Auðkenni
Tegund einingar
Fyrirtæki/stofnun
Leyfileg nafnaform
Brattahlíð í Svartárdal
Hliðstæð nafnaform
- Eiríksstaðakot í Svartárdal
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
1900 -
Saga
Bærinn stendur við þjóðveginn á bakka Svartár skammt norðan Eiríksstaða. Tún er ræktað af grýttum mó við erfiðar aðstæður. Svartárdalsfjall rís að baki túnsins afar hlíðabratt með all stóra og mjög djúpa tjörn við brekkuræturnar yst í Brattahlíðarlandi. Þar utar er sérkennileg kvos, kölluð Gróf sem skiptist á mill Brattahlíðar og Fjósa. Jörðin hét áður Eiríksstaðakot. Íbúðarhús byggt 1900 timbur og torf, fjós yfir 6 gripi, fjárhús yfir 120 fjár. Hesthús fyrir 10 hross. Hlöðuður 20 m3. Tún 10 ha. Veiðiréttur í Svartá.
Staðir
Svartárdalur; Bólstaðarhlíðarhreppur; Eiríksstaðr; Skálholtsstóll;
Réttindi
Eyrekstadakot, bygt fyri manna minni í úthögum, og er talinn fimti partur allarar jarðarinnar, og hefur þetta býli afdeilt tún og engi en öllum öðrum landgæðum óskift frá
heimajörðunni.
Jarðardýrleiki x € og so tíundast fjórum tíundum. Eigandinn Skálholtsstaðar ráðsmaður Arngrímur Bjarnason. Ábúandinn Sveinn Jónsson. Landskuld lx álnir. Betalast í landaurum heim til umboðsmanns innan hjeraðs. Leigukúgildi iii. Leigur betalast í smjöri til umboðsmannsins. Kvaðir öngvar.
Kvikfje ii kýr, xx ær, iiii sauðir veturgamlir, xiii lömb, ii hross, annað með fyli. Fóðrast kann áðurtalið kvikfje á heyjum og útigángi. Kostir og ókostir sem segir um Eiríksstaði, nema hjer
grandar túninu ekkert, og óhætt er bænum fyri vatnagángi.
Starfssvið
Örnefni; Svartá; Eiríksstaðir; Svartárdalsfjall; Gróf; Fjósar; Eiríksstaðakot:
Lagaheimild
Bær er nefndur Brattahlíð
byggt var þar upp slotið.
Áður hét það alla tíð
Eiríksstaðakotið.
[Guðvarður Guðvarðsson (1883-1915) Hjú í Bólstaðarhlíð, Holtastaðasókn, Hún. 1901. Vinnumaður á Guðlaugsstöðum, Svínavatnssókn, A-Hún. 1910. Bóndi á Álfhóli í Hofssókn 1915. Kirkjubækur fæðingarsóknar Guðvarðar brunnu en við fermingu í Bergsstaðasókn er hann sagður fæddur 30.6.1883.]
Innri uppbygging/ættfræði
Ábúendur;
1936-1959- Guðmundur Finnbogi Jakobsson 18. ágúst 1884 - 31. maí 1959. Var í Syðra-Tungukoti, Bólstaðarhlíðarsókn, Hún. 1890. Bóndi í Kárahlíð, Bergstaðasókn, A-Hún. 1930. Var á Bröttuhlíð, Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. 1957. Bóndi þar. Kona hans; Jóhanna Bjarnveig Jóhannesdóttir 24. okt. 1886 - 28. jan. 1987. Húsfreyja í Kárahlíð, Bergstaðasókn, A-Hún. 1930. Var á Bröttuhlíð, Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Bólstaðarhlíðarhreppi.
1949- Valtýr Blöndal Guðmundsson 20. júlí 1915 - 22. des. 2011. Var í Kárahlíð, Bergstaðasókn, A-Hún. 1930. Var í Bröttuhlíð, Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. 1957. Bóndi á Bröttuhlíð í Bólstaðarhlíðarhreppi. Kona hans; Ingibjörg Jónína Baldvinsdóttir 29. okt. 1931 - 16. feb. 2013. Var í Reykjavík 1945. Verslunarmaður í Reykjavík, síðar á Seltjarnarnesi.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH-Bæ
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 12.2.2019
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Heimildir
Guðmundur Paul
Jarðabók Páls Vidalín 1708. Bls 378
file:///C:/Users/Notandi/AppData/Local/Microsoft/Windows/INetCache/IE/TYHI81U1/H%C3%BAnavatnss%C3%BDsla.pdf
Húnaþing II bls. 190.