og Valdimar sem lifir systur sína.
      Hinn 20. júní 1964 giftist Margrét eiginmanni sínum Guðbjarti Guðmundssyni, f. 1.12. 1937, d. 12.1. 2015.
      Eignuðust þau þrjár dætur:
      1) Ragney, f. 22.3. 1963. Sonur hennar er Kristinn Ólafsson, unnusta Mareva Nardelli.
      2) Þórhalla, f. 19.11. 1964, maki hennar er Vilhjálmur K. Stefánsson. Börn þeirra eru Margrét Arna, unnusti Ágúst Þorvaldsson, Guðbjartur Sindri, unnusta Ágústa Rós Ingibjörnsdóttir og dóttir Vilhjálms af fyrra hjónabandi er Hildur Björg, unnusti Ívar Atli Sigurjónsson. Dóttir Hildar er Brynhildur Þorbjörg Þórhallsdóttir.
      3) Jónína Margrét, f. 15.2. 1981, hennar maki er Sigurjón Þór Vignisson. Börn þeirra eru Freyja Rán og Jónatan Þór.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Guðbjartur Guðmundsson (1937-2015) ráðunautur Blönduósi (1.12.1937 - 12.1.2015)

      Identifier of related entity

      HAH01258

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðbjartur Guðmundsson (1937-2015) ráðunautur Blönduósi is the spouse of Margrét Ásmundsdóttir (1938-2015) Húnabraut 34 Blönduósi

      Dates of relationship

      20.6.1964

      Description of relationship

      Börn þeirra; 1) Ragney, f. 22.3. 1963. 2) Þórhalla, f. 19.11. 1964, maki hennar er Vilhjálmur K. Stefánsson. 3) Jónína Margrét, f. 15.2. 1981, hennar maki er Sigurjón Þór Vignisson

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01740

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 5.7.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes